Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 59

Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 59
jnLðsunuu. ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 59 Hestamaður einn í héraðinu hélt upp á stórafmæli sitt og gerði það verklega. Komu menn ríðandi um nokkurn veg til veislunnar en að henni aflokinni sá Höskuldur til mannaferða og og að þar myndu veislugestir vera á heimleið. Sýndist honum að sumir fær- leikarnir heíðu fengið nægilega hreyfingu í bili: Halda í lestum heim til sín heibursgestir núna. Þetta eru flestallt fyllisvín meb ferbahesta lúna. Fyrsta vorið sitt í Reykjavík undi Höskuldur misjafnlega hag sínum og orti einn yndislegan vordag: Einn ég skima allt í kring, - er nokkur ab kalla? Þab er ab grœnka lauf og lyng í lautunum upptil fjalla. Þá gat verið dægrastytting að skrifa vinum sínum í sveitinni og segja fréttir úr höfuðborginni: Mörg er lagleg lipurtá sem labbar hér um bceinn. Uppundir ég eina sá úti á götu um daginn. Ein á mínum vegi varb vœnleg hringaþöllin. Ég sé í anda Sœluskarb og Sokkabandafjöllin. Fullorðin kona sem heyrði þessi örnefni kannaðist ekki við að hafa heyrt þau áður og taldi að þau mundu vera í Þingeyjarsýslum og munu þau vafalaust finnast þar sem víðar. Eftir að Höskuldur fluttist til Reykjavíkur var hann um tíma verkstjóri hjá Reykjavík- urborg við viðhald og nýsmíði á leikvöllum borgarinnar. Eitt sinn voru þeir félagar kvaddir til starfa að Silungapolli en þar réði þá ríkjum kona sem Sigríður hét. Hafði hún ýmsar skoðanir á verk- lagi þeirra og sá ekki ástæðu til að fara dult með þær enda gekk þeim illa að skila verki svo henni líkaði. Þegar þeir félagar voru að yfirgefa vinnustað að loknu dagsverki þurfti Höskuldur að snúa til baka eftir verkfærum en þegar hann kom aftur að bílnum segir hann: Sœlt er ab hafa nú Sigríbi kvatt og sjá hana hvorki né heyra. Því varb ég feginn, ég segi þab satt. - Ég svoleibis gat ekki meira! Síðustu ár sín lifði Höskuldur á Dvalarheimili aldraðra á Blönduósi og var þar með orðinn Húnvetningur. („Það sem að helst hann varast vann, varð þó að koma yfir hann.“) Ekki veit ég hvort hann var kominn þangað þegar eftirfarandi vísa varð til: Ört mér gerir aldur skil, óbum röddin dvínar og nú eru farnar fjandans til framtennurnar mínar. Höskuldur andaðist 11. mars 1981 og látum við þættinum lok- ið með vísu sem hann skrifaði á mynd af sér og gamla Grána: Þegar endar œviskeib opnast vegir þrábir. Hinumegin heim á leib höldum vib svona bábir. Með þökkfyrir lesturinn Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1367 og 849 2715 dd@hvippinn.is Auk munnlegra heimilda er stuðst við Borgfirskar æviskrár, bókina Svipþing eftir Svein Skorra Höskuldsson og viðtal og grein í sunnudagsblaði Tímans 1965. S Attræð og eldhress: Jóhanna Olafsdóttir á 6 afkomendur í landsliðum í lok októbermánaðar átti heiðurskonan Jóhanna Olafs- dóttir frá Beitistöðum áttatíu ára afmæli. I tilefni dagsins var haldið kaffisamsæti henni til heiðurs í sal Grundaskóla á Akranesi. Mikið var um myndatökur eins og gengur og gerist við slík tækifæri og var þá þessi skemmtilega mynd tekin af afmælisbarninu með sex af barnabörnum hennar sem öll hafa verið eða eru í landsliðshópum Islands í mis- munandi íþróttagreinum. Osk- ar Orn Guðbrandsson og Garðar Orn Þorvarðarson í sundi, Arnar Geir Magnússon í knattspyrnu lögreglumanna, Agúst Orlaugur Magnússon og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir í knattspyrnu og Karitas Osk O- lafsdóttir í badminton. Aðspurð segist Jóhanna vera mjög stolt af þessum krökkum eins og af öllum hinum afkom- endunum sínum: „Oll eru þau mjög dugleg og gengur vel í lífinu, en mest er um vert að hafa góða sál í hraustum lík- ama því þá líður öllum vel.“ Hún segir að lítið hafi farið fyrir hennar eigin íþróttaafrek- um um ævina og hennar afrek hafi aðallega falist í barnaupp- eldi og bústörfum. Hún og eiginmaður hennar Oskar Guðmundsson, sem lést fyrir allnokkrum árum síðan, byggðu upp af miklum dugn- aði jörðina Beitistaði í Leirár- sveit. Jóhanna sagðist þó hafa verið talin liðtæk í blaki með nágrannakonum sínum hér á árum áður. „Skemmtilegasta í- þróttaminning mín er þó þegar ég keppti ásamt fleirum í reipi- togi á sundlaugarbakkanum við Heiðarborg á 17. júní hátíðar- höldunum þegar andstæðing- arnir voru dregnir í laugina eftir rnikil átök á bakkanum,“ rifjar Jóhanna upp og bætir við að eina íþróttin sem hún stundi núorðið sé spilamennska og noti hún hvert tækifæri sem gefist til þeirrar iðkunar. Jóhanna hefur notað nokkuð af tíma sínum síðustu ár í að prjóna lopapeysur sem hún sel- ur Handprjónasambandinu en ætlar nú að fara að draga sam- an seglin í því og prjóna aðeins á barnabarnabörnin sem fjölg- að hafi ört á síðastliðnum árum. Að lokum sagðist þessi glaðlynda heiðurskona ætla að standa við orð sín um að hætta að keyra þegar hún yrði áttræð og leggja gömlu Lödunni sem þó hefur þjónað henni bæði vel og lengi í ferðum á milli staða. MM Æk W' Jóhanna ásamt þeim afkomendum sínum sem þátt hafa tekið í hinum ýmsu landsliðshópum í íþróttum. r Sendum starfsfólki okkar og viðskiptavinum öllum hugheilar jóla- og nýjársóskir með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða Grundarfi rði*'^' ( Samkaup Jstrax) Segulmiðaleikur Skessuhorns j -Ufcfcufeffiur affr'r fyfflfaft weð/ 1 Vinningsnúmer 50. tölublaðs er: 4790 Vinningur er 15.000 króna vöruúttekt í Samkaup-Urval í Borgarnesi eða Samkaup-Strax á Akranesi eða Grundavali í Grundarfirði. * Avísunfyrir vöruúttekt skal vinningshafi vitja á skrifstofu Skessuhorns í síma 433-5500.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.