Skessuhorn - 07.03.2007, Side 20
20
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
■KrviliM...
✓
IBiiiiSiií
mmmsa.
m
í : ■:
14 ÁRA OG YNGRI 1000
—
______________________
ATVINNA
Óskum eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
Vélvirkja
Bifvélavirkja
Meiraprófsbílstjóra
Verkamenn
Mikil vinna framundan
Nánari upplýsingar gefur
Gunnar Þór í síma 892-2879
Skagaverk - Skagastál
Uthlutað úr Menningarsjóði Sparisjóðs Mýrasýslu
Að afloknum aðalfundi Spari-
sjóðs Mýrasýslu sl. föstudag var út-
hlutað styrkjum úr Menningarsjóði
SPM, en sjóðurinn var upphaflega
stofhaður til minningar um Friðjón
heitinn Sveinbjörnsson sparisjóðs-
stjóra. Að þessu sinni var úthlutað
styrkjum til 27 verkefna, samtals að
upphæð 8,6 milljónir króna. Að
þessu sinni bárust sjóðnum 45 um-
sóknir, samtals að upphæð 22,2
milljónir króna. Vegna mikils fjölda
umsókna ákvað stjómin að auka
nokkuð styrktarféð að þessu sinni.
Hæstu styrkina hlutu Snorrastofa
og Tónlistarskóli Borgarijarðar eða
eina milljón hvor. Snorrastofa til
seljarannsókna í Borgarfirði og tón-
listarskólinn styrk til hljóðfæra-
kaupa.
Fjórir styrkir vora að upphæð
hálf milljón hver. Þá hlutu Borgar-
fjarðarprófastsdæmi vegna skrán-
inga minningarmarka í kirkjugörð-
um prófastsdæmisins, Hollvina-
samtök Englendingavíkur til end-
urbóta á gömlum verslunarhúsum í
Englendingavík, IsNord tónlistar-
hátíð vegna tónlistarhátíðar í Borg-
arnesi og Reykholtshátíð vegna al-
þjóðlegrar tónlistarhátíðar sem fyr-
irhuguð er síðustu helgina í júlí
2007.
Þrír styrkir voru
að upphæð fjögur-
hundruð þúsund
krónur hver. Þeir
voru veittir til AU
Senses Group vegna
ferðasýningar, Asks
og Emblu ehf.
vegna heimildakvik-
myndar um Vestur-
Islendinga og Fé-
lagsmiðstöðin Oðal
hlaut styrk fyrir FM
útvarpssendi.
Aðrir styrkþegar
fengu lægri upp-
hæðir, en þeir vora:
Sóknanefnd Hvann-
eyrarkirkju, Sögufé-
lag Borgarfjarðar,
Skógræktarfélag Borgarfjarðar,
Ungmennafélag Reykdæla vegna
afmælisrits, árgangur 1992 frá
Grunnskóla Borgamess, Einkunnir
vegna bæklingagerðar, Eygló Dóra
Davíðsdóttir, Kammerkór Vestur-
lands, Karlakórinn Söngbræður,
Kór eldri borgarar, Samkór Mýra-
manna, Tónlistarfélag Borgarfjarð-
ar, Þorkell Fjeldsted vegna Veiðim-
injasafns, Fitjakirkja, Freyjukórinn,
Kirkjukór Borgarneskirkju vegna
Kaldalónstónleika, Kirkjukórar
Fulltrúar þeirra sem hlutu hæstu styrkina úr Menningarsjóði SPM að þessu sinni ásamt stjóm sjóSsins og
sparisjóðsstjóra.
ATVJjJJA
íslenska Jámblendifélagið
leitar að starfsmönnum í daghóp
framleiðsludeildar og í
sumarafleysingar
Vinnutími er frá kl 7:30-15:30 mán-fimmtud
og 7:30-14:00 föstudag. Unnið erfimmtu
hverja helgi. Umsækjendur þurfa að vera 18
ára stundvísir og samviskusamir.
Umsóknir sendist til: Daghópur
íslenska Járnblendifélagsins Grundartanga
301 Akranes.
Nánari upplýsingar veita
Skafti Steinólfsson gsm 860 6275,
skafti.steinolfsson@alloys.is og
Smári Guðbjartsson gsm 860 6395.
Islenska járnblendifélagið ehf.
icelandic Alloys Ltd.
Hvanneyrar, Reykholts og Borgar-
ness og Margrét Jóhannsdóttir til
ritunar munnmælasagna.
Homsteinniim
- nýr, öflugur sjóður
Á aðalfundinum var formlega
samþykkt stofnun nýs styrktarsjóðs
SPM sem hlotið hefur nafnið
Hornsteinninn. Markmið með
stofhun sjóðsins er að skapa öflugan
vettvang til að styrkja stór verkefni
á sviði menningar- félags- og at-
hafnalífs á starfssvæði SPM. Stofh-
framlag í sjóðinn var ákveðið 50
milljónir króna en árleg framlög í
hann verða í samræmi við afkomu
sjóðsins hverju sinni. Samkvæmt
upplýsingum frá Stefáni Svein-
björnssyni, forstöðumanni hjá SPM
á eftir að ákveða nánari starfsreglur
Hornsteinsins. Þó liggur fyrir að
stjórn sjóðins verður skipuð 5
mönnum, þar af þremur fulltrúum
skipuðum af stjórn SPM og tveim-
ur fulltrúum skipuðum af eigendum
SPM, sveitarfélaginu Borgarbyggð.
Stjórn sjóðsins mun móta nánar
starfsreglur og umsóknarferli í
Hornsteininn.
MM
MJjllM
Agústa Rósa ráðin
æskulýðsfulltrúi
Sveitarstjórn Hvalfjarðar-
sveitar samþykkti samhljóða á
fundi í síðustu viku ráðningu
Ágústu Rósu Andrésdóttur í
nýtt starf æskulýðsfulltrúa. Áður
hafði æskulýðs- og menningar-
málanefhd einróma mælt með
ráðningu Agústu í starfið. Eins
og fram hefur komið í fféttum
Skessuhorns er þarna um hluta-
starf að ræða. Ágústa Rósa er nú
við nám í tómstunda- og félags-
málaffæði í Kennaraháskóla Is-
lands. Hún hefur um árabil
starfað að æskulýðs- og íþrótta-
málum á Akranesi og er nú for-
maður Karatefélags Akraness
auk þess að sitja í stjórn
Karatesambands Islands. Á
árum áður sat hún í stjórn Bad-
mintonfélags Akraness og í
stjórn Iþróttabandalags Akra-
ness.
Auk Ágústu sóttu Gunnar
Bender, Heiðar Logi Sigtryggs-
son og Nanna K. Kristjánsdóttir
um stöðima.
HJ
Borgfirðingahátíð þjappar íbúum saman
Undirbúningur fyrir Borgfirð-
ingahátíð er kominn á rekspöl.
Mottó hátíðarinnar að þessu sinni
er að þjappa saman íbúum hins
nýja sveitarfélags. Segja má að há-
tíðin verði notuð sem innra mark-
aðstæki. Byggðaráð Borgarbyggð-
ar hefur samþykkt samning við
Ungmennasamband Borgarfjarð-
ar vegna hátíðarinnar en UMSB
hefur ráðið nýjan ffamkvæmda-
stjóra, Kristínu Markúsdóttur sem
mtm hafa umsjón með undirbún-
ingnum. Að þessu sinni kemur
tónlistarhátíðin IsNord einnig að
hluta inn á Borgfirðingahátíðina
svo úr nógu verður að velja, eins
og hingað til. BGK
LEIKDEILD UMF. SKALLAGRÍMS SÝNIR:
ILYNGBREKKU
SEX I SVEIT
EFTIR MARC CAMOLETTI í ÞÝÐINGU GlSLA RÚNARS JÓNSSONAR
LEIKSTJÓRI ER RÚNAR
Frumsýning 9. mars kl. 20:30
2. sýning 11. mars kl. 20:30
1. sýning 13. mars kl. 20:30 örfá sœti laus
i. sýning 14. mars kl. 20:30
5. sýning 16. mars kl. 20:30
MIÐAVERÐ: FULLORÐNIR 20
6. sýning 18. mars kl. 20:30
7. sýning 21. mars kl. 20:30
8. sýning 23. mars ki. 20:30
9. sýning 25. mars kl. 20:30
Síðasta sýning 30. mars kl. 20:30
MIÐASALA I SIMA: 869-7157