Morgunblaðið - 15.06.2019, Side 22

Morgunblaðið - 15.06.2019, Side 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir ökuskírteinið, passann, ferilskrána o.fl. Góð passamynd skiptir máli Engar tímapantanir Skjót og hröð þjónusta SVIÐSLJÓS Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Tveir breskir flugmenn brutu blað í sögu flugsamgangna er þeir flugu fyrstir manna yfir Atlantshafið fyrir hundrað árum. Glímdu þeir John Al- cock og Arthur Whitten Brown við frostkalda slyddu og svartaþoku í meira en 16 klukkustundir á tvíþekju sinni. Flugið þótti svaðilför miðað við hinar erfiðu aðstæður á 3.000 kíló- metra langri flugleið þeirra. Þeir Al- cock höfuðsmaður flugstjóri og sigl- ingafræðingurinn lautinant Arthur Whitten Brown urðu með tímamóta- ferð sinni 14. til 15. júní árið 1919 fyrstir yfir hafið án viðkomu á leið- inni, frá Nýfundnalandi í Kanada til Írlands. Þegar þeir Alcock og Brown lögðu upp í för sína á umbreyttri sprengju- flugvél úr fyrra heimsstríðinu þann 14. júní hafði Atlantshafsleiðin frá Norður-Ameríku til Evrópu verið sigruð – en aldrei þó án viðkomu á leiðinni. Nokkrum vikum áður höfðu þrjár Curtiss sjóflugvélar bandaríska flot- ans lagt upp frá New York til Eng- lands með viðkomu á Nýfundnalandi, Azoreyjum og Portúgal. Aðeins ein þeirra komst á leiðarenda en hún var þrjár vikur á leiðinni sem var 6.000 kílómetrar. Skriðu yfir trjátoppana Breska blaðið Daily Mail hafði efnt til áskorunar og boðið 10.000 sterl- ingspund hverjum þeim sem flygi viðstöðulaust yfir Atlantshafið frá Norður-Ameríku til Bretlandseyja á innan við þremur dögum. Nokkrum vikum fyrir flug Alcocks og Brown hugðust tvö óskyld lið að leggja til atlögu við Atlantshafsflugið með vonina um að hreppa verðlauna- féð. Fyrri flugvélin nauðlenti á sjón- um eigi löngu eftir flugtak og var bjargað. Sú seinni brotlenti í flugtaki. Hinn 26 ára gamli Alcock og 32 ára Brown hófu sig á loft skömmu upp úr hádegi frá Lester’s Field vellinum við St John’s, skammt frá austasta odda Norður-Ameríku. Vickers Vimy IV tvíþekjan þeirra var níðþung vegna 4.000 lítra eldsneytis sem með- al annars var komið fyrir í aukatönk- um inni í vélinni. Þegar hún lyfti sér frá flugbrautinni klifraði hún fremur flatt vegna þungans. Þar sem hún skjögraði til lofts og kastaðist til hlið- anna í hviðum mátti engu muna að hún kæmist ekki yfir tré í nágrenn- inu. „Ég stóð nokkrum sinnum á önd- inni af ótta við að lendingarbúnaður- inn rækist á húsþak eða trjátoppa,“ rifjaði Brown upp í bókinni „Flying the Atlantic in Sixteen Hours“ sem út kom ári eftir flugið, 1920. Þegar þeir voru komnir tryggilega til lofts stefndu Alcock og Brown tvíþekju sinni til austurs inn í nóttina fram undan með stefnu á Írland. Svartaþoka drjúgan hluta leiðar- innar þýddi að þeir flugu lengst af blint og höfðu engin viðmið til að leið- rétta stefnur á leiðinni. Flugvélin kastaðist til og veltist í vindinum, reis ýmist í uppstreymi eða tók dýfur í niðurstreymi og var á stundum að- eins nokkra metra yfir haffletinum, að því er Alcock sagði í viðtali við Daily Mail um flugið sögulega . „Ég held við höfum farið bakfalls- lykkju í látunum og fyrir slysni fór- um við í djúpt gormflug. Allt var þetta skelfilegt. Við höfðum enga til- finningu fyrir sjóndeildarhringnum, hvað sneri upp og hvað niður,“ sagði Alcock. Börðu ís af flugvélinni Ísing og haglél trufluðu mælitækin og ógnuðu hreyflunum. Kom í hlut Brown að berja ís af vélinni og brúk- aði hann til þess hníf. „Flugið var hræðilegt. Aldrei sáum við skip eða báta og náðum engum loftskeytum,“ bætti Alcock við. „Við flugum með sjónum og efuðumst stundum um staðsetningu okkar þó að við teldum okkur vera svona „nálægt því eða þar um bil“ á réttri leið. Við kíktum eftir landi og héldum alltaf að það myndi þá og þegar birtast okkur.“ „Það var stórkostlegt“ sagði Al- cock um augnablikið er þeir sáu glitta í land að morgni 15. júní. Hann taldi sig sjá góðan blett til að lenda á nálægt bænum Clifden í Galway- sýslu á vesturströnd Írlands, en það reyndist vera mýrarfen. „Hjólin sukku upp að öxli í fenið og Vimy stakkst á nefið,“ sagði hann. Flugvélin laskaðist en brautryðj- endurnir tveir stigu út úr henni ómeiddir. Þeir höfðu verið rétt rúm- ar 16 stundir og 27 mínútur á lofti. Churchill afhenti verðlaunafé Tekið var á móti Alcock og Brown sem hetjum í bæði Dublin og London. Sjálfur Winston Churchill afhenti þeim verðlaunafé Daily Mail en hann var þá flugmálaráðherra í bresku stjórninni. Loks sló George fimmti frumherjana tvo til riddara fyrir afrek þeirra. Aðeins átta árum seinna féll hið frækilega flug þeirra í skuggann af öðru tímamótaflugi er Bandaríkja- maðurinn Charles Lindbergh flaug einn síns liðs yfir Atlantshaf þann 20. maí 1927. Flaug hann frá New York og lenti í París um sólarhring seinna. Það átti fyrir Alcock að liggja að farast í flugslysi aðeins hálfu ári eftir Atlantsflugið. Fórst flugvél hans við borgina Rúðu í Frakklandi. Brown naut afreksins lengur, en hann gekk á vit feðra sinna árið 1948. Öld frá fyrsta Atlantsflugi  Öld er liðin frá því tveir breskir flugmenn fóru frá Nýfundnalandi á breskri sprengjuflugvél  Urðu fyrstir til að fljúga yfir Atlantshafið án viðkomu á leiðinni  Ferðin tók 16 klukkustundir 1800 1900 2000 XV öld Teikning Fljúgandi vélar Leonardo da Vinci Ítalía 1783 Loftbelgur Frakkland Frakkland Frakkland Frakkland Frakkland Bandaríkin 1891 O. Lilienthal Svifdreki Þýskaland 1903 Wright bræður A. Santos Dumont Ermarsund R. Garros Miðjarðarhaf 1909 viðurkenndflugferðin 14 bis Morane-Saulnier 1906 1913 1927 C. Lindbergh Spirit of St Louis Bandaríkin Wright Flyer Atlantshaf einn án viðkomu New-York - París Japan-Bandar. Þýskaland Bandaríkin E. Henkel Heinkel He 178 C. Yeager Bell XS-1 Glamorous Glennis hjóðmúrinn A. Turcat hljóðfrátt 1939 Miss Veedol Kyrrahaf 1931 1947 1969 mars D. Rutan & J. Yeager Rutan Voyager 1986 14.-23. desember fyrsta hnöttinn fyrsta sólarknúið með millilendingum 9. mars 2015 - 26. júlí 2016 Concorde Solar Impulse 2 B. Piccard & A. Borschberg C. Panghorn & H. Herdorn Bleriot XI L. Bleriot 1919 Vickers tvíþekja John Alcock & ArthurWhitten Brown Fyrsta flug yfir Atlantshaf Merkir áfangar í flugsögunni Flug Flugvélin lenti í mýrarfeni á Írlandi og stakkst á nefið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.