Morgunblaðið - 19.07.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2019
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
LOS ALCAZARES – FALLEG EINBÝLISHÚS
Í VINSÆLUM SPÆNSKUM STRANDBÆ
• Frábær staðsetning
• Gott verð
• 5 mín göngutúr á ströndina
• Örstutt göngufæri í verslanir og
veitingastaði
• Góðir golfvellir
• 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi
• Sér garður með einkasundlaug
• Stórar einka þaksvalir
• Stæði í bílakjallara
Verð frá 35.500.000 Ikr.
(250.000 evrur, gengi 1evra/142Ikr.)
60 ára Þórir fæddist
og ólst upp í Keflavík.
Hann er lögreglumaður
að mennt og vann lengi
á Keflavíkurflugvelli.
Hann vinnur núna í
áhættumati hjá Vá-
tryggingafélagi Íslands
(VÍS). Hann er einnig fv. knattspyrnu-
maður og þjálfari í efstu deild.
Maki: Margrét Gunnarsdóttir, f. 1963,
framkvæmdastjóri Prenttækni.
Börn: Hildur María, f. 1986, Stefanía
Ósk, f. 1992, og Guðrún Margrét, f. 1995.
Foreldrar: Sigfús Þorgrímsson, f. 1928,
d. 2002, varðstjóri á Keflavíkurflugvelli
og Jónína Inga Harðardóttir, f. 1931, hús-
freyja, bús. í Hafnarfirði.
Margeir Þórir Sigfússon
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú undrast það hversu vakandi
vinir þínir eru fyrir velferð þinni. Njóttu
athyglinnar. Það verður gifting í ættinni í
vetur.
20. apríl - 20. maí
Naut Hættu að láta þér leiðast allir
skapaðir hlutir. Einhver sendir þér
undarlegar kveðjur sem valda þér
miklum heilabrotum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver er að skipuleggja
óvænta uppákomu fyrir þig, og þú eyði-
leggur hana ef þú ert of forvitin/n. Farðu
vel með það vald sem þér er falið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er að færast meiri hraði í líf
þitt. Leyfðu hinu eilífa barni sem býr
innra með þér að leika sér. Gerðu það
sem þarf til að skapa góðar minningar
með börnunum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver vill komast nær þér en þú
kærir þig um. Allt gengur vel því lukkan
er þér hliðholl.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst þú ekki fá þá við-
urkenningu sem þú átt skilið þessa dag-
ana. Afþakkaðu kurteislega það sem þú
vilt ekki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Í dag væri ekki vitlaust að leiða til
lykta vandamál tengd unglingi. Vertu
sveigjanleg/ur og ekki hækka róminn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Rödd hjartans þarf að fá að
njóta sín; það er nóg af hinu í heiminum.
Ljúfsárar minningar skjótast upp á yfir-
borðið, dveldu í þeim.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér myndi leiðast ef þú hefð-
ir engin verkefni. Fjárfesting þín skilar
sér margfalt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hristu af þér vonleysið, það
líður senn hjá. Og þegar þú hefur náð
tökum á hlutunum verður þú óstöðvandi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú kannt að gæða gamla
hluti nýju lífi og gætir gert þér mat úr
því með því að kaupa gamla hluti og
selja þá uppgerða. Sinntu vinunum bet-
ur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert of hirðulaus um það hvar
þú leggur hlutina frá þér og átt í eilífu
basli með að finna þá aftur. Notaðu tím-
ann til að hvíla þig.
Hafsteinn var að hasla sér völl sem
myndlistarmaður kenndi hann
teikningu og gerði sviðsmyndir hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Fyrsta sér-
sýning Hafsteins var haldin í Lista-
mannaskálanum í Reykjavík árið
1956 og síðan þá hefur Hafsteinn
haldið rúmlega 30 einkasýningar og
tekið þátt í miklum fjölda samsýn-
inga víða um heim. Hann hefur unn-
ið með abstrakt mestalla tíð,
olíumálverk, vatnsliti, akríl og
skúlptúra. Árið 1960 hélt hann sýn-
ingu í Bogasalnum á vatnslita-
málverkum og var það fyrsta ís-
lenska sýningin sem innihélt
eingöngu vatnslitamyndir. Hann
hefur síðan verið einn fremsti
vatnslitamálari þjóðarinnar. Hann
hefur dvalið mestanpart á Íslandi
en var einnig í eitt ár í Árósum í
Danmörku og í Róm og sýndi verk
sín þar.
Verk Hafsteins er að finna í öllum
helstu listasöfnum Norðurlanda. Enn
fremur hafa verk hans hlotið ýmsar
viðurkenningar, meðal annars alþjóð-
flutti heim til Íslands eftir útskrift
sumarið 1955.
Þegar heim var komið og meðan
H
afsteinn Austmann
Kristjánsson fæddist
19. júlí 1934 á Ljóts-
stöðum í Vopnafirði
en árið eftir flutti
fjölskyldan til Stokkseyrar. Þar bjó
fjölskyldan aðeins í eitt ár þegar
foreldrar hans ákváðu að slíta sam-
vistir og bjó Hafsteinn eftir það hjá
móður sinni í Reykjavík. Þegar
hann var þriggja ára fór hann til
eldri hjóna í Gróf í Hrunamanna-
hreppi og var síðan hjá dóttur
þeirra á Kjóastöðum, samtals í fjög-
ur ár.
„Þegar ég var sjö ára gamall og
skíra átti börnin á Kjóastöðum fann
presturinn út að ég væri enn óskírð-
ur og spurði hvort hann mætti ekki
skíra mig. Ég hélt að það væri ekk-
ert verra og ég fann upp á þessu
ágæta nafni, Austmann, af því ég
var búinn að uppgötva að ég væri að
austan.“ Hann var síðar í sveit hjá
frændfólki í Vopnafirði og þrjú sum-
ur á Gilsbakka á Hvítársíðu.
Hafsteinn stundaði nám við
Austurbæjarskóla, Gagnfræðaskóla
Austurbæjar, Myndlistarskólann í
Reykjavík 1951, Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands 1952-54 og Académ-
ie de la Grande Chaumiére í París
1954-55. Strax sem barn hafði Haf-
steinn mikinn áhuga á myndlist.
„Þetta byrjaði allt þegar ég var í
gagnfræðaskóla hjá Skarphéðni Har-
aldssyni, afburða vatnslitamálara.“
Áhuginn var þá kviknaður og lærði
hann mikið í vatnslitamálun hjá
gamla kennaranum en fór svo að
stunda kvöldskóla í Myndlistaskóla
Reykjavíkur. „Þar var ég hjá Þor-
valdi Skúlasyni á kvöldin með gagn-
fræðaskólanum.“
Hafsteinn kynntist Nínu Tryggva-
dóttur listmálara þegar hann var í
náminu í París og fyrir tilstuðlan
hennar voru verk hans sýnd á Reali-
tés Nouvelles-samsýningu þar í borg
1955 þegar Hafsteinn var aðeins 21
árs. Aðalsteinn Ingólfsson segir í bók
sinni, Kviku, sem er um Hafstein, að
hann hafi ekki rekist á önnur dæmi
um að svona ungur listamaður hafi
sýnt verk sín á þessum sýningum.
Hafsteinn átti þess þó ekki kost að
vera viðstaddur sýninguna, en hann
legu Windsor & Newton-verðlaunin
fyrir vatnslitamyndir. Hafsteinn hef-
ur tvisvar hlotið verðlaun í sam-
keppni fyrir útilistaverk, þar á meðal
fyrstu verðlaun fyrir verk sem er
fyrir framan stjórnstöð Landsvirkj-
unar við Bústaðaveg.
Hafsteinn sat í sýningarnefnd Fé-
lags íslenskra myndlistarmanna
(FÍM) 1960-70, var formaður FÍM
1988-94 og sat í safnráði Listasafns
Íslands 1988-94.
„Núna er ég eins og þegar rithöf-
undarnir fá ritstíflu að ég er með
smá málarastíflu, ég er líka nýfluttur
og gengur illa að koma mér í gang.
Ég er að hugsa um að skreppa út
með haustinu og ná mér í 40 stiga
hita í Róm. Ef það fer ekki yfir það
er allt í lagi,“ segir þessi öðlingur
sem hefur ekki glatað húmornum
þrátt fyrir stóráföll að undanförnu í
einkalífinu.
Fjölskylda
Eiginkona Hafsteins var Guðrún
Þ. Stephensen, f. í Reykjavík 29.3.
Hafsteinn Austmann myndlistarmaður – 85 ára
Morgunblaðið/Ásdís
Myndlistarmaðurinn Auk málverka hefur Hafsteinn einnig gert skúlptúra og hlotið verðlaun fyrir.
Meistari vatnslitamálverksins
Málverk Vatnslitamynd eftir
Hafstein Austmann frá 2008.
Í dag, föstudaginn 19. júlí 2019,
fagna Guðrún Pálmadóttir hjúkr-
unarfræðingur og Finn Henrik Han-
sen málarameistari 50 ára brúð-
kaupsafmæli sínu. Þau voru gefin
saman 19. júlí 1969 í Árbæjarkirkju.
Prestur var Frank M. Halldórsson.
Guðrún fæddist 1946 og ólst upp á
Hjálmsstöðum í Laugardal. Finn
fæddist 1947 í Næstved í Danmörku
og ólst þar upp. Börn þeirra eru Sig-
urður Peter viðskiptafræðingur,
Ragnheiður félagsliði og Evald Ægir
viðskiptafræðingur. Barnabörnin eru
tíu og eitt barnabarnabarn.
Árnað heilla
40 ára Konráð er
Akureyringur, ólst
upp í Glerárhverfi og
býr þar. Hann er
félagsliði að mennt
og vinnur á búsetu-
sviði Akureyrarbæjar.
Maki: Ólöf Sandra
Leifsdóttir, f. 1981, félagsliði og vinnur
við heimahjúkrun hjá Heilbrigðis-
stofnun Norðurlands.
Börn: Inga Dóra, f. 2016, og Júlíus
Grétar, f. 2018.
Foreldrar: Aðalsteinn Guðmundsson,
f. 1956, kirkjuvörður í Langholtskirkju,
og Inga Dóra Konráðsdóttir, f. 1958,
bókari hjá Flügger. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Konráð Logi Fossdal
Til hamingju með daginn