Skessuhorn - 07.03.2007, Side 19
*&£saium/>~j
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
19
Jörundarholt íjölmennasta
gata Vesturlands
Um síðustu áramót bjuggu 498
manns við Jörundarholt á Akranesi
og var það fjölmennasta gata Vestur-
lands. Þar bjuggu því rúmlega 3,3%
íbúa á Vesturlandi og rúmlega 8,3%
íbúa á Akranesi. Gömr á Akranesi
eru í fimm fyrstu sætum yfir fjöl-
mennustu götur á Vesturlandi. Næst
flestir búa á Vesmrgöm eða 397 tals-
ins, á Einigrund búa 267 manns, á
Garðabraut voru íbúarnir 256 og á
Suðurgöm voru þeir 252.
Grundargata í Grundarfirði var
sjötta fjölmennasta gatan með 241
íbúa og við Kveldúlfsgöm í Borgar-
nesi bjuggu 208 manns. Við Borgar-
braut í Borgamesi bjuggu 188, við
Jaðarsbraut á Akranesi bjuggu 174
og íbúar Reynigrundar voru 172
talsins.
Af öðrum byggðarlögum má
nefha að við Brautarholt í Olafsvík
bjuggu 134, við Háarif í Rifi bjuggu
127 manns, við Silfurgötu í Stykk-
ishólmi bjuggu 114 manns, við
Túngöm á Hvanneyri bjuggu 89
manns og við Bárðarás á Hell-
issandi bjuggu 82 íbúar um síðusm
áramót.
Hjf
Menntaskólimi að kíkja upp úr ’"
Þeir sem hafa átt leið um Borgames undanfarið hafa sé hina
stóru holu þar sem Menntaskóli Borgarfjarðar á aó rísafyrir
haustið. Nú er hinsvegar að verða hreyting á og menntaskólinn
farinn að kíkja upp úrjörðinni.
Verió var aó hífa einingar í hyggingu menntaskólans síóastlióinn
þriójudag. Svo nú er aó veróa breyting á svœóinu sem í daglegu
tali hefur gengió undir nafninu „holan. “
Ljósm. BGK
Nú fljúga hvítu englamir í Logalandi
Hópurinn sem stendur aó uppfierslu leikverkanna í Logalandi.
Undanfamar vikur hefur Ung-
mennafélag Reykdæla æft af kappi
fyrir væntanlega opnun á kaffileik-
húsi í Logalandi. Um næsm helgi,
þ.e. á laugardaginn dregur svo til
tfðinda því þá verður ffumflutt nýtt
leikverk; „Nú fljúga hvím englarn-
ir,“ eftir Omólf Guðmundsson ráðs-
mann í Reykholti. Verkið fjallar um
nokkuð ölkæran sveitaprest sem
brátt lætur af störfum, samskipti
hans við söfhuð sinn og hið kirkju-
lega yfirvald. Leikstjóm er í hönd-
um Steinunnar Garðarsdótmr og
höfundar.
Einnig verða fluttir einþáttung-
arnir „Flugffeyjuþáttur" og „Er það
ég,“ eftir Kristínu Gestsdótmr. Þá
verða flutt nokkur af lögum Magn-
úsar Eiríkssonar.
Rík hefð er fyrir leikstarfi hjá
Ungmennafélagi Reykdæla. Fljót-
lega efdr stofhun félagsins fyrir svo
sem eins og 99 árum síðan var farið
að ræða um hvort ekki ætti að setja
upp leiksýningar, en fyrstu ömggu
heimildir um sýningu í Logalandi
em ffá árinu 1916 og mun þá hafa
verið sett upp verkið „Sýslufundur-
inn.“
Ungmennafélag Reykdæla fagnar
100 ára affnæli á næsta ári og er af
því tileíhi stefnt að viðburðaríku af-
mælisári, meðal annars með upp-
færslu leikverks.
Fmmsýning á Nú fljúga hvím
englarnir ásamt einþáttungunum,
verður í kaffileikhúsinu í Logalandi
laugardaginn 10. mars og hefst sýn-
ing kl. 21:00.
MM
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í útboðsverkið
Brekkubæjarskóli - klæðning útveggja
Helstu magntölur eru:
Undirbúningur og viðgerð á einangrun 1.400 m2
Burðargrind og veggfestingar 2.800 m
Slétt álklæðning 1.358 m2
Verkinu er skipt í tvo áfanga og verklok skulu vera sem hér segir:
1. áfangi................. 15. júní 2007
2. áfangi................. 15. júlf 2007
i Útboðsgögn eru til sölu frá og með 12. mars n.k. hjá tækni- og umhverfissviði
I Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8 á Akranesi fyrir kr. 3.000,-.
* Tilboð verða opnuð að Dalbraut 8, fimmtudaginn 29. mars 2007, kl. 14:00.
Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs
/------------------------\
^ermlngar 09
pásbr nÁ(0Ast
Verðum með allt fyrir fermingarveisluna
Kerti, servíettur, borðskraut og fleira
Persónuleg þjónusta Verið velkomin
'RÍómaversfmin
'BÍómahorq
Hyrnutorgi - Borgarnesi - sími 437 1878^/
Samfylkingarfélog
Borgarbyggðar
Samfylkingarfélag Borgarbyggðar boðar til opins
félagsfundar fimmtudaginn ö. mars kl. 20.30
(eða strax eftir leik Skallagríms og ÍP. í körfunni).
Fundurinn verður í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi.
Guðbjartur Hannesson og fleiri
góðir gestir koma ó fundinn.
Allir velkomnir, bæði nýir félagar og gamlir.
Stjórn Samfylkingarfélags Borgarbyggðar.
Samfylkingin
Grundarfjarðarbœr
Starf skrifstofustjóra
Grundarfjarðarbœr auglýsir starf
skrifstofustjóra laust til umsóknar.
Skrifstofustjóri stjórnar skrifstofuhaldi bæjarins og hefur
umsjón með bókhaldi, gerð fjárhagsáœtlana, fjárreiðum,
uppgjörsvinnu og ársreikningagerð. Skrifstofustjóri hefur
umsjón með starfsmannamálum, ritar fundargerðir
bæjarráðs og bæjarstjórnar, er staðgengill bæjarstjóra
og annast önnur störf á sviði stjórnsýslunnar sem
bæjarstjóri felur honum.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Miðað er við að
viðkomandi hefji störf í mars. Næsti yfirmaður
skrifstofustjóra er bœjarstjóri
Grundarfjörður er framsækið sveitarfélag þar sem búa tæplega
eitt þúsund íbúar. Góð þjónusta er í bœnum, þ.á.m. góður
grunn- og leikskóli, tónlistarskóli, heilsugœsla, verslanir, ýmis
önnur þjónusta, verktakajýrirtœki og íþróttaaðstaða. Umhverfi
og náttúrufegurð við Breiðafjörðinn er víðkunn og rómuð.
Hœfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem er
skipulagður og agaður í störfum og hefur mikla hæftleika
tilgóðra mannlegra samskipta. Æskilegt er að viðkomandi
hafi háskólamenntun sem nýtist í starfinu, en góð reynsla
af sambœrilegu starfi kemur einnig til greina.
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri þekkingu og færni í
tölvuvinnslu. Skrifstofustjóri hefur samstarf við alla
starfsmenn og stjórnendur bæjarins og einnig eru mikil
samskipti við íbúana. Leiðbeint og aðstoðað verður við
húsnæðisleit ef þörf er á því.
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2007
Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun og
ferilskrá (CV) skal skila til skrifstofu
Grundarfjarðarbœjar merktar: „Starf skrifstofustjóra ".
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur
verið tekin um ráðningu í starfið.
Bœjarstjóri veitir frekari upplýsingar um starfið í
s: 430 8500 eða á skrifstofu Grundarfjarðarbœjar,
Grundargötu 30, Grundarfirði.
Tölvupóst má senda á: baejarstjori@grundarfjordur.is.
Heimasíða: www.grundarfjordur.is