Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 63
^ssunui.
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004
63
Ætlum langt
-segir Bárður Eyþórsson þjálfari Snæfells
„Þetta hefur verið í rétta átt,
það hlýtur allavega að vera
fyrst við erum komnir á toppinn
í deildinni," segir Bárður Ey-
þórsson þjálfari Snæfells í
Stykkishólmi sem kom liði sínu
í efsta sæti úrvalsdeildarinnar í
síðustu umferð fyrri hluta úr-
valsdeildarinnar. „Þetta er mjög
ánægjuleg staða, ekki síst þar
sem það hefur gengið á ýmsu
hjá okkur það sem af er mót-
inu. Auðvitað hefur launaþaks-
málið sett strik í reikninginn hjá
okkur en við vonumst til að
nýju erlendu leikmennirnir verði
sterkir þrátt fyrir að vera ódýrari
en þeir sem við höfðum. Síðan
munar að sjálfsögðu mikið um
Helga Reyni Guðmundsson en
hann stóð sig vel í sínum fyrsta
leik með okkur á móti Tinda-
stóli.“
Aðspurður um hvort mark-
miðið sé að verja titilinn segir
Bárður að það sé að sjálfsögðu
stefnan. „Við ætlum allavega
eins langt og hægt er og við
viljum vinna titla, eins marga og
mögulegt er. Við rennum hins-
vegar svolítið blint í sjóinn varð-
andi seinni hluta mótsins. Önn-
ur lið eru að stokka upp, eins
og Haukar og KR, og við vitum
ekki almennilega hvað við fáum
sjálfir í þessum útlendingum
sem koma um áramótin. Mér
sýnist hinsvegar að það verði
Suðurnesjaliðin og við sem
koma til með að berjast á
toppnum. Núna fer fjörið fyrst
að byrja og þá skilur kjarnann
frá hisminu. Þetta er bara
spurning hvaða lið ná að halda
haus eftir áramót. Við erum
sáttir með okkar stöðu í dag og
þurfum bara að mæta enn
ferskari til leiks á nýju ári,“ seg-
ir Bárður að lokum. GE
Erum þokkalega jarðbundnir
-segir Valur Ingimundarson þjálfari Skallagríms
„Við erum mjög sáttir og
þetta er í samræmi við okkar
markmið," segir Valur Ingi-
mundarson þjálfari Skalla-
gríms. Skallagrímur er í fimmta
sæti sem stendur, aðeins
tveimur stigum á eftir efsta lið-
inu og hefur komið einna mest
á óvart í úrvalsdeidlinni í vetur.
„Við settum okkur markmið á
að vera í mesta lagi 2-4. stig-
um á eftir toppliðinu um ára-
mót og stefnan er sett á úr-
slitakeppnina. í heldina er ég
líka ágætlega sáttur við okkar
spilamennsku. Við höfum að
vísu tapað tveimur leikjum sem
við áttum að vinna en það eru
ekki nema tveir leikir þar sem
við höfum verið lélegir, þ.e. á
móti Fjölni og Keflavík á úti-
velli.“
Valur segir að það sé fyrst í
seinni hluta mótsins sem reyni
fyrir alvöru á leikmenn. „Við
verðum að halda sama dampi
áfram og megum ekki stressa
okkur á stöðunni. Við erum
frekar jarðbundnir held ég,
enda þekkir maður það eftir
þetta langan tíma í bransanum
að dæmið getur snúist við á
einni nóttu.“
Eins og kemur fram hér ann-
arsstaðar á síðunni en nokkur
uppstokkun í gangi hjá sumum
liðum í deildinni og þau eru að
freista þess að styrkja sig fyrir
lokaátökin. Valur segir að slíkt
sé ekki í gangi hjá Skallagrími.
„Að vísu er ekki útséð með
Nick Anderson. Hann hefur átt
slaka leiki inn á milli sem er ó-
afsakanlegt fyrir atvinnumenn
og það verður að segjast eins
og er að við áttum von á meiru.
Nick er hinsvegar fínn karakter
en við þurfum að fá meira út úr
honum. Það eru líka fleiri leik-
menn sem eiga meira inni og
þessvegna er ég ekki smeikur
við það þótt önnur lið séu að
styrkja sig. Við eigum vonandi
einnig tromp á hendi.“
Aðspurður segir Valur að
Keflavík og Njarðvík muni
verða á toppnum í vor. „Lið
eins og ÍR á líka helling inni og
vonandi við líka. Það er alla-
vega Ijóst að seinni umferðin
verður erfiðari. Lykilatriðið fyrir
okkur er að vinna heimaleikina
og þar stöndum við vel að vígi.
Við höfum fengið frábæran
stuðning frá áhorfendum og
það hjálpar okkur mikið.
GE
Það er vaskur hópur stúlkna sem æfir knattspyrnu í Grundarfirði. Stelpurnar stilltu sér upp fyrir Ijósmyndara
á dögunum en tilgangurinn var að setja mynd af þessum föngulega hópi á dagatal sem selt er til styrktar
kvennaknattspyrnunni hjá Umf Grundarfjarðar. Mynd: Sverrir