Skessuhorn - 07.03.2007, Síða 11
SSESSlíHÖEKi
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
11
Golfarar skoða stækkun
aðstöðu á Hamarsvelli
Stjórn Golfklúbbs Borgarness er Hamri undir tæki og tól vallarins
að skoða að byggja nýja aðstöðu að og einnig nýja félagsaðstöðu.
Að sögn Guðmundar Eiríksson-
ar formanns stjórnar klúbbsins er
verið að deiliskipuleggja svæðið
núna þar sem væntanlegar bygg-
ingar myndu rísa en stjórn klúbbs-
ins og félagsfundur hafa samþykkt
að halda áfram að skoða málið.
„Aðstaðan í hinu virðulega húsi að
Hamri er einfaldlega orðin of lítil
fyrir starfsemi klúbbsins. Við höf-
um notað neðri hæðina en sú efri
verið leigð út. Ef af nýjum bygg-
ingum verður munum við áffam
nýta gamla húsið undir þá starf-
semi sem verið hefur á eftir hæð-
inni en flytja félagsstarfið í nýja
húsið,“ sagði Guðmundur Eiríks-
son.
BGK
Nýtt apótek á Akranes
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt fyrir sitt leyti að Olafi Adolfs-
syni lyfjafræðingi á Akranesi verði
veitt leyfi til lyfsölu í nýrri lyfjabúð
sem verður til húsa að Smiðjuvöll-
um 32 á Akranesi. Samkvæmt lög-
um skal heilbrigðisráðherra leita
umsagnar viðkomandi sveitar-
stjómar vegna umsókna um ný lyf-
söluleyfi. A lóðinni Smiðjuvellir 32
rís nú verslunarhús sem meðal ann-
ars mun hýsa verslun Bónuss. Þeg-
ar framkvæmdir hófúst við bygg-
ingu hússins var stefnt að því að
verslun í húsinu yrði opnuð um
hvítasunnuna á þessu ári, eða í lok
maí.
Nú er starfandi eitt apótek á
Akranesi og er það Lyf og heilsa
sem rekur það.
HJ
Vilja tafarlausa færslu á
þjóðvegi um Borgames
Sveitarstjórn Borgarbyggðar fékk
á dögunum samgönguáæltun fyrir
árin 2007-2010 til umsagnar ffá
samgöngunefnd Alþingis. Ekki var
minnst á flutning á þjóðvegi númer
1 við Borgarnes í þessari áætlun, en
sveitarstjórn leggur áherslu á hann
verði færður sem fyrst. Páll S.
Brynjarsson, sveitarstjóri sagði í
samtali við Skessuhorn að lögð væri
áhersla á það í umsögn sveitar-
stjórnar að flutningi á þjóðveginum
verði flýtt, þannig að framkvæmd-
um verði lokið á yfistandandi kjör-
tímabili sveitarstjórnar og því brýnt
að hefja undirbúning þegar í stað.
Umferð í gengum bæirrn hafi aukist
gífurlega þannig að vegurinn sé
einfaldlega sprunginn. Sveitar-
stjórnin sé því að þrýsta á Vega-
gerðina og Alþingi að umræddur
flutningur komi inn á þá sam-
gönguáæltun sem nú er verið að
fjalla um í þinginu. Ekkert svar hef-
ur komið við þessari málaleitan enn
sem komið er.
BGK
Borgarbyggð tald að
sér skrífstofuhald HV
Heilbrigðisnefnd Vesturlands
hefur fahð formanni nefndarinnar,
Bimi Elísyni að ganga til samninga
við sveitarfélagið Borgarbyggð um
fjárhags- og bókhaldslega þjónustu
vegna Heilbrigðiseffirlits Vestur-
lands þannig að skrifstofa Borgar-
byggðar taki að sér fjármálaumsýslu
eftirlitsins í samvinnu við fram-
kvæmdastjóra á hverjum tíma. Þá
var einnig samþykkt að fjárhagsáætl-
un ársins yrði tekin upp og ffamlög
sveitarfélaga endurskoðuð með hhð-
sjón af fjárþörf efrirlitsins innan árs-
ins „þannig að ekki þurfi að reka
starfsemina á dýrum yfirdrætti," eins
og segir í samþykkt Heilbrigðis-
nefhdar Vesturlands. llj
Æ? 'A .J MYND MÍN
: C | AF HALLGRÍMI
fc" f% | _ ; Priðjudaginn 13. mars
jpj^ W‘f ,:7f, kl. 1 7:00 verður opnuð í .
\ ít ‘A4 ■ Hallgrímskirkju í Saurbæ
á" / 1 myndlistarsýningin: :
Mynd mín af Hallgrími.
í\ Við sama tækifæri verða
opnaðar glæsilegar svítur í
% ff Hótel Glym. Myndlist, tónlist,
fs I , ^ jfc ‘ ávörp og veitingar.
I, r Allir velkomnir. ‘
1"■ •- i i«v* Sóknarnefnd Saurbæjarsóknar,
|...' ■ a f1 >/* 5- ' ■iV.; : .V/. \ jkTy - Hótel Glymur og ...
A Menningarmálanefnd Hvalfjarðarsveitar.
„Núfljúga hvi'tu englarniru
Dagskrá:
Söngdagskrá - nokkur lög Magnúsar Eiríkssonar
Einþáttungarnir „Flugfreyjuþáttur“ og „Er það
ég?“ eftir Kristínu Gestsdóttur
Leikritið Núfljúga hvítu englarnir eftir Örnólf
Guðmundsson
Frumsýning laugardaginn 10. mars kl. 21:00
2. sýning sunnudaginn 11. mars kl. 21:00
3. sýning fimmtudaginn 15. mars kl. 21:00
4. sýning föstudaginn 16. mars kl. 21:00
I 5. sýning laugardaginn 17. mars kl. 21:00
1 Miðapantanir í síma 4351137 og 846 5152
Ungmennafélag Reykdœla
t
Kæru ættingjar og vinir!
Við þökkum samúð ykkar og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu
Laufeyjar Valgeirsdóttur,
husfreyju Bjarnarhöfn
Sérstakar alúðarkveðjur sendum við starfsfólki Sankti Franciskusspítalans
í Stykkishólmi. Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd fjölskyldu Laufeyjar
Aðalheiður Bjarnadóttir
Hildibrandur Bjarnason
Ásta Bjarnadóttir
Sesselja Bjarnadóttir
Jón Bjarnason
Karl Bjarnason
Guðrún Bjarnadóttir
Signý Bjarnadóttir
Valgeir Bjarnason
Jónas Þorsteinsson
Hrefna Garðarsdóttir
Sibilla Bjarnason
Bjarni Alexandersson
Ríkharð Brynjólfsson
Ingibjörg S. Kolka Bergsteinsdóttir
Jóhanna Karlsdóttir
Hjálmar Jónsson
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
Sjúkraliðar -
ófaglært starfsfólk!
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi óskar
eftir að ráða sjúkraliða og ófaglært starfsfólk til
afleysinga á Iegudeildir stofnunarinnar í sumar.
Allar nánari upplýsingar um störfin og launakjör
gefur hjúkrunarforstjóri í síma 430 6012.
SHMf
Sjúkrahúsið og hellsugazslustöðin á Akranesi
Merkigerði 9 • 300 Akranes