Morgunblaðið - 19.07.2019, Side 2

Morgunblaðið - 19.07.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2019 Hefur þú prófað nýju kjúklingasteikurnar? NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOLT A Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. ingunni um það hvort hann væri að hætta sem for- maður í haust á þann veg að því færi fjarri og hann hefði engin slík áform uppi og svar hans við spurningu Morgunblaðsins í gær væri hið sama: „Ég hélt að ég þyrfti bara að svara þessari spurningu einu sinni, en svo reynist ekki vera. Það þýðir auðvitað ekkert að ergja sig á því, svo ég læt Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Um allnokkurt skeið hafa sögusagnir verið á kreiki um að Bjarni Bene- diktsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, hyggist láta af formennskunni innan skamms. Bjarni sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að enginn fót- ur væri fyrir þeim sögusögnum. Bjarni sagði að sér leiddist það heldur að þurfa ítrekað að svara svona tilhæfulausu slúðri. Til dæmis hefði fréttamaður Stöðv- ar 2 spurt hann þessarar sömu spurn- ingar á afmæli Sjálfstæðisflokksins í maí sl. Hann hefði þá svarað spurn- mig bara hafa það að svara þegar ég er spurður, þótt leiðigjarnt geti verið,“ sagði Bjarni. Enginn fótur fyrir þessu „Það er enginn fótur fyrir þessum endurteknu sögusögnum. Þessar sögusagnir eða slúður má að mínu mati rekja til andstæðinga Sjálf- stæðisflokksins, sem óska þess helst að ég hætti. Ég lít einfaldlega á slíkar óskir sem hrós, en þeim mun ekki verða að ósk sinni, því það er ekki að fara að gerast að ég hætti sem for- maður flokksins,“ sagði Bjarni Bene- diktsson, fjármálaráðherra og for- maður Sjálfstæðisflokksins. Telur þetta vera óskir andstæðinga flokksins  Formaður Sjálfstæðisflokksins segist alls ekki vera á förum Bjarni Benediktsson Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Bakaríið Gæðabakstur hefur ákveðið að segja sig úr Lands- sambandi bakarameistara. Þetta staðfestir framkvæmdastjórinn Vilhjálmur Þorláksson í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að bakaríið hafi nú þegar skilað inn formlegri umsókn um úrsögn. „Ég sé ekki alveg samleið lengur með Samtökum iðnaðarins. Ástæðan er sú að SI ályktuðu gegn okkur í þriðja orkupakkamálinu. Ég er ekki ósáttur við landssamtökin, heldur er þetta eina leiðin til að losna úr SI.“ Orkuverðið hækkaði Eins og fjallað var um á mbl.is á sínum tíma gagnrýndu samtökin málflutning stjórnvalda í þriðja- orkupakkamálinu, þar sem fram kom að innleiðing tilskipunarinnar um orkupakkann myndi hafa lítil sem engin áhrif hér á landi, þar sem Ísland væri með einangrað raforkukerfi ótengt Evrópu. Vildi landssambandið meina að sú ein- angrun væri engin trygging fyrir því að Ísland myndi ekki tengjast innri orkumarkaðnum í framtíðinni með lagningu sæstrengs, en með honum yrðu innleidd ný markaðs- lögmál sem myndu að óbreyttu hækka raforkuverð umtalsvert. Jóhannes Felixson, formaður landssambandsins, segir í samtali við Morgunblaðið að ástæðan fyrir ályktuninni á sínum tíma hafi verið sú að félagsmenn í Landssam- tökum bakarameistara hafi lent illa í því, eins og hann orðar það, þegar annar orkupakkinn var sam- þykktur. Fyrir þá samþykkt hafi bakarar og grænmetisbændur fengið ódýrara rafmagn á nóttunni en eftir samþykktina hafi orku- kostnaður hækkað um 50%. „Við bakarar notum ógrynni af raf- magni. Í þriðja orkupakkanum er talað um að rafmagn muni hækka og við munum missa samningssam- band við birgja okkar. Þeir munu ekki hafa heimild til að gefa af- slætti eftir að pakkinn verður sam- þykktur. Þetta er rosalega stórt mál fyrir íslenskan iðnað.“ Engin viðbrögð frá SI Segir Jóhannes að landssam- bandið hafi ekki fengið nein við- brögð við ályktun sinni frá SI. „Við erum ekki sátt við forystu SI í þessu máli.“ Jóhannes segir að Landssamtök- in séu einnig ósátt við Samtök at- vinnulífsins. „Það er mikil kergja í okkar ranni út af SA, því okkur finnst kjarasamningurinn sem sam- þykktur var á vormánuðum ekki nógu góður. Þó að hann líti vel út er launakostnaður hjá fyrirtækjum sem þurfa að gera allt í höndunum, sem á að jafnaði að vera 40% af rekstrarkostnaði, nú kominn upp í 50-60%. Þetta bítur í. Menn eru ekki sáttir við samningsgerðina.“ Jóhannes segir að erfitt sé að taka til í rekstrinum, því starfsemin sé þess eðlis að hún sé mannfrek og erfitt sé að segja upp fólki. „Auðvitað er reynt að hagræða en á endanum verður þetta að fara út í verðlagið.“ Jóhannes segir að í dag séu með- limir í Landssamtökum bakara- meistara 24 talsins en fyrir 60 ár- um hafi þeir verið 50. Mikið hafi fækkað undanfarin misseri í röðum smærri bakaría og hljóðið sé slæmt í mörgum félagsmönnum. Úrsögn vegna 3. orkupakkans  Gæðabakstur vill losna úr Samtökum iðnaðarins og hefur sagt sig úr Landssamtökum bakarameistara  Kergja er í bökurum vegna kjarasamningagerðar Samtaka atvinnulífsins sem hækkaði launakostnað Vilhjálmur Þorláksson Jóhannes Felixson Glaðvært gelt gall við í Árbæjarsafni í gær, en þar voru saman- komnir íslenskir fjárhundar og eigendur þeirra. Veðrið lék við hundana og aðra gesti safnsins, tilefnið var Dagur íslenska fjár- brigða. Dagurinn var haldinn hátíðlegur í fjórða sinn og honum er ekki einungis fagnað hér á landi heldur einnig víða um heim þar sem hunda af þessari tegund er að finna. hundsins og mætti fjöldi velunnara þessa þjóðarhunds Íslend- inga á staðinn til að fagna með þessum bestu vinum mannsins sem margir skrýddust borðum í íslensku fánalitunum til hátíða- Morgunblaðið/Árni Sæberg Íslenski fjárhundurinn var hylltur í gær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.