Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2004, Side 51

Skessuhorn - 21.12.2004, Side 51
jntJJUnu... ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 51 Hugleiðingar á aðventu Agætu Vesdendingar! Nú á aðventunni, sem á að vera skemmtilegur og notalegur tími, er okkur hollt að horfa til baka og hugleiða málin. Hvert stefnum við og hvert viljum við halda? Við búum vel hér á Vesturlandi og það eru viss forréttindi að fá að ala upp börn á slíku svæði, það ber að virða. Slíkt kemur ekki af sjálfu sér og við þurfum að leggja ýmislegt á okkur til að viðhalda því. Hvað gerum við til þess? Hvað leggjum við að mörkum? Burt með allan rógburð og öfund, slíkt stefnir okkur aðeins í þá átt sem við ætluðum okkur ekki í upphafi. Stöndum vörð um landshlutann okkar og allt það frábæra fólk er býr þar. Tölum saman, hlustum og þannig náum við því besta út úr okkur öllum, og verðum öll sáttari. Eg hef verið svo heppinn að hafa fengið tækifæri til að vinna með börnum og ungling- um hér á Vesturlandi í tæp 30 ár. Það hefur verið frábær tími þar sem ég hef lært heilmikið af nemendum mínum. Hefur eitthvað breyst á þessum tíma? Jú, ég er á því. Það er mun meiri hraði á öllu núna en áður. Forgangsröð verkefna hjá okk- ur foreldrum hefur breyst. Hagsmunir barna hafa því miður allt of víða verið færð neðar á listann, hvort sem það hefur gerst meðvitað eða ó- meðvitað. Slíkt gerir það að verkum að börnin týna hinum rétta takti við bekkinn, liðið sitt og jafnvel fjölskylduna, sem kallar síðan á einhverskonar aðgerðir. Hvar liggur því rót vandans? Hún liggur að miklu leyti hjá okkur foreldrunum. Ég hitti nemendur yngstu bekkja skólans í morgun, þeir voru að ræða um hvað jóla- sveinninn hefði gefið þeim í skóinn. Pétur leit til mín með gleði í andliti sínu og sagði mér að hann hefði fengið mandar- ínu og var alsæll með gjöfina. Þá sagði Júlla okkur að hún hefði fengið Adidas íþrótta- galla, frekar hallærislegan sem hún myndi sko aldrei fara í. Pétur leit á mig, hann var hætt- ur að brosa, kannski ekki sáttur Kveðjajrá Stykkishólmi við sína mandarínu. Hann hefur aldrei eignast svona íþrótta- galla, hvað þá í skóinn frá jólasveininum. Hvert stefna jóla- sveinarnir og við öll? Einn mesti skaðvaldur alls uppeldis hjá börn- um, unglingum og fúll- orðnum er öfund. Slík mismunun sem jóla- sveinninn gerði sig sekan um í nótt gladdi því engan þegar upp var staðið. Góðir Vestlendingar, íþróttaliðum okkar hefur vegnað vel síð- ustu árin, og ber okkur að draga lærdóm af því. Margt kemur til, ein af ástæðunum er sam- staða hópsins. Við eig- um að tala saman, hlusta og taka sameiginlegar á- kvarðanir og einmitt þannig höldum við áfram með sigur- bros á vör í átt að settu marki. Við skiptum öll máli. Gleðilegjól ogfarsælt nýtt dr. Gunnar Svanlaugsson, skólastjóri Stykkishólmi. r a Óiízum ö[£um j-ztacjimcmnum olzlzav sjóváSíHálmennar Njóttu lífsins - áhyggjulaus cjHzckHzejva jóta ocj j-avieztclav á níjju æií Gleðileg jól og farsœlt komandi ár L St.AlcM Garðabraut 2a - Akranes - sími 440 2360 Gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu. Kirkjubraut 54 - Akranesi - sími 431 1855 Borgfirðingar nœr ogfjœr! Á Brúartorgi brosum glöð, á björtu ári og nýju. Þá verður komin þvottastöð, með þrýstivatni hlýju. Unnur og Hjörtur og starfsfólk Shellstöðvarinnar senda öllum nœr og fjœr bestu óskir um gleðileg jól og gœfuríkt komandi ár.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.