Skessuhorn - 21.12.2004, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004
^nissaiinu^
Fiskinum fylgt eftir alla leið á diskinn
Norðanfiskur setur nýja vörulínu á markað
Fyrirtækið Norðanfiskur
ehf. á Akranesi hefur verið í
miklum vexti undanfarið. Hjá
því hefur í haust staðið yfir
Risarækjur eru meðal söluvara
undir menu.is vörumerkinu frá
Norðanfiski.
undirbúningur að nýju mark-
aðsátaki þar sem leitast er við
að samræma hámarks vöru-
gæði, nýjar umbúðir undir nýju
vörumerki og þjónustu við
neytendur með opnun nýrrar
heimasíðu.
Norðanfiskur heíúr þannig
sett á markað nýja vörulínu
undir hinu alþjóðlega heiti;
menu með endingunni .is.
„Varan sem seld verður undir
vörumerkinu menu.is skilur sig
frá öðru fiskmeti sein er á
markaðinum á fleiri en einn
veg,“ segir Ragnar Hjörleifs-
son, framkvæmdastjóri Norð-
anfisks í samtali við Skessu-
horn. „Fyrst má nefna að vald-
ar hafa verið úr öðrum fram-
leiðsluvörum fyrirtækisins þær
Sýning
Silfurstj ömunnar
Þriðjudaginn 14. desember
s.l. hélt línudanskiúbburinn
Silfurstjarnan frá Akranesi
danssýningu í íþróttahúsinu við
Vesturgötu á Akranesi. Þetta
var önnur sýning klúbbsins á
þessu ári en mikil aukning hef-
ur orðið í línudansi á Akranesi.
Kata og Ella, stofnendur Silf-
urstjörnunnar, hafa verið að
kenna línudans bæði á Akra-
nesi, í Borgarnesi, í Búðardal, á
Selfossi og víðar. A þessari sýn-
ingu dönsuðu yfir 30 konur og
stelpur en margar þeirra byrj-
uðu að dansa línudans nú í
haust. Dansaðirvoru 19 dansar
en byrjað og endað var á
skemmtilegri marseringu hóps-
ins um salinn. Sýningin stóð
yfir í klukkutíma þar sem byrj-
að var að sýna einfaldari og
hægari dansa en endað á
fjörugri og hraðari dönsum. Að
lokum dansaði allur hópurinn
Túsh Push, skyldudans á Is-
landsmótinu í línudansi undan-
farin ár og þá skelltu allir á sig
jólasveinahúfúm í tilefúi hátíð-
arinnar. Sýningin tókst í alla
staði mjög vel og var vel tekið
af áhorfendum. MM
Gullbrúðkaup
Þann 26. desember n.k. eiga heiðurshjónin Lára Jóhannesdóttir og
Sumarliði Vithjátmsson á Ferjubakka gullbrúðkaup. Afkomendurnir
þeirra eru nú orðnir 30.
Úr framleiðslusal Norðanfisks við Vesturgötu á Akranesi. Hér eru nýir fiskbitar á fyrstu metrunum á löngu
færibandi þar sem þeir fara í brauðun, forsteykingu og pökkun undir merkjum menu.is.
tegundir sem hvað mestrar
hylli hafa notið á markaðnum.
Þar sem við vildum auka gæði
þessarar vöru enn frekar hefur
það verið gert, t.d. með því að
sérvelja einungis eftirsóknar-
verðustu bitana úr fiskinum í
þessar nýju pakkningar undir
nýju vöruheiti. Hér er viðhöfð
besta mögulega vöruvöndun
sem hugsast getur.“
Ragnar segir að nú sé í fyrsta
skipti hér á landi fitjað upp á
þeirri nýjung að láta hollræði
fylgja vörunni alla l'eið heim til
kaupandans. „I þeim tilgangi
opnuðum við nýlega vefsíðu á
slóðinni www.menu.is, þar sem
fletta má upp hverri einustu
vörutegund sem undir þetta
vörumerki heyrir og fá þar góð
ráð og leiðbeiningar varðandi
„hantéringu“ vörunnar í eld-
húsinu, ýmist mismunandi ein-
falda og fljótlega tilreiðslu,
sem og þær hátíðlegri þar sem
slíkt getur átt við. Um margar
tegundirnar fiskafurða er að
ræða en við framsetningu
þeirra hefur fyrst og fremst
verið stefnt að því að varan,
eins og hún er í búðinni, væri
sem allra mest tilbúin, t.d. for-
steikt og frosin og þyrfti ein-
ungis að stinga henni í bakara-
ofninn í tilteknar mínútur fýrir
framreiðslu. Þetta er sá háttur
sem nútíma neytendur vilja
viðhafa. Meðlætið sem nefnt er
á vefsíðunni er þá í flestum
slíkum tilfellum einfalt og
fljótlegt til að taka mið af
skömmum matreiðslutíma
heimila þar sem fólk vinnur úti
og hefur því takmarkaðan tíma
til eldamennsku.“
A nýju heimasíðunni geta
neytendur sagt álit sitt á vör-
unni og leiðbeina um leið fyr-
irtækinu í viðleitni þess til að
þjónustan geti orðið sem fúll-
komnust. Er á vefsíðunni m.a.
að finna netfang bæði fram-
kvæmdastjórans og sölustjór-
ans, þannig að auðvelt er að
koma milliliðalaust til þeirra
boðum um hvaðeina það sem
neytandanum liggur á hjarta.
„Með tilkomu menu vörunnar
vonast því Norðanfiskur til að
hafa brotið blað í þjónustu við
viðskiptavini sína og að nýj-
unginni verði vel tekið,“ segir
Ragnar að lokum.
MM
Frá Umferðarráði
Umferðarráð minnir á að á
hverju ári er mikill fjöldi öku-
manna staðinn að því að aka
undir áhrifum áfengis. I des-
embermánuði virðast enn fleiri
en ella gera sig seka um þetta
vítaverða athæfi. Þrátt fyrir að
margir aðilar hafi ár hvert tekið
höndum saman og vakið athygli
á þessari dapurlegu staðreynd í
aðventubyrjun, þurfa lögreglu-
menn á þessum árstíma að hafa
afskipti af miklum fjölda ölv-
aðra ökumanna. Umferðarráð
lítur þessa staðreynd mjög al-
varlegum augum. Hver sá er
fengið hefur þau verðmætu
réttindi, sem ökuréttindin
vissulega eru, á að vita og gera
sér grein fyrir að neysla áfengra
drykkja og akstur mega með
engu móti fara saman. Þrátt
Umferðarráð hvetur fólk til að fara varlega í umferðinni. Þessi mynd er
frá bílslysi f ágúst þegar bfll með erlendum ferðamönnum fauk út af
við Hafnarfjall.
fyrir það eru nú ökuskírteini,
sem hald hefur verið lagt á, í
stöflum á lögreglustöðvum
landsins. Umferðarráð beinir
þeirri eindregnu áskorun til
ökumanna að láta sér aldrei
detta í hug að aka undir áhrif-
um áfengis og minnir á slagorð-
in sígildu „Eftir einn - ei aki