Skessuhorn - 07.03.2007, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 10. tbl. 10. árg. 7. mars 2007 - Kr. 400 í lausasölu
r ^
Meðal
efnis:
• Á rangri leið
í tannheilsu.Bls. 14
• Frumbyggi Rifs
í viðtali....Bls. 16
• Lokakveðja frá
Malawí.......Bls. 24
• Slippir
koma.....Bls. 4 og 32
• í öðru sæti í
Samfés.......Bls. 10
• Vinstri græn
sveifla.......Bls. 4
• íbúafjölgun mest á
Hvanneyri.....Bls. 6
• Mikil skólasókn
16 ára........Bls. 8
• Herbíll verður
björgunartæki.Bls. 9
• Fréttir
skógarbænda ...Bls. 18
• Vesturlandsliðin
jöfn...........Bls. 31
Kraftlyftingakappinn
Guðjón.........Bls. 30
TónVest í
Hólminum.......Bls. 10
Jörundarholt
fjölmennast....Bls. 19
Milljónir í
menningu.......Bls. 20
• Bæjarráð vill
umhverfismat....Bls. 22
• Stakk af eftir
ákeyrslu.........Bls. 2
• Dóra í
Reykholti.......Bls. 12
Um síðastliðna helgifór meistaramót íslands ífijálsum íþróttum 12-14 árafram í Laugardalshöllinni. Héraðssamband Snœfells og
Hnappadalssýslu átti 20 keppendur á mótinu og stóðu þeir sig meóprýdi, h'ófnuóu í 7. sæti af 20 félögum íheildarstigafjölda.
Ljósm. hsh.is
Mikil uppbygging fráveitu-
mannvirkja í undirbúningi
Svona geta dælustöóvamar litií út.
Orkuveita Reykjavíkur kynnir
um þessar mundir viðamiklar fram-
kvæmdir við fráveitukerfi í Borgar-
byggð og á Akranesi sem ætlunin er
að ljúka á árinu 2009 og kosta
munu á annan milljarð króna. For-
sögu málsins má rekja til samnings
Orkveitunnar og sveitarfélaga um
yfirtöku Orkuveitunnar á rekstri og
uppbyggingu ffáveitu ffá 1. janúar
2006. I samningi milli aðila skuld-
batt Orkuveitan sig til þess að
tryggja innan fárra ára að ffáveitu-
kerfin í sveitarfélögunum standist
kröfur sem gerðar eru til þeirra í
reglugerðum.
Undirbúningur framkvæmdanna
er nú að komast á lokastig og verð-
ur brátt efnt til útboðs á nauðsyn-
legum vélbúnaði fyrir dælu- og
hreinsistöðvar þær sem reistar
verða. Vonast er til að ffamkvæmd-
ir geti hafist næsta vetur og mestur
þungi framkvæmdanna verður á
næsta ári. Eins og áður sagði er
stefnt að því að þeim ljúki árið 2009
og munu fráveitumál í Borgar-
byggð og Akranesi þá uppfylla þær
kröfur sem gerðar eru lögum sam-
kvæmt.
I stuttu máli má segja að allar nú-
verandi útrásir verði hreinsaðar
upp. Lagðar verða nýjar holræsa-
lagnir með nauðsynlegum dælu-
stöðvum. Einnig verða reistar
hreinsistöðvar ffá þeim og verður
skólpi dælt um nýja fráveitulögn
um 800- i 000 metra á haf út þar
sem náttúran sér um að þynna,
brjóta niður og eyða þeim efnum
sem ekki hreinsast í hreinsistöðv-
unum. Hreinsistöðin á Akranesi
verður um 400 fermetrar að stærð
og stöðin í Borgarnesi um 250 fer-
metrar.
Auk ffamkvæmda í Borgarnesi og
á Akranesi verður unnið á sama
tíma að úrbótum í ffáveitumálum á
Bifföst, Hvanneyri, Varmalandi og
Reykholti. Fyrir nokkrum dögum
var haldinn kynningarfundur um
málið í Borgarnesi og annað kvöld
verður málið kynnt íbúum á Akra-
nesi.
HJ
Færsla
þjóð\egar
í athugun
Vegagerð ríkisins hefur
kynnt sveitarstjórn Borgar-
byggðar hugmyndir um að
flytja þjóðveg 54 (Snæfellsnes-
veg) við Borgarnes, frá núver-
andi vegstæði norður fyrir
Borg á Mýrum og tengja aftur
inn á núverandi veg til móts við
afleggjarann hjá bænum Þurs-
stöðum.
Eins og fram hefur komið í
fréttum Skessuhorns voru uppi
hugmyndir um að flytja veginn
niður fyrir holtið sem Loftorka
í Borgarnesi stendur á og
tengja hann á ný inn á núver-
andi Snæfellsnesveg, nálægt
Borg. Að sögn Páls S. Brynjars-
sonar sveitarstjóra var málið
komið nokkuð vel áleiðis,
heimamenn sáttir við þá hug-
mynd og sáu fram á að breyting
á vegstæðinu gæti gengið hratt
og vel fyrir sig. Forsvarsmenn
Vegagerðarinnar voru hinsveg-
ar andsnúnir tillögunni vegna
umferðartæknilegra sjónar-
miða og hafa nú komið með
aðra hugmynd; að færa veginn
norður fyrir Borg. Hvar vegur-
inn verður tekinn út af þjóð-
vegi númer 1 hefur ekki enn
verið ákveðið. Páll sagði enn-
fremur að málið hefði verið
kynnt forstjórum Loftorku í
dag, [þriðjudag] og þar á bæ
væru menn ekki sáttir. „Þeir
eru hræddir um að nú komi
stöðvun í framkvæmdir og veg-
arlagningin dragist, gangi ekki
eins greitt og vonir voru um,
þegar hin leiðin var í skoðun.
Við eigum einnig eftir að
kynna þessar hugm)mdir fyrir
prestssetrasjóði, sem er eigandi
höfuðbólsins Borgar, og gerum
það líklega á morgun. Vilji er
innan Vegagerðarinnar að
gengið verði fljótt í þetta mál,
þar sem Vegagerðin telur að
fjármunir til verksins séu til og
verið er að tala um að fram-
kvæmdir verði á árunum 2008-
2009,“ sagði Páll Brynjarsson.
BGK