Skessuhorn - 07.03.2007, Side 26
26
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
ákUsunv^
remumi~~,.
M
7^(Utninm*U
Krossvíkurvitinn á Akranesi
orðinn hörmung
Héma innarlega á Langasands-
bökkunum fyrir neðan íþróttasvæð-
ið stendur gamall viti sem er og var
fyrir innsiglinguna inn Krossvíkina.
Að mínu áliti var þetta fallegt mann-
virki þó það sé hvorki hátt né stórt
að öðra leiti. Þessum vita finnst mér
að mætti sína meiri sóma en nú er
gert. Þegar ég var strákur og fram
efidr öllu lýsm gasljós hann upp eins
og aðra vita hér við landið.
En með nýrri tækni varð þar
breyting á. Sett var raímagnsljós
ásamt þríhyrning á vitann og fyrir
aftan hann, það er upp undir vegi
sem liggur inn á Nes var sett mastur
með sams konar ljósi og þríhyming-
ur eins og er á vitanum. Þessi ljós og
merki eiga að bera saman þegar
komið er á leiðina hér inn víkina.
Efst á mastrið fyrir aftan vitann hef-
irr verið komið fyrir plötu sem líkist
fótbolta með ör í gegn. Þessi bolti
virkar sem vindvísir, sem að mínu
mati er til prýði og þeim til sóma er
það gerðu.
En víkjum aftur að vitanum. Þetta
ljós og þríhymingur ásamt palli og
stífum og öðm klastri sem komið
hefur verið fyrir á vitanum er að
mínu áliti búið að eyðileggja hann
sem fallegt mannvirki. Það má varla
nokkur orð yfir þá smekkleysu og
klúður sem þama hefur verið ffam-
kvæmt og þeim til skammar er að
stóðu. Nú mundi ég vilja beina þeim
orðum mínum að þeim sem þetta
varðar að taka þetta klastur af vitan-
um og koma því fyrir á mastri fyrir
ffaman vitann. Það er að segja nær
sjónum. Þetta mastur þyrfti ekki að
vera hátt nú burðarmikið til að bera
áðumefndan þríhyming og ljós sem
eyðileggja vitann sem fallegt mann-
virki eins og allir munu sjá sem velta
þessum hlutum eitthvað fyrir sér, og
er ekki alveg sama um umhverfið.
Þetta mastur væri hægt að gera úr 8“
galvaniseruðu röri um 8 m háu sem
steypt væri niður ca. 15m fyrir fram-
an vitann, nær sjónum. Þar með væri
málið leyst að mínu áliti. Varla
mundi þessi framkvæmd kosta það
mikið að raska myndi sjóðum Faxa-
flóahafna að neinu ráði. Eftdr þessa
aðgerð ásamt smávægilegum
steypuviðgerðum og málningu
mtmdi vitinn komast í sitt fyrra horf
og gleðja mig og fleiri sem eiga leið
þarna um og kunna að meta fallega
smíði eins og þessi viti sannarlega
var áður en hann var skemmdur sem
slíkur með áðumefndri smekkleysu
og klastri. Svona eigum við ekki að
umgangast minjar ffá gamla tíman-
um.
Jón Pétur Pétursson
Af þessu tilefhi datt mér eftirfar-
andi í hug:
Ymsu breytir aldurinn
ágangþola megum.
Við erum gamlir viti minn
og vinifáa eigum.
Bíðum vorsins báðir tveir
að burtu taki klastur.
Ekki orðum þetta meir
efþeir reisa mastur.
Auðlindin
Nú hefur umræðan um auðlindir
Islands komið vel upp á yfirborðið á
ný. Hver átti Island áður en menn
námu hér land? Og hver átti Island
eftir að menn komu hingað? Vora
það höfðingjamir einir? Var eitt-
hvað til sem hét almenningur, var
eitthvað til sem hét þjóðareign eða
þjóðlendur? Já hver átti allt góssið,
þetta dýrðarinnar land, fiskimiðin.
o.s.ffv.
Nú er barátta hér á landi í gangi
um það hvort setja eigi í stjórnarskrá
að íslenska þjóðin eigi Island með
gögnum og gæðum ef svo má að
orði komast. I mínum huga er það
auðvitað borðleggjandi að íslenska
þjóðin á auðlindir landsins og hafs-
ins í kring um það. Fyrir nokkrum
áram hefði ekki einum einasta
manni dottið það í hug að pæla í
þessu. Því hugsunin um sameign
okkar á þessum auðlindum hefur
verið gróin inn í vitund þjóðarinnar.
En nú er þetta orðið mál mál-
anna. Hver á auðlindir landsins,
landgrunnsins og þess sem þar er
undir og fyrir ofan?
Græðgisvæðingin
Af hverju er verið að pæla í þessu
núna? Að minni hyggju er það út af
græðgisvæðingunni sem hafið hefur
innreið sína í
landið. Sumir
menn hafa nú
öðlast þá sýn að
einstaklingar
eigi að eiga auðlindir lands og sjáv-
ar. Og mörgum er það keppikefli að
eignast meira og meira því þeim
finnst virðing sín aukast og aukast
við það að teljast sem mestir eigna-
menn.
Já vatnslindir, þjóðlendur, fiski-
mið og allt skal selt í hugum sumra.
Sjúkrahús, skólar, hafnir, vegir, flug-
velfir og svo fbamvegis, allt skal falt
og mikið hefur verið selt undanfar-
ið.
Nú verðum við að staldra við og
átta okkur á því að við erum ekki ei-
h'f og að aðrir eiga að taka við eins
og við höfum tekið við af þeim sem
á undan okkur komu.
Hlutverk stjórnmálanna er að
leiða á ný þá hugsun inn í samfélag-
ið að við sem byggjum Island, ís-
lenska þjóðin er eigandi auðlinda
lands og sjávar og að við megum
ekki gefa það eða selja úr hendi okk-
ar, því við erum ábyrg gagnvart
þeim sem það erfa og síðar koma.
Karl V. Matthíasson.
Skattar
Skattheimtumenn
Starf skatt-
I heimtumanna
er off erfitt og
lítt til þess falið að afla mönnum vin-
sælda. Til er gömul sögn úr Staðar-
sveit af Grana. Grani bjó samkvæmt
sögunni nærri æskuslóðum mínum á
Staðastað. Atti hann að hafa hlaðið
garð þvert á alfaraleið og haft hlið á
garðinum þar sem hann stóð og
heimti af mönnum veggjald, senni-
lega er hugmyndin að gangagjaldinu
sótt til Grana. Af þessu hlaut hann
hinsvegar ekki gott umtal og þar
kom að ferðamenn hengdu Grana í
öðrum hliðstólpanum á Granagarði.
Lengi sást móta fyrir garðhleðslu við
austanvert Langavatn og var það
tahð Granagarður.
Fasteignagjöld
í Borgarbyggð
I nútímasamfélagi era flestir svo
vel upp aldir að mannvíg hafa að
mestu lagst af. Skattlagning er hins-
vegar líkt og á dögum Grana óvinsæl
meðan á innheimtu skattsins stend-
tu. Sérstaklega á þetta við ef skattar
era hækkaðir. I Borgarbyggð hafa
svokölluð fasteignagjöld hækkað
mikið hin síðustu ár og stafar það
aðallega af efdrtöldum þáttum:
1. Fasteignaverð, sem er stofii fast-
eignaskattsins, hefur hækkað mik-
ið í Borgamesi og Borgarbyggð
undanfarin ár. Því hefur skattur-
inn hækkað þrátt fyrir að álagn-
ingarprósentan hafi verið lækkuð
lítillega árið 2004.
2. Lóðaleiga hækkar nú milli ára
vegna þess að það hlutfall sem
innheimt er af lóðarmati var
hækkað milli ára. Innheimtuhlut-
falhð er engu að síðvu ekki hærra
en gengur og gerist hjá sveitarfé-
lögum.
3. Ný vatnsveita var lögð niður
Borgarfjörð af Orkuveitu Reykja-
víkur. Vatnsgjald sem innheimt er
í Borgarnesi hækkaði mikið í kjöl-
farið.
4. Fráveitugjöld hækkuðu á þessu ári
um nálega 100 % á því húsnæði
sem það er innheimt af. Astæðan
er sú að á þessu ári og því næsta
áformar Orkuveita Reykjavíkur að
ráðast í umfangsmiklar fram-
kvæmdir við ffáveitur í Borgar-
nesi, á Hvanneyri, Bifföst og í
Reykholti.
5. Sorpgjald var lengi greitt að hluta
í gegnum bæjarsjóð. A síðasta ári
stóð innheimt sorphirðugjald
hinsvegar alfarið undir kostnaði
við sorphirðu enda sorpgjald verið
hækkað jafnt og þétt og eru nú
tæpar 20.000 kr. innheimtar í
sorphirðugjald á hverja sorptunnu
í þéttbýh svo dæmi sé tekið.
Þjónustugjöld
Þrír síðustu hðirnir í þessari upp-
talningu eru þjónustugjöld og ædað
að standa undir rekstri veima og
sorphirðu. Vissulega er innheimta
þeirra gjaldaliða ekki hafin yfir
gagnrýni. Helst má gagnrýna að
kostnaðurinn við þessa liði sé jafii
hár og raun ber vitni. Vamsveita fyr-
ir Borgames hefði getað orðið mun
ódýrari en varð ef merm hefðu ekki
farið alla leið uppí Norðurárdal efrir
vatni. Sú leið var hinsvegar valin
vegna þess að þannig var unnt að
afla vams fyrir mjög stórt svæði þar
sem vatnsöflun hefur verið vanda-
mál um langan aldur. Mikill kosm-
aður við fráveim og sorphirðu stafar
af því að miklar kröfur eru gerðar
um gæði hennar í gegn xnn EES
samninginn. Fráveimgjaldið ætti
hinsvegar að geta lækkað efrir að
stofnkostnaður hefur verið greiddur
þó eflaust verði þessi liður dýrari
héreffir en hingað tdl.
Skattar og bætur
Fasteignaskatmrinn sjálfur er
skattur sem ædaður er til almenns
rekstrar sveitarfélagsins. Þar fer að
verða auðveldara um vik að gagn-
rýna þá sem ákvörðunarvaldið hafa
því mjög auðvelt er að halda því
fram að fasteignaskattur sé um
margt ranglámr skattur, sérlega eins
og skuldum húseigenda er háttað.
Lengi vel innheimti ríkissjóður svo-
kallaðan eignaskatt, skattur var lagð-
ur á hreina eign fólks. Þetta þótti
ekki góð latína af því að mönnum
tókst að sýna ffam á að sumir af
þeim sem greiddu þennan skatt
höfðu misst maka sinn. Því var tekið
að uppnefha þennan skatt ekkna-
skatt. Nú er sveitarfélögum hinsveg-
ar ædað að afla tekna eftir svipuðum
leiðum nema nú er skatturinn ekki
lagður á hreina eign heldur mats-
verð eignar óháð því hvort á henni
hvíla lán eða ekki.
Það virðist hinsvegar vera liðin tíð
að löggjafinn telji að þeir sem hafi
háar tekjur eigi að greiða meira til
samfélagsins en þeir sem hafa lágar
tekjur. Þegar kemur að því að fólk
fari í fæðingarorlof gengur löggjaf-
inn jafnvel svo langt að telja að ffam-
lög eigi að vera því meiri sem efna-
hagur fólks er betri!
Sveitarstjómarmenn þurfa að bera
þann kross að sjá til þess að sveitar-
félög fái tekjur í takti við útgjöld.
Þegar fjárhagsáædun er samin kem-
ur off ffam krafa um að lágmarka
tekjtu og hámarka gjöld sveitarsjóðs.
Það er skylda sveitarstjómarmanna
að standast þá ffeistingu að hafa út-
gjöldin meiri en tekjumar en vissu-
lega gemr það orðið til þess að
mönnum þyki lidu fé varið til þarffa
verkefha en skattar heimtir úr hófi
fram.
Það er hinsvegar nauðsynlegt að
hafa skattkerfið fjölbreytt. Mönnum
gengur misvel að koma rétturn upp-
lýsingum til skattstjóra um tekjur
sínar þannig að sumum gleymist að
mesm að greiða tekjuskatt þrátt fyr-
ir nokkur efni. Því er eðlilegt að
skattleggja neyslu og eignir í bland
við tekjur.
Eg dreg ekki fjöður yfir það að ég
tel afar brýnt að nýtt þing sem kosið
verður í vor endurskoði skattalögin
ekki síður en bótagreiðslur. Það er
með ólíkindum að ffamlög úr sam-
eiginlegum sjóðtun skuli vaxa efrir
því sem menn eru betur efnaðir líkt
og styrkja þurfi efhafólk sérstaklega
til að tryggja viðkomu þeirra. Ella
yrðu þeir ríku útdauðir úr voru sam-
félagi einn góðan veðurdag! Við
endurskoðun skattalaga gefst kostur
á að minnka álögur á „venjulegt
fólk“ sem skuldar mikið af eignum
sínum og hækka álögur á þá sem
þola að borga. Eg er viss um að við
munum ekki hh'fast við að borga
hærri skatta, ég og dugandi forstjór-
ar rótgróinna fyrirtækja í Borgar-
byggð í vissu þess að þeim mun vel
varið til góðra verka!
Finnbogi Rögnvaldsson
Góugleði skógræktar-
fólks í Fannahlíð
Skógræktarfélag Skilmannahrepps
bauð félögum sínum og Hvalfjarðar-
sveitungum öllum til Góugleði laug-
ardagskvöldið 24. febrúar sl.
Skemmtunin var að sveitasið; léttar
veitingar og skemmtiatriði að hætti
hússins, bingó og dans. Þetta er
fyrsta góugleði félagsins effir að
hrepparnir sunnan Skarðsheiðar
voru sameinaðir og í fyrsta slripti sem
allir íbúar Hvalfjarðarsveitar eru
boðnir til skógræktarveislu. Félögum
skógræktarfélags hefur fjölgað á síð-
usm árum og starfið verið fjörugt.
Hin sameiginlega skemmtun lofaði
góðu og er talinn fynrboði um enn
ffekari stækkun félags-
ins í ffamtíðinni.
Breytingar eru í
vændum innan hins
aldna Skógræktarfélags
Skilmannahrepps því á
aðalfundi í vor verður
lögð ffam tillaga um
nafnbreytingu og í
kjölfarið stefnt að því
að skógræktaráhuga-
fólk í allri Hvalfjarðar-
sveit verði boðið vel-
komið til starfa i félag-
inu.
MM
Sameiningartákn hins nýja sveitarfélags,
Einar Om Tborlacius sveitarstjóri, ktm sá
ogsigraði. Hannflutti minni kvenna og
krækti sér í lítinn Bingóvinning í leiðinni.
Systumar Þorkatla og Hansína Sigurgeirsdætur léku und-
ir söng og síðanfyrir dansi. Hér eru þœr ásamt Jóhönnu
Harðardóttur t Hlésey sem var veisltistjóri kvöldsins.