Morgunblaðið - 02.07.2019, Síða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2019
✝ Tryggvi Jó-hannes Gests-
son fæddist 14.
september 1930.
Hann lést á
Sjúkrahúsi Ak-
ureyrar 23. júní
2019.
Foreldrar
Tryggva voru
Gestur Jóhann-
esson, f. 1897, d.
1992, verkamaður
og Lísbet Tryggvadóttir, f.
1904, d. 1989, verkakona á Ak-
ureyri. Systkini hans voru
Bára, f. 1925, d. 1999, Ragna,
f. 1928, d. 2005, og Sigurður f.
1932, d. 2014.
Tryggvi kvæntist hinn 22.5.
1954 Guðbjörgu Einars Þór-
isdóttur, f. 15. júlí 1933, d. 15.
desember 2007. Þau eignuðust
þrjú börn: 1) Þórir Ólafur, f.
29.4. 1956, kvæntur Kristínu
A. Hallgrímsdóttur, f. 25.6.
1959. Börn þeirra: 1. Ólafur
Már, f. 10.5. 1983, maki: Anna
Gerður Ófeigsdóttir, 2. Lilja
Sif, f. 15.2. 1989, maki: Ragnar
Freyr Guðmundsson, 3. Hákon
Ingi, f. 21.3. 1995 maki: Linda
Margrét Eyþórsdóttir. 2)
Stúlka, f. 12.6. 1959, d. 12.6.
1959. 3) Lára Hólmfríður, f.
26.4. 1961, gift Ómari Ólafs-
syni, f. 26.11.
1961. Börn þeirra:
1. Tryggvi Jóhann-
es, f. 15.11. 1980,
maki: Lísbet
Reykjalín Elvars-
dóttir, 2. Ólöf Rut,
f. 13.2. 1984, maki:
Einar Már Þor-
geirsson. 3. Aníta
Bóel, f. 6.10. 1992,
maki Heimir Guð-
mundsson. Barna-
börnin orðin sjö. Tryggvi
fæddist á Akureyri og ólst þar
upp og lauk þar hefðbundinni
skólagöngu, fór síðan að vinna
ungur við ýmis störf, tók
meirapróf og vann sem bíl-
stjóri á vöruflutningabílum.
Tók ökukennararéttindi árið
1963. Hann hóf störf hjá
Slökkviliði Akureyrar 1967 og
lauk starfsævinni þar. Tryggvi
starfaði einnig lengi með Flug-
björgunarsveit Akureyrar.
Fyrstu búskaparár Tryggva og
Guðbjargar voru í Strandgötu
41, Akureyri, en þau byggðu
sér svo heimili í Kringlumýri
29, Akureyri, og fluttu þangað
1958 og bjuggu þar alla tíð
síðan.
Útför Tryggva fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 2. júlí
2019, klukkan 13.30.
Í dag er borinn til grafar
tengdafaðir minn Tryggvi
Gests. Mig langar að kveðja
hann hér með nokkrum orðum,
myndarlegur var hann, heilsu-
góður og sterkur. Í næstum
hálfa öld hef ég þekkt hann og
það hefur aldrei hallað orði á
milli okkar þó svo að hann hafi
verði glettinn og látið flakka
eins og honum var lagið.
Treysti mér meira að segja fyr-
ir kennslu-Ópelnum eitt sum-
arið og þurfti ég að opna húddið
til að setja hann í gang með
skrúfujárni. 17 ára stelpunni
fannst það bara töff. Hann og
Lillý tengdamamma voru mjög
samstiga þó að þau væru ólík í
sér að mörgu leiti. Hann var
einn af þessum mönnun sem
var alltaf að, það var auðvitað í
genunum því ekki var langt að
sækja það eigandi Gest (sótara)
Jóhannesson fyrir föður. Öku-
kennslan var auðvitað í hjá-
verkum og það væri gaman að
vita hversu mörgum hann hafi
komið í gegnum bílprófið. Hef
heyrt að hann hafi verið fram-
úrskarandi ökukennari, sýnt
mikla þolinmæði. Lillý var hans
fyrsti nemandi og svo kláraði
hann þetta með stæl og kom
öllum barnabörnunum sex í
gegnum bílprófið. Mikil vinna
var þegar hann ásamt Sigurði
bróður sínum byggðu fjárhús í
Gránugötu og einnig var byggt
hesthús við og hlaða. Við hliðina
byggðu Þórir og Björn Jónsson
málari sitt hesthús svo að þetta
voru ansi skemmtileg ár. Og
svo fylgdi hún Pollý þeim Lillý í
mörg ár „mjög blandaður fjár-
hundur“ sem var með Tryggva
ætíð. Árið 1988 var farið í að
byggja bústað í Bárðardal. Lillý
hafði verið í sveit í Lundar-
brekku og hafði sterkar taugar
til dalsins. Þau leigðu land út
frá Kálfborgará, þetta tók mörg
ár og er enn verið að breyta og
bæta. Þetta voru ótal ferðir því
allt efni var flutt á staðinn og
bústaðurinn byggður þar og
margir komu til hjálpar. Bæði
vinir og ættingjar. Lillý og
Tryggvi voru óstöðvandi í að
gera þetta að sælureit og gerðu
oft hið ómögulega að manni
fannst. Húsið þeirra í Kringlu-
mýri 29, var afar fallegt og opið
fyrir gestum og gangandi. Og
ég veit að það var mjög lífleg
og skemmtileg stemmning oft
hér áður fyrr í Kringlumýrinni,
skemmtilegir vinafundir og og
ættingjar sem komu að og
dvöldu hjá þeim. Alla laugar-
daga var boðið í graut og til-
heyrandi. Þetta gerði mikið fyr-
ir fjölskylduna að hittast þarna
vikulega. Tengdamamma
Trygga hún Lára flutti með
þeim í Kringlumýrina og bjó
hjá þeim þar til hún lést 2004.
Hún var þeim öllum mjög mik-
ils virði og ekki síst Þórir og
Láru. En oft hefur það örugg-
lega verið þannig að of margir
hafa viljað vera með puttana í
málunum og þó að Tryggvi hafi
verið fastur á sínu fann maður
hvað hann bar mikla virðingu
gagnvart tengdamóður sinni.
Eftir að Lillý lést 2007 þá hefur
hann haldið heimili í með mynd-
arbrag, einstakt snyrtimenni,
alltaf finn og vel til hafður.
Hann var fram á hið síðasta
stálminnugur og bara fletti upp
í sér ef eitthvað þurfti að muna,
hrukkaði svolítið brýrnar og þá
kom þetta, smáatriðin þvældust
heldur ekki fyrir honum. En nú
er komin ró hjá þér og hvíl þú í
friði, elsku Tryggvi.
Þín tengdadóttir
Kristín Hallgrímsdóttir.
Meira: mbl.is/minningar.
Elsku afi minn, nú hefur þú
kvatt okkur í hinsta sinn og
haldið á leið til ömmu Lillýjar
og mikið óskaplega hlýtur að
hafa verið gaman þegar þið
hittust á ný. Eins og ég sagði
við þig nokkrum dögum áður en
þú kvaddir okkur að þá máttu
endilega gefa henni risastórt
knús frá mér. Eins og sagt var í
laginu, eitt sinn verða allir
menn að deyja, sem vissulega
eru orð að sönnu en engu að
síður gerir það kveðjustundina
ekki auðveldari. Ég mun sakna
þín alveg óskaplega, þú svo
sannarlega varst einstakur
maður. Ég hef oft heyrt að ég
sé lík þér og ég hef alltaf verið
ótrúlega stolt af því, ekki leið-
um að líkjast, afi minn. Ég get
allavega sagt með vissu að ég
hef minnið þitt þar sem minn-
ugri mann er erfitt að finna allt
fram á lokastund og mörgum í
fjölskyldunni finnst ég oft á tíð-
um óþarflega minnug. Ég man
við ræddum þetta fyrir nokkru
og þér fannst það skemmtilegt.
Elsku afi, þegar ég hugsa til
þín hugsa ég um hversu dugleg-
ur þú varst, og hversu vel þú
hélst utan um okkur þegar
amma Lillý dó. Þú hélst áfram í
nokkur ár að hafa mjólkurgraut
á laugardögum, útbjóst heima-
tilbúinn mysing og kæfu líkt og
amma gerði og það var ekki
hægt að finna muninn enda
metnaðarfullur maður með
meiru. Svo kenndirðu okkur öll-
um á bíl, afi Tryggvi og eilífð-
arréttindin. Ef einhver á skilið
að vera með eilífðarréttindi þá
ert það þú, minn kæri. Ég get
alveg staðfest það að betri
kennara var ekki hægt að hafa,
enda gekk ferlið nokkuð smurt
fyrir sig. Nú þarf maður að ylja
sér við minningar, það er skrít-
in tilfinning en hún mun á end-
anum venjast. Það sem kemur
fyrst upp í huga mér þegar ég
hugsa til þín er hláturinn þinn
og glottið þitt enda var auðvelt
að koma þér til að brosa og
hlæja. Ég er ótrúlega þakklát
fyrir að hafa átt þig að í 30 ár,
ég hef þó verið búsett annars
staðar en á Akureyri í þó nokk-
ur ár af þessum 30 en alltaf var
jafnt notalegt að koma í
Kringlumýri 29. Húsið sem þú
byggðir og bjóst í til æviloka, á
besta stað í bænum. Hvíldu í
friði, elsku afi, með ást og sökn-
uði mun ég ávallt minnast þín
og ég veit að þú og amma mun-
uð nú vaka saman yfir okkur
öllum.
Þín sonardóttir,
Lilja Sif Þórisdóttir.
Þá er komið að kveðjustund,
elsku afi. Ég er svo heppinn að
hafa haft þig í mínu lífi í öll
þessi ár því það sem ég hef lært
og tekið frá þér er ómetanlegt
fyrir mig. Hvort sem það er
dugnaður, staðfesta, stríðni eða
húmor þá hefur það allt mótað
mig. Þá að ógleymdum öllum
sögunum sem þú hefur sagt
mér af þér við hin ýmsu störf
hér á árum áður sýnir mér hvað
samfélagið hefur breyst. Hvort
sem það var upplifun þín af
verkfallsaðgerðum eða ferðalög
þín á vöru- eða flutningabílum
hér á árum áður. Þá tóku ferð-
irnar milli Akureyrar og
Reykjavíkur daga en ekki
klukkutíma. Þegar þú gekkst á
undan sjúkraflutningabílnum í
snjóbyl yfir Víkurskarðið til að
vísa veginn.
Fórnfýsi þín var ótrúleg og
dugnaðurinn. Þú byggðir ykkur
ömmu Lillý, tendamömmu og
börnum hús í Kringlumýri 29
þar sem þú fékkst að vera til
dauðadags rétt eins og þú vildir
og hafðir óskað þér. Þú byggðir
þér í samvinnu við bróður þinn
Sigga, fjárhús, hlöðu og hest-
hús. Þar eyddi maður ófáum
dögunum á sínum fyrstu árum,
sérstaklega þar sem pabbi var
með hesthús við hliðina. Það
var sannkölluð sveit í bæ.
Þú lést ekki staðar numið
þar heldur byggðir þú ásamt
góðu fólki sannkallaðan sælu-
reit fyrir þig og ömmu í Bárð-
ardal. Bústað sem þið nefnduð
Birkilund og þar átti maður svo
sannarlega gæðastundir umvaf-
inn ást og kærleik frá ykkur
ömmu. Síðar gerði ég mér grein
fyrir því hversu ómetanlegur
þessi staður var ykkur báðum.
Þrekvirkið sem þið lögðuð á
ykkur skilaði ykkur og ekki síð-
ur okkur svo sannarlega miklu.
Það eina sem maður átti erfitt
með á þeim tíma var mýið og
það var ekki að spyrja að því
þegar maður hringdi í bílasím-
ann og spurði fregna af mýi,
það var aldrei neitt í þínum
huga, kannski smá stríðni af
þinni hendi. Til að fá rétt svör
við þeirri spurningu þurfti mað-
ur alltaf að fá að tala við ömmu
Lillý.
Stór partur af æsku minni
var grautur í hádeginu á laug-
ardögum hjá ykkur. Þú lést
ekki staðar numið eftir að
amma kvaddi og hélst upptekn-
um hætti í mörg ár. Þér var
nefnilega svo margt til lista
lagt.
Þegar kom að bílprófinu þá
kom aldrei neitt annað til
greina en að þú myndir kenna
mér á Citroën-bílnum sem þú
áttir þá og fram á síðasta dag.
Kennslan var frábær og enn í
dag þegar ég kem að gatnamót-
um þar sem engin er biðskyld-
an hugsa ég til þín því þú sagð-
ir alltaf: „Passaðu bara að
enginn keyri á mig, það skiptir
engu máli þó þeir keyri í þína
hlið“. Ég er því alltaf að passa
að enginn keyri á þig, afi!
Undir það síðasta þegar slit í
fingrum og öxlum var farið að
gera meira vart við sig þá fór
ég að hjálpa þér við að hjálpa
okkur að hamfletta rjúpur, jóla-
matinn. Hvert skref var ákveðið
og ýmsar sniðugar aðferðir sem
þú kenndir mér sem ég mun
geyma um ókomna ævi. Það
voru frábærar stundir í kjall-
aranum í Kringló.
Ég er þakklátur fyrir að Nói
Bergmann hafi fengið að kynn-
ast þér og þú kynnst báðum
strákunum mínum.
Með sorg í hjarta en gleði yf-
ir þínu góða og heilbrigða lífi
kveð ég þig og veit að þú ert nú
sameinaður ömmu Lillý og
amma langa eru líklega ekki
langt undan.
Hvíl í friði, elsku afi.
Ólafur Már Þórisson.
Tryggvi Jóhannes
Gestsson
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
SIGURLAUG BJÖRNSDÓTTIR,
Víðilundi 4, Garðabæ,
lést á Vífilsstöðum mánudaginn 24. júní.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 3. júlí klukkan 13.
Björn Pálsson
Páll Björnsson Ingibjörg Sigurðardóttir
Guðfinna Björnsdóttir Bjarnsteinn Þórsson
Björn, Anna, Árni, Sigurbjörn og Sigurlaug
FALLEGIR LEGSTEINAR
Verið velkomin
Á góðu verði
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Opið: 10-17 alla virka daga
Hjartans þakkir sendum við öllum sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför móður okkar, stjúpmóður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR EINARSDÓTTUR,
áður til heimilis á Flókagötu 1,
Reykjavík.
Fríða Bjarnadóttir Tómas Zoëga
Anton Bjarnason Fanney Hauksdóttir
Bjarni Bjarnason Kristín Jónsdóttir
stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn
Faðir okkar, tengdafaðir, sonur, afi, bróðir
og mágur,
GUÐBRANDUR JÓHANNSSON,
Hátúni 10, Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans
v/Hringbraut þriðjudaginn 25. júní.
Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju föstudaginn 5. júlí
klukkan 13.
Jóhann Guðbrandsson Cecilia Guðbrandsson Rundén
Elmar Guðbrandsson Jessica Andersson
Svanborg Guðbrandsdóttir Hasse Abrahamsson
Jóhann Guðbrandsson
barnabörn og systkini hins látna
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
JÓN GÚSTAFSSON
prentari,
áður til heimilis að Fífuseli 15,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur þriðjudaginn 25. júní.
Útförin fer fram fimmtudaginn 4. júlí klukkan 13 frá
Grafarvogskirkju.
Sigrún Sighvatsdóttir
Sighvatur Jónsson Edda Selma Márusdóttir
Gústaf Jónsson
Gylfi Jónsson Guðný Ásgeirsdóttir
og sonasynir
Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐFRÍÐUR HERMANNSDÓTTIR,
Fríða
Austurbrún 4, Reykjavík,
áður Miðtúni 6, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 26. júní.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 11. júlí
klukkan 11. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Reykjavíkur.
Gunnar Sigurðsson
Skarphéðinn G. Þórisson Ragnhildur R. Indriðadóttir
Elsa Þ. Þórisdóttir Höskuldur Ásgeirsson
Hermann Þórisson Michéle Klein
Þórir Örn Þórisson Virgine Larue
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
FRÚ HEIÐRÚN SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Birkigrund 61, Kópavogi,
lést sunnudaginn 30. júní á hjúkrunar-
heimilinu Grund.
Jarðarför auglýst síðar.
Svanur Sveinsson
Sveinn Svansson Marianne Toftdal
Freyja Svansdóttir Nanna Sigrún Georgsdóttir
Ólafur Örn Svansson Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir
og barnabörn