Skessuhorn - 07.03.2007, Side 25
»»£35inu.>
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
25
7*cnninn~7t
Menningarveisla í Hvalfirði
Hallgrímskirkja sú sem stendur í
landi Saurbæjar á Hvalfjarðar-
strönd var vígð árið 1957 og á því
50 ára vígsluafmæli á árinu. Af því
tilefni hefur sóknarnefnd Saurbæj-
arsóknar um nokkurt skeið unnið
að undirbúningi afmælishátíðar-
innar. Sá undirbúningur hefur bæði
verið í formi verklegra fram-
kvæmda, til að bæta ásýnd og að-
gengi að kirkjunni og umhverfi
hennar, og skipulagningar margvís-
legra menningarviðburða.
Markmið sóknarnefhdar er að
efla vitund Vestlendinga og annarra
landsmanna um Hallgrím Péturs-
son og þau gríðarlegu menningar-
verðmæti sem tengjast lífi hans og
starfi í Sanrbæ á Hvalfjarðarströnd.
Margir hafa lagt hönd á plóg við
undirbúning og skipulagningu og
gott samstarf hefur t.d. þróast milli
sóknarnefndar og menningarmála-
nefhdar Hvalfjarðarsveitar. Hug-
myndir nefndanna að menningar-
veislu í Hvalfirði hlutu góðan
hljómgrunn hjá Menningarráði
Vesturlands og með aðstoð og að-
komu ráðsins og fleiri aðila verður
fyrsti viðburðurinn að veruleika
þriðjudaginn 13. mars, en þá verð-
ur opnuð myndlistarsýning í Hall-
grímskirkju.
Sýningin ber nafhið „Mynd mín
af Hallgrími" og er samsýning 28
listamanna, sem draga frarn hver
sína mynd af sálmaskáldinu. Sýn-
ingin verður í kirkjunni í tvo mán-
uði, eða til 13. maí og er öllum
opin.
í apríl verður boðið upp á flutn-
ing Passíusálmana við lög Magnús-
ar Þórs Jónssonar (Megasar). Sjálf-
ur verður Megas í aðalhlutverki en
honum til fulltingis verður barna-
kór og hópur frábærra hljóðfæra-
leikara. Passíusálmana þekkir hvert
mannsbarn og þeir eru einn helsti
þjóðararfur Islendinga og fjalla
m.a. um mannlegt eðli, bresti
mannsins og samvisku hans. Tón-
listarstjóri tónleikanna er Hilmar
Orn Agnarsson organisti og kór-
stjóri í Skálholtskirkju en fram-
kvæmdastjóri tónleikanna er Svan-
hvít Lilja Ingólfsdóttir.
Miðar á viðburðinn verða seldir í
forsölu, sem verður nánar auglýst
fljótlega.
Vortónleikar verða haldnir í
kirkjunni, þar sem áherslan verður
á tónlistarflutning heimamanna.
Flutningur og efnisskrá verður fjöl-
breytt og lifandi og tengd Hall-
grími Péturssyni og kveðskap hans.
I júlí er svo sjálf vígsluafmælishá-
tíðin, en hún er 6. sunnudag eftir
þrenningarhátíð, eða þann 15. júlí.
I tengslum við hátíðina H
verður málstefna um Hall-
grím Pémrsson og samtíð
hans laugardaginn 14. júlí,
en um er að ræða sam-
starfsverkefni sóknar-
nefndar og menningar-
málanefndar og Snorra-
stofu í Reykholti, sem sér
um skipulagningu og út-
færslu.
Einnig er gaman að geta
þess að Heiðarskóli í Hvalfjarðar-
sveit undirbýr sérstök verkefhi í
tenglsum við vígsluafmælið, þar
sem grunnskólabömin verða í aðal-
hlutverki.
Á þessari upptalningu má sjá að
um fjölbreytta menningarviðburði
er að ræða í Hvalfirði í tengslum
við 50 ára vígsluafmæli Hallgríms-
kirkju í Saurbæ og fannst sóknar-
nefnd og öðrum aðstandendum það
tækifæri algjörlega ómetanlegt til
að hefja sögu Saurbæjar og vem sr.
Hallgríms og konu hans Guðríðar
Símonardóttur þar til vegs og virð-
ingar heima í héraði.
Að lokum vill sóknarnefhd færa
öllum þeim fjölmörgu aðilum sem
sýnt hafa áhuga og velvild við und-
irbúning afinælisins bestu þakkir
fyrir stuðninginn.
Við vonumst til að sjá sem flesta í
Hvalfirði á árinu.
Fyrir hönd sóknamefndar
Saurhajarsóknar;
Amheiður Hjörleifsdóttir,
formaður
/
Samið við UMIS um rekstur
Landsskrifstofu Staðardagskrár 21
Nýlega var undirritaður
samningur milli Sambands
íslenskra sveitarfélaga og UMIS
ehf. Environice í Borgarnesi um
áframhaldandi rekstur Lands-
skrifstofu Staðardagskrár 21 á
Islandi. Samningurinn kemur í
beinu ffamhaldi af samkomulagi
SIS og umhverfisráðuneytisins sem
undirritað var nokkrum dögum
áður, en samkvæmt því munu
samningsaðilar vinna sameiginlega
að því næstu þrjú árin að efla
sjálfbæra þróun í íslenskum
sveitarfélögum.
Samningur sambandsins við
UMÍS gildir ffá og með árinu 2007
til ársloka 2009 og kemur í stað
eldri samnings sem rann út um
síðustu áramót. UMIS hefur annast
rekstur Landsskrifstofunnar
síðustu 7 ár, þannig að nýi
samningurinn felur fyrst og fremst
í sér staðfestingu á áffamhaldandi
samstarfi aðila.
„Gert er ráð fyrir að umfang
starfsins hjá UMIS nemi rúmlega
hálfu stöðugildi næstu þrjú ár.
Fimm
Á meðfylgjandi mynd eru 5 ætt-
liðir samankomnir. Vigdís Bjarna-
dóttir ffá Nesi í Reykholtsdal dvel-
ur nú á Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi. Hún verður 97 ára í
maí en er við góða heilsu. Nýverið
fékk hún skemmtilega heimsókn
þegar lítill hluti af fjölmennum af-
komendahópi hennar leit við. I ald-
ursröð eru það Helga Guðráðs-
dóttir, Vigdís Eyjólfsdóttir, Anna
Stefán Gíslason mun áffam gegna
hlutverki verkefnisstjóra, en auk
hans munu einkum Arnheiður
Hjörleifsdóttir og Ragnhildur
Helga Jónsdóttir sinna
Staðardagskrárstarfinu. Starfið
felur í sér ráðgjöf til íslenskra
sveitarfélaga um gerð Staðar-
dagskrár 21, miðlun upplýsinga,
ráðstefnuhald, skipulagningu
enviror ice
kynnisferða o.fl. Ráðgjöfin er
sveitarfélögtun að kostnaðarlausu,
þar sem Samband íslenskra
sveitarfélaga og
umhverfisráðuneytið hafa tryggt
fjármagn til verksins með
samkomulaginu sem undirritað var
í síðustu viku,“ segir á vefhum
umis.is
MM
ætdiðir
Dröfn Sigurjónsdóttir og sonur
hennar Jóhannes Þór Hjörleifsson.
MM
*
>
T^cnnifuv^
Andvaraleysi, tílædunarsemi eða leti
foreldra í Borgamesi
Ég er ein af þeim sem er á móti
því þegar fólk nöldrar við eldhús-
borðið heima hjá sér, á vinnustaðn-
um eða jafnvel í saumaklúbbnum en
læmr svo gott heita og gerir ekkert
meira í því. Því miður var ég að
komast að því effir innri íhugun og
tiltekt í eigin kolli að ég er engu
betri. Af þvi tilefni ætla ég aðeins
að fá að láta gamminn geysa og viti
menn, ég verð örugglega mun kát-
ari á morgun þegar ég er búin að
blása út.
Ég var rétt að koma inn úr dyr-
unum heima hjá mér effir að hafa
mætt á aðalfund hjá Frjálsíþrótta-
deild Skallagíms. Til fundarins var
boðað með lögmæmm hætti með
viku fyrirvara, hengdar upp auglýs-
ingar, miðar sendir heim með böm-
unum og tölvupósmrinn notaður.
Á fundinn mætti EIN mamma
ásamt undirritaðri, en ég hef gengt
formennsku í deildinni undanfarin
ár. Við vomm semsagt tvær sem
mættum. Það eram samt tæplega 50
böm sem æfa frjálsar íþróttir viku-
lega hér í bæ - kannski öll foreldra-
laus, veit ekki! Það em ekki nema
svona tvær vikur síðan ég boðaði til
almenns foreldrafundar hjá deild-
inni. Þar vonaðist ég til að geta átt
gott spjall við foreldra, kynnt fyrir
þeim stöðu deildarinnar og fengið
punkta um hvað foreldrar vilja að
bemr sé gert. Á þennan fund
mætm þrír foreldrar. Við vomm
þrjár úr stjórninni og svo þjálfarinn
okkar. En satt að segja var ég að
vona að þarna næði ég til fleiri ein-
staklinga.
Þetta ástand, þ.e. að ekki mæti
fleiri á boðaða fundi á ekki ein-
göngu við um frjálsíþróttadeildina
þó hún standi undirritaðri næst.
Fyrr í haust var ég, eins og allir for-
eldrar sem eiga börn í gnmnskólan-
um, boðuð á fund hjá Foreldrafé-
lagi Grunnskólans í Borgarnesi.
Fundarboðinu var skýrt og skil-
merkilega komið í hús viku fyrir
boðaðan fundardag eins og lög fé-
lagsins gera ráð fyrir. En viti menn
þegar ég kom niður í félagsmið-
stöðina Oðal, 5 mínúrnm fyrir aug-
lýstan fundartíma em þar fyrir 6
einstaklingar, þ.e. stjómin og full-
trúi kennara. Á fundinn mættu 16
foreldrar - samt var auglýst að það
yrði kaffi á könnunni! I byrjun
október boðuðum við sem störfum
í stjórnum deilda Umf. Skallagríms
til íbúafundar um málefnið Iþrótta-
og tómstundamál ungmenna í
Borgarnesi. Þessi fundur var vel
auglýstur - borin auglýsing inn í
hvert hús og létum boð berast í
tölvupósti sem er orðinn ansi góð-
ur upplýsingamiðill. Á þennan
fund var boðað til að upplýsa for-
eldra um starfsemi félagsins, kynna
deildirnar og gefa foreldmm kost á
að kynnast innra starfi félagsins. I
stækkandi sveitarfélagi em örugg-
lega ekki allir íbúar meðvitaðir um
það starf sem ffam fer í deildum
Umf. Skallagríms. Á þennan fund
mættu grátlega fáir einstaklingar,
eitthvað um 40 manns. Og viti
menn stór hluti þeirra sem mættu
var fólk sem starfað hefur af heilum
hug í íþrótta- og æskulýðsstarfí, er
ýmist enn í stjómum eða er með
margra ára reynslu að baki. Fund-
urinn var málefhanlegur og góður,
en ég tel að hann hafi ekki náð til
þess markhóps sem við vildum ná
til og sóttumst eftir.
Eitt af því sem við ætluðum að
fjalla um á þeim fundi var hvernig
stjórnir deilda innan Skallagríms
em mannaðar. I dag er staðan sú
eftir því sem ég best veit að aðeins
ein deild af fimm er fullmönnuð.
Sem dæmi má nefna að í einni
deildinni er einn stjórnarmaður!
Hann á allavega ekki í erfiðleikum
með að boða á stjórnarfundi og
ákvarðanataka hlýtur að vera nokk-
uð auðveld! Það að fólk mæti ekki á
boðaða fundi held ég að sé stað-
bundið vandamál hér í Borganesi.
Það virðist einfaldlega ekki tíðkast
að mæta á aðalfundi hjá deildum
þar sem börnin okkar stunda íþrótt-
ir. Hvers vegna er það? Eiga aðrir
að sjá um að mæta - eða hvað er
málið? Þetta hefur verið svona síð-
an ég fór á fyrsta aðalfundinn þegar
elsta dóttir mín fór að æfa rétt 6 ára
gömul. Þá minnir mig að við höf-
um verið tveir foreldrar fyrir utan
hluta af stjórninni. Á aðalfundi,
foreldrafundi og aðra viðburði
mæta sorglega fáir, stundum bara
hluti af stjórninni eða skipuleggj-
endur. Auk þess sem það er nánast
ekki fræðilegur möguleiki að fá fólk
til að starfa í stjórn. Mig langar að
vita hvað veldur? Þorir fólk ekki,
nennir það ekki eða finnst öllum
sjálfsagt að aðrir sinni börnunum
þeirra?
Aðalstjórn Umf. Skallagríms er
ekki einu sinni mönnuð. Þar situr
einn í stjórn, formaður sem er fyr-
ir tveimur aðalfundum síðan búinn
að gefa út að hann gefi ekki kost á
sér áfram. Enginn ritari, enginn
gjaldkeri, engir meðstjórnendur.
Ég hef reyndar verið svo orðhvöss
að vilja leggja allar æfingar niður
tímabundið, engar æfingar í
íþróttahúsinu í viku eða þar til búið
er að manna einhvað af þessum
stjórnum. En á hverjum er það að
bitna? Saklausum börnum? Það er
ekki þeim að kenna að foreldrar
mæta ekki á fundi, gefa ekki kost á
sér í stjómir deilda og fara ekki í
íþróttaferðir með þeim. Núna era
það alltaf sömu foreldrarnir sem
fara, vinna og standa í eldlínunni.
Ég er ekki með þessum orðum mín-
um að setja út á það starf sem unn-
ið er heldur að benda á að það em
allt of fáir sem sinna því. Getur ver-
ið að ein ástæða sé að fólk veigrar
fyrir sér að fara í stjórnir ef það sér
ekki fyrir sér að losna auðveldlega
út aftur. Eg legg til að við setjum
okkur markmið t.d. þannig að eftir
tvö ár ertu laus, nema óskað sé eftir
áframhaldandi setu.
Jæja ágætu íbúar Borgarness, ég
ætla ekki að hafa þetta lengra að
sinni. Vonast til að ffétta af óvenju
mörgum foreldrum á aðalfundum
deilda og aðalstjórnar Umf. Skalla-
gríms og að stjórnir verði fullmann-
aðar næsta iðkendaárið.
Bestu kveðjur,
Veronika Sigurvinsdóttir
PS. Er tími sjálfboðavinnu lið-
inn? Er komið að þeim
vendipúnkti að bæjarfélögin verða
að koma inn með meira fjármagn
þannig að hægt verði að vera með
einn til tvo starfsmenn í vinnu fyrir
Iþróttafélög/deildir? Þá verður
kannski ekki þörf á öllum þessum
stjórnum - þarf ekki Umf. Skalla-
grímur 30- 35 aðila í stjórnir deilda
á ári?
t
3
i