Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2019, Síða 46
46 FÓKUS 30. ágúst 2019
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
YFIRHEYRSLAN
Búi
Bjarmar
„Ég óttast aukna
eigingirni og
þjóðernishyggju í kjöl-
far hamfarahlýnunar
Búi Bjarmar Aðalsteinsson er
hönnuður og rekur hönnunarstofuna
Grallaragerðina ehf. Búi vinnur að mestu
að samfélagsmiðuðum verkefnum og
vinnur þessa stundina að umbótum á
móttöku barna í leit að alþjóðlegri vernd
í samstarfi við UNICEF á Íslandi.
Hvar líður þér best?
Mér líður mjög vel heima hjá mér, en annars líður mér best þegar ég er
að hreyfa mig, hvort sem það er úti í fótbolta eða í ræktinni.
Hvað óttastu mest?
Ég óttast aukna eigingirni og þjóðernishyggju í kjölfar hamfarahlýnun-
ar, þar sem við hættum að hjálpa öðrum og hugsum bara um okkur sjálf.
Hvert er þitt mesta afrek?
Það er náttúrlega að eignast tvö frábær börn og eina frábæra eiginkonu
og síðan að syngja í kór. Það hafa allir efast um sönghæfileika mína
frá því að ég var barn og því var mjög stór stund að syngja með kór í
brúðkaupi.
Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Vann einu sinni fyrir Gallup við að telja fólk sem kom út úr 10-11. Mig
minnir að ég hafi verið tilkynntur til lögreglunnar á endanum, tók
mjög langan tíma að sannfæra hana um að ég væri þarna í eðlilegum
erindagjörðum.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Búinn á því.
Hvernig væri bjórinn Búi?
Búi er bragðmikill bjór í Vínarstíl með mikilli fyllingu og dökkum blæ.
Bruggaður úr íslensku byggi. Sérvalið malt gefur honum rústrauðan lit
með keim af gúmmíi og malbiki.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Að hlæja hátt þegar maður prumpar.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Tæma sigtið í vaskinum. Eitthvað við slímugt hár sem ég er ekki hrifinn af.
Besta bíómynd allra tíma?
Eilífa sólskin hins flekklausa huga (e. Eternal sunshine of the Spotless
Mind)
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Að geta flogið.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Ætli það sé ekki að stofna fyrirtæki sem hefur það að markmiði að þróa
matvæli sem búin eru til úr skordýrum. Endaði með því að sett var á
reglugerð sem bannaði alla sölu á matvælum sem innihalda skordýr á
Íslandi. Það var samt mjög gaman – fyrir utan reglugerðarpartinn.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
„Ég er örugglega með athyglisbrest“ – Verandi sjálfur greindur með
athyglisbrest og ofvirkni þá er maður ekki með athyglisbrest ef maður
gleymir einstaka sinnum ð taka með sér poka í búði a, og ef einhver
heldur að hann sé með athyglisbrest þá mæli ég með því að viðkom-
andi fari og láti athuga það hjá sálfræðingi eða geðlækni og fái ráðgjöf
varðandi það.
Hvaða getur þú sjaldnast staðist eða ert góður í að
réttlæta að veita þér?
Að sitja lengi á klósettinu þegar ég er að kúka til þess að fá frið og smá
tíma með sjálfum mér.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég er á leiðinni í masternám í Hollandi þar sem ég mun nema samfé-
lagsmiðaða hönnun.
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
/D
V