Morgunblaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 43
Merkur Hinn víðfrægi kvikmynda-
leikstjóri Jean-Luc Godard.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Sýningin Hvernig hefurðu það?
Eftir Godard er kvikmyndasýning
sem samanstendur af ríflega tíu
kvikmyndum eftir listamenn hvað-
anæva úr heiminum og er lögð
áhersla á að sýna tímalausar heim-
ildar- og upplýsingamyndir, mynd-
ir sem nálgast kjarna sannleikans
og raunveruleikann eins og verk-
færi og efnivið til að ryðja með
braut og takast á hendur ferðalag
um flókið pólitískt landslag, eins
og segir í tilkynningu um sýn-
inguna, sem opnuð verður kl. 14
Hafa allar „pólitíska núansa“
„Þetta er mjög stór kvikmynda-
sýning. Flest [kvikmyndagerðar-
fólksins] er myndlistafólk, og
margar myndirnar eru á mörkum
skáldskapar og heimildarmynda,“
segir Gústav Geir Bollason sýn-
ingarstjóri. Hann segir að það sem
myndirnar eigi sameiginlegt sé að
þær hafi allar „einhverja pólitíska
núansa. Þær lýsa samfélagsástandi
og hlutum sem eru að gerast í
heiminum. Margar þeirra eru
gríðarlega fallegar og sjónrænar.“
Myndirnar á sýningunni eru all-
ar skemmri en 90 mínútur að
lengd, að frátalinni einni sem er 15
klukkustunda löng. Það er myndin
15 tímar eftir kínverska heimildar-
myndagerðarmanninn Wang Bing,
en Gústav Geir segir þá mynd
vera eina þá merkilegustu á sýn-
ingunni. „Það er bara ein vakt hjá
fólki sem er að vinna á saumastofu
í Kína,“ segir hann um myndina og
að enginn skáldskapur komi við
sögu í þeirri mynd, öfugt við
margar aðrar sem dansi frekar á
línunni milli skáldskapar og heim-
ildarmyndagerðar. Hann segist
sjálfur ekki hafa getað horft á alla
myndina í einni bunu, en tekur
fram að á sumarsólstöðum verði
Verksmiðjan opin í heilan sólar-
hring, svo ef einhver hefur hug á
að horfa á myndina alla, þá sé
slíkt mögulegt þá.
Fjöldi frægra tekur þátt
Aðspurður segir Gústav Geir að
sumir listamannanna sem eiga
myndir á sýningunni séu nokkuð
vel þekktir, líkt og hinn áðurnefndi
Wang Bing og Bandaríkjamað-
urinn Lech Kowalski. Myndin
hans, Ég borga fyrir söguna þína
frá árinu 2015, er ein myndanna í
sýningunni. Þá verður mynd hins
heimsfræga Jean-Luc Godard,
Fréttaflutningur áhugamanns
(frumdrög - sýning) einnig sýnd,
en eins og áður kemur fram dreg-
ur sýningarverkefnið nafn sitt af
kvikmynd hans Hvernig hefurðu
það? frá árinu 1976.
Sýningin stendur til 28. júlí og
verður opin daglega nema mánu-
daga milli 14 og 17, þó að Gústav
Geir segi þá tímasetningu ekki
vera meitlaða í stein. „Auglýstur
sýningartími er frekar stuttur en
það er oft opið lengur. Stundum er
hægt að semja um að opna fyrr og
hægt að gera alls kyns hluti,“ seg-
ir Gústav Geir og eins og heyra
má er hann nokkuð heimilislegur
með þetta allt saman. „Þetta er
bæði samkomulagsatriði, en svo er
auglýstur sýningartími milli tvö og
fimm.“
Sú lengsta 15 klukkustundir
Sýningin Hvernig hefurðu það? Eftir Godard opnuð í dag í Verksmiðjunni á
Hjalteyri „Mjög stór kvikmyndasýning,“ segir sýningarstjórinn Gústav Geir
Við opnun Úr mynd Paul Grivas, Film catastroph, sem verður sýnd í dag.
Sýningarstjóri Gústav Geir Bolla-
son stýrir sýningunni á Hjalteyri.
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
maxipodium 500
Svo virðist sem
bandaríski leik-
stjórinn Bryan
Singer, sem á
m.a. að baki kvik-
myndina The
Usual Suspects,
muni gera dóm-
sátt upp á
150.000 dollara
til að leysa mál
vegna ásakana um að hann hafi
nauðgað sautján ára dreng árið
2003. Þetta kemur fram í frétt The
Guardian. Cesar Sanchez-Guzman
lögsótti Singer í desember í fyrra,
og sakaði hann um að hafa áreitt
sig kynferðislega í snekkjupartýi í
Seattle. Singer neitaði ávallt sök.
Dómsátt vegna
nauðgunarmáls
Bryan Singer
Vinna að teiknimynd með Krydd-
píunum (e. Spice Girls) í aðalhlut-
verkum er komin af stað hjá kvik-
myndarisanum Paramount. Allar
fimm upprunalegu kryddpíurnar
munu ljá persónum myndarinnar
raddir sínar og mun söguþráður
myndarinnar m.a. snúast um að
kvintettinn verði ofurhetjur, að því
er segir á vef The Guardian. Simon
Fuller mun framleiða myndina.
Kryddpíuteikni-
mynd væntanleg
Kvintett Kryddpíurnar margfrægu.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Sýning á verkum myndlistar-
mannsins Jóhanns Eyfells, Jóhann
Eyfells: Áþreifanlegir kraftar,
verður opnuð í dag kl. 16 í Ás-
mundarsafni við Sigtún í Reykja-
vík. Í tilkynningu segir að verkin
sem sýnd verða kallist á við verk
Jóhanns í almannarými í Reykja-
vík hvað varðar form, inntak og
efni. Á sýningunni er að finna verk
sem bæði koma úr safneign Lista-
safns Reykjavíkur og einnig úr
einkaeigu og frá öðrum stofn-
unum. Á meðal verkanna sem
Listasafn Reykjavíkur lánar er
verkið „Flatt sem flatt sem ten-
ingur“, sem er á meðal verkanna
sem Jóhann sýndi á Feneyja-
tvíæringnum árið 1993.
Lætur náttúruöflin aðstoða
Jóhann er fæddur í Reykjavík
1923 og stundaði nám í skúlptúr,
málaralist og byggingarlist í
Berkeley-háskóla í Kaliforníu á
árabilinu 1946-1950. Þá fluttist
hann til Flórída-ríkis þar sem
hann lauk námi í byggingarlist við
Flórídaháskóla 1953, og í högg-
myndalist frá sama skóla 1964.
Fimm árum síðar var hann ráðinn
prófessor í skúlptúr við University
of Central Florida og hefur verið
búsettur í Bandaríkjunum síðan.
Eins og áður segir er áhersla
lögð á útilistaverk og nefnir Sig-
urður Trausti Traustason sýn-
ingarstjóri í því dæmi vörður Jó-
hanns, „Íslandsvörðuna“ og
„Reykjavíkurvörðuna“.
„Þau eru öll gerð með svipaðri
tækni. Í grunninn grefur hann
holu í jörðina og hellir svo málm-
blöndu ofan í, og lætur svo náttúr-
una og náttúruöflin svolítið að-
stoða sig við gerð verkanna,“ segir
Sigurður.
Vitsmunaleg innreið
Jóhann byrjaði snemma á sjötta
áratug síðustu aldar að skapa ab-
strakt skúlptúra sem byggðust á
tilraunum í eðlis- og efnafræði, og
sérstaklega umbreytingu málma
við bræðslu og steypun.
Tilraunir leiddu hann að hug-
myndakerfi og stíl sem hann kallar
„receptúalisma“ þar sem renna
saman þrjú kerfi; vísindi, heim-
speki og dulhyggja. Samkvæmt
heimasíðu Jóhanns Eyfells er re-
ceptúalismi, á íslensku næm-
ishyggja sem er nýyrði frá 1970,
búið til í kringum „vitsmunalega
innreið í listsköpun, sem er sprott-
in upp af gagnrýnum og áköfum
áhuga á fallvöltum veruleika
minnstu fjarlægðar“.
Sýning á verkum Jóhanns mun
standa í rúma tvo mánuði, frá deg-
inum í dag fram til 25.ágúst.
Áþreifanlegir kraftar
Einkasýning Jóhanns Eyfells sú þriðja í röð sýninga lista-
manna sem hafa skapað áberandi útilistaverk í Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn
Varða Þekkt útilistaverk Jóhanns Eyfells við Sæbraut í Reykjavík.