Morgunblaðið - 15.06.2019, Qupperneq 40
KAPLAKRIKI/ÁRBÆR
/FOSSVOGUR
Jóhann Ingi Hafþórsson
Bjarni Helgason
Arnar Þór Ingólfsson
FH og Stjarnan eru bæði með ellefu
stig eftir fjörugt 2:2-jafntefli liðanna
í áttundu umferð Pepsi Max-deildar
karla í fótbolta á Kaplakrikavelli í
gærkvöldi. Stjarnan komst í 2:0 er
Hilmar Árni Halldórsson skoraði
annað sitt mark á 64. mínútu en að-
eins fimm mínútum síðar var staðan
orðin 2:2. Mörk FH-inga komu bæði
eftir hornspyrnur Brands Olsen,
sem lék best allra.
Úrslitin voru sanngjörn. FH skap-
aði heilt yfir hættulegri færi, en
Stjarnan spilaði betri fótbolta og var
meira með boltann. Stjörnumenn
misstu þrjá menn meidda af velli en
það hafði ekki mikil áhrif á spila-
mennskuna. Hilmar Árni Halldórs-
son er orðinn sérfræðingur í að vera
réttur maður á réttum stað og fái
hann þjónustu skorar hann mörk.
Það benti ekkert til annars en að
Stjarnan væri að fara með afar góð
þrjú stig úr Kaplakrika, en FH neit-
aði að gefast upp. Það var við hæfi að
Brandur lagði upp bæði mörkin, því
hann var afar sprækur allan leikinn,
þrátt fyrir að Stjarnan væri með
tveggja marka forystu.
Hvorugt liðið sætti sig við jafntefli
og var leikurinn galopinn á lokamín-
útunum. Bæði lið fengu góð tækifæri
til að skora sigurmarkið, en það
tókst ekki. Þau fá því bæði eitt stig,
sem gerir lítið í þeirri baráttu sem
þau telja sig eiga heima í. Takist ÍA
að vinna KR á heimavelli í dag
verða FH og Stjarnan átta stigum á
eftir toppsætinu þegar átta umferð-
ir eru búnar. Bæði lið ætluðu sér
mun stærri hluti í sumar, en þau
hafa aðeins unnið einn leik af síð-
ustu fjórum leikjum og gengur illa
að ná í góð úrslit. Enginn var sáttur
með aðeins eitt stig. johanning-
i@mbl.is
Sjö marka leikur í Árbæ
Fylkismenn unnu frábæran 4:3-
sigur gegn toppliði Breiðabliks í frá-
bærum leik á Würth-vellinum í Ár-
bænum.Valdimar Þór Ingimundar-
son skoraði tvívegis fyrir Fylkis-
menn, ásamt því að leggja upp mark
fyrir Geoffrey Castillion, og þá var
Ásgeir Eyþórsson, miðvörður Fylk-
is, einnig á skotskónum í leiknum.
Höskuldur Gunnlaugsson, Damir
Muminovic og Andri Rafn Yeoman
skoruðu mörk Breiðabliks.
Fylkismenn byrjuðu leikinn af
gríðarlegum krafti og pressuðu
topplið Breiðabliks ofarlega á vell-
inum. Árbæingar unnu alla seinni
bolta og voru skrefi á undan allan
fyrri hálfleikinn og hefðu með réttu
átt að vera tveimur til þremur
mörkum yfir í hálfleik. Þrátt fyrir
að Blikar hafi í tvígang jafnaði met-
in héldu Fylkismenn áfram að
þjarma að Kópavogsbúum og upp-
skáru að lokum sanngjarnan sigur.
Valdimar Þór Ingimundarson var
frábær í liði Fylkismanna og nýtti
tækifærið í byrjunarliðinu vel.
Blikar voru afar ólíkir sjálfum sér
í gær og það var eins og menn væri
ekki með hausinn rétt skrúfaðan á
fyrir leikinn. Hvort Blikar hafi van-
metið Fylkismenn skal látið ósagt en
þeir mættu allt of seint til leiks í Ár-
bænum. Varnarlína liðsins var allt of
ofarlega og miðjumennirnir Guðjón
Pétur Lýðsson og Andri Rafn Yeom-
an gerði lítið til þess að aðstoða mið-
verði sína í hröðum sóknum Fylkis-
manna. Þeir sýndu hins vegar
karakter með því að koma tilbaka en
það dugði ekki til í gær.
Fylkismenn hafa ekki byrjað leiki
sína neitt sérlega vel í sumar en ef
þeir spila svona í sumar, og finna svo
meira jafnvægi í liðinu þegar þeir
eru með forystu, geta þeir unnið
hvaða lið sem er. Maður verður að
spyrja sig hvort leikmenn Breiða-
bliks hafi þjáðst af þynnku eftir
landsleikjahléið. Annaðhvort ætlar
liðið að vera í alvöru toppbaráttu eða
ekki og þá þurfa leikmenn liðsins að
gíra sig almennilega upp fyrir alla
Enginn
sáttur við
eitt stig
- Jafnt í Kaplakrika - Fylkir skellti
Breiðabliki - Mikilvæg stig Víkings
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sterkur Ólafur Ingi
Skúlason lætur
Guðjón Pétur Lýðs-
son finna fyrir sér.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skallaeinvígi Nikolaj Hansen og
Leifur Andri Leifsson í loftinu.
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019
Glæsileg mjög nýleg 4ra herbergja efri sérhæð í hjarta
Dalshverfis í Reykjanesbæ með bílskúr. Stór verönd með
heitum og köldum potti ásamt 6 manna saunaklefa.
Stærð 133,8 m2
Verð kr. 57.000.000
Leirdalur 29, 260 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Pepsi Max-deild karla
FH – Stjarnan........................................... 2:2
Fylkir – Breiðablik................................... 4:3
Víkingur R. – HK ..................................... 2:1
Staðan:
Breiðablik 8 5 1 2 16:9 16
ÍA 7 5 1 1 14:7 16
KR 7 4 2 1 11:6 14
Fylkir 8 3 3 2 14:11 12
FH 8 3 3 2 14:15 12
Stjarnan 8 3 3 2 11:12 12
Grindavík 7 2 4 1 6:6 10
KA 7 3 0 4 8:8 9
Víkingur R. 8 1 4 3 11:14 7
HK 8 1 2 5 8:12 5
ÍBV 7 1 2 4 6:15 5
Valur 7 1 1 5 8:12 4
3. deild karla
Skallagrímur – KV ................................... 1:2
Álftanes – Vængir Júpíters ..................... 0:1
Staðan:
KV 7 6 0 1 17:8 18
Kórdrengir 6 4 2 0 13:5 14
KF 6 4 1 1 13:6 13
Vængir Júpiters 7 4 0 3 10:9 12
Reynir S. 6 2 2 2 10:9 8
Álftanes 7 2 2 3 12:13 8
Sindri 6 2 1 3 9:10 7
Einherji 6 2 1 3 7:8 7
Augnablik 6 1 3 2 11:11 6
Höttur/Huginn 6 1 3 2 8:8 6
Skallagrímur 7 2 0 5 8:18 6
KH 6 0 1 5 8:21 1
HM kvenna í Frakklandi
C-RIÐILL:
Jamaíka – Ítalía ....................................... 0:5
Cristiana Girelli 12. (víti), 25., 46., Aurora
Galli 71., 81.
Staðan:
Ítalía 2 2 0 0 7:1 6
Brasilía 2 1 0 1 5:3 3
Ástralía 2 1 0 1 4:4 3
Jamaíka 2 0 0 2 0:8 0
D-RIÐILL:
Japan – Skotland ..................................... 2:1
Mana Iwabuchi 23., Yuika Sugasawa 37.
(víti) – Lana Clelland 88.
England – Argentína .............................. 1:0
Jodie Taylor 61.
Staðan:
England 2 2 0 0 3:1 6
Japan 2 1 1 0 2:1 4
Argentína 2 0 1 1 0:1 1
Skotland 2 0 0 2 2:4 0
Vináttulandsleikir kvenna
Lettland – Eistland .................................. 3:0
Serbía – Sviss............................................ 1:1
Slóvakía – Pólland .................................... 1:0
Moldóva – Tyrkland ................................. 0:2
Georgía – SAF .......................................... 5:1
Svíþjóð
B-deild:
Syrianska – Jönköping ........................... 2:1
- Nói Snæhólm Ólafsson lék allan leikinn
með Syrianska.
knattSpyrna
England og Japan eru í góðri stöðu
í D-riðli heimsmeistarakeppni
kvenna í knattspyrnu í Frakklandi
eftir leiki gærdagsins. England er
með sex stig eftir tvo leiki og er
komið áfram og Japan er með fjög-
ur stig. Argentína er með eitt stig
og Skotland án stiga.
Mana Iwabuchi og Yuika Suga-
sawa skoruðu fyrir Japan í 2:1 sigri
á Argentínu í Rennes. Lana Clell-
and minnkaði muninn fyrir Skota á
88. mínútu með glæsilegu skoti.
Þjóðirnar úr Falklandseyja-
stríðinu, England og Argentína,
mættust enn einu sinni í mikil-
vægum leik á knattspyrnuvellinum
og hafði England betur 1:0 með
marki Jodie Taylor á 61. mínútu.
Ítalía er komin áfram í 16 liða úr-
slit eftir öruggan 5:0-sigur á Jam-
aíka í Reims. Cristiana Girelli skor-
aði þrennu og Aurora Galli síðustu
tvö eftir að hafa komið inn á sem
varamaður.
Ítalía vann Ástralíu í fyrsta leik
em þetta var annað tap Jamaíka á
mótinu. sport@mbl.is
AFP
Þrenna Þær ítölsku fagna einu marki sem Cristiana Girelli skoraði.
England og Ítalía í 16
liða úrslitin á HM