Skessuhorn - 07.03.2007, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
j*£úunuu
Þrívegis stöðvað-
ur eftir sviptingu
ökuleyfis
BORGARNES: Samkvæmt upp-
lýsingum Érá lögreglunni í Borgar-
nesi virðast ýmsir ósiðir í umferð-
inni aukast með hækkandi sól.
Talsvert var um umferðarlagabrot í
umdæminu lögreglunnar sl. viku.
Þar á meðal var einn ökumaður
tekinn í tvígang fyrir of hraðan
akstur með aðeins nokkurra
klukkutíma ffesti. Annar ökumað-
ur, sem þegar var búið að svipta
ökuleyfi, var stöðvaður við akstur
og var þetta í þriðja skipti sem sami
maðurinn er stöðvaður á rúntinum
efrir að hann var sviptur ökuleyfi.
Stighækkandi sektir eru við slíkum
brotum sem endar með fangelsis-
vist ef menn láta ekki segjast. -kh
Innanbæjarökuþór
AKRANES: Lögreglumenn á
Akranesi unnu við hefðbundnar
hraðamælingar í síðasthðinni viku.
Ellefu voru kærðir fyrir of hraðan
akstur og var akstur tveggja af
þessum ökumaður það glæfralegur
að við hggur svipting ökuleyfis.
Ung stúlka var t.a.m. ökumaður
bifreiðar sem á laugardagskvöldið
síðasta var mæld á 106 km/klst
hraða innanbæjar þar sem há-
markshraði er 50. Við brotinu
liggur 75.000 kr sekt, svipting öku-
leyfis í einn mánuð og fjórir punkt-
ar í ökuferilsskrá. Piltur með ný-
legt bílpróf ók svo á sunnudags-
kvöld biffeið sem mældist á 120
km/klst hraða innanbæjar. Hann
getur gert ráð fyrir sekt upp á
90.000 kr, sviptingu ökuleyfis í tvo
mánuði og sömuleiðis fjórum
punktum í ökuferilsskrá. -kh
Dýrkeypt fíkni-
efnaneysla
AKRANES: Maður á þrítugsaldri
var nýverið dæmdur í héraðsdómi
Vesturlands til greiðslu 300.000 kr
sektar auk málskosmaðar upp á
hðlega kr. 200.000. Þá var maður-
inn sviptur ökuleyfi í 18 mánuði
fyrir akstur undir áhrifum ólög-
legra fíkniefna. Maðurinn hafði í
tvígang á sama sólarhringnum í lok
sl. árs, verið handtekinn af lögregl-
unni á Akranesi gnmaður um akst-
ur undir áhrifúm ólöglegra fíkni-
efha. Blóðrannsókn leiddi í ljós að
maðurinn hafði neytt amfetamíns.
-kh
Uppbygging
skólahúsnæðis
HVALFJARÐARSVEIT: Sveit-
arstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur
kallað efrir álitri fræðslu- og skóla-
nefndar ásamt sldpulags- og bygg-
ingarnefnd sveitarfélagsins á ffam-
tfðaruppbyggingu skólahúsnæðis í
sveitarfélaginu með tilliti til stað-
setningar og fjármögnunar. Aætl-
aður kosmaður við uppbygging-
una verði síðan í ffamhaldinu unn-
inn af sveitarstjóra og aðalbókara
sveitarfélagsins. Ahtum nefndanna
skal fylgja rökstuðningur og þurfa
niðurstöður að liggja fyrir eigi síð-
ar en 1. maí 2007.
-hj
Björg á þing samkyæmt
þjóðarpúlsi Gallup
Samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi
Gallup um fylgi stjórnmálaflokk-
anna heldur stórsókn Vinstrihreyf-
ingarinnar-græns ff amboðs í Norð-
vesturkjördæmi áfram og nýtur
flokkurinn nú fylgis 27,6% kjós-
enda í kjördæminu og fengi sam-
kvæmt því þrjá þingmenn kjörna. I
síðasta Þjóðarpúlsi sem gerður var
fyrir mánuði var fylgi flokksins
20% en í síðustu Alþingiskosning-
um hlaut flokkurinn 10,6% at-
kvæða og einn mann kjörinn. Sjálf-
stæðisflokkurinn nýmr nú fylgis
29,8% kjósenda í kjördæminu og
fengi þrjá menn kjöma. I síðustu
könnun var flokkurinn með 34%
fylgi og í síðustu kosningum fékk
flokkurinn 29,6% atkvæða. Sam-
fylkingin fengi nú 16,6% atkvæða
og einn mann kjörinn en fékk 22%
í síðustu könntm og 23,2% í síðustu
kosningum og tvo menn kjörna.
Framsóknarflokkurinn fengi nú
16,1% og einn mann kjörinn.
Flokkurinn fékk síðast 19%
greiddra atkvæða og í síðustu kosn-
ingum 21% atkvæða og tvo menn
kjöma. Frjálslyndi flokkurinn fengi
nú 9,1% atkvæða og einn mann
kjörinn. Flokkurinn fékk 5% fylgi í
síðustu könnun og 14,2% í síðustu
kosningum og tvo menn kjöma.
Samkvæmt þessari könnun bætist
nú heldur hagur Borgfirðinga á Al-
þingi sem heldur hafa þótt á sig
hallað undanfarin kjörtímabil á
þingi. A þing fyrir Vinstri hreyfing-
una kæmu auk Jóns Bjamasonar,
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir ffá
Brekkukoti í Reykholtsdal og Björg
Gunnarsdóttir á Hvanneyri. HJ
Dæmdur í fangelsi fyrir vörslu
bamakláms
Karlmaður var í Héraðsdómi
Vesturlands í síðustu viku dæmdur í
m'u mánaða fangelsi, þar af 6 skril-
orðsbundna, fyrir vörslu
bamakláms. Verða 5.794 útprentað-
ar ljósmyndir í eigu mannsins og
tölvur gerðar upptækar. I ákæra-
skjali segir að málið sé höfðað gegn
manninum „fyrir vörslu á
bamaklámi með því að hafa í októ-
ber 2006 haft í vörslu sinni 11.382
ljósmyndir og 10 hreyfimyndir, sem
harm aflaði sér ffá árinu 1998 að
telja, sem sýna böm á kynferðisleg-
an eða klámfenginn hátt. Maðurinn
var á þeim tíma sem málið kom upp
kennari við grunnskóla á Akranesi
og var samdægurs, þegar máhð kom
upp, sagt upp störfum. Vom tölv-
umar í eigu ákærða og útprentaðar
ljósmyndir haldlagðar af lögreglu
við húsleit á heimih hans þann 11.
október 2006 og harður diskur í
tölvu sem ákærði hafði til umráða á
vinnustað sínum haldlagður við hús-
leit þar sama dag. I dómnum kemur
ffam að maðurinn játaði skýlaust að
hafa ffamið það brot sem honum er
gefið að sök í ákæm og er játning
hans studd sakargögnum.
Maðurinn er með hreint sakavott-
orð og var litið til þess við ákvörðun
refsingar. Þá horfir það manninum
til málsbóta að hann hefur leitað til
sálfræðings vegna sjúklegrar klám-
fíknar. Við ákvörðun refsingar var á
hinn bóginn virt manninum til refci-
þyngingar það mikla magn af
myndefhi sem hann hafði í vörslu
sinni og sýnir börn á ýmsum aldri á
kynferðislegan og klámfengin hátt.
Er þess þá einnig að gæta að mikill
hluti myndanna er af grófasta tagi
þar sem fram koma svívirðilegustu
kynferðisbrot gegn bömum. Loks
ber til þess að líta að hluta efnisins
var ákærði með í sínum vörslmn á
vinnustað sínum í skóla, en með því
braut hann gróflega gegn því trausti
sem hann naut sem kennari við skól-
ann. MM
Kalt vatn og fráveita kostar
svipað og heitt vatn og rafinagn
Mikil hækkun fasteignagjalda í
Borgarbyggð tekur á sig ýmsar
myndir þegar fasteignaeigendur
velta tölum fyrir sér. I frétt í
Skessuhomi í síðustu viku var tekið
dæmi af einbýlishúsi í Borgarnesi
þar sem hækkun fasteignagjalda á
milli ára var ríflega 31%. Einstakir
gjaldaliðir hækkuðu mun meira og í
því sambandi má nefha að fráveitu-
gjald þessa húss hækkaði um tæp-
lega 91%. Er gjaldið nú á áttunda
tug þúsunda króna á ári. Fasteigna-
skatturinn er tæpar 100 þúsund
krónur, fyrir aðgang að vatni þarf
að greiða samtals á fimmta tug þús-
unda á ári, sorpgjaldið er tæpar 20
þúsund krónur og lóðarleigan
hækkaði um rúm 53% á milli ára og
er á fjórða tug þúsvmda á ári.
Til þessa hefur einn af stóm
kostnaðarliðum fasteignaeigenda
verið hitun hússins og rafmagn fyr-
ir tæki og ljós. Því er athyglisvert að
velta þeim kostnaðarlið fyrir sér í
áðurnefndu húsi. Síðusm tólf mán-
uði hefur rafrnagnsnotkun í húsinu
kostað tæpar 70 þúsund krónur og
hitun hússins hefur kostað rúmlega
60 þúsund krónur. Vatn er í hugum
landsmanna óþrjótandi og ódýrt. I
hugum fólks hefur heldur ekki ver-
ið talið að það geti verið kostnaðar-
samt að nýta fráveitur.
Hjá umræddum húseiganda í
Borgamesi er það nú svo að að-
gangur að köldu vatni og fráveitu
kostar nú svipaða upphæð og hiti
og rafmagn hússins. Fasteigna-
gjöldin í heild em í þessu tilfelli
tvöfalt hærri upphæð en greitt er
fyrir rafmagn og kyndingu. Trúlega
hefði það einhvern tímann þótt
saga til næsta bæjar.
HJ
Stálsmiðjan fær vilyrði fyrir
lóð á Grundartanga
Stjórn Faxaflóahafna sf. hefur lagsbreytinga
gefið Stálsmiðjunni ehf. vilyrði
fyrir 2.500-3.000 fermetra lóð
undir skemmu á Grandartanga og
jafnframt hefur stjórnin lýst sig
reiðubúna til þess að gera ráð fyrir
á deiliskipulagi aðstöðu fyrir
slippastarfsemi vestast í landi
Klafastaða að höfðu samráði við
sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.
Eins og kunnugt er fer dögum
Stálsmiðjunnar á Mýrargötu í
Reykjavík fækkandi vegna skipu-
og hafa for-
ráðamenn fé-
lagsins rennt
hýru auga til
Grandartanga.
Gísli Gísla-
son hafnar-
stjóri Faxaflóa-
hafna segir þó
að ýmsar rannsóknir þurfi að eiga
sér stað á klapparstæði og fleim
áður en hægt verður að koma fyrir
upptökumannvirkjum í landi
IGafastaða.
HJ/ Ijósm. Mats Wibe Lund
Bundið slidag
HVALFJARÐARSVEIT: Sveitar-
stjóm Hvalfjarðarsveitar samþykkti
í gær ályktun þar sem því er beint til
Vegagerðarmnar að gerð verði áætl-
un um varanlegar endurbætur á
tengivegum í sveitarfélaginu „-
þannig að sem flest heimili hafi
beinan aðgang að tengivegum með
bundnu shtlagi," eins og segir orð-
rétt í ályktuninni. Eins og fram hef-
ur komið í fréttum Skessuhoms hafa
vegamál talsvert verið til umræðu í
sveitarfélaginu að undanfömu og er
í gær afhentu fúlltrúar sveitarfélag-
ins Vegagerðinni athugun á gatna-
mótum í sveitarfélaginu. -hj
Jarðvegsskipti
pósthúss
AKRANES: íslandspósmr hefur
óskað eftir tilboðmn í vinnu við
jarðvegsskipti í lóðiruú Smiðjuvöll-
um 30 á Akranesi þar sem fyrirtæk-
ið hyggst reisa nýtt pósthús. Tilboð
í verkið verða opnuð þann 15. mars
2007. Fyrir nokkm ákvað fyrirtækið
að byggja ný hús á nokkrum lykil-
stöðum á landsbyggðinni og er
Akranes einn þeirra. Við hönnun
húsanna hefur verið smðst við fjög-
ur megin markmið. Að gott aðgengi
verði með vörur til og frá húsi, gott
aðgengi viðsldptavina verði í af-
greiðslu, aðbúnaður starfsmanna
batni og gott flæði verði um hús-
næðið. Fyrirtækið hefúr um árabil
verið til húsa að Kirkjubraut 37. -hj
Vemdum þau!
BORGARBYGGÐ: Fræðslufúnd-
ur um hvemig bregðast á við grun
um vanrækslu eða ofbeldi gegn
bömum og unglingum, verður hald-
inn í félagsmiðstöðinni Oðah, Borg-
amesi í kvöld, miðvikudaginn 7.
mars kl. 20:00. Fyrirlesari er Olöf
Asta Farestveit en hún er annar höf-
undur bókarinnar „Vemdum þau“
sem gefin er út á vegum Mennta-
málaráðuneytisins og Æskulýðsráðs
ríkisins. Fundurinn er fyrst og
fremst ætlaður foreldrum og for-
ráðamönnum bama og unglinga í
Borgarfirði og er í boði foreldrafé-
laga Grunnskólans í Borgarnesi,
Varmalandsskóla, Grunnskóla Borg-
arfjarðar, Klettaborgar og Leikskól-
ans í SkaUagrímshúsinu. -mm
Afli krókaafla-
marksbáta
tvöfaldast
VESTURLAND: Heildarafli
krókaaflamarksbáta með heimahöfn
á Vesturlandi var rúm 12.745 tonn
á síðasta fiskveiðiári. Hafði hann ríf-
lega tvöfaldast frá fiskveiðiárið
2001/2002 þegar hann var rúmlega
6.027 tonn. Þetta kemur fram í svari
Einars Kristins Guðfinnsonar sjáv-
arútvegsráðherra á Alþingi við fyrir-
spum Guðjóns Hjörleifssonar þing-
manns Sjálfctæðisflokksins. Guðjón
spurði hver hefði verið heildarafh
h'nubáta á krókaaflamarki fiskveiði-
árin 2001/2002 og 2005/2006 sund-
urhðaður eftir heimahöfnum. Línu-
afli þessara báta frá Vesmrlandi var
tæplega 4.778 tonn fiskveiðiárið
2001/2002 en árið 2005/2006 var
aflinn 11.275 tonn og hafði því auk-
ist um 136% á þessu tímabili.
Stærstur hluti aflans 2005/2006 var
frá bátum í Olafevík eða 5.454 tonn.
-hj
-------------f-T---------
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1400 krónur með vsk á mánuði en krónur 1 300
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 1050.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhom ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 21 32 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Birna G Konráðsdóttir 864-5404 birna@skessuhorn.is
Kolbrá Höskuldsdóttir 868-2203 kolla@skessuhorn.is
Augl. og dreifing:Hekla Gunnarsd. 821 5669 hek!a@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is