Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Page 26
 30. ágúst 2019KYNNINGARBLAÐHeilsa og núllstilling Litli klettur er öflugt iðnaðarfyr-irtæki sem sinnir margs konar erfiðum verkefnum sem snúa að steinslípun, múrbroti, kjarnaborun og fleiru. „Við erum með öflug verfkæri og bora sem komast í gegnum hvaða vegg eða klöpp sem er. Við vinnum fjölbreytt verk sem fólk leitar til okkar með, enda er mottóið okkar að það séu engin vandamál, bara verkefni sem þarf að vinna. Við erum vanir að bretta upp ermarnar og erum síður en svo hræddir við að verða skítugir á höndunum,“ segir Guðbjartur Jóns- son. Litli klettur fjárfesti í nýjum krana- bíl í sumar til þess að geta tekið að sér fjölbreyttari verkefni. „Þetta er afar öflugur 12 tonna Palfinger 0389 krani. Lengdin á krananum er 28 metrar sem gerir okkur auðvelt að komast á staði þar sem þröngt er um svona stóra bíla. Eins og sést á myndinni að ofan getum við lyft yfir húsþök. Í mestu lengd er lyftigeta kranans 300 kíló, en mesta lyftigeta er heil 12 tonn. Ef þú þarft mann í verkefnið þá mætum við að vörmu spori.“ Nei, það er ekki kviknað í … Stærsti hluti steinslípunar er slípun á nýbyggingum, bæði á lofti og veggj- um. Einnig þarf oft að slípa yfirborð í eldri húsum vegna breytinga eða annars. „Við höfum meðal annars slípað hraunaða, steinaða og málaða veggi. Enn fremur höfum við verið að slípa niður flísalím og ýmislegt annað eins og myglusvepp. Það getur komið töluvert af ryki við steinslípun og hér áður fyrr var stundum kallað í slökkvi- liðið út af öllu rykinu. Fólk hélt að það væri kviknað í húsunum. Í dag hefur tækninni fleygt fram og eru öflugar ryksugur nú orðnar staðalbúnað- ur hjá öllum okkar starfsmönnum. Slökkviliðsheimsóknum hefur snar- fækkað í kjölfarið,“ segir Guðbjartur og hlær. Fjölbreytt verkefni „Við hjá Litla kletti erum vel tækjum búnir fyrir kjarnaborun. Við getum borað í loft, veggi og gólf algerlega óháð steypugerð og þykkt. Einnig erum við með margar gerðir af steypusögum. Gildir einu hvort þú þarft að taka fyrir nýjum glugga eða hurðargati, breikka glugga eða hurðargat – eða fjarlægja veggi, gólf eða svalir. Við sögum fyrir þig óháð steypugerð og þykkt. Að auki fræsum við fyrir hita- og rafmagnsrörum og tökum að okkur rifverkefni á léttum veggjum, loftum, gólfum úr timbri, gifsi og vikri.“ Lítil en kröftug „Við búum yfir margra ára reynslu af afar fjölbreytilegum verkefnum og til að geta verið í fremstu röð í okkar fagi þá höfum við fjárfest mikið í nýjum og góðum tækjum. Við erum meðal annars með sérlega öfluga rafmagnsgröfu sem er nógu lítil til þess að fara inn um venjulegar dyr, en nógu öflug til þess að brjóta upp þrjóskustu klappir sem venjulegar brotvélar bíta ekkert á. Við notuð- um hana t.d. í Smáralind til þess að brjóta niður í klöpp fyrir rafmagns- stiga.“ Hjá okkur starfa reyndir starfs- menn sem vinna verkin fljótt og vel. Eitt símtal og við mætum á staðinn og gefum góð ráð eða gott tilboð. Nánari upplýsingar má nálgast á litliklettur.is Járnháls 5F, 110 Reykjavík Sími: 699-0355 Netpóstur: lk@litliklettur.is Opið er alla virka daga frá 8.00– 17.00. Engin vandamál, bara verkefni sem þarf að leysa 12 tonna Palfinger 0389 krani. LITLI KLETTUR:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.