Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2004, Side 45

Skessuhorn - 21.12.2004, Side 45
jniuisunu^ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 45 Jólaskákmót UMSB Jólaskákmót UMSB var haldið í Grunnskóla Borgar- ness 17. desember. A myndinni eru þátttakend- ur á mótinu ásamt þjálfara sín- um Helga Olafssyni stórmeist- ara. Keppendur voru 17 og voru tefldar 6 umferðir. Keppt var í tveimur flokkum, 10 ára og yngri og 11 ára og eldri. Allir keppendur fengu bókar- verðlaun frá Skáksambandi Is- lands og einnig fengu efstu menn í hvorum flokki gjafa- miða á 16“ pizzu frá Hyrn- unni. I yngri flokki varð hlut- skarpastur Einar Konráðsson en í eldri flokki voru Tinna Kristín Finnbogadóttir og Jó- hann Oli Eiðsson með flesta vinninga. Góð þátttaka hefur verið á skákæfingunum í vetur og verður þeim haldið áfram eftir áramót. Jólastund í ráðhúsinu Síðasdiðinn laugardag var hald- in árleg jólastund í ráðhúsinu í Stykkishólmi. Þessi siður komst á þegar bæjarskrifstofur Stykkis- hólms fluttu í ráðhúsið haustið 1998 en það eru Stykkishólmsbær, Amtbókasafnið og Norska húsið sem standa að þessari uppákomu. I ár var metþátttaka en tæplega hundrað manns mættu í jólastund- ina. Birna Pétursdóttir og Sigurlína Sigurbjörnsdóttir frá Amtbóka- safninu lásu úr bókum og kynntu bækur fyrir bömunum. Eh'sabet L. Björgvinsdóttir sá um gítarleik og að stýra jólasöngnum. Börnin hlýddu stillt og prúð á lesturinn á- samt þónokkrum fjölda af foreldr- um og að því loknu var sungið. Þrír góðir jólasveinar heyrðu sönginn í barnaskaranum og mættu á svæðið með gott í poka fyrir börnin og sungu með þeim jólalög. Lukkaðist jólastundin vel og voru þónokkrir sem röltu við í Norska húsinu að stundinni lok- inni og skoðuðu sýninguna Gömlu jólin. GE ' fí\. m-J - r éj í * j fljl/ - Æ 1 rjPJjf'j $j , Jlgf u HF V *« M m * **> * Hfe Æ * J‘i Rollingadeildin á Skaganum fyrir 90 árum 5 til 9 ára krakkar á Akranesi, alls 31 að tölu, stilltu sér upp til myndatöku ásamt kennara sínum. Myndin er tekin á Hofteigi (nú Vesturgötu 23) árið 1914, þar sem kennsla barna á Akranesi fór fram. Myndina tók sennilega Árni Böðvarsson, Ijósmyndari frá Vogatungu en upptýsinga um nöfn hafa þeir Guðmundur Þórðarson og Ásmundur Ólafsson safnað. Öll eru þessi skólasystkini iátin, nema Ólína Þórðardóttir sem dvelur nú á Höfða 97 ára að aldri. Skessuhorn birtir þessa mynd með von um að fólk hafi gaman af að glugga í hana og þekkja forfeður sína og -mæður. Neðsta röð frá vinstri: Friðrikka K. Bjarnadóttir (Rikka á Sýruparti f. 1906), Ólafía Þon/aldsdóttir (Lóa á Valdastöðum f. 1908), Helga Kristmannsdóttir (í Lambhúsum f. 1906), Níel- sína Hákonardóttir (Ninna á Hofteig f. 1907), Ólína Þórðardóttir (Lolla á Grund f. 1907), Júlíus Þórðarson (Júlli á Grund f. 1909). Miðröð f.v.: Dagbjört Oddsdóttir (Dæja í Hlíðarhúsum og Hliði f. 1906), Guðmundína Kristjánsdóttir (Dína í Sjóbúð f. 1907), Júlía Sigurðardóttir (Júlla á Sýruparti f. 1906), Guðrún Jónsdóttir (Gunna á Ólafsvöllum f. 1906), Svava Finsen (í Læknishúsi f. 1907), Guðrún Einarsdóttir (Gunna á Bakka f. 1906), Valdís Helgadóttir (Valla í Lykkju f. 1906), Þóra N. H. Ní- elsdóttir kennari á Hofteigi (f. 1875, en hún var gift Hákoni Halidórssyni, formanni sem byggði Hofteig 1908-1909). Efsta röð f.v.: óþekktur piltur, þá Aðalsteinn Árnason (Alli í Lindarbrekku f. 1907), Þóroddur Oddgeirsson (á Svalbarða f. 1908), Hjörtur L. Sigurðsson (í Heimaskaga, síðar kenndur við Bæjarstæði f. 1905), Guðm. Kristinn Ólafsson (Kiddi í Brautarholti f. 1907), Jón Guðmundsson (í Guðnabæ f. 1906), Hannes Ólafsson (á Staðarbakka f. 1907) og Guðmundur A. Bjarnason (í Sjóbúð f. 1906).

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.