Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Qupperneq 42
42 30. ágúst 2019STJÖRNUSPÁ
Meyja - 23. ágúst – 22 .sept.
Þú ert búin/n að hugsa mikið betur um
þig sjálfa/n undanfarið og það sést.
Fólk laðast að ljómanum þínum en það
eru einhverjar sérstaklega aðlaðandi
breytingar í vændum í þínu lífi sem
einhvern veginn er glóra í. Lofaðar meyjar
mega búast við því að vera öflugri í
ástalífinu þar sem þeim líður betur í eigin
skinni.
Fiskur - 19. febrúar – 20. mars
Þú ert svo skapandi og rómantísk/ur í
vikunni að það hálfa væri nóg! Þér eru
allir vegir færir og lofaðir fiskar setja í
fimmta gír og heilla makann líkt og um
hveitibrauðsdaga væri að ræða. Ein-
hleypir fiskar fara grimmt á markaðinn og
eiga úr vöndu að ráða – svo mikill verður
æsingurinn.
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl – 20. maí
Vatnsberi -
20. janúar – 18. febrúar
Steingeit -
22. desember – 19. janúar
Bogamaður -
22. nóvember – 21. desember
Sporðdreki -
23. október – 21. nóvember
Vog - 23. sept. – 22. október
Ljón - 23. júlí – 22. ágúst
Krabbi - 22. júní – 22. júlí
Tvíburi - 21. maí – 21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir frá 1.–7. september
Sumarið hefur verið gott og stútfullt af
alls kyns freistingum. Nú er komið að því
að þú hugir að heilsunni. Ekki láta hvað
sem er ofan í því og fylgstu vel með því
hvort einhverjar fæðutegundir fara illa
í þig. Þú gætir verið með óþol fyrir mat
sem þú lætur reglulega ofan í þig.
Nú verður þú að hætta að pæla í öllum
í kringum þig og fókusera á þig sjálfa/n.
Það gengur ekki upp að allt sem fer
aflaga í þínu lífi sé öðrum að kenna. Þú
verður að horfa gagnrýnt á þig sjálfa/n
og gera þér grein fyrir hverju þú ert góð/
ur í og í hverju þú mátt bæta þig. Að horfa
í eigin barm er nauðsynlegt upp á farsæla
framtíð þína.
Það er skemmtileg ferð í vændum sem
þú nýtir til að hreinsa hugann og hugsa
framtíðina upp á nýtt. Þú stendur á mikl-
um tímamótum og það skiptast á gleði og
sorg í hjarta þínu. Þú ert hins vegar fullviss
um að þú hafir tekið rétta ákvörðun en
ekkert í þessu lífi er annaðhvort svart eða
hvítt. Leyfðu þér að syrgja það sem var
áður en þú heldur áfram.
Þú ert mikil sögumanneskja og nærð vel
að höfða til tilfinninga fólks. Þú hyggur á
frama sem einyrki og leitar að hinum full-
komna stað þar sem sköpunargáfa þín
getur verið óheft. Þú þarft að umkringja
þig skapandi fólki til að komast áfram og
þú finnur nákvæmlega þann stað sem þú
átt að vera á.
Vikan er ansi erfið því pyngjan er létt. Nú
þarftu að fara að forgangsraða betur í
lífinu svo þú sért ekki alltaf á hvínandi
kúpunni þegar að mánaðamótin nálgast.
Skipulegðu þig betur og þú losnar við
óþarfa fjárhagsstreitu. Hún er mann-
skemmandi og best að forðast hana eins
og heitan eldinn.
Ástamálin eru í blóma hjá voginni og
henni hefur sjaldan liðið betur ef litið er
til einkalífsins. Í vinnunni þarftu að varast
tungulipra einstaklinga sem reyna að fá
þig til að gera allt mögulegt án þess að fá
það borgað til baka. Þú ert alveg að fara
að finna þína hillu – hilluna sem þú getur
dvalið lengi á og verið sátt/ur. Vittu til!
Það er manneskja sem þú hefur dæmt
í bak og fyrir sem kemur þér rækilega á
óvart í þessari viku. Þú getur nefnilega
verið rosalega dómhörð/-harður og
lærdómur vikunnar er einfaldlega sá að
dæma ekki bók eftir kápunni. Þetta á líka
við í ástalífinu hjá einhleypum sporðdrek-
um. Var hinn eini, rétti elskhugi beint fyrir
framan þig allan þennan tíma?
Það eru miklar hræringar í lífi þínu og þú
færð stórkostlegt tækifæri tengt vinnunni
sem þýðir að þú nærð markmiðum þínum.
Nú þarftu því að setja þér ný markmið
og mundu að miða hærra, hærra, hærra!
Þú munt ná á toppinn ef þú heldur vel á
spilunum, heldur fólki nærri þér sem ögrar
þér og lokar aldrei á hugmyndir – sama
hve skringilegar þær virðast í fyrstu.
Þú ferð í sveitaferð með hópi sem er þér
mjög kær og þessi ferð á eftir að lifa í
minnum manna í mörg, mörg ár – jafnvel
til æviloka. Hópurinn er þéttur og lítill
og þú nærð að létta ýmsu af þér sem
þú hefur ekki getað gert undanfarið. Þú
mætir aftur í raunveruleikann léttari og
skemmtilegri manneskja og skilur allan
pirring eftir í sveitinni.
Þú ert orðin þreytt/ur á því að halda fólki
alltaf í svona mikilli fjarlægð. Þú þarft að
læra að opna á tilfinningar þínar og opna
þig fyrir fólki en jafnframt að passa upp
á að fara ekki gegn eigin sannfæringu.
Það er nefnilega manneskja sem þarf
að fá þig án brynjunnar og það er mjög
nauðsynlegt einmitt núna.
Hrútur - 21. mars – 19. apríl
Lesið í tarot Lífar
Sigga Eyrún
Fædd 09. maí 1976
naut
n áreiðanleg
n þolinmóð
n praktísk
n ábyrg
n þrjósk
n á erfitt með
málamiðlanir
Kalli
Fæddur: 21.
október 1972
vog
n samvinnu-
þýður
n félagslyndur
n kurteis
n diplómatískur
n óákveðinn
n forðast
ágreining
Afmælisbörn vikunnar
n 1. september Brynjar Þór Níelsson alþingismaður, 59 ára
n 2. september Gunnar Jarl Jónsson þúsundþjalasmiður, 36 ára
n 3. september Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur, 54 ára
n 4. september Mugison tónlistarmaður, 43 ára
n 6. september Halldóra Rut Baldursdóttir leikkona, 36 ára
n 7. september Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona, 46 ára
Í draumum liggur
leiðin að sjálfinu
L
íf Magneudóttir, borgar-
fulltrúi Vinstri grænna, hóf
vikuna með algjörri frétta-
bombu þar sem hún sagði að
meirihluti í borginni væri samstíga
í að minnka ætti, eða afnema með
öllu, kjötframboð í mötuneytum
borgarinnar – í fullyrðingu sem
hún dró síðan aðeins úr. Kannski
voru það viðbrögðin sem settu
Líf í baklás en þessar hugmyndir
hennar hleyptu illu blóði í margar
kjötæturnar. DV fannst því tilvalið
að leggja tarotspil fyrir Líf til að sjá
hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir
hana, en lesendur dv.is geta sjálfir
dregið tarot spil á vefnum.
Ekki gera neitt í fljótræði
Fyrsta spilið sem kemur upp
í tarotlagningu Lífar er
Stríðsvagninn, sem lýs-
ir umræðunni í vik-
unni alveg prýði-
lega. Spilið táknar
að Líf veit ekki
nákvæmlega
hvert hún er að
fara eða hvern-
ig hún á að ná
fram markmið-
um sínum. Hún
er alltaf til í að
fara ótroðnar
slóðir og er búin
miklum metnaði,
en hins vegar
nýtir
hún ekki hæfileika sína alltaf rétt.
Líf þarf að vera varkár til að styggja
ekki andstæðinga sína. Hún má
ekki gera neitt í fljótræði, heldur
þarf að þroska með sér meðvit-
und um dýpt máttarins sem býr
innra með henni. Líf er ekki alltaf
góð í mannlega þættinum og því
fyrr sem hún gerir sér grein fyrir
því, því betra. Mannlegi þáttur-
inn á nefnilega til að standa í vegi
hennar og táknar spilið að hún
eigi frekar að gefa eftir ef vanda-
mál blossa upp á milli hennar og
vinnufélaga.
Hugsjón og málamiðlun
Líf er kjörkuð kona og annað spilið
sem kemur upp í tarotlestrin-
um er 2 mynt. Hún
hefur mikla að-
lögunarhæfni og
þó að skortur á
mann-
legri
hæfni komi henni stundum í
klandur þá nær hún fljótt og ör-
ugglega að lægja öldurnar og
koma sér aftur á skrið. Líf er
einstaklega jákvæð og það kemur
henni langt. Þessi kjötumræða er
sem stormur í vatnsglasi því Líf fer
málamiðlunarleiðina til að koma
á jafnvægi. Hún stjórnast af hug-
sjón einni, en stundum þarf að
gefa aðeins eftir í hugsjóninni til
að fá það sem maður vill.
Svarið er í þögninni
Lokaspilið hennar Lífar er Æðsti
meyprestur. Það er líkt og þetta
mikla hitamál hafi ýtt við Líf um
að fara í meiri sjálfsskoðun. Inn-
an tíðar verður hún meðvituð
um hver tilgangur hennar er í því
starfi sem hún vinnur og hvern-
ig hún nær markmiðum sínum.
Líf er hvött til að fylgjast vel með
draumum sínum, skrifa þá niður
og hlusta á hvað þeir eru að reyna
að segja. Þeir eru góð tenging inn
í sjálfið og undirmeðvitundina. Í
gegnum þá uppgötvar hún grund-
vallareðli sitt og hver hún er í
raun og veru. Um leið og Líf
tekur sjálfið sitt í sátt, ná-
kvæmlega eins og það
er, opnar það nýja
sköpunarvídd.
Líf er einnig
hvött til
að
nýta
sér mátt
þagnarinn-
ar. Oft segja
fá orð meira en
þúsund. Þögnin ýtir
undir jafnvægi innra
með henni og með þögn-
ina að vopni verður hún
færari í að takast á við ögr-
andi og erfið verkefni. n
Sigga og Kalli í það heilaga
– Svona eiga þau saman
T
ónelsku turtildúfurnar Sigríður Eyrún
Friðriksdóttir, eða Sigga Eyrún, og Karl
Olgeirsson, oftast kallaður Kalli, gengu
í það heilaga nýverið eftir nokkurra ára
samband. Hamingjan geislar af þeim og hafa
þau staðið þétt við bak hvort annars í gegnum
súrt og sætt. DV lék því forvitni á að vita hvern-
ig þau passa saman ef litið er í stjörnumerkin.
Sigga er naut og Kalli er vog og það má með
sanni segja að hér sé um fullkomna blöndu að
ræða. Þarna mætast tveir helmingar og verða
að einni heild. Það er líkt og örlögin hafi grip-
ið í taumana og sent þau til hvort annars þar
sem þau leita bæði að öryggi í ástarsambandi
og eru einstaklega listræn bæði tvö.
Sambandið þróaðist hægt og hugsanlega
gerðu þau sér hvorugt grein fyrir að þetta gæti
orðið til frambúðar. Hins vegar kemur smátt
og smátt í ljós hve vel nautið og vogin passa
saman. Nautið elskar sjarma vogarinnar því ef
þrjóska nautið fær ekki sínu framgengt mætir
ljúfa vogin á svæðið og græðir öll sár. Vogin á
móti dýrkar hve munúðarfullt nautið er. Naut-
ið og vogin hafa jafnframt mikið til að kenna
hvort öðru. Vogin hjálpar nautinu að sjá mál
frá öllum hliðum og nautið hjálpar voginni að
vera ekki svona óákveðin.