Skessuhorn - 07.03.2007, Page 31
.-txlllt..
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2007
31
*
Bikarleikur í blaki
í Grundarfirði
Síðastliðið föstudagskvöld lék
sameiginlegt lið UMFG og Reynis
Hellissandi bikarleik í brosbikar-
skeppni kvenna undir stjórn Viðars
Gylfasonar. Liðið mætti fyrrum
bikarmeisturum og deildarmeistur-
um Þróttar Reykjavík í bráð-
skemmtilegum leik í íþróttahúsinu
í Grundarfirði. Mikil stemning var
á leiknum sem fór ffam fyrir nær
fullu húsi áhorfenda sem sungu,
spiluðu, trommuðu og klöppuðu
allan leikinn og gerðu ffábæran leik
enn betri.
Ohætt er að segja að þetta sam-
eiginlega lið Grundfirðinga og
Reynis Hellissandi hafi staðið sig
með stakri prýði og haldið vel í við
bikarmeistaraliðið allar hrinumar.
Þróttur vann leikinn með tæpum 3-
0 sigri, 25-19, 27-25 og 25-19.
Væri óskandi að framhald yrði á
slíku samstarfi í blakinu.
GK
Skagamenn
á úrtaksæfingum
Næstu daga fara fram úrtaksæf-
ingar hjá landsliðum karla í knatt-
spyrnu skipuð leikmönnun yngri
en 19 ára og yngri en 17 ára. Alls
munu níu leikmenn IA taka þátt í
æfingunum. Hjá landsliði skipað
leikmönnum yngri en 19 ára verða
Skarphéðinn Magnússon, Guð-
mundur Böðvar Guðjónsson og
ísleifur Örn Guðmundsson. Hjá
landsliði skipað leikmönnum yngri
en 17 ára verða við æfingar þeir
Trausti Sigurbjörnsson, Ragnar
Þór Gvmnarsson, Ragnar Leósson,
Arni Snær Ólafsson, Einar Logi
Einarsson og Viktor Ymir Elías-
son.
HJ
Snæfell sigraði Vesturlandsslaginn
Snæfell sigraði Skallagrím með
85 stigum gegn 75 í nágrannaslagn-
um sem ffam fór í Stykkishólmi á
sunnudagskvöld. Gríðarleg stemn-
ing var í Iþróttahúsinu í Stykkis-
hólmi og höfðu fjölmargir Borg-
nesingar gert sér leið vestur til að
berja síha menn augum. Að sama
skapi var áhugi heimamanna
óskiptur fyrir leiknum.
Snæfell tók strax frumkvæðið í
upphafi leiks en liðið var að spila
feiknagóðan varnarleik og náði að
loka vel á skyttur gestanna sem að
áttu erfitt uppdráttar í leiknum en
nýting Skallagríms í þriggja stiga
skotum var 23 %. Yfirburðir Snæ-
fells undir körfunni voru miklir í
upphafi leiks og voru þeir Hlynur
Bæringsson og Ingvaldur Magni
Hafsteinsson þar fremstdr á meðal
jafningja. Staðan að loknum fyrsta
leikhluta var 22-14 fyrir heima-
menn. Sóknarleikur Skallagríms
var í molum í fyrri hálfleik og mjög
ráðlítill, skotin voru ekki að detta
og heimamenn héldu hinum öfluga
Darrell Flake ágætlega niðri en
hann gerði þó sitt besta til að halda
sínum mönnum inn í leiknum.
Hálfleiksstaðan var 35-29 fyrir
Snæfelli.
I síðari hálfleiknum hélt sama
barátta áffam og báðar vamir vom
enn mjög sterkar. Um miðbik
þriðja leikhluta minnkaði Hafþór
Ingi Gunnarsson fyrirliði Skalla-
gríms muninn niður í eitt stig, 45-
44, og fór þá að fara um margan
Hólmarann á pöllunum. En gest-
irnir náðu ekki að fylgja fordæmi
fyrirliðans og Snæfell jók aftur
miminn og hafði 8 stiga foyrstu fyr-
ir lokaleikhlutann 54-46.
I lokaleikhlutanum náðu Skalla-
grímsmenn að minnka mtminn lít-
illega, mest niður í fjögur stig 76-
72 þegar að rétt tæp mínúta var eft-
ir af leiknum. Snæfell fór þá í sókn
en mikilvægt var fyrir þá að ná að
vinna leikinn með meira en 6 stig-
um til að hafa vinninginn í inn-
byrðis viðureignum liðarma. Justin
Shouse kom upp með boltann og
sendi hann inn á Hlyn Bæringsson
sem að var vel dekkaður og hann
virtist vera að missa boltann. Hann
náði þó að koma honum aftur út á
Shouse sem stóð góðan metra fyrir
utan þriggja stiga línuna og negldi
niður seinasta naglann með ffá-
bærri körfu beint í andlitið á lánlitl-
um Dimitar Karadovski sem réð
h'tið við stórleik Shouse. Staðan var
því orðin 79-72 og um hálf mínúta
eftir. Skallagrímsmenn reyndu sitt
besta til að minnka muninn á loka-
sekúndum leiksins en allt kom fyrir
ekki og Hlynur Bæringsson kláraði
leikinn á vítalínunni fyrir sína
menn. Lokatölur 85-75.
Justin Shouse var besti maður
vallarins með 28 stig og 7 ffáköst
fyrir Snæfell. Sigurður Þorvaldsson
skoraði 18 stig og Ingvaldur Magni
var með 15. Fyrir gestina var Darell
Flake atkvæðamestur með 24 stig
og 13 fráköst. Jovan Zdradveski og
Hafþór Ingi komu honum næstir
með 16 stig hvor.
Liðin eru því hm'fjöfh í deildinni
með 32 stig en lið Snæfells er þó
ofar á innbyrðisviðureignum. Sein-
asti leikur þeirra verður í Keflavík á
næstkomandi fimmtudag og geta
þeir að öllum líkmdum tryggt sér 3.
sætið með sigri þar. Skallagrímur
mætir bikarmeisturum IR í Fjósinu
einnig á fimmtudagskvöld og verða
þeir að sigra þar og vonast til að
Snæfell misstigi sig í Keflavík. Allt
er þó opið ennþá í þessu því að KR
á enn efrir að klára sína leiki til að
tryggja sér 2. sætið og eiga því bæði
Skallagrímur og Snæfell enn raun-
hæfa möguleika á því. Endi það svo
að liðin 3 verði öll jöfri verða það
hinsvegar Skallagrímur sem hrepp-
ir annað sætið. HU
x
T'
*
Meistaramót í frjálsum
Meistaramót 12 - 14 ára í ffjáls-
um íþróttum var haldið í Laugar-
dagshöllinni 3. -4. mars. HSH
sendi 20 krakka til keppni og eru
mörg ár síðan jafn margir hafa ver-
ið að keppa á meistaramóti ffá hér-
aðssambandinu. Krakkarnir stóðu
sig með prýði og sópuðu að sér
verðlaunum og endaði HSH í 7.
sæti í heildarstigakeppnini af 22 fé-
lögum. Það er gaman að sjá
hversu mikil gróska er í ffjálsum
íþróttum á Snæfellsnesi þessa dag-
ana og vonandi verður ffamhald á
því. Kristín H.
*
Sigur Skallagríms á Þór þrátt fyrir slakan sóknarleik
Fri leik Skallagríms og Hauka á dögunum.
Ljósm. Svanur Steinarsson
Borgnesingar sigruðu Þór frá
Þorlákshöfri með 10 stiga mun,
103-93, í Fjósinu í Borgarnesi á
fimmtudagskvöld. Leikurinn var
þó langt frá því að vera góður af
hálfu heimamanna. Valur Ingi-
mundarson þjálfari Skallagríms
sagði í samtali við Skessuhorn efrir
leikinn að þeir fjölmörgu áhorf-
endur sem lögðu leið sína í Fjósið
hefðu ekki átt skilið að sjá slíka
frammistöðu hjá sín-
um mönnum. Skalla-
grímur hafði fyrir
þennan leik ekki tap-
að í síðustu 6 leikjum
og hafði sóknarleikur
liðsins verið með
eindæmum góður en
valt er veraldar gengi
og áttu Skallagríms-
menn í erfiðleikum
með spræka Þórsara í
leiknum.
Gestirnir byrjuðu
leikinn af krafri og
náðu strax forystu 4-
8. Þeir David Aliu og
Damon Bailey fóru
fyrir sínum mönnum
og réðu heimamenn
lítið við þá félaga
undir körfunni. Val-
ur Ingimundarson
brá á það ráð
snemma leiks að
skipta yfir í 2-3
svæðisvörn sem að
skilaði sínu og hægði
talsvert á leik Þórs.
Sóknarleikur Skallagríms var
samt sem áður gífurlega tilviljana-
kenndur og einkenndist meira eða
minna á þvinguðum skotum effir
oft á tíðum furðulegar ákvarðanir
leikstjórnandans Dimitars Kara-
dzovski. Það var einna helst Darell
Flake sem að sýndi eitthvað af viti
í fyrsta leikhluta en hann skoraði 7
af 17 stigum heimamanna í hon-
um. Staðan var 17-19 fyrir Þór eft-
ir fyrsta leikhluta en munurinn
hefði vel getað verið meiri.
I öðrum leikhluta kom lágtóns-
barkinn Jason Harden vel inn og
skoraði hverja körfuna á fætur
annarri og þegar að 3 mínútur
voru liðnar af leikhlutanum setti
hann niður þriggja stiga körfu og
kom Þórsurum sjö stigum yfir 28-
35. Var þá Val Ingimundarsyni nóg
boðið og tók leikhlé og þrumaði
yfir hausamótunum á lærisveinum
sínum. Hræðilegt var að fylgjast
með leik Skallagríms á þessum
tímapuntki og stóð vart steinn yfir
steini í sóknarleik liðsins. En
Skallagrímsmenn eiga ás í ermi
sinni sem er Makedóninn létt-
hærði Jovan Zdradveski og sýndi
hann í öðrum leikhluta hvers
vegna hann er almennt talinn einn
besti sóknarmaður deildarinnar.
Hann skoraði 10 stig í röð og alls
14 í leikhlutanum og minnkaði
muninn niður í eitt stig fyrir hlé,
43-44. Einn slakasti hálfleikur
Skallagríms í vetur var staðreynd.
Byrjun seinni hálfleiks lofaði
góðu fyrir heimamenn og skoruðu
þeir Jovan og Dimitar fyrstu 4
stigin og komu heimamönnum yfir
í fyrsta skipti í leiknum, 47-44. En
aftur seig á ógæfuhliðina og
Damon Bailey kom gestunum frá
Þorlákshöfri aftur yfir 51-55. En
Jovan Zdradveski tók affur á sprett
fyrir heimamenn og raðaði niður
körfum yfir hinn seinheppna Ro-
bert Hodgson sem að vil væntan-
lega gleyma þessari heimsókn sinni
í Borgarfjörðinn sem allra fyrst.
Heimamenn náðu á þessum tíma-
punkti að byggja upp smá forystu
og komust mest 4 stigum yfir, 63-
59, þegar að Hafþór Ingi Gunn-
arsson fyrirliði braust ffamhjá hin-
um unga Baldri Ragnarssyni og
lagði boltann snyrtilega í körfuna,
spjaldið ofan í. David Aliu svaraði
þó strax aftur fyrir Þór með tveim-
ur góðum körfum í röð áður en að
Hafþór lauk leikhlutanum með
fínni körfu á hinum endanum.
Skallagrímur hafði því yfir fyrir
lokaleikhlutann 66-64.
í byrjun fjórða leikhluta var strax
ljóst að hið unga lið Þórs hefði
ekki taugar í að klára leikinn. Effir
að þeir höfðu tapað tveimur bolt-
um í röð á fyrstu mínútu leikhlut-
ans skoruðu þeir Pálmi og Pétur
sinn hvoran þristinn og juku mun-
inn upp í 9 stig, 76-67. Má segja að
þetta hafi verið vendipunktur
leiksins þar sem effir þetta var
aldrei vafi um hvorum megin sig-
urinn myndi lenda. Skallagríms-
menn komust fljótt í bónus og fóru
gestirnir að brjóta klaufalega af sér.
Munurinn komst mest upp í 17
stig, 94-77, um miðbik leikhlutans
þegar að Dimitar skoraði yfir A-
gúst Dearborn háloftafugl þeirra
sunnanmanna. Lokatölur eins og
áður sagði urðu 103-93 Skalla-
grími í vil.
Valur Ingimundarson sagði að
þetta hafi verið einn lélegasti leik-
ur sinna manna á tímabilinu. Það
hafi vantað allan neista í sóknar-
leikinn og varnarleikurinn ei held-
ur verið upp á marga fiska.
HU
Skallagrímur- ÍR
Lokaumferð lceland Express deildarinnar
ferfram fimmtudaginn 8. mars
kl. 19:15 í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi
ALLIRÁ VÖLLINN!
*
%
4