Morgunblaðið - 15.06.2019, Side 29

Morgunblaðið - 15.06.2019, Side 29
íbúi á hjúkrunarheimili með hinu gamla fólkinu og sama stimplun gengur yfir alla! Margt í þessu máli vekur um- hugsun. Atvikið sjálft er alvarlegt, en það er vissulega svo að aldrei er hægt að koma með öllu í veg fyrir alvarleg mistök þar sem annast er um veikt fólk. Einmitt þess vegna skiptir úrvinnsla slíkra atburða svo miklu máli. Feluleikur og þöggun er ekki heppileg úrvinnsla og ef ábyrgir aðilar halda að slík við- brögð auki traust eru menn ekki að lesa stöðuna rétt. Slík viðbrögð auka vantraust. Í þessu tilviki hefði ekki einu sinni komið í ljós hvað gerst hafði nema vegna mjög ákveðinna við- bragða aðstandenda, sem kröfðust krufningar þar sem þá grunaði að dánarorsökin væri sú sem hún reyndist vera. Einnig slík af- greiðsla eykur vantraust. Þegar tveir ungir menn frömdu sjálfsmorð með stuttu millibili inni á geðdeildum Landspítala voru viðbrögðin sannarlega önnur og meiri. Engum ábyrgum aðila datt í hug annað en að lýsa yfir að málið væri tekið alvarlega og yrði skoð- að, ólíkt því sem heyrist þegar um íbúa hjúkrunarheimilis er að ræða. Þótt ég þekki ekki til á heimilinu sem hér um ræðir þekki ég stétt mína og starfsfólk ágætlega og veit að við viljum yfirleitt vel. En við erum líka afsprengi samfélags sem metur aldraða og veika lítils. Mögulega er okkur, mörgum hverjum, ómögulegt að skilja að líf veikra aldraðra sé jafn dýrmætt og okkar allra hinna. Þótt þeir eigi ekki eftir að skila samfélaginu verðmætum í hefð- bundnum efnislegum skilningi eru flestir þeirra búnir að því áður. Er það ekki líka mikils virði? Vissulega er það svo að allir eiga að deyja. En það getur ekki verið hlutverk öldrunarþjónustu að flýta fyrir því, og það á ekki að skipta litlu hvort notendur hennar lifa eða deyja. Og meðan þetta veika fólk lifir skiptir miklu að sú aðstoð sem það er svo mjög háð sé veitt af virðingu og af löngun til að skapa fólki sem bestan tíma síðasta skeiðið. Það er líka umhugsunarefni hvernig íslensk öldrunarþjónusta er skipulögð. Hún heyrir undir alla og engan. Ríkið bendir á sveitar- félögin og öfugt og stór hluti þjón- ustunnar er boðinn út og svo eiga rekstraraðilar það við sjálfa sig hvernig þeir ætla að láta dag- gjöldin endast. Stunduð eru útboð á þjónustu og hér eru að myndast hjúkrunarheimilakeðjur. Í nágrannalöndum okkar er þjónustan nærþjónusta, er í hönd- um viðkomandi sveitarfélags, hver svo sem borgar brúsann (hérlendis borgar ríkið sumt og sveitarfélagið sumt sem skapar augljósa hags- munaárekstra). Ekki er það í þágu notendanna. Sú þróun að æ veikara fólk dvelji á hjúkrunarheimilum felur líka í sér að æ veikara fólk býr heima. Ekki verður séð að þeirri breytingu hafi verið mætt að gagni. Heimaþjónusta hér er afar ófullburða og má nefna að á höf- uðborgarsvæðinu er nánast engin heimaþjónusta á nóttunni. Margir sem ekki eru svo veikir eða færn- iskertir að þeir þurfi að flytja á hjúkrunarheimili þurfa að búa þar sem einhvers konar sólarhrings- þjónustu nýtur, en slíkum stöðum hefur lítið fjölgað síðan 2008. Allt virðist þetta bera að sama brunni. Gamalt veikt fólk er af- gangsstærð og olnbogabörn í sam- félagi okkar. Samt getur hvert og eitt okkar átt eftir að lenda í þessum hópi eða að eiga ástvini þar. Höfundur er hjúkrunarfræðingur. UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Hjólastillingar | Smurverkstæði/þjónusta Hlutverk markaðs- stofunnar Icelandic Lamb er að markaðs- setja íslenskt lamba- kjöt til erlendra ferðamanna og á há- endamörkuðum er- lendis. Uppbygging og markaðssetning á merki Icelandic Lamb hefur farið vel af stað og hefur þekking ferðamanna sem og Íslendinga farið langt fram úr björtustu vonum, en verk- efnið er einungis þriggja ára gam- alt. Í dag eru 180 veitingastaðir í samstarfi við Icelandic Lamb, en tilgangur og markmið samstarfs- ins er að stuðla að því að íslensku lambakjöti verði skapaður frekari sess sem hágæða matvöru, með kynningu á og notkun merkis Ice- landic Lamb. Ferðamenn þekkja merki Icelandic Lamb Samkvæmt könnun Gallup sem framkvæmd var fyrir Icelandic Lamb í nóvember síðastliðnum þekkja 38% erlendra ferðamanna merki Icelandic Lamb. 70% þeirra muna eftir því að hafa séð skjöld Icelandic Lamb á veitingastað á meðan á Íslandsdvölinni stóð. Þessi viðamikla þekking vekur eft- irtekt þar sem markhópurinn end- urnýjar sig hratt og meðaldvöl ferðamanna á könnunartímanum er styttri en vika. Þessi þekking ferðamanna á merkinu skapar einnig tæki- færi fyrir þá veit- ingastaði sem nýta það og þá sameig- inlegu markaðs- setningu sem að baki verkefnisins stendur. Það er mikilvægt að halda áfram að nýta samstarfið við veit- ingastaði til þess að tryggja að skilaboð Icelandic lamb skili sér til erlendra ferða- manna. Með samstarf- inu styrkja veitingastaðir eigin sérstöðu, því að geta sagt sögur af hráefni og hefðum fylgir veiga- mikill ávinningur fyrir veitinga- menn sem magna upp upplifun gesta og þar af leiðandi virði sinar þjónustu. Með því að bæta upplif- un ferðamanna leggja veitinga- menn sauðfjárbændum og allri virðiskeðju lambakjötsins lið enda eru þeir í lykilstöðu til þess að koma boðskap Icelandic Lamb til skila. Neytendur sífellt meðvitaðri um mikilvægi uppruna Kröfuharðir neytendur gera nú sífellt frekari kröfur til upp- runamerkinga á matvæli í versl- unum og á veitingastöðum. Með notkun á merki Icelandic Lamb koma veitingastaðir einnig til móts við þann stækkandi hóp neytenda en merki Icelandic Lamb er nýtt sem upprunamerki og auðkennir hágæðavörur úr ís- lensku lambakjöti erlendis, en merkið verður einnig notað í sama tilgangi á íslenskum umbúðum þar sem erlendir ferðamenn eru sífellt stærri hópur viðskiptavina ís- lenskrar smásöluverslunar. Nýsköpun veitingastaða í framreiðslu mikilvæg Þrátt fyrir góðan afrakstur eru næstu skref í starfi Icelandic Lamb bæði þörf og mikilvæg. Með auknum innflutningi á fersku kjöti er mikilvægt að standa vörð um markaðsstöðu íslenska lamba- kjötsins. Mikilvægt er að auka sölu á öðrum bitum en hryggjum og spila veitingastaðir veigamikinn þátt í því verkefni. Með aukinni viðleitni og vöruþróun geta veit- ingastaðir aukið nýtingu minna þekktra bita og bætt virði heildar- afurðarinnar. Markaðsstofan Ice- landic Lamb mun áfram styðja við nýsköpun veitingastaða í fram- reiðslu á íslensku lambakjöti með staðfestu og tryggja að samstarfs- veitingastaðir hafi einungis há- gæða íslenskt lambakjöt á mat- seðlum sínum. Eftir Hafliða Halldórsson Hafliði Halldórsson »Með auknum inn- flutningi á fersku kjöti er mikilvægt að standa vörð um mark- aðsstöðu íslenska lambakjötsins. Höfundur er framkvæmdastjóri markaðsstofunnar Icelandic Lamb. Notkun upprunamerkinga í markaðssetningu skilar árangri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.