Skessuhorn - 07.03.2007, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
Vel heppnaðir TónVest tónleikar í Styldáshólmi
Síðastliðinn miðvikudag voru
TónVest tónleikarnir haldnir í
Stykkishólmi. Um er að ræða sam-
starfsdag allra tónlistarskólanna sex
á Vesturlandi. Samkoman fór að
þessu sinni fram á Hótel Stykkis-
hólmi, enda fjöldi þátttakenda svo
mikill að ekki þótti annar staður
hentugri. Þama komu saman tæp-
lega 130 nemendur og 28 kennarar.
I fallegu vetrarveðri komu full-
trúar skólanna ffá Akranesi, Borg-
arfirði, Dölum, Gmndarfirði og
Snæfellsbæ til Stykkishólms. Gestir
fóm að streyma strax upp úr klukk-
an 10, en dagskrá dagsins hófst
klukkutíma síðar með samæfingu á
lögum ffá Affíku sem Martin Mark-
voll stjórnaði, en hann útsetti
einnig lögin. Þetta var sannkallað
RISA-samspil þar sem þátttakend-
urnir allir léku og sungu saman af
hjartans list.
Eftír pizzuveislu í hádeginu og
upprifjun þess sem átti að spila vom
haldnir opnir tónleikar sem hófust
klukkan 14. Mikill fjöldi gesta
mætti til að hlusta og sumir komnir
langt að. Slíkt verður að teljast sér-
lega ánægjulegt þar sem tónleikarn-
ir vom haldnir á miðjum vinnudegi.
Bæði stórir og smáir samspilshópar
léku ffá öllum skólum og að auki
hin nýstofnaða Trommusveit Snæ-
fellsness. Hún er samstarfsverkefhi
tónlistarskólanna í Grundarfirði og
Stykkishólmi, hópur skipaður slag-
verksnemendum skólanna og flytj-
endur á aldrinum 7-75 ára. Síðast á
efhisskránni var svo RISA-samspil-
ið, sem tókst vel og eftír mikil fagn-
aðarlæti varð hljómsveitin að end-
urtaka armað lagið til að ffiða glaða
og þakkláta áheyrendur. TónVest
2008 verður líklega haldið í Grund-
arfirði á næsta skólaári.
KH/ljósm. ÍHS
Jóhanna Guömundsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Stykkishólms.
Dalamenn sækja
um styrk í fram-
kvæmdasjóð aldraðra
Sveitastjórn Dalabyggðar hefur
sótt um ríflega sextíu milljóna
króna styrk í ffamkvæmdasjóð aldr-
aðra tíl endurbóta á dvalarheimil-
inu Silfurtúni. Heimihð á Silfur-
túni var upphaflega byggt sem
leiguíbúðir fyrir aldraða en gegnir í
dag á margan hátt öðru hlutverki,
eins og víða annarsstaðar hefur
orðið raunin. Nú er þar rekin dag-
vistun og hjúkrunarheimili fyrir
aldraðra.
Að sögn Gunnólfs Lárussonar,
sveitarstjóra Dalabyggðar er húsið
barn síns tíma sem þarf lagfæringa
við. Töluvert þarf að laga innan
dyra, byggja við og bæta aðstöðu
starfsfólks. Aðspurður hvort Dala-
menn myndu hætta við endurbæt-
umar ef neikvætt svar bærist ffá
framkvæmdasjóðnum sagðist
Gunnólfur engu vilja svara um það
á þessu stigi. „Ef sú yrði raunin
verðum við einfaldlega að endur-
skoða málin,“ sagði Gunnólfur.
BGK
Floti Vesuendinga
minnkar
A síðasta ári vom 282 skip og
bátar í skipastól Vesturlands sam-
tals 20.517 brúttótonn að stærð.
Frá árinu áður hefur fækkað í flot-
anum um 23 fley og í tonnum tahð
hefur flotinn minnkað um 816
tonn. Fækkað hefur í öllum flokk-
um skipa og báta á milli ára. Mest
hefur opnum fiskibátum fækkað úr
159 í 144 á milli ára. Vélskipum
hefur fækkað úr 140 í 133 og tog-
urum fækkaði úr 6 í 5. Meðalaldur
skipastólsins stendur hins vegar í
stað á milli ára og er nú 22 ár. Með-
alaldurinn hefur hins vegar verið að
hækka á liðnum ámm því árið 1999
var meðalaldurinn 17 ár. Hæstur er
meðalaldur togaranna eða 25 ár.
Af einstökum höfnum má nefna
að fjölgun varð í skipastólnum á
Akranesi úr 55 í 58 á milli ára.
Einnig fjölgaði á Amarstapa úr 11 í
12.1 öðram höfnum stóð fjöldinn í
stað eða fækkaði. Mest fækkun varð
í Olafsvík þar sem skip og bátar
vom á síðasta ári 62 en árið áður
var fjöldinn 74.
HJ
Það varþröngt setinn bekkurinn enda þurjti 130 manna hljómsveit ai komast ai aukjjölda áhorfenda og kennara semjýlgdi tónlistar-
fólkinu.
Eva Margrét meí dansarana Kristrúnu og Katrínu til sitthvorrar handar.
Síðastliðinn laugardag var Sam-
fés keppnin haldin í Laugardals-
höll, en það er söngvakeppni fé-
lagsmiðstöðva út um allt land sem
heldur keppnina. Fulltrúi Vestur-
lands í keppninni, Eva Margrét Ei-
ríksdóttir, fulltrúi félagsmiðstöðv-
arinnar Óðals og nemandi í Klepp-
jámsreykjaskóla gerði góða hlutí í
keppninni og varð í öðm sætí með
lagið sitt Engill. Eva Margrét segir
upplifunina ffábæra ffá keppninni
og sérstaklega hafi verið gaman að
syngja í höllinni, þar sem hljóm-
burðurinn er jafn góður og raun
ber vitni. Vinkonur hennar þær
Kristrún Sveinbjörnsdóttir og
Katrín Sigurðardóttir dönsuðu
undir söng Evu Margrétar og skil-
uðu þær sínu hlutverki með sóma.
„Aður en ég steig á svið, spurði þul-
urinn mig hvort ég myndi flytja ró-
legt lag eður ei og þar sem ég jánk-
aði því bað hann alla í salnum að
kveikja á símunum sínum og halda
á lofri. Laugardalshöllin var því
upplýst af símum meðan ég fluttí
lagið og stemningin alveg mögn-
uð,“ segir Eva Margrét, að vonum
kát með árangurinn. I fýrsta sætí í
keppninni varð Herdís Rútsdóttir
með lagið Heyr mína bæn, en Her-
dís kemur ffá Hvolsvelli og keppti
fýrir félagsmiðstöðina Tvistinn. I
þriðja sæti í keppninni vom fulltrú-
ar Þebu í Kópavogi. Dómarar í
keppninni voru Friðrik Ómar
söngvari, Lára Rúnarsdóttir tón-
listarmaðtn, Óli Palli á Rás2, Biggi
söngvari Ampop og Regína Ósk
söngkona.
KH
Engar breyt-
ingar hjá MS
í Búðardal
Sveitarstjómarmenn í Dala-
byggð áttu fund með Guðbrandi
Sigurðssyni forstjóra MS í Búð-
ardal síðastliðinn þriðjudag. Þar
kom ffam að engar breytingar
væm fýrirhugaðar á starfsemi
MS á staðnum, nema til hag-
ræðis. Að sögn Gunnólfs Láras-
sonar sveitarsjóra Dalabyggðar
var nauðsynlegt að boða tíl þessa
fundar út af öllum þeim flökku-
sögum sem hafa verið á ferli um
ffamtíð mjólkurstöðvarinnar. „-
Þetta mjólkursamlag hér er
komið tíl að vera og fer hvergi.
Þetta er ein af grunnstoðum
Mjólkursamsölunnar, sagði
Guðbrandur forstjóri á fundin-
um og verður svo áffam. Þær
breytingar sem fýrirhugað er að
fara í varðandi ostagerð og fleira
em fjárfrekar og hafa því teldð
meiri tíma en kannski var ráð-
gert í upphafi. En heimamenn
eiga í þessu fýrirtæki og geta
haft þar áhrif ef þeir vilja og bara
um að gera fýrir menn að standa
vörð um þessa eign sína,“ sagði
Gunnólfur Lárasson að lokum.
BGK
Upphitun fyrir
stjómmálafrindi vorsins
í gær, þriðjudag var efnt til opins
stjómmálafundar í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi. Fundurinn
var hður í dagskrá Opinna daga sem
hófust í gærmorgun í skólanum. A
fundinn mættu fulltrúar frambjóð-
enda þeirra stjómmálaflokka sem nú
eiga sæti á Alþingi. Fluttu frambjóð-
endur stutt ávörp og svöruðu síðan
spumingum fundargesta. A annað
hundrað manns sótti fundinn sem
telja verður fýrsta ffamboðsfundinn
fyrir kosningar til Alþingis sem fram
fara þann 12. maí í vor.
Á myndinni má sjá ffamsögu-
menn flokkanna þá Valdimar Sigur-
jónsson Framsóknarflokknum, Jón
Bjamason Vinstri-grænum, Sturla
Böðvarsson Sjálfstæðisflokki, Guð-
bjart Hannesson Samfylkingunni og
Kristinn H. Gunnarsson Frjálslynd-
um sem er í ræðustól. Að baki hon-
um er Kristján Elís Jónasson sem
stýrði fundinum. HJ