Skessuhorn - 07.03.2007, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
15
Stakkhamarshjónin fá
landbúnaðarverðlaun
Hjónin Laufey og Þröstur ífjósinu á Stakkhamri.
Landbúnaðarverðlaun voru sl.
sunnudag veitt við upphaf Búnað-
arþings. Guðni Agústsson land-
búnaðarráðherra afhenti landbún-
aðarverðlaunin sem nú eru afhent í
ellefta skipti, en verðlaunin hlutu
ábúendur á bæjtm-
um Syðra-Skörðu-
gili, Asaskóla
(minkabúið Mön),
Úthlíð og Stakk-
hamri á Snæfells-
nesi. Hjónin Lauf-
ey Bjarnadóttir og
Þröstur Aðalbjarn-
arson á Stakkhamri
fá verðlaunin fyrir
áræði og dugnað í
kúabúskap. Eins og
Skessuhorn greindi
ffá fyrir skömmu var búið á Stakk-
hamri með hæstu afurðir kúa á
liðnu ári en þar hefur markviss
ræktun og dugnaður bænda sann-
arlega skilað sér.
MM
SAMFYLKINGIN
KREFST BREYTINGA
LaugQrdQginn 10. mars klv 12.00 hefst opinn
kjördæmafundur á Hótel Ólafsvík.
Fundurinn verður settur með iéttum hádegisverði en síðon hefjast pallborðsumræður um
helstu málefni Samfylkingarinnar í kjördæminu. Hópavinna hefst að loknum umræðum.
Fundi verður síðan slitið með sameiginlegum Isvöldverði.
Fjölskyldan verður í fyrirrúmi og eru foreldrar hvattir til að taka börn sín með.
Sérsfök barnadagskrá.
Sérstakur heiðursgesfur er Guðmundur Steingrímsson.
MÆTUM OG MÓTUM OKKAk FRAMTÍÐ.
AHir í pottinn!
Áttundi bekkir Grunnskólans í
Stykkishólmi og Grunnskóla
Grundarfjarðar áttu ffábæra viku í
skólabúðunum á Laugum í Sæl-
ingsdal í liðnum mánuði. Hér má
sjá krakkana skemmta sér við að
koma sem flestum í pottinn og er
það áskorun blaðsins til lesenda að
reyna telja hversu margir eru í
pottinum. KH
Ný Scania til Breiðavíktir
Nýlega afhenti OJ-Arnarson ehf. kassa sem er 7,5 m. að lengd, með
útgerðarfélaginu Breiðavík í Rifi á frystivél og vörulyftu. Á myndinni
Snæfellsnesi nýja Scania R 340 er Örn Johansen ffamkvændastjóri
flutningabiffeið. Biffeiðin er mjög ÖJ-Arnarsonar ehf að afhenda bif-
vel útbúin með svefhhúsi, olíumið- reiðastjóra Breiðavíkur bifreiðina.
stöð og með einangruðum ffysti- MM
Gangstéttir bættar
í Borgamesi
Á fundi Byggðaráðs Borgar-
byggðar fyrir skömmu var sam-
þykkt að fela forstöðumanni ffam-
kvæmdasviðs, Sigurði P. Harðar-
syni að leggja fram áætlun um end-
urbætur á götum og gagnstéttum í
Borgarnesi. Jafhframt að huga að
nýframkvæmdum við götur og
göngustíga.
Að sögn Páls S. Brynjarssonar
sveitarstjóra er meira fjármagn af-
lögu í gangstéttir og götur í sveitar-
félaginu en undanfarin ár og því var
ákveðið að gera gangskör í að lag-
færa þar sem úrbóta er þörf. Einnig
hefur komið upp sú hugmynd að
gera göngustíga innan Borgarness
þar sem svipaðar ffamkvæmdir hafa
átt sér staði í öðrum þéttbýliskjöm-
um sveitarfélagsins á liðnum árum.
Einkum er rætt um að gera göngu-
stíg úr svo kölluðu Bjargslandi og
upp að golfvellinum við Hamar og
e.t.v. víðar. BGK
Oskað eftir nafiii á nýju
Grundarfjarðarbryggjuna
Undanfarið hafa verið miklar
hafnarffamkvæmdir í Grandarfirði
sem munu bæta aðkomu og þjón-
ustu þar enn frekar, enda metnað-
armál bæjarbúa að bjóða upp á þá
bestu hafnarþjónustu sem völ er á.
Nú fer þeim hinsvegar brátt að
ljúka og á vef Grandarfjarðar er
íbúum og velunnurum staðarins
boðið að koma með tillögur að
heiti á nýju bryggjuna í Grundar-
fjarðarhöfh. Öllum er frjálst að
taka þátt og eins og segir í auglýs-
ingunni, er heimilt að leggja til
fleiri en eitt heiti. Tillögurnar eiga
•að berast á tölvupóstfangið
grundarfjordur@grundarfjordur.is
í síðasta lagi 8. mars n.k. KH
Frekari upplýsingar er að finna á www.samfylking.is/nordvesfur og í
síma 691-6300 eða í gegnum nefpósf nv@samfylking.is
Samfylkingin
eiRABAM* /
HANDVERKSBAKARÍ *
Digranesgötií 6 - Borgamesi - sími: 437 tg-20
Morgunkaffi í boði
Geira milli klukkan
7 og 9 alla virka daga
KAKA ÁRSINS:
Tilboðsverð 1.950,-
Helgartílboð:
Nýbökuð rúnstykki 2 fyrir 1
frá klukkan 7-12 laugardaga
og 9-12 sunnudag
Vikutilboð frá föstudegi til fimmtudags:
Jólakaka 190 kr.
Súkkulaði og appelsínukaka 190 kr.
BORGARBYGGÐ
Skipulagsauglýsing
Gamli miðbærinn Borgarnesi, Deiliskipulagsbreytingar
í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst
eftir athugasemdum við breytingu á ofangreindu skipulagi.
Breytingar felast í því að íbúðarfjölda í einstökum húsum er breytt ásamt því sem
bílastæðum við Skúlagötu er breytt.
Deiliskipulag verðurtil sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá 7.03.2007 til 4.04.2007.
Fresturtil athugasemda vegna deiliskipulags rennur út 19.04.2007
Athugasemdir við breytingar á skipulaginu skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu
Borgarbyggðar Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda,
telst samþykkur tillögunni.
Borgarnesi 27.02.2007
Forstöðumaður framkvæmdasviðs
Borgarbyggðar