Morgunblaðið - 19.07.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.07.2019, Blaðsíða 1
Vilja nýta vikurinn  Erlent námafélag metur Mýrdalssand Erlent námafyrirtæki rannsakar nú möguleika á vinnslu Kötluvikurs á Mýrdalssandi. Þórir N. Kjartansson, landeigandi í Hjörleifshöfða, segir „álitið að á sandinum sé milljarður rúmmetra af þokkalega aðgengilegu efni“. Hann segir innlenda fjárfesta sýna jörðinni Hjörleifshöfða áhuga, meðal annars fyrir ferðaþjónustu. Fjölmargar jarðir eru nú til sölu sem eru nærri náttúruperlum. Erlend- ir aðilar sýna jörðinni Neðri-Dal áhuga en hún er nærri Geysi. Þá er til sölu jörðin Heiði í V-Skaftafellssýslu en þar er Fjaðrárgljúfur, einn helsti áfanga- staður ferðamanna á Austurlandi. Fasteignasalar segja erlenda fjár- festa m.a. horfa til möguleika á orku- vinnslu á jörðum á Íslandi. »6 Morgunblaðið/Eggert Við Kötlu Horft er til námavinnslu. F Ö S T U D A G U R 1 9. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  168. tölublað  107. árgangur  MÁLAR SNJÓSKAFLA OG SKAFRENNING Í KALIFORNÍU VARAÐ VIÐ EBÓLU STÓRMENNIN ERU UNDIR MIK- ILLI PRESSU FRÉTTASKÝRING 14 THE OPEN Á N-ÍRLANDI 24HUGARFAR ELLA 28 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Ef sameining Íslandsbanka og Ar- ion banka skapar aukið hagræði og betri rekstur er slíkt eftirsóknar- vert. Þetta segir Brynjólfur Bjarna- son, stjórnarformaður Arion banka. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær hefur sameining framan- greindra banka hlotið góðan hljóm- grunn meðal sérfræðinga. Að mati sömu sérfræðinga er þannig hægt að búa til stærri og söluvænni banka með blandað eignarhald. Með þessu eru jafnframt líkur á því að verðmæti eignarhlutar ríkisins í Ís- landsbanka aukist. Brynjólfur segir að fram undan sé hagræðing í rekstri banka hér á landi. Þar sé ekki hægt að útiloka sameiningu banka. „Ég tel eðlilegt að hagræðing eigi sér stað í banka- kerfinu á Íslandi. Það er alveg ljóst að auka þarf hagkvæmni í rekstri banka. Við myndum skoða samein- ingu ef þannig myndi nást fram aukin hagræðing og betri rekstur. Slíkt er auðvitað eftirsóknarvert,“ segir Brynjólfur. Ef af yrði má ráðgera að íslenska ríkið færi með um 40% hlut í stórum banka sem skráður yrði á markað í Svíþjóð og á Íslandi. Slík- ur banki yrði án efa stærstur sinnar tegundar hér á landi. Að sögn Frið- riks Sophussonar, stjórnarformanns Íslandsbanka, er stærðarhag- kvæmni ein grunnstoða bank- arekstrar. Sameining geti því verið ein lausn sem hægt sé að horfa til. Slík ákvörðun þurfi þó að fara í gegnum talsvert ferli áður en til sameiningar komi. „Í bankastarf- semi er mikil stærðarhagkvæmni. Ef eingöngu er litið til hennar er ljóst að sameining getur borgað sig. Slík ákvörðun er hins vegar í hönd- um annarra aðila. Bankasýsla rík- isins þyrfti að koma með tillögu, sem Samkeppniseftirlitið þyrfti að samþykkja. Síðan þarf ráðherra að fengnum tillögum Bankasýslunnar að fara með málið til Alþingis, sem fjallar um málið eins og um sölu sé að ræða.“ Útiloka ekki sam- einingu bankanna  Sameining Arion banka og Íslandsbanka kemur til greina Bankasala » Hugsanlegt er að selja þurfi eignir og draga úr umfangi sameinaðs banka til að hlíta samkeppnislögum. » Sameining getur einfaldað hagræðingu og bætt rekstur bankanna. Friðrik Sophusson Brynjólfur Bjarnason M Skilvirkni bankanna aukist »12  Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir engan fót vera fyrir því sem hann segir vera endurteknar sögusagnir um að hann hyggist láta af formennsku flokksins innan skamms. „Þessar sögusagnir eða slúður má að mínu mati rekja til andstæðinga Sjálf- stæðisflokksins,“ segir Bjarni. „Ég lít einfaldlega á slíkar óskir sem hrós.“ »2 Segist ekki vera á leið úr formannsstól Þyrluflugmaður og bandarískir ferðamenn tóku eftir því í út- sýnisflugi í gær að í fjörunni undir þeim lá hópur grindhvala. Um tugi hvala var að ræða og voru sumir þeirra grafnir í sandinn, eins og sjá má á myndinni að ofan. Af fleiri myndum sem þeir tóku að dæma voru allir hvalanna dauðir en ekki er vitað hversu lengi hræin hafa legið í sandinum. Líklega síðan í síðasta áfallanda, telur sjávarlíffræðingur. Viðlíka atvik eru vel þekkt meðal hvalasérfræðinga, þá sérstaklega í Nýja- Sjálandi, á stöðum sem eru landfræðilega líkir aðstæðum við Löngufjörur. Aflíðandi sandbotn, líkt og sá við Löngufjörur, er hættusvæði fyrir grindhvali og getur ruglað þá í ríminu. Hvers vegna þeir fara á slíka staði er ekki vitað. Ekki er akfært á Gömlueyri, þann hluta Löngufjöru þar sem grindhvalina rak á land, og einungis er þangað fært gangandi fólki eða á hestbaki að sögn bónda á svæðinu. Hvort hræin verða fjarlægð er ekki vitað en meginreglan, þegar dýr drepast í náttúrunni, er að þau fái að rotna án af- skipta stjórnvalda ef þau valda engum óþægindum. »4 Ljósmynd/David Schwarzhans Grindhvalavöðu rak á land á Gömlueyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.