Skessuhorn - 07.03.2007, Page 13
iSiÉSSWlWME i
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
13
traustur peningaskápur en við vorum
samt aldrei í rónni yfir því að svona
miklir fjármunir væru í húsinu. Á
meðan Sturla Jóhannesson bjó á
Sturlu-Reykjum og vann í Borgamesi
var oft farið, snemma á morgnana,
með ávísamar til hans sem kom þeim
í bankann fyrir okkur. Það var mikill
munur þegar gíróið kom og við
þurfium ekki að geyma alla þessa
peninga heima því það hefur alltaf
verið mikil velta í gegnum pósthúsið.
Fólk nýtti þetta eins og banka sem
skiljanlegt var og gerði það alla tíð
meðan pósthús var í Reykholti."
Fjölskyldan byggði á
túnunum
Þar sem húsið hennar Dóm stend-
ur vom bara tún í gamla daga. Þau
hjón ásamt öðrum hjónum til em þau
fyrstu sem reisa hús á þessum stað í
hverfinu, eða ofan við skólahúsin og
kirkjuna. Síðan byggðu synir þeirra
tveir fyrir ofan þau í götunni svo og
tengdafólk í tveimur öðrum húsum.
Þarna heyjuðu þau hjónin meðan
búið var með kýr og kindur. Á þess-
um ámm þótti nauðsynlegt að halda
einhverjar skepnur en vegna þess að
Jón bóndi lagði gjörva hönd á margt,
bæði við kennslu og í félagsmálum og
Dóra var upptekin við símstöðina
þurfti aðstoð við skepnuhaldið.
,Jón bjó á móti föður sínum með
kýr, en hafði h'tinn tíma til að sinna
þeim sjálfur. Við vorum með afar
góðan fjósamann sem sá um fjósið.
Þegar hann gifti sig var ákveðið að
slátra öllum kúnum," segir Dóra. I
staðinn var ánum fjölgað og mest
búið með um þrjúhundmð fjár. Þá
kom Þorvaldur sonur okkar, sem nú
býr í Brekkukoti, fljótlega inn í þann
búskap með pabba sínum.“ Aðspurð
hvar þau fengu mjólk efidr að kúnum
hafði verið slátrað segir hún það hafi
verið ffá Breiðabólsstað. „Við áttum
svo gott nágrenni við þá sem og alla
aðra hér, það var aldrei neitt vanda-
mál.“
Lífið í Reykholti
Margir vita að þau hjón, Jón Þóris-
son og Halldóra spiluðu mikið
bridge, sem jafnvel þótti heldri
manna spil hér áður fyrr.
„Það var mikið spilað bridge hér í
Reykholti strax. Frú Anna Bjama-
dóttir kom því á og flestir vora for-
fallnir í þessu, segir Dóra hlægjandi.
Það var spilað í hverri viku, oft tvisvar
til þrisvar og jafhvel á tveimur eða
þremur borðum. Við fómm bara
heim til hvers annars til að stunda
þessa iðju, sem var afskaplega
skemmtileg. Eiginmaður Onnu, sr.
Einar tolldi ekki vel við. Hann var at-
hafhamaður og vildi meiri hasar en
spilamennskan bauð upp á. Honum
fannst mest gaman ef hann gat
sprengt upp sagnimar. En auðvitað
varð þessi iðja til þess að fólkið
kynntist betur. Enda var hér mikið líf
og mikil samstaða meðal íbúanna. I
hverju húsi vora böm sem gengu út
og inn hjá hvert öðra, staðurinn
ómaði og iðaði af h'fi. Og gamla
skólahúsið var fullt af fólki en ekki
bókum, eins og nú er. Við Nonni
voram einnig meðal stofhfélaga í
Bridgefélaginu hér og spiluðum
mörg ár í Logalandi og ég svo áffam
effir að hann lést. Líklega er ég búin
að spila hátt í fimmtíu ár. En nú era
nokkur ár síðan ég hætti. Flestir þess-
ara granna minna hafa safnast til
feðra sinna og era kannski að spila
hinum megin, hver veit? Þetta fer á
þennan veg þegar maður lifir svona
lengi."
Daðrað við leiklistina
Blaðamaðtu man vel efrir því sem
bam að hafa farið í leikhús upp í
Logaland. Þar var á þessum árum og
síðar sett á fjahmar hvert stórvirkið á
fætur öðra. I minningu blaðamanns
er Dóra oft á sviðinu og ekki síst
minnisstæð sem kolsvört vinnukona
og kerlingin í hinu gullna hliði Dav-
íðs Stefánssonar ffá Fagraskógi.
„Eg hafði gaman af því að leika og
hafði gert eitthvað af því þegar
ákveðið var að setja upp Gullna hhð-
ið“, heldur Dóra áfram. „Bjarni
Steingrímsson leikstjóri sem var hér
heimagangur og Nonni minn vora að
leita að konu í hlutverk kerlingarinn-
ar. Þeir þóttust fara á bæi og reyna að
fá einhverja til fylgis við sig en ég hef
þá grunaða um að hafa ædað mér
hlutverkið ffá upphafi," segir Dóra
kímin. „Eg var orðin fimmtug þegar
þetta var og hafði mikið umleikis hér
heima. Kerlingin er nærri þrjá tíma á
sviðinu svo mikið þurfri að læra. En
það vora allir ósköp góðir við mig.
Séð var um að ég gæti lagt mig efrir
hádegið svo einhverjir kraffar væra
efrir til að þjóna leikhstinni á kvöldin.
I endurminningunni var þetta mikið
álag og ég var afskaplega þreytt um
vorið, þegar sýningum lauk. Við
hjónin vorum bæði í leikhstarstarf-
inu. Nonni var yfirleitt sviðsmaður,
sá um ljósin og þess háttar en ég var
ffekar á sviðinu. Þetta var skemmti-
legur tími þótt oft væri lítið sofið."
Jón Þórisson, eiginmaður Dóra
var hagmæltur vel þótt ekki hefði
hann flíkað því mikið. Þegar Gullna
hliðið var á fjölum Logalands samdi
hann kvæði sem Dóra hefúr góðfús-
lega leyff að birt séu erindi úr.
Þeir sem enda œfiskeið
og atla að hvíla ífriði.
Verða að arka alla leið
upp að „ Gullna hliði. “
Undantekning er þófrá
öllum slíkum venjum.
Eiginkonan tók upp á
undarlegum kenjum.
Allar natur afir hér
eins og haldin sýki.
Hún atlar seinna aðýta mér
inn í Himaríki.
Og síðasta vísan er svona:
Alyktun því erþað mín
uppfráþessu ég megi.
„Dtýga hór og drekka vína
og drabba að hinsta degi.
Reykholt nútímans
Mikil breyting hefur orðið á um-
hverfinu í Reykholti ff á því að Dóra og
Jón settust þar að og byggðu fyrsta
einbýlishúsið í götunni. Enn iðar stað-
urinn af lífi. Víða er verið að byggja og
umhverfið er orðið fjölþjóðlegra en
Hús Halldóru ogjóns er til vinstri á myndinni. Til hægri er hús sem Páll heitinn Jóns-
son og Edda Magmísdóttir byggðu á svipuðum tíma. Fyrirframan húsin eru túnin sem
Dóra minnist á í viðtalinu.
Feðgamir Þorvaldur Jónsson ogjón Þórisson að spá í sviðið og staðsetningu á Ijósum t
Logalandi, fyrir einhverja leiksýninguna.
það var. Næsta kynslóð í hópnum
hennar Dóra hefur byggt og sest að í
Reykholti sem henni finnst ekki slæmt.
„Eg get ekkert kvartað, heilsan er
góð og nóg að sýsla við, þótt atgangur-
inn sé ekki eins mikill og var. Það
hugsa allir vel um mig af mínum, sem
er gott. Eg fer og kíki á jafhaldrana á
miðvikudögum niður í Brún. Þar kom-
um við saman og eigum góðar stundir.
Ég keyri sjálf til góðra vina sem taka
mig með og er því ekki alveg upp á
aðra komin með það. Lífið er yndislegt
og gott að vera tdl, þótt ég skilji ekki al-
veg í Skaparanum að láta mann hfa
svona lengi,“ segir Hahdóra Þorvalds-
dóttir að lokum.
Gott var að vera í návist þessarar
ljúfu konu, heyra um Reykholt hðinna
daga og lífið fyrr á árum. Margt hefur
verið brallað og miklu komið í verk á
langri og farsælh æfi. Og þótt að Reyk-
holtsdalur hafi bæði verið þröngur og
með þungu loftri í upphafi, þá er hann
sannarlega sá staður sem viðmælandi
unnir mest í dag, enda búin að búa þar
yfir sextíu ár. Blaðamaður fer að tína
saman dótið sitt, hugsa sér til hreyfings
með tilhlökkun í huga yfir næstu end-
urfúndum við HaUdóru Þorvaldsdótt-
ur í Reykholti.
BGK
Meðal efnis í rnesta blaði verður efni tengt fermingum á Vesturlandi í vor.
*
I blaðinu verða m.a. upplýsingar umfermingarböm, hvemer og hvar
fermingarguðsþjónustur verða ogýmislegtfleira.
Þeir auglýsendur sem vilja tryggja sérpláss hafi samband á netfanginu
hekla@skessuhom.is eða í stma 433-5500
Grunnskólar Borgarbyggðar
auglýsa eftir kennurum
BORGARBYGGÐ
Borgarbyggð er öflugt og
framsækið sveitarfélag íjaðri
höfuðborgarsvæðisins. íbúarnir
eru tæplega 4.000 og dreifast
nokkuð jafntí þéttbýli og dreifbýli.
Mikil áhersla er tögð á
fræðslumál ísveitarfélaginu. Þar
eru þrir grunnskólar, sex
leikskólar, tónlistarskóli, tveir
háskólar (á Bifröst og á
Hvanneyri), auk þess sem
Menntaskóli Borgarfjarðar tekur
til starfa næsta haust. Góð
íþróttaaðstaða og öll helsta
þjónusta er til staðar.
GRUNNSKÓLAR
BORGARBYGGÐAR
Grunnskólar Borgarbyggðar eiga
með sér mjög gott samstarf,
meðal annars i símenntun
starfsmanna. Framundan er
metnaðarfuiit þróunarstarf við
endurskoðun aðalnámskrár
grunnskóla í samstarfi við
menntamálaráðuneytið og
Menntaskóla Borgarfjarðar.
Umsóknarfrestur um störfin er
til 22. mars nk. Allar nánari
upplýsingar veita skóiastjórar
viðkomandi skóla.
ísamræmi við jafnréttisstefnu
Borgarbyggðar eru jafnt karlar
sem konur hvött tii að sækja um
störf hjá sveitarfélaginu.
Grunnskóli Borgarfjarðar
Skólastarf fer fram á Kleppjárnsreykjum og Hvanneyri. Nemendum er einnig kennt á
Meðferðarheimilinu á Hvítárbakka. í skólanum eru alls um 165 nemendur; um 120 nemendur
eru á Kleppjárnsreykjum í 1.-10. bekkog um 40 nemendur í 1.-5. bekká Hvanneyri. í skólanum
er íþróttum og hvers kyns hreyfingu, heilbrigði og umhverfismennt gert hátt undir höfði.
Grænfánanum er flaggað á Hvanneyri og útikennslu byggðri á verkefninu „Lesið í skóginn -
með skólum" er sinnt á báðum stöðum í samvinnu við umhverfið. Gott mötuneyti er ískólanum.
Kennara vantar í eftirfarandi stöður frá upphafi næsta skólaárs:
Að Kleppjárnsreykjum:
• almenn bekkjarkennsla
• smíðar
• íþróttir
• tónmennt
Að Hvanneyri
• almenn bekkjarkennsla
• list- og verkgreinar
• íþróttir
Upplýsingar veitir Guðlaugur Óskarsson skólastjóri í símum 435-1171
og 861-5971 (goskars@ismennt.is). Heimasíða skólans er: www.gbf.is.
Grunnskólinn í Borgarnesi
í skólanum eru rúmlega 330 nemendur og fer fjölgandi enda er Borgarnes ört vaxandi staður.
Uppbyggingarstefnan - uppeldi til ábyrgðar (e. Restitution) er höfð að leiðarljósi í starfi skólans,
en einkunnarorð hans eru; sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur. Skólinn er „Skóli á grænni
grein"og leggur sem slíkur áherslu á umhverfismál. Lögð eráhersla á fjölbreytta ogsveigjanlega
kennsluhætti, teymisvinnu kennara og vellíðan nemenda. Við erum því að leita að sjálfstæðum,
hugmyndaríkum og kraftmiklum kennurum sem eru tilbúnir til að vera þátttakendur í framsæknu
skólastarfi.
Kennara vantar í eftirfarandi stöður frá upphafi næsta skólaárs:
• almenn bekkjarkennsla
• sérkennsla
• tónlist
• heimilisfræði
• erlend tungumál
• raungreinar
Upplýsingar veita Kristján Gíslason skólastjóri (kristgis@grunnborg.is) og Hilmar
Már Arason aðstoðarskólastjóri (hilmara@grunnborg.is) í síma 437-1229. Heimasíða
skólans er: www.grunnborg.is.
Varmalandsskóli
í skólanum eru um 150 nemendur. Varmalandsskóli er staðsettur í einstöku umhverfi um 90
km. frá Reykjavík, miðja vegu milli Borgarness og Bifrastar. Starfsemi skólans einkennist af
metnaðarfullu og framsæknu skólastarfi, með einkunnarorð skólans; gleði, heilbrigði og árangur
að leiðarljósi. Varmalandsskóli óskar eftir kraftmiklum og drífandi kennurum í jákvætt
starfsumhverfi. Möguleiki er á húsnæði á staðnum.
Kennara vantar í eftirfarandi stöður frá upphafi næsta skólaárs:
• almenn bekkjarkennsla á yngsta- og miðstigi
• enska
• heimilisfræði
• íþróttir
• tónmennt
Upplýsingar veitir Þórunn María Óðinsdóttir skólastjóri í símum 430-1502 og
840-1520 (thorunn@varmaland.is). Heimasíða skólans er: www.varmaland.is.
BORGARBYGGÐ