Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2004, Qupperneq 52

Skessuhorn - 21.12.2004, Qupperneq 52
52 ÞRIÐTUDAGUR 21. DESEMBER 2004 j«f.D3Ullu,„ Hvar ertu bróðir? Kveðjajrá Grundarfirði Ég fór í kirkju, þú varst ekki þar. Ég fór á tónleika og ekki varst þú þar. Eg var viðstaddur þegar kveikt var á jólatrénu, ég sá þig ekki. Ég fór á myndlist- arsýningu unglinga, þú varst ekki þar. Hvar varstu? Varst þú kannski einn þeirra sem seldu jólakortin til styrktar unga fólkinu eða varst það þú sem seldir mér friðarkertið? Eða settir þú seríuna á jólatréð? Af hverju sá ég þig ekki? Já bróð- ir, nú spyr ég þig, ertu ekkert með í því sem samfélagið er að gera? Ertu bara heima að horfa á sjónvarpið og bölva stjórn- málamönnunum eða fagna ensku mörkunum? Ferðu síðan fram og færð þér kaffi og býsnast yfir því að enginn geri neitt? Manstu bróðir, þegar við vorum litlir og mamma var að sauma á basarinn hjá kvenfé- laginu og þegar við fórum með pabba að þökuleggja íþrótta- völlinn eða skrapa timbur þeg- ar verið var að byggja félags- heimilið? Og manstu hvað það var gaman að fá að taka þátt í að byggja samfélagið með fólki sem vann miklu meira en við gerum? Þér er alveg óhætt að mæta á tónleikana hjá kirkjukórnum þó að þú kunnir ekkert að syngja. Og komdu með mér á listsýninguna hjá unglingunum þó þú hafir ekkert vit á list. Komdu með krakkana þína í safnið og sjáðu með þeim lið- inn tíma. Já, tökum börnin með, því tíminn okkar með þeim er ekki bara fyrir þau, hann er nefnilega tími sem við eignumst aldrei aftur. Þau hafa nægan tíma til að sitja við sjón- varpið og tölvuna þegar við erum ekki heima. Þau þurfa enga hjálp við það. En þau þurfa leiðsögn út í lífið og með því að þú, kæri bróðir, ert virk- ur þátttakandi skilarðu góðum þegnum inn í samfélag fram- tíðarinnar. Vertu með okknr og gleðileg jól bróðir! Ingi Hans Jónsson, Grundarfirði Hátíð fer að höndum ein... Kveðjafrá Akranesi Jólahátíðin nálgast. Bærinn okkar er skrýddur fagurlitum ljósum, stjarnan er komin á Sementsverksmiðjuna og bæjar- búar keppast við skreyta hús sín. Skaginn er kominn með vaxtar- verki að nýju. Heilu hverfin rísa, hús ganga kaupum og söl- um og fólk flytur til bæjarins eða á milli hverfa. Nú á jólaföst- unni er jafnvel verið að taka húsgrunna og malbika stíga. A jólum þykir mér rétt að líta til baka og hugleiða tilgang lífs- ins. Við okkur blasa hrópandi andstæður velmegunar og fá- tæktar, friðar og ofbeldis í heiminum. Nokkrar staðfastar viljugar þjóðir fara með her- valdi sem sjálfskipaðir boðberar lýðræðis og friðar. A sama tíma ganga á víxl hefndaraðgerðir í landinu helga og misréttið í heiminum eykst þrátt fýrir alla velsældina hér heima. Mikilvægasta verkefnið í þessum undarlega heimi er að skapa börnum lífvænlegt um- hverfi og að ala upp nýja kyn- slóð fulla af hugsjónum réttlæt- is og friðar. Eg fullyrði að við höfum sjaldan átt mannvæn- legri, heilbrigðari og jákvæðari börn. Það þarf að hlúa að þeim, ala þau upp í fordómaleysi og skilningi á högum annarra, gefa þeim ögrandi verkefni og efla hjá þeim gagnrýna hugsun. Heilbrigt uppeldið ætti að vera forgangsverkefni hvers samfé- lags ásamt aðhlynningu þeirra sem minna mega sín af ýmsum sökum. Þennan forgang þarf hvert bæjarfélag og þjóðin öll að sýna í verki. Þegar ég horfi til baka til líð- andi árs þá gleðst ég yfir því að hafa fengið tækifæri til að kíkja í fýrsta skipti inn um gættina á heilli heimsálfu, Afríku. Mark- mið ferðar þangað var meðal annars að vinna nýjan persónu- legan sigur með göngu á hæsta fjall álfunnar, Kilimanjaro. A tindinum átti ég ógleymanlega stund en lærdómsríkast í ferð- inni var þó að sjá mannlífið í þessum heimshluta og að skynja hversu vel við búum hér í okkar litla landi og hversu mikið við getum gefið um leið og við get- um lært svo ótal margt af Afr- íkuþjóðum. Ef við aðeins lærð- um að bera virðingu fýrir með- bræðrum okkar um allan heim og lærðum að virða siði þeirra og menningu þá væri stórt skref stigið í átt til friðar og betri heims. Megi jólin færa Vestlending- um „ljós og líf, lækning, græðsla, von og hlíf.“ Megi friðarenglar vaka yfir þeim og heiminum öllum. Gleðilega jólahátíð! Guðbjartur Hannesson skólastjóri, Akranesi Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla ogfarsœls nýs árs. Þökkum samstaffið á árinu. Ú UPPHEIMAR Uppheimar ehf - Vesturgötu 45 - Sími 863 4972 - www.uppheimar.is VerkaíýðsféCag JAkraness Jóíakpeðjafrá ‘Ve rkalýðsfélagi PLkraness Oskum félögum sem og Vestlendingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.