Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 ^nuaunui. Uthlutað úr Húsvemdunarsjóði Þann 6. apríl s.l. fengu þau Agústa Friðfinnsdóttir og Run- ólfur Bjarnason Suðurgötu 25, úthlutað styrk að upphæð 400 þúsund krónum úr Elúsvernd- unarsjóði Akraness. A fundi byggingarnefndar þann 14. desember sl. tóku þau ásamt börnum sínum, þeim Ingu Rún og Runólfi, við ávísun úr hendi Björns Guðmundssonar, for- manns byggingarnefndar. Það er mat byggingarnefndar að vel hafi tekist til með viðgerðir á húsinu og að það muni verða til sóma, þegar framkvæmdum er að fullu lokið. MM/akranes.is Göngugarpurinn Jón Pétursson á Akranesi er sérstakur áhugamaður um Akrafjall og hefur hann m.a. staðið fyrir því að gestabækur hafa verið á tindum fjallsins í mörg ár. Jóni er Akra- fjall mjög kært og efrirfarandi kveðskapur hans um fjallið lýsir því vel. Hugrenning um Akrafjall Akrafjalliö verður okkar prýði ekki megum við þar neinu breyta. Þó að dagar ár og aldir líði árstíðirnar Fjallið ætíð skreyta. Dagar vorsins gróður vekja á bala vaknar lífið aftur hátt í salnum. Lœkir fjallsins Ijúft við steina hjala líða þeir til sjávar frjálst úr dalnum. Lífsins gleði gefur sumar bjarta gengur þá um hagann bóndans smali. Bjartar nœtur náttúrunni skarta notalega hlíðar strýkur svali. Haustið kemur húmar að á kvöldin höfði sínu drjúpa blómin smáu. Leikur birtu og lita tekur völdin leggur fugl úr hamrabelti háu. Kemur vetur kaldan hefur vindinn kastar snjó með kröftugum hœtti. Klaka hrannir koma þá á tindinn kuldalega eignast fjallið drœtti. Víða starfar skemmdar höndin hrjúfa helgidóma ýmsa vill hún brjóta. Cöngum vel um landið okkar Ijúfa látum þá sem eftir koma njóta. I maí 2004 Jón Pétursson Hafinir semja um skógrækt Frá síðasta fundi Grundartangahafnar. Síðastliðinn fimmtudag var haldinn síðasti fundur í stjórn Grundartangahafnar áður en Faxaflóahafnir sf taka til starfa um áramót. Við sama tækifæri var haldinn síðasti fulltrúaráðs- fundur Grundartangahafnar og á honum var skrifað undir sam- komulag Grundartangahafnar og Skógræktarfélags Borgar- fjarðar um eftirlit og ráðgjöf með skógrækt hafnarinnar í landi Klafastaða. Samningur- inn fjallar um að Skógræktar- félagið mun verða Faxaflóa- höfnum sf. til ráðgjafar og ráðuneytis varðandi meðferð skóræktarinnar í landi Klafa- staða. M.a. felst í því að leggja til plöntun og grisjun trjáa en markmið hafharinnar er að trjá- plöntum sem þarf sað grisja úr skóginum verði deilt út til fé- lagasamtaka á Akranesi og í Borgarfirði í framtíðinni. I skógræktinni eru um 100 þús. plöntur og nauðsynlegt að umhirða og meðferð verði eins og best er á kosið. A síðasta ári fór talsvert magn af trjáplönt- um sem teknar voru úr nýju vegstæði við Grundartanga til golfklúbbanna í Borgarnesi og á Akranesi. Samningurinn er til 5 ára og verðmæti hans fyrir Skógræktarfélagið um 2,7 m.kr. á tímabilinu. Að lokum má velta því fyrir sér hvort þetta samstarf leiði ekki af sér nýjan Hafnaskóg? GE Handverksfólk í Gallerí Grúsk í Grundarfirði rekur jólamarkað á aðventunni líkt og undanfarin ár þar sem er að finna margt eigulegra muna. Á myndinni má sjá hana Mundu munda tvo vaska jólasveina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.