Skessuhorn - 07.03.2007, Page 23
..r-ViliH... I
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
23
»
l^cnnintv-^
Hugleiðing vegna
greinarum
samgöngur!
í langri grein í síðasta tölublaði
Skessuhoms fer formaður byggða-
ráðs Borgarbyggðar yfir nauðsynleg-
ar aðgerðir í samgöngumálum á
Vesturlandi. Fer hann þar nokkrum
orðum um hvað þurfi að gera í sam-
göngumálum á svæðinu og veltir því
m.a. upp hvort sveitafélögin eigi að
taka meiri ábyrgð á þeim málaflokki
sem em tengivegir.
Það hugsa sjálfeagt fleiri íbúar í
Borgarbyggð eins og ég, nei takk,
það gengur ekki. Sveitarstjórnar-
menn hafa ekki dug til þess að
stjóma þessu málaflokki miðað við
þá reynslu sem er af viðhaldi gatna í
Borgarnesi. í undanfara a.m.k.
tveggja sveitastjórnarkosninga var
eitt kosningarloforðið að fá veginn í
gegnum Borgarnes lagfærðan en
ekkert gerðist að kosningum lokn-
um. Nú íyrir síðustu kosningar gafet
bæjarstjómin endanlega upp við að
uppfylla það loforð og þá var gefið út
nýtt loforð, þjóðvegurinn skal færður
sem fyrst út fyrir bæinn, með fyrir-
sjáanlegu tjóni fyrir verslun-og þjón-
ustu í byggðarlaginu. A meðan bíður
vegurirm í gegnum bæinn viðhalds.
Það sem vakti þó ekki síst athygli
mína vom skrif formannsins um að
viðhald gatna og gangstétta væri
ábótavant þar sem ekkert fé færi til
þeirra mála. Hér á Kveldúlfsgötunni
verða bílar að sveigja um báða vegar-
helminga til þess að forðast holur og
brot í götunni og ekki er ástand
gangstétta betra. Fjöld gatna bera
sömu merki skorts á viðhaldi.
Er þetta ástand vegna þess að ekk-
ert fé er til í bæjarsjóði? Og það þrátt
fyrir að bæjarbúar þurfi að greiða
einhver hæstu fasteignagjöld sem
þekkjast? Og almennt að allir gjald-
stoíhar séu gjömýttir?
í viðtali við Skessuhom fyrir ein-
hverjum vikum þegar verið var að
eyða, sjálfsagt miklu fé, í ónýta
skemmu þá er haft eftír Finnboga
„Það kostar þó mikið meira að hirða
húsið en rífa og sveitarfélagið borgar
það.“ Þar höfum við það. Það em til
nægjanlegir peningar í gæluverkefni
en ekki grunnþarfir.
Það er eitthvað í ólagi með áhersl-
ur bæjarstjómar þegar ástæða þyldr
til að skattpína íbúa bæjarfélagsins en
hægt er að setja ótakmarkað fé í
gæluverkefni bæjarstjórnarmanna.
Er ekki ástæða til þess að breyta eitt-
hvað um áherslur? Lækka fasteigna-
skatta og þá e.t.v. aðra skatta og leyfa
íbúum að ráð því sjálfir hvort þeir
vilja eyða fé í ónýtar skemmur.
Borgamesi, 6. mars 2007
Guðsteinn Einarsson.
Dægurlagakeppnin verður
síðasta vetrardag
Barbara Ósk Guðbjartsdóttir sigraði keppnina árið 2003, síð-
astþegar hún var haldin.
Ungmennafélag Reykdæla í
Borgarfirði hefur undanfarin ár
staðið fyrir dægurlagakeppni sem
notdð hefur sívaxandi vinsælda. I
keppnina geta lagahöfundar jafnt úr
héraði sem annarsstaðar sent inn
lög, en átta besm
lögin em valin af
dómnefhd til úrslita-
keppninnar sem að
þessu sinni fer ffam í
Logalandi í Reyk-
holtsdal síðasta vetr-
ardag, þann 18. apr-
íl. Undanfarin ár
hefur keppnin verið
liður í Gleðifundi
félagsins, en sökum
umfangs hennar var
það ekki hægt leng-
ur og verður því
blásið til sérstakrar tónlistarveislu
með dansleik á eftír um leið og
Borgfirðingar fagna sumarkomu.
Mikill áhugi hefur verið fyrir keppn-
inni og hafa henni borist allt upp í
26 lög víðsvegar að af landinu.
Stuðbandalagið er húsbandið í
keppninni og sér hljómsveitin um
undirleik og æfingar fyrir keppend-
ur sem þess óska. Keppnisgjald er
ekkert en vegleg verðlaun em í
boði.
Fólk er hvatt til að senda inn lög
í keppnina. Lögin þurfa að berast á
diski eða hljóðsnældu fýrir 16.
mars, merkt: Embla Guðmunds-
dóttir, Björk, 320 Reykholt. Lögum
þarf að skila tmdir dulneftii en rétt
nafh höfundar ásamt símanúmeri
þarf að fylgja með í lokuðu umslagi.
Skilyrði fyrir þátttöku er að lögin
séu frumsamin, með íslenskum
texta og hafi ekki verið flutt opin-
berlega áður. Nánari upplýsingar
era veittar í símum 691 1182 eða
699 4695.
MM
Sparisjóðurmn kostar stærðfræðikcppni
Sparisjóðurinn á Akranesi og
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akra-
nesi hafa gert með sér samning sem
felur í sér að Sparisjóðurinn kostar
stærðfræðikeppni fyrir nemendur í
efstu bekkjum grunnskóla til ársins
2011. Fjölbrautaskólinn hefur stað-
ið fyrir slíkri keppni árlega fyrir
nemendur í áttundu, níundu og tí-
undu bekkjum grannskóla á Vest-
urlandi. Auk þess að standa straum
af kostnaði við keppnina næstu árin
mun Sparisjóðurinn
einnig gefa verðlaun
sem veitt verða í
keppninni. Þorkell
Logi Steinsson
sparisjóðsstjóri og
Hörður Ó. Helga-
son skólameistari
undirrituðu samning
þessa efnis sl. þriðju-
dag.
HJ
T^ctitiinti—,
Afliending menn i n ga rs tyrkj a að Görðurn Akranesi 22. febrúar sl.
Það var sér-
lega ánægjulegt
að taka þátt í at-
höfn Menning-
arráðs Vestur-
lands að Görðum þar sem Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra af-
henti styrld Menningaráðs fyrir árið
2007. Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir gat því miður ekki mætt, en
Sturla Böðvarsson afhenti styrkina
fyrir hönd þeirra.
I ávarpi Sturlu talaði hann meðal
annars um það að í ferðaþjónustu
væri nú lögð mikil áhersla á menn-
ingararfinn og menningu líðandi
stundar. Ferðamenn sem koma til
landsins vilja njóta fallegrar náttúru
landsins, en einnig blómstrandi
menningar og sögu landsins. Við vilj-
um gjaman búa í samfélagi þar sem
margvíslegri menningu er gert hátt
undir höfði því þar dafiiar fjölbreytt
mannh'f.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
og aðrir sem unnu að því að sldpu-
leggja og samþykkja Menningar-
samning Vesturlands geta verið
ánægðir með þetta framtak. Þeir,
menntamálaráðuneytið og sam-
göngumálaráðuneytd eiga miklar
þakldr skildar. Við vonum að með til-
komu þessa samnings muni fistir og
menning eflast hér til muna.
Memaður umsækjenda er mikill og
hugmyndimar margvíslegar, en flest-
ar umsóknir tengjast tórdist enda hef-
ur mikil rækt verið lögð við tónlist á
Vesturlandi. Það var því vel viðeig-
andi að Þjóðlagasveit Tónfistarskól-
ans á Akranesi skyldi sjá um tónlistar-
flutning við athöfhina ásamt kennara
sínum og stjómanda Ragnari Skúla-
syni. Sveitinni tekst að laða ffam
mjög einstaka stemningu með leik
sínum, það var geislandi gleði yfir
hópnum.
í ár var sérstök áhersla lögð á að
styrkja ungt fólk. Menningarráð vildi
með því efla og styrkja möguleika
tmgs fólks tíl þess að taka þátt í
menningarviðburðum. Þar sem
starfcvettvangur ungs fólks er mjög
oft innan skólanna bárust ráðinu í ár
sterkar mnsóknir frá þeim og kenn-
urum þeirra, verkefhi sem tmnin em
utan hefðbundins skólastarfe, en hafa
off skýrskotun til menningarþátta
héraðsins, hafa listrænt gildi eða gera
menningartengda staði sýnilega.
Ráðið vonar að með ffumkvæði,
hvatningu og víðsýni verði Vestur-
land tahð litríkt menningarsvæði þar
sem fjölbreytt menning og hstir nái
að daftia ekld síst vegna mikils áhuga
tmgs fólks.
Ungir styrkhafar sem búsettir eru
erlendis við nám og störf munu á ár-
inu gefa Vesdendingum kost á að
njóta fjölbreyttra verkeftia á árinu,
m.a. verða tónleikar með ffumfluttu
efhi, hstsýningar, óperusöngur og í
undirbúningi er m.a. kvikmynda- og
hstahátíð í Grundarfirði. Þetta eru
vonandi hstamenn framtíðarinnar á
Vesturlandi. Það er mikilvægt að
halda tengslum við Vesdendinga hvar
sem þeir kunna að starfa, en þeir vilja
gjaman koma og halda góðu sam-
bandi við heimabyggð. Tvær kvik-
myndir fá einnig styrk; Askur og
Embla heimildarmynd um vesturfara
og einnig ffæðslumynd; náttúrulífc-
mynd úr Breiðafirði.
í Grundafirði munu ungir rokkar-
ar spila á fjölskylduhátíðinni Góð
stund og tónhstarskólamir í Grund-
arfirði og Stykkishólmi munu undir
stjóm Martin Markvoll efiia til slag-
verksskrúðgöngu. Kirkjukór Stykkis-
hólms hefur í mörg sumur sldpulagt
tónhstarhátíð í kirkjunni. Þar hefur
íslenskt tónhstarfólk komið ffam, en í
sumar mun ung söngkona úr Styklds-
hólmi, Elísa Vilbergsdóttir koma
fram ásamt fleirum.
í Hvalfjarðarsveit verður á árinu
haldið upp á byggingarafmæh Hah-
grímskirkju í Saurbæ, þar mun verða
fjallað um sálmaskáldið Hallgrím
Pétursson. Haldin verður myndhst-
arsýning sem kemur ffá Hahgríms-
kirkju á Skólavörðuholti í Reyjavík
og Megas mun flytja Passíusálmana.
Heimamenn og Heiðarskóli mtmu
koma að dagskránni og Snorrastofa í
Reykholti mun halda ráðstefhu um
séra Hahgrím Pétursson og samtíð
hans.
í Ólafevík verður haldin afmæhs-
sýning um Erro sem fæddist í
Ólafcvik fyrir 75 áram. Það er mikill
áhugi fyrir því að kynna verk hans í
fæðingarbænum og það er ekki vafa-
mál að það verður áhugavert að
skreppa tíl Ólafcvíkur á sýninguna.
I Snæfellsbæ búa margir sem ekld
era fæddir þar og koma ffá fjarlægum
löndum; í sumar stendur til að halda
þar fjölmenningarhátíð, ásamt list-
námskeiðum fyrir ungt fólk og ljós-
myndasýningu frá liðinni tíð í Pakk-
húsinu.
Einnig er áhugavert að fylgjast
með sagnff æðingum og hstamönnum
sem koma gagngert til þess að styðja
við menninguna á Vesturlandi, hér vfl
ég til dæmis nefria Sumarliða Isleife-
son og Þóru Sigurðardóttur sem
stefiia okkur í Dalina. Þar verða fyr-
irlestrar, málþing og dagskrá um
Stefán frá Hvítadal. Jafnffamt er ætl-
unin á málþingi að ræða um hvaða
tældfæri séu í því fólgin fyrir Dala-
byggð að hafe fóstrað skáld á borð við
Stefán og Stein Steinar. Einnig mim
við þetta tækifæri verða ffumflutt
tónverk effir Atla Heimi Sveinsson
við ljóð Stefíns frá Hvítadal. Lista-
smiðja verður fyrir böm á grunn-
skólaaldri imdir leiðsögn fagmanna.
Boðið verður upp á þann möguleika
að skrá sig í sumardvöl þá viku sem
smiðjan stendur yfir í Ytri-Fagradal á
Skarðströnd.
Þama gefet tækifæri tíl þess að
heimsækja Dalina af nýju tilefni.
Dalaleir verður rannsakaður af er-
lendum og hérlendum listamönnum
einnig sem glerjungsefni og hstakon-
an Sigríður Erla Guðmundsdóttir
mun hanna muni í leir úr Fagradal
sem hægt er að ffamleiða. Væntan-
lega sem sérstaka kjörgripi úr Dölun-
um.
í Grunnskólanum í Búðardal hefur
verið mildll áhugi fyrir menningar-
sögu og munu nemendur ásamt öðr-
um hefja gerð víkingaþorps á skóla-
lóðinni auk fleiri sögulegra viðburða.
Eiríksstaðir fá hér verðuga samstarfe-
menn tíl þess að kynna Dalina sem
áhugaverðan stað til þess að heim-
sækja þar sem skýskotun er til sagna-
þátta.
Borgarfjörður getur boðið upp á
margs konar tónleika og listsýningar
á árinu. Þar má nefna Samhljóm,
Tónlistarhártíð í Reykholti sem
margir hlakka til enda er hér tónlist-
arhátíð á heimsmæhkvarða. I ár fáum
við meðal annars að njóta þess að
hlusta á óperusöngkonu úr Döltm-
um, Hönnu Dóru Sturludóttur, á-
samt fleiri innlendum og erlendum
tónlistarmönnum.
Tilhlökkunarefhi er einnig IsNord
tónlistarhátíð um hvítasunnuna, en
IsNord er einnig aðili að tórdistar- og
leikhstarsmiðju fyrir ungt fólk sem
ljúka mun með uppskeruhátíð. Hér
er einnig verið að hlúa að ungu fólki,
nýjung sem vert er að gefa gaum að.
Einnig er vert að nefha að Tónhstar-
skóh Borgarfjarðar ætlar að setja upp
óperuna Sígatmabaróninn, þar sem
núverandi og fyrrverandi nemendur
munu koma ffam. Nýárstónleikar
Guðrúnar Ingimarsdóttur og fl.
Landnámssetri íslands í Borgar-
nesi sem hefur teldst að glæða söguna
lífi og efla sagnahefð og hstah'f á
svæðinu svo um munar. Það er ótrú-
legt hve mikil áhrif eru af Landnáms-
setrinu á bæjarlífið í Borgarnesi.
Landnámssetrið er á stuttum tíma
orðið að menningarmiðstöð í Borg-
amesi, þar eru sýningar, sagnahefð,
tónlist, fallegt gjafavörugallerí, góður
veitingarstaður og síðan er það sem
allt snerist um í upphafi Landnáms-
sýningin og Egilssaga sem eru sögu-
sýningar fyrir fólk á öllum aldri.
I Englendingavík er sérstök sýning
um Pourquoi- Pas?- strandið sem
margir hafí mikinn áhuga á.
Hér er aðeins talinn upp hlutí af
því sem Menningarráð hefur styrkt í
ár. Ráðið þakkar öhu þessu góða fólki
fyrir hugvit, listrænan metnað og
vandaðar tunsóknir og trúir að þetta
verði hvatning til ungs fólks til þess
að taka þátt í menningarstarfi.
Ollum öðrum sem eltid fengu út-
hlutun í ár óskum við velfamaðar og
þökkum þeim fyrir að sækja um
menningarstyrk, því það er mikilvægt
að fá margar umsóknir, það sýnir
þörfina og áhuga Vestlendinga til
þess að efla og taka þátt í að móta
menningarlíf á Vesturlandi. Við von-
umst til þess að sjá umsóknir ffá ykk-
ur á næsta ári og með ósk um betra
gengi þá.
Heimasíða verkefnisins er
www.mermingarviti.is
Elísabet Haraldsdóttir,
menningarfulltrúi
-V