Skessuhorn - 07.03.2007, Qupperneq 8
-1
8
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
Skólasókn 16 ára nemenda
hæst á Vesturlandi
Skólasókn 16 ára nemenda í dag-
skólum skólaárið 2004/2005 var
hæst á landinu á Vesturlandi og á
höfuðborgarsvæðinu utan Reykja-
víkur eða 94%. A landinu öllu var
skólasóknin á sama tíma 93% og
lægst var hún á Norðurlandi vestra
89%. Skólasókn 16 ára nemenda
tók mikið stökk á Vesturlandi á
milli áranna 2003/2004 og
2004/2005. Fór úr 86% í 94% eins
og áður sagði. Fyrra árið var skóla-
sóknin lægst á landinu á Vestur-
landi en var orðið hæst seinna árið
eins og áður sagði. Þetta kemur
fram í skýrslu menntamálaráðherra
um framkvæmd skólahalds á fram-
haldsskólastigi skólaárin
2002/2003, 2003/2004 og
2004/2005 sem lögð var ffam á Al-
þingi.
Þessa miklu breytingu á skóla-
sókn má eflaust að stórum hluta
rekja til þess að Fjölbrautaskóli
Snæfellinga hóf starfsemi sína þann
30. ágúst 2004. I skýrsltmni kemur
einnig ffam að á þessum skólaárum
jókst hlutfall réttindakennara á
framhaldsskólastigi á Vesturlandi
úr 72,3% í 81,7% og á sama tíma
fjölgaði kennurum úr 47 í 60 og
stöðugildunum fjölgaði úr 54 í 69.
I skýrslunni kemur einnig frarn
að tvö af þessum þremur árum var
Fjölbrautaskóli Vesturlands innan
fjárheimilda. Arið 2002 voru fjár-
heimildir skólans 326,9 milljónir
króna en samkvæmt ríkisreikningi
voru útgjöld hans 321 milljón
króna. Arið 2003 voru fjárheimildir
332 milljónir og útgjöld skólans
324.2 milljónir. Arið 2004 fór skól-
inn hins vegar ffam úr fjárheimild-
um. Þær voru 337,4 milljónir króna
en útgjöld 343,7 milljónir króna.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga var
starfandi árið 2004 og fór talsvert
frarn úr fjárheimildum. Þær voru
39.2 milljónir en útgjöld urðu 50,9
milljónir króna.
HJ
Samfylldngarfólk gaf ffítt
í Hvalfj arðargöng
Þingmenn og frambjóðendur
Samfylkingarinnar í Norðvestur-
kjördæmi gáfu vegfarendum um
Hvalfjarðargöngin frítt í göngin
um tíma sl. fimmtudag. Með því
vildi Samfylkingarfólk vekja at-
hygli á þeirri kröfu sinni um gjald-
frjáls göng. Sama dag lækkaði
virðisaukaskattur af veggjaldi um
in voru opnuð hafi verið ráðist í
margar og fjárfrekar framkvæmdir
í samgögnukerfinu en ekkert
mannvirki hafi verið fjármagnað
með skattlagningu á notendur
þess.
Hann segir allar forsendur sem
lagðar voru til grundvallar fram-
kvæmdinni á sínum tíma brostnar
enda geti gamla leiðin um Hval-
fjörð ekki borið þá umferð sem um
göngin fer. Því hafi þau í raun
sparað samfélaginu öllu stórfé við
endurbætur og nýlagningu vegar
um Hvalfjörð auk þess sparnaðar
vegna aukins umferðaröryggis og
minni slysatíðni. Innheimta
veggjaldsins valdi því ójafnvægi
milli landshluta. I því sambandi
nefnir Guðbjartur að 10-12% íbúa
á Akranesi og á Borgarfjarðar-
svæðinu stundi vinnu á höfuð-
borgarsvæðinu og árlegur kostn-
aður fólksbíls af veggjaldi sé ríflega
100 þúsund krónur á ári sé miðað
við lægsta gjald og að íbúar og fyr-
irtæki á Akranesi greiði um 1/6 af
tekjum Spalar árlega sem sé um 28
þúsund krónur á hvern íbúa. Slík
innheimta sé ekki ásættanleg.
Hliðstæð tala fyrir hvern íbúa á
Vesturlandi sé rúmar 15 þúsund
krónur.
HJ
göngin og kostar nú ein ferð um
göngin 900 krónur í stað 1.000
króna áður og ódýrasta gjald fyrir
fólksbíl verður nú 253 krónur
ferðin ef keyptar eru 100 ferðir
fyrirfram.
Guðbjartur Hannesson oddviti
lista Samfylkingarinnar í Norð-
vesturkjördæmi segir lækkun virð-
isaukaskattsins af veggjöldum
vissulega fagnaðarefni en eftir nær
níu ára rekstur Hvalfjarðarganga
sé eðlilegt að göngin verði gjald-
frjáls eins og aðrir þjóðvegir lands-
ins. Hann minnir á að síðan göng-
Formaður bæjarráðs
úr Frjálslynda flokknum
Karen Jónsdóttir bæjarfulltrúi
Frjálslyndra og óháðra í bæjarstjórn
Akraness og formaður bæjarráðs
Akraness hefur sagt sig úr Frjáls-
lynda flokknum eftir skamma við-
veru í flokknum. I samtali við
Skessuhorn staðfesti Karen úrsögn
sína en vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um málið. Karen var í efsta sæti
framboðslistans við síðustu bæjar-
stjórnarkosningar en gerðist ekki
flokksbundin fyrr en skömmu fyrir
landsþing flokksins í janúar. Karen
segir úrsögn sína ekki hafa nein
áhrif á samstarf innan lista Frjáls-
lyndra og óháðra og ekki verði nein
breyting á meirihlutasamstarfinu
við Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórn
Akraness.
Magnús Þór Hafsteinsson al-
þingismaður, varaformaður Frjáls-
lynda flokksins og varamaður
Karenar í bæjarstjórn segir í samtali
við Skessuhorn að úrsögn Karenar
megi rekja til óánægju hennar með
skipan Kristins H. Gunnarssonar í
annað sæti á lista Frjálslynda
tlokksins í Norðvesturkjördæmi.
Magnús segir Karen hafa gengið í
Frjálslynda flokkinn skömmu fyrir
landsþing flokksins og hún hafi
stutt ffamboð sitt til varaformanns
flokksins. Við uppstillingu ffam-
boðslista flokksins í Norðvestur-
kjördæmi hafi Karen óskað eftir því
að kona ffá Akranesi tæki annað
sætið og segist Magnús hafa stutt
þá tillögu. Pólitískt landslag hafi
hins vegar breyst með komu Krist-
ins H. Gunnarssonar í flokkinn og
hann hafi fengið yfirgnæfandi
stuðning innan flokksins til setu í
öðru sætinu. Við þá niðurstöðu hafi
Karen ekki sætt sig við og áð end-
ingu sagt sig úr flokknum eftir
stutta veru þar.
Magnús segir alltaf erfitt að sjá á
bak fólki úr flokknum. Engan
skugga hafi borið á samstarf hans
og Karenar og það verði óbreytt
áfram innan bæjarstjórnarflokks
Frjálslyndra og óháðra á Akranesi.
Fyrir skömmu sagði Karen sig úr
tveimur nefndum á vegum Akra-
neskaupstaðar en segir þá úrsögn
ekki tengjast þessu máli. Hún hafi
verið að taka við nýju krefjandi
starfi og því hafi hún þurff að
minnka við sig í nefndarstörfum.
HJ
Sj ávarútvegsráðherra
heimsótti hrognavinnslu
HB Granda
Sjávarútvegsráðherra virðir hrognafalla loánuna
jjrir sér.
Einar Kristinn Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra heimsótti á laug-
ardaginn loðnuhrognavinnslu HB
Granda hf. á Akranesi. Eins og
ffam hefur komið í fréttum
Skessuhoms stendur hrogna-
vinnsla nú yfir og hefur hún
gengið mjög vel og á dögunum
var vinnslumet slegið hjá fyrir-
tækinu. Standa vonir tdl þess að
takast megi að ffysta um 3.500
tonn en mest hafa áður verið
fiyst 2.400 tonn.
Jón Helgason sölustjóri fyr-
irtækisins og Eggert Guð-
mundsson forstjóri kynntu
ráðherra vinnsluhnu fyrirtækisins.
HJ
Formannsskipti í
Snorrastofti
Á aðalsafnaðarfundi Reyk-
holtskirju þann 15. des 2006 lét
prófessor Bjami Guðmundsson á
Hvanneyri af formennsku í stjórn
Snorrastofu í Reykholti. Hann hef-
ur gegnt því embætti af stakri prýði
sl. átta ár. Bjarni lætur af þessu
starfi að eigin ósk og skulu honum
færðar innilegar þakkir fyrir farsælt
uppbyggingarstarf í þágu stofnun-
arinnar.
Við stjórnarformennsku tekur
Jón Olafsson Phd. Jón kennir
heimspeki við Háskólann á Bifföst
og gegnir stöðu forseta félagsvís-
indadeildar skólans. Hann útskrif-
aðist með Ph.D. gráðu í heimspeki
ffá Columbia háskóla í New York
árið 2000 og hefur síðan sinnt há-
skólakennslu og öðmm störfum við
íslenska háskóla. Jón hefur verið
smndakennari við heimspekiskor
Háskóla Islands og einnig kennt
við Háskólann í Reykjavík og
Listaháskóla Islands. Hann hefur
starfað við Háskólann á Bifröst ffá
2005.
Jón er er boðinn velkominn til
starfa.
(Fréttatilkynning)
Guðmundur ráðinn
forstöðumaður tækni-
deildar Faxaflóahafna
Guðmundur Eiríksson bygginga-
tækniffæðingur hefur verið ráðinn
forstöðumaður tæknideildar Faxa-
flóahafiia sf. og tekur við því starfi af
Jóni Þorvaldssyni sem gegnt hefur
því um áratugaskeið. Jón tekur við
nýjtun verkefiium á sviði þróunar-
og gæðamála auk þess sem hann er
staðgengill hafharstjóra.
Guðmundur nam byggingatækni-
ffæði af ffamkvæmdasviði í Horsens
í Danmörku. Hann er auk þess
húsasmíðameistari. Hann hefur á
liðnum áram starfað við stjórmm og
ffamkvæmdir sem tæknilegtn ffam-
kvæmdastjóri hjá Loftorku auk þess
sem hann starfaði hjá Islenska járn-
blendifélaginu að stofnun og rekstri
Klafa, sem annast losun og lestun
skipa á Grundartanga. Þá hefur
Guðmundur starfað að fram-
kvæmdamálum á Gmndartanga,
fyrst hjá Grundartangahöfh og síð-
an sem verktaki hjá Faxaflóahöfhum
sf. auk þess sem hann annaðist verk-
efrirlit við ýmsar framkvæmdir. Má
þar nefiia uppbyggingu Landnáms-
setur í Borgarnesi, verkstæðisbygg-
ingu GTT á Grundartanga, bygg-
ingar menntaskóla í Borgamesi og
fleira. Guðmimdur hefur formlega
störf hjá Faxaflóahöfhum þann 1.
maí í vor.
HJ
Vinnuhópur um
þjóðlendmnál
Byggðaráð Borgarbyggðar hefur
skipað þá Oðinn Sigþórsson Ein-
arsnesi, Snorra Jóhannesson Auga-
stöðum og Þórólf Sveinsson Ferju-
bakka í vinnuhóp sem geri tillögur
um með hvaða hætti sveitarfélagið
afli upplýsinga um landamerki
eignarlands síns. Páll S. Brynjars-
son sveitarstjóri sagði í samtali við
Skessuhom þetta væri ráðgefandi
vinnuhópur. „Við emm að kalla
eftir ráðgjöf um hvaða vinnu er
best að fara í. Á að fara í samvinnu
við önnur sveitarfélög á sama
svæði, Búnaðarsamtök Vesturlands
eða einhverja aðra. Hvaða gögn
þurfum við og annað í þeim dúr.
Landinu er skipt upp í svæði og
mig minnir að við séum númer
átta. Hins vegar er gamli Kolbeins-
staðahreppur á öðra svæði, eða
númer m'u. Við þurfum að skoða
hvernig við leysum það mál.“
Aðspurður af hverju sveitarfélag-
ið væri að stófha þennan vinnuhóp
núna sagði Páll að það hefði sýnt
sig að betra væri að vera viðbúinn
þegar kæmi að þjóðlendumálunum.
„Við ætlum bara að vera með allt
okkar á hreinu þegar röðin kemur
að okkur,“ sagði Páll S. Brynjars-
son. BGK