Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 50
50
ÞRIÐTUDAGUR 21. DESEMBER 2004
^&£ssunuw
Kveðjur úr héraði
Það er gamall og góður siður að senda jóla-
bréf, en það er nokkurskonar ítarefni með
jólakortum, þar sem auk þess að senda jóla-
kveðjur eru sagðar helstu íréttir úr sveitinni.
Skessuhom ákvað því að leita til nokkurra val-
inkunnra Vestlendinga úr öllum hlutum land-
hlutans og biðja þá að senda lesendum
Skessuhoms nokkurskonar jólabréf og kunn-
um við þeim miklar þakkir fyrir.
Gott ár í Borgamesi
Kveðjafrá Borgamesi
Héðan úr Borgarnesi er allt
gott að frétta. Mikið er byggt
af atvinnuhúsnæði núna og er
það mjög af hinu góða. Einnig
er verið að byrja á byggingu
fjölbýlishúss á lóðum gamla
VlS-hússins og Skátahússins,
en það verður flutt niður við
Skallagrímsgarð. Þá eru skóli,
íþróttahús, skátar og tónlistar-
skóli nánast komnir á sama
stað í bænum. Það gleður mig
mjög að skátastarfið er að eflast
hér í bæ.
Borgfirðingahátíðin var á
sínum stað en við vorum frekar
óheppin með veðrið í þetta
sinn. Mjög áhugaverð verslun-
arsýning var í pakkhúsinu suð-
urfrá. Þremur hlöðnum vörð-
um var komið hér fyrir í Borg-
arnesi með upplýsingum úr
Egilssögu og er það frábært
framtak hjá þeim í Landnáms-
setrinu. Nú á haustdögum
blésu tveir framtakssamir
Borgnesingar til Sauðamessu
sem hófst með því að sauðfé
var rekið niður Borgarbrautina
til réttar á „Rauða
torginu“ svokallaða.
Síðan rak hver uppá-
koman aðra og var
þetta mikil og góð
skemmtan, sem dróg
til sín þúsundir
manna. Vonum við að
Sauðamessan sé komin
til að vera. I ágúst voru
„Vesturbæjarleikarn-
ir.“ Þar er keppt í ó-
hefðbundnum íþrótt-
um t.d. stígvélakasti,
Brákarkasti, rólu-
stökki, sviðakappáti
o.fl. Að lokum borða
svo allir saman holu-
kjöt og meðlæti. Þetta
árið borðuðum við
inni í gamla Samlag-
inu og voru menn
sammála um að ekki
mætti rífa það því að þarna
væri komið félagsheimili Vest-
urbæinga. Gamla sláturhúsið
við Brákarbraut var rifið í sum-
ar, nú sést það best að ekki var
til einskis barist þegar menn
björguðu brúnni á sínum tíma.
Hollvinasamtök Englendinga-
víkur hafa staðið í endurbygg-
ingu á efra pakkhúsinu og er
það langt komið og þá er bara
að byrja á neðra húsinu.
Hjá mér hefur árið verið við-
burðaríkt. Fjölskyldan stækk-
aði og við bættist tengdadóttir
og tvö barnabörn svo þetta
hefur verið mikið gæfuár hjá
mér og mínum. Eg vona að
Vestlendingar og landsmenn
allir eigi góð og friðsæl jól og
að komandi ár verði okkur öll-
um gott og gæfuríkt.
Jólakveðja úr Borgarnesi,
Ingibjörg Hargrave.
Litríkt mannlif og vöxtur í þjónustu
Eftir því sem nær dregur jól-
um og daginn styttir fjölgar
ljósunum og sköpunargleði
Dalamanna fær að njóta sín.
Það er orðinn árlegur viðburð-
ur að veita þeim viðurkenningu
sem þykja hafa fallegustu jóla-
skreytinguna á húsi sínu það
árið og hvetur þetta Dalamenn
að vanda vel til verksins. Hefur
þetta endurvakið „rúntinn," þar
sem fólk ekur um bæinn á
kvöldin og skoðar skreytingar.
Sá staður, sem gestafjöldi eykst
hvað mest á fyrir jólin, er Hér-
aðsbókasafnið. Ekki er það
margt sem fæst ókeypis á þess-
um tímum en Dalamenn njóta
þess eitt árið enn að fá bækurn-
ar frítt að láni og er boðið upp á
allar nýjustu jólabækurnar á
safninu. Er þetta í takt við
Grunnskólann í Búðardal, sem
nú á vetrarmánuðum er í átaki
að bæta læsi meðal nemenda
skólans. Hafa börnin verið
hvött með einum eða öðrum
hætti til lesturs og heimsóknir
þeirra á bókasafnið hafa aukist.
Kom til góðrar samvinnu skól-
ans og heimila í héraðinu og
foreldrar barna komu í heim-
sókn og lásu upphátt íýrir nem-
endurna.
Það var áfall fyrir marga þeg-
ar að það lá ljóst fyrir að ekki
yrði slátrað í Búðardal í haust
og hafa stjórnendur ásett sér að
leita allra leiða til að rekstri slát-
urhúss verði haldið áfram hér í
náinni framtíð. Gleðitíðindi
voru að ákveðið var að hefja
rekstur Ungmenna- og tóm-
stundabúða að Laugum fýrir
ungmenni á aldrinum 14-15
ára. Samningur var undirritaður
með viðhöfn þann 11. ágúst sl.
og fáum við svo að sjá ung-
mennin á nýja árinu.
Skipað hefur verið í Jörva-
gleðinefnd, sem hefur það hlut-
verk að stjórna Jörvagleðinni,
sem haldin verður á Góunni.
Þetta er menningarviðburður
með ýmsum uppákomum, leik-
félagið setur upp leikrit og end-
ar hátíðin á stórdansleik sem
mun vera öllu siðsamari en þeir
voru fýrir 1708 áður en Jörva-
gleðin var aflögð fýrir siðasakir.
Þá dönsuðu menn víkivaka í
Haukadalnum líkt og færeyski
danshópurinn gerði á Eiríks-
stöðum í sumar og sömdu þeir
ljóðabálk, tuttugu erindi, um
Eirík rauða sem Dalamenn eiga
vonandi eftir að dansa á kom-
andi ári.
Hestamenn fagna gerð nýs
reiðvallar í Búðardal og reið-
vega sem búið er að leggja víðs-
vegar um Dalina og kemur það
á móts við vaxandi fjölda hópa
hestamanna sem leggja leið sína
um Dalina á sumrin. Ferða-
Kveðjajrá Dölunum
mennskan er orðinn stór þáttur
hér í Dölum og hefur tími
ferðamannsins lengst þar sem
innlendir hópar hafa sótt hing-
að haustmánuðina í óvissuferð-
ir.
Einn þessara hópa voru
Lionsmenn af Alftanesi og kon-
ur þeirra. Voru þeir hrifnir af
þeim möguleikum sem við höf-
um upp á að bjóða. Þeir komu
frá Brú og yfir Haukadalsskarð,
að Eiríksstöðum í sögustund.
Þá var Mjólkurstöðin heimsótt
en hún varð 40 ára á árinu. Var
síðan ekið um söguslóðir Lax-
dælu og gist á fjögurra stjörnu
hóteli á Laugum. Þar var dans-
að og sungið við undirleik
heimamanna. Mikil ánægja ríkti
í hópnum með þessa ferð og
töluðu þeir um að „erfitt yrði að
toppa hana að ári.“ Svona um-
mæli eru hvetjandi og fær fólk
til að opna augun fýrir þessari
vaxandi atvinnugrein sem er
komin til að vera hér í Dölun-
um.
Mjög góð þátttaka var á hinu
árlega jólahlaðborði. Búið er að
tendra ljósin á jólatrénu í bæn-
um og jólamessur framundan.
Er óhætt að segja að Dalamenn
séu komnir í jólaskap.
Jólakveðjur úr Haukadalnum,
Helga Agústsdóttir