Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐTUDAGUR 21. DESEMBER 2004 aiv£,3ðinu»«. Kaupfélag í öld Kaupfélag Borgfirðinga fagnaði aldarafmæi sínu með pompi og prakt í janúar með afmælisveislu í verslunarmiðstöðinni Hyrnutorgi í Borgarnesi. Eftir afmælið hafa orðið talsverðar Skemmdir í Ólafsvík Aftakaveður gekk yfir Snæfellsnes 9. febrúar. Verst var veðrið í Olafsvík en þar fuku gámar, þakplötur og annað lauslegt meðal annars í höfnina. Ekki urðu slys á fólki. Unnið á biðlistum I febrúar var formlega tekin í notkun ný þriggja deilda stækk- un leikskólans Vallarsels á Akranesi. Þegar allar deildir skólans höfðu verið teknar í notkun sl. sumar tókst loks að vinna nið- ur biðlista sem skapast höfðu eftir leikskólaplássum og öll tveggja ára börn og eldri fengið vistun. Faxaflóahafnir í eina sæng Grundartangahöfn, Reykjavíkurhöfn, Akraneshöfn og Borgar- neshöfh voru á árinu sameinaðar í eitt félag; Faxaflóahafnir sf. og tekur sameiningin gildi frá og með næstu áramótum. Sam- starf sveitarfélaganna sem að þessum höfnum standa er al- mennt talið leiða til eflingar hafnanna hér á Vesturlandi í víð- um skilningi. Lögð verður áhersla á að Grundartangi verði stórflutninga- og iðnaðarhöfn og taki m.a. við því hlutverki sem hafnargerð í Geldinganesi hefði annars verið ætlað, Akra- neshöfn verði efld sem fiskihöfn og Reykjavíkurhöfn verði fjölbreytt út- og innflutningshöfn ásamt því að aðstaða fyrir skemmtiferðaskip verði bætt. Þá er gert ráð fyrir að aðstaða fyrir smábáta verði bætt í Borgarneshöfn. Reykjavíkurborg á 75% í Faxaflóahöfnum en sveitarfélög á Vesturlandi fjórðung. Heitt vatn við Kolgrafarfjörð Borun í leit að heitu vatni fyrir Grundarfjörð bar árangur á ár- inu þegar sex sekúndulítrar af áttatíu gráðu heitu vatni fundust undir Laugaskeri á Berserkseyrarodda í mars. Efnasamsetning vatnsins vafðist eitthvað fyrir fræðimönnum en vonir eru bundnar við að það sé nýtilegt fyrir byggðina í Grundarfirði en auk þess hafa Snæfellsbæingar lýst áhuga sínum á að kanna hvort hagkvæmt sé að nýta vatnið til upphitunar í Olafsvík, Hellissandi og Rifi. Vestiniand 2004 í máli og Liðið ár var Vestlendingum á margan hátt bæði gjöfult og gott og geta vafalítið flestir tekið undir það. Þegar fréttir liðins árs eru rifjaðar upp kemur í ljós að af mörgu er að taka enda hafa starfsmenn Skessuhoms ekki á neinum tímapunkti þurft að glíma við fréttaþurrð eða framleiðslu svokallaðs uppfyllingarefnis. Hér á síðunni og á næstu opnum birtir Skessuhom brot af því sem blaðið hefur fjall- að um á líðandi ári og snertir okkur íbúana. Lesendum Skessuhorns og velvildarmönnum blaðsins víðsvegar um Vesturland em hér með færðar bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á ár- inu sem er að líða, með von um viðburðaríkt, gjöf- ult og farsælt komandi ár! Umsján: Magnús Magmísson Ljósmyndir: Blaðamenn Skessuhorns ogfleiri I * | breytingar á rekstri félagsins þar sem verslunarrekstur var seldur. Húsasmiðjan keypti byggingavörudeild félagsins og Samkaup verslunarrekstur í Hyrnutorgi í Borgarnesi og Grundavalsbúðirnar á Akranesi og í Grundarfirði. Nýr fjölbrautaskóli Menntamálaráðherra skipaði Guðbjörgu Aðalbergsdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga frá 1. janú- ar 2004. Var hún fyrsti starfsmaður hins nýja skóla en skólahús reis með ógnarhraða á árinu, aðrir starfsmenn voru ráðnir og skólahald hófst í haust með yfir 100 nemendum. Skólahald hefur gengið vel í haust og skólanum hefur afar vel verið tek- ið af íbúum á Snæfellsnesi sem telja hann styrkja verulega bú- setuskilyrði á Nesinu. A myndinni er skólinn í byggingu. Menningin aðeins á Akureyri? I upphafi árs greindum við frá því að sveitarstjórnar- menn á Vesturlandi væru vonsviknir yfir nýjum samn- ingi við Akureyringa um menningarmál. Sá samningur fól í sér 240 milljóna króna styrk ríkisins til menningar- mála á þremur árum. Sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi mótmælti harðlega en allt kom fyrir ekki og vonir manna um að nýr menntamálaráðherra bætti úr hafa dofnað. Menningarhús eru hinsvegar ótalmörg á Vest- urlandi enda óvíða meiri menning á einu svæði. Sviftingar í eignarhaldi útgerðarfyrirtækja Eimskipafélagið gekk í upphafi árs ffá samningum um sölu Har- aldar Böðvarssonar hf. og Utgerðarfélags Akureyringa hf. Grandi keypti HB fyrir 7,8 milljarða króna og feðgarnir Krist- ján Guðmundsson, Guðmundur Kristjánsson og Hjálmar Krist- jánsson í Rifi keyptu UA fyrir 9 milljarða króna. Þar með urðu snæfellsku feðgarnir burðarásar í útgerð og vinnslu á Akureyri og Haraldur Böðvarsson hfi, elsta starfandi fiskvinnslufyrirtæki landsins var síðar á árinu formlega sameinað Granda hf. Bæjarráð Akraness átti í janúar fund með stjómendum HB Granda þar sem þeir skýrðu fyrir heimamönnum áhrif væntan- legrar sameiningar fyrirtækjanna. Sigurður Guðni Vestlendingur ársins Sigurður Guðni Sigurðsson framkvæmdastjóri Skagans og formaður Markaðsráðs Akraness var útnefndur maður ársins á Vesturlandi fyrir árið 2003. Sigurður var útnefndur vegna þáttar hans í uppbyggingu Markaðsráðs Akraness, atvinnusýn- ingar og sem framkvæmdastjóri Skagans hf. Sigurður hætti reyndar störfum fyrir Skagann sl. haust og hefur snúið sér að fyrirtækjaráðgjöf. myndum Snæfellsnes fær vottun Green globe Stefna Snæfellinga um sjálfbæra þróun í umhverfis- og samfé- lagsmálum á Snæfellsnesi til ársins 2015 var staðfest á árinu og var jafnframt fyrsti áfanginn í að svæðið hefur nú, fyrst heild- stæðra svæða á norðurhveli jarðar, fengið vottun sem umhverf- isvænt svæði af alþjóðasamtökunuin Green globe. Þessi vinna og árangur Snæfellinga er almennt talin hafa mikil og stefhu- markandi áhrif á ýmsum sviðum. Nú þegar er áhrifanna farið að gæta í auknum straumi ferðamanna, eftirspurn eftir vöru af svæðinu og á ýmsan annan hátt. Snæfell gerir það gott í körfunni I mars náðu körfuknattleiksmenn í Snæfelli þeim frábæra ár- angri að verða deildarmeistarar í úrvalsdeild fyrstir liða utan Reykjaness og Reykjavíkur. Þannig var liðið tvímælalaust spútniklið ársins og hafnaði í öðru sæti íslandsmeistaramóts- ins. Gengi liðsins hefur verið með eindæmum gott allt þetta ár undir styrkri stjórn Bárðar Eyþórssonar þjálfara, enda var hann kosinn þjálfari ársins í úrvalsdeildinni í lokahófi KKI í vor. Borgnesingar gerðu það einnig gott í körfunni á árinu og tryggði Skallagrímur sér þátttökurétt í úrvalsdeildinni á yfir- standandi leiktímabili og gengur bara býsna vel einnig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.