Skessuhorn - 07.03.2007, Page 32
*
r
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða
mmmmmmmmmm .....
Ibúðalánasjóður
www.ils.is
FJÁRHAGSLEG GLITNIR^
VELGENGNI ÞÍN
ER 0KKAR VERKEFNI
Daglegar ferðir
Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-16.
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880
landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is
Landflutningar
' SAMSKIP
Meirihluti síldarstofiisins er í Grundarfirði
Nokkru eftír að þorskur drapst í
eldiskvíum í Grundarfirði snemma á
árinu fór haffannsóknarskipið Bjarni
Sæmundsson þangað til mælinga.
Alls mældust milli 350-400 þúsund
tonn af síld í Grundarfirði sem er
nálægt 65% af áætlaðri stærð alls
veiðistofiis sfldar við landið. Þetta
kemtu fram í viðtali Fiskiffétta við
Þorstein Sigurðsson, sviðsstjóra
nytjastofnasviðs Hafrannsóknar-
stofnunar.
„Að undanförnu hafa ítrekað
borist ffegnir af því að sfldin sé ekki
aðeins inni í Grundarfirði ennþá í
sama mæli og fyrr, heldur hafi
einnig orðið vart við mikla sfld inni í
Kolgrafarfirði og sömuleiðis hafi
sést síldartorfur vestan við
Grundarfjörð. Við höfúm af þessu
tilefni ákveðið að kanna þetta ffekar
og í því skyni tekið á leigu smábát
sem færanlegur mælibúnaður verður
settur í. Bátnum er ætlað að fara yfir
öll svæðin aftur, þar á meðal verðtu
farið undir brúna í Kolgrafarfirði
sem ekki er hægt að gera nema á
litlum báti. Við teljum ekki stætt á
öðru en að kanna þetta til hlítar. Ef
allt gengur að óskum er þetta
tveggja til þriggja daga verkefni,"
sagði Þorsteinn í viðtalinu við
Fisldfféttir.
HJ
*
Lagt til að framtíðar skíðasvæði
Vesturlands verði á Okjökli
Fyrir skömmu gengu tveir
Borgfirðingar, þeir Bergþór
Kristleifsson á Húsafelh og Snorri
Jóhannesson á Augastöðum á fund
byggðaráðs Borgarbyggðar og
vörpuðu fram þeirri hugmynd að
komið yrði upp framtíðar
skíðasvæði Vesturlands á Okjökli.
Að sögn Snorra Jóhannessonar
kviknaði hugmyndin hjá þeim
félögum vegna tíðra ffétta um
snjóleysi sunnan Hvalfjarðar. Telja
þeir að nægur snjór sé í Okinu,
hversu mikið eða líttið sem snjóar á
láglendi. Þeir ákváðu því að banka
upp á hjá byggðaráði Borgarbyggðar
og færa því þessa hugmynd. „Við
erum aðeins búnir að gera smá
rannsóknir þarna efra og sýnist
okkur að þetta gæti vel gengið. Ef af
þessu verður sjáum við marga
möguleika sem hanga á sömu
spýtunni. Umferð ferðafólks myndi
aukast, sumarhúsin í héraðinu
myndu nýtast betur, tekjur
heimamanna af aukinni þjónustu
aukast og annað eftir því,“ sagði
Snorri í samtafi við Skesssuhom.
Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri
Borgarbyggðar sagði aðspurður að
byggðaráði hafi alls ekld litist illa á
hugmynd þeirra félaga og sent
erindið áfram til umsagnar
tómstundanefndar sem sett hefði
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa
sveitarfélagsins í að kanna málið
ffekar. Eitt og annað þyrfti auðvitað
að skoða í tengslum við hugmynd
þeirra félaga. Athuga þyrfti vel hvort
hún væri gerleg því kostnaður
myndi fylgja þessari framkvæmd ef
af yrði. Meðal annars þyrfti að leggja
um sjö kflómetra langan veg þama
uppeftir. „En málið er komið í gang
og svo er bara að sjá hvað kemur út
úr athugun æskulýðsfulltrúans,“
sagði Páll S. Brynjarsson.
BGK
Daníelssfippur tekur við
rekstri síápalyftunnar
Frá gerS samningsins milli fyrirtcekjanna. VtSskiptahúsiS hajSi
milligöngu um samningagerSina. A myndinni eru þeir
Gunnar Richter, Atli ViSar Jónsson, Jóhann M Olafsson og
Ingólfur Arnason.
Síðastliðinn
fösmdag var undir-
ritaður samningur
milli Þorgeir og
Ellert hf á Akra-
nesi og Daníels-
slipps ehf í Reykja-
vík um leigu
slippsins á skipa-
lyftu Þ&E á Akra-
nesi. Samningur-
inn er ótímabtmd-
inn og er sam-
komulag um að
fyrirtækin samein-
ist um uppbygg-
ingu og eflingu starfsemi sem teng-
ist rekstri skipalyftunnar á Akra-
nesi. Daníelsslippur mtm annast
rekstur lyftunnar og starfsemi
tengda málun og sinkun s}dpa, en
náin samvinna verðum milli fyrir-
tækjanna þannig að viðskiptavinir
geta fengið alhliða þjónustu í sam-
starfi þessara tveggja fyrirtækja.
Reiknað er með að starfsemi Daní-
elsslipps hefjist fljótlega hjá hinum
nýja rekstraraðila slippsins.
Daníelsslippur er gamalgróið
fyrirtæki sem hefúr lengst af haft
aðsetur fyrir starfsemi sína við
Mýrargötu í Reykjavík, en eins og
kunnugt er hefur Reykjavflcurborg
ákveðið að öll slippstarfsemi hverfi
af svæðinu við Mýrargötuna og
hefur svæðið nú verið endurskipu-
lagt.
Þorgeir og Ellert hf stendur
einnig á gömlum merg og hefúr
mikil endurskipulagning átt sér
stað hjá fyrirtækinu á síðustu miss-
erum. ,Með þessu samstarfi fyrir-
tækjanna hefst uppbygging á
slippnum með það að markmiði að
ná fyrri styrk hans,“ segir Ingólfur
Arnason, framkvæmdastjóri Þ&E í
samtali við Skessuhorn. Hann segir
jafnffamt að lögð verði áhersla á
það við uppbyggingu slippsins að
tekið verði fullt tillit til næsta ná-
grennis skipalyfttmnar og starfsem-
innar þar. „Koma Daníelsslipps
hingað á Akranes og hér inn á
vinnusvæði Þ&E verður hrein við-
bót við starfsemi okkar og þannig
munu fyrirtækin efla hvort annað í
þetta nánu samstarfi," segir Ingólf-
ur. MM
*
Orkusalan hefurtekið til starfa.
Við seljum rafmagn.
Nánari upplýsingar á orkusalan.is
og í þjónustuverinu 4221020 frá kl. 8-19
alla virka daga.