Skessuhorn - 07.03.2007, Síða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
gfflgSSUIMölSK]
Bæjarráð Akraness vill
formlegt umhverfismat
í Grunnafirði
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri á
Akranesi hefur fyrir hönd bæjar-
ráðs Akraness hvatt til þess að sem
fyrst hefjist formlegt umhverfismat
vegna hugsanlegrar vegagerðar við
Grunnafjörð. Þetta kemur ffam í
bréfi sem bæjarstjóri sendi ríkis-
stjórn, þingmönnum Norðvestur-
kjördæmis, sveitarstjórn Hvalfjarð-
arsveitar og sveitarstjórn Borgar-
byggðar. Með þessu bregst bæjar-
ráð við því að vegagerð um
Grunnafjörð var tekin af lista yfir
hugsanlegar ffamkvæmdir á vegaá-
ætlun áranna 2007-2018 sem nú er
til umfjöllunar á Alþingi. Það var
samgönguráð sem lagði til að
framkvæmdin yrði tekin af um-
ræddum lista. Vegamálstjóri lagði
til í samtali við Skessuhom á dög-
unum að óformlegt mat færi fram á
möguleikum vegagerðar á þessum
stað.
I bréfi bæjarstjóra segir að stytt-
ing leiðar með vegagerð vestan
Akrafjalls og um Grunnafjörð í
framhaldi af tvöföldun Hvalfjarðar-
ganga sé einhver hagkvæmasta
vegagerð sem mögulegt er að ráð-
ast í á Islandi enda kalli tvöföldun
ganganna á þetta verkefhi. Þá segir
að lagning vegarins stytti leiðina
milli Akraness og Borgarness um 8
tílómetra og sveitarstjórnir allra
aðliggjandi sveitarfélaga hefi marg-
sinnis veitt vertínu jákvæða um-
sögn og bent á að vegur um
Grunnafjörð þurfi ektí að hafa
áhrif á vatnastípti í firðinum „og
þaðan af síður að hafa áhrif á dýra-
líf af nokkru tagi nema á jákvæðan
hátt“ eins og segir orðrétt í bréfinu.
Þá er nefnt að spara megi yfir
einn milljarð króna á ári með gerð
vegarins auk mengunarminnkunar,
tímasparnaðar, minnkun eldsneyt-
isnotkunar og miklu betri legu veg-
ar en nú er. Því skorar bæjarstjór-
inn á samgönguráðherra, alþingis-
menn, stípulagsyfirvöld og Vega-
gerðina að taka gerð vegar á þess-
um stað inn á áðurnefhda sam-
gönguáætlun.
I samtali við Skessuhorn segir
Gísli hugmynd vegamálastjóra um
óformlegt mat athyglisverða en
hún eigi sér enga formlega stoð.
Því sé eina rökrétta leiðin sú að
gerð vegarins fari nú þegar inn á
samgönguáætlun og framkvæmdin
fái þar þá afgreiðslu sem lög kveða
á um. Engin ástæða sé til þess að
um þessa framkvæmd verði farið en
aðrar þær ffamkvæmdir sem fjallað
sé um í samgönguáætlun enda sé
samstaða um málið í héraði. líj
Gísli S. Þráinsson á hœsta fjalli Afrtku.
Skagamaður á
Kilimanjaro
Hæsta fjall Affíku, Kilimanjaro í
Tansaníu, hefur lengi verið eitt
helsta aðdráttarafl fjallgöngu-
manna. Arlega reyna um 15 þús-
und manns að komast á topp þess
og um 6 þúsund þeirra komast alla
leið. A dögunum gekk Skagamað-
urinn Gísli S. Þráinsson á fjallið í
hópi Islendinga og Breta. Fjallið
er 5.895 metrar að hæð og mjög
áberandi þar sem það stendur eitt
og sér í norðaustur hluta Tanzaníu
og er reyndar hæsta fjall í heimi
sem stendur eitt og sér.
Þetta er ekki fyrsta fjallið í Afr-
íku sem Gísli gengur á því í fyrra
fór hann á topp Mount Kenya sem
er annað hæsta fjall Afríku. Gísli
segir Kilimanjaro ektí erfitt fyrir
göngumenn líkamlega þar sem
ekki þarf að klífa heldur er þetta
aðeins ganga. Leiðin á toppinn er
hins vegar erfitt súrefnislega og
þeir sem við það glíma þurfa að
vera með sterkt hjarta og góð
lungu segir Gísli.
Leiðin upp tók fjóra daga og var
gist í tjöldum á leiðinni og gangan
niður tók tvo daga. Við gönguna
upp nutu Gísli og félagar aðstoðar
28 aðstoðarmanna og í hópnum
voru meðal annars tveir mat-
reiðslumenn þannig að Gísli segir
að gárnungar nefni nú stundum að
fjallgöngumenn séu bornir upp en
það sé ekki rétt en hins vegar sé
þjónusta við göngumenn mjög
góð og geri þeim lífið léttara. Þeg-
ar Gísli var á toppnum þanr. 16.
febrúar var um 10 stiga frost.
Gísli hefur um árabil starfað
innan Björgunarfélags Akraness
og er ritari stjórnar þess. Hann
segir fjallgöngu skemmtilega
áskorun og segist án efa eiga eftir
að fara á fleiri fjöll þó ekkert sé
ákveðið í því efni.
HJ
s
I starfekyrmingu hjá lögreghumi
Liður í námi tíundu bekkinga
grunnskólanna er heimsóknir í
ýmis fyrirtætí til starfskynningar.
Meðal þeirra fyrirtækja og stofn-
ana sem alla jafnan nýtur athygli
unga fólksins er lögreglan og störf
hennar. Venjulega hafa drengir
sóst eftir að komast í starfskynn-
ingu hjá lögreglunni en þetta árið
sýndi ektí einn piltur því áhuga að
kynnast lögreglurmi á Akranesi, en
það gerðu hinsvegar fimm stúlkur.
Þær sem mættu á vaktina hjá lög-
reglunni á Akranesi í liðinni viku
eru nemendur í Grundaskóla. Þær
heita Eydís, Helga María, Sigríður
Mist, Inga Huld og Heiður Dögg
Eydís, Helga María og Sigríthir Mist.
Inga Huld og Heiður Dögg albúnar í
árás.
og kynntu þær sér starfshætti og
tætí og tól lögreglumanna. Ber
þessi áhugi væntanlega vott um
autínn áhuga stúlkna fyrir starfi
innan lögreglunnar. Fóru þær
meðal annars í umferðareftirlit
með lögreglumönnum, þrifu lög-
reglubílinn og fengu að kynnast
ýmsum búnaði sem lögreglan hef-
ur yfir að ráða, svo sem hjálmum,
kylfum, skotheldum vestum og
öðrum varnarbúnaði lögreglu.
MM
Ljósm. Jóhanna Gestsdóttir.
Yinningshafar í eldvamagetraun
Gunnar P Gunnarsson, slökkviliðsstjóri í
Grundarfirði afhenti Hörpu Lilju Olafs-
dóttur verðlaun sín. Ljósrn. Sverrir.
I Eldvarnaviku sem Landssam-
band slökkviliðsmanna hér á landi
gengst fyrir
hverju hausti er
hefð fyrir því að
nemendur
þriðju bekkja
grunnskólanna
fái heimsóknir
slökkviliðs-
manna í sínum
heimabæjum og
taki auk þess
þátt í eldvarna-
getraun. Nýlega
voru vinnings-
hafar dregnir út
og komu þrenn
verðlaun á Vest-
urland. Þeir heppnu eru Viktor Ell-
ingsson, Lertígrund 6 á Akranesi,
ísak Atli Hilmarsson, Kjartansgötu
1 í Borgarnesi og Harpa Lilja
Olafsdóttir, Grundargötu 62 í
Viktor Ellingsson nemandi 3. EDB í Grundaskóla tekur hér við
verðlaunum sínum úr hendi Þráins Ólafssonar, slökkviliðsst/óra á
Akranesi.
Grundarfirði. Hljóta þessir krakkar
vegleg verðlaun, svo sem viður-
kenningarskjal, vandaðan MP3
spilara og reykskynjara.
MM
Sldpað í staríshóp Fjörusteinsins
Stjóm Faxaflóahafna hefur stíp-
að Kjartan Magnússon til for-
mennsku í starfshópi sem gerir til-
lögu til stjórnar Faxaflóahafna sf.
um það hver hljóta skuli Fjöm-
steininn, umhverfisverðlaun Faxa-
flóahafha. Það var síðla á síðasta ári
sem stjórnin samþykkti að koma
þessum verðlaunum á fót. Verð-
launin hljóta þau fyrirtætí á starfs-
svæði hafnanna sem þykja verð-
skulda viðurkenningu fyrir góðan
árangur í umhverfismálum. Þau
verða veitt árlega og skal afhend-
ingin fara ffam á aðalfundi Faxa-
flóahafha sf. sem haldinn er í maí ár
hvert.
Starfshópinn skipa tveir fulltrúar
stjórnar auk skipulagsfulltrúa fyrir-
tætísins og umhverfis- og öryggis-
fulltrúa þess. Auk Kjartans stípaði
stjórnin Dofra Hermannsson til
setu í starfshópnum. Til grundvall-
ar starfi sínu skal starfshópurinn
taka mið af snyrtilegum ffágangi
lóða, húsa og umgengni um eignir,
auk aðgerða viðkomandi fyrirtætís
til að draga úr mengun og stuðla að
umhverfisvænni starfsemi.
HJ
Ellefu ára liðsmerm
meistaraflokks Blaðsins
Knattspyrnuunnendur ráku upp
stór augu þegar þeir lásu fyrirferð-
armikla umfjöllun Blaðsins sl. mið-
vikudag um félagsskipti hjá liðum í
úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sam-
kvæmt fyrirsögninni hafa miklar
hrókeringar átt sér stað í leik-
mannahópum. Samkvæmt fréttinni
hafa átta leikmenn gengið til liðs
við gula og glaða Skagamenn.
Vissulega ánægjuefni því undan-
farnar vikur hafa átt sér stað miklir
spádómar um hvort Guðjón Þórð-
arson þjálfari liðsins muni styrkja
lið sitt áður en að fyrsta leik í úr-
valsdeildinni kemur. Hingað til
hefur hann leyft ungum og efnileg-
um mönnum í liðinu að spreyta sig.
Þegar listinn í Blaðinu er skoðað-
ur nánar kemur í Ijós að þrátt fyrir
að Guðjón sé þekktur fyrir að
treysta ungum mönnum muni hann
tæplega nýta sér krafta nokkurra
þessara mann, þó efnilegir séu.
Yngstir þeirra leikmanna sem Blað-
ið nefhir eru tvíburarnir Alexander
Már og Indriði Áki Þorlákssynir
sem fæddir í ágúst 1995 og því að-
eins 11 ára. Þá er nefndur til sög-
unnar Friðrik Arthúr Guðmunds-
son sem er fæddur árið 1994 og því
aðeins 12 ára. Hinir nýju liðsmenn-
irnir fimm eru eldri eða ffá 18-22
ára gamlir. Ektí er að efa að alhr
þessi nýju liðsmenn IA verða félag-
inu giftudrjúg viðbót þó meistara-
flokkur félagsins þurfi að bíða
tíafta þeirra sumra í nokkur ár.
HJ