Morgunblaðið - 19.07.2019, Side 16

Morgunblaðið - 19.07.2019, Side 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2019 ✝ Katrí RaakelTauriainen fæddist 29. maí 1960 í bænum Kuu- samo í Finnlandi. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 10. júlí 2019. Foreldrar henn- ar eru Maija An- nikki Tauriainen, f. 26. febrúar 1941, og Viljo Tauri- ainen, f. 13. ágúst 1937, d. 27. mars 1986. Systkini Katríar eru Riita Elina, f. 12. júní 1961, d. 27. mars 2015, Kai Tapio, f. 14. júlí 1963, og Saara Maria, f. 5. febrúar 1966. Fjölskyldan flutti til Svíþjóð- ar þegar Katrí var fimm ára gömul. Árið 1981 kynntist Katrí eftirlifandi eiginmanni sínum, Guðmundi Rúnari Guð- mundssyni, f. 5. apríl 1959, sem var þá búsettur í Svíþjóð. Þau fyrstu íbúð á Barónsstíg árið 1985, þau fluttu síðan í Hafnar- fjörðinn árið 1990 á Suður- vanginn. Árið 1999 byggðu þau sitt fyrsta hús á Kjóahrauni í Hafnarfirði. Árið 2007 byggðu þau sitt annað hús ásamt börn- unum sínum og Brynju tengda- dóttur í Brekkuásnum í Hafnar- firði. Þar býr öll fjölskyldan saman, börn og barnabörn þeirra hjóna, í þremur íbúðum. Katrí var lærður leikskóla- kennari frá Svíþjóð og starfaði hún meðal annars sem leik- skólastjóri á leikskólanum Sælukoti. Katrí var mikill fagurkeri og hún hafði gríðar- legan áhuga á innanhúss- hönnun. Hún hóf störf í versl- uninni Habitat fyrir aldamótin 2000. Árið 2004 fór Katrí í nám til Stokkhólms og lærði stílist- ann. Í framhaldi af því fór hún að starfa hjá Tekk Company og síðan hjá Fakó þar sem hún starfaði fram að greiningu. Katrí greindist með mergæxli vorið 2017. Útför Katríar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 19. júlí 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. fluttu til Íslands árið 1983 og voru búsett á Íslandi eft- ir það en ferðuðust oft til Svíþjóðar og Finnlands. Katrí og Rúnar giftu sig í Svíþjóð árið 1987. Þau eignuðust þrjú börn: 1) Sigurður Marcus Guðmunds- son, f. 1984, unn- usta hans er Brynja Einarsdóttir, f. 1986. Synir þeirra eru Victor Flóki Marcusson, f. 2010 og Ólíver Fróði Marcusson, f. 2015. 2) Guðmundur Róbert Guðmunds- son, f. 1988, og 3) Saara An- nikki Guðmundsdóttir, f. 1991. Sambýlismaður hennar er Sím- on Grétar Björgvinsson, f. 1992, og eiga þau eina dóttur, Amelíu Rakel Símonardóttur, f. 2018. Katrí og Rúnar keyptu sína Elsku besta mamma mín, ég sakna þín svo óendanlega mikið. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farin frá okkur og að ég fái aldrei að sjá þig aftur. Ég er svo sár og reið yfir því að þú þurftir að greinast með þennan hræðilega sjúkdóm og upplifa þessa erfiðu tíma síðastliðin tvö ár. Lífið getur verið svo ósann- gjarnt, en ég ætla að reyna að vera sterk, jákvæð og bjartsýn eins og þú ávallt varst. Ég og þú vorum svo nánar, þú varst ekki bara mamma mín heldur líka mín allra besta vinkona. Þú varst besta mamma sem nokkur gæti hugsað sér, alltaf svo góð við mig og umvafðir mig með ást og hlýju. Þú hvattir mig áfram í öllu sem ég tók mér fyrir hendur og sýndir því mikinn áhuga. Þú hefur kennt mér svo margt um lífið og tilveruna sem ég mun varðveita alla mína ævi. Ég gat alltaf leitað til þín, sama hvað það var. Þú varst alltaf tilbúin með lausnir og ráð. Óteljandi dýr- mætar minningar koma upp í huga mér þegar ég minnist þín. Allar utanlandsferðirnar sem við fjölskyldan fórum í, sumarbú- staðaferðirnar og útilegurnar. Við fórum svo oft á kaffihús sam- an og í húsgagna- eða fataversl- anir. Ég mun sakna þess að geta ekki gert þessa hluti áfram með þér. Þegar ég rifja upp allar minningarnar okkar saman þá er mér sérstaklega ofarlega í huga þegar ég, þú og pabbi fórum sam- an til Krítar og óskað var eftir sjálfboðaliða. Þú varst auðvitað fyrst til að bjóða þig fram. Ég var þá á hápunkti gelgjunnar og fór alveg hjá mér þegar þú varst lát- in dansa uppi á borði á veitinga- staðnum. Þetta lýsir þér svo vel, hversu opin og hress þú varst. Þú varst alltaf svo kát og glöð, þegar ég hugsa til þín sé ég fal- lega brosið þitt og heyri eftir- minnilega hláturinn þinn. Þú hefur allt þitt líf verið svo dug- leg, ég hef aldrei skilið hvaðan þú fékkst alla þessa orku. Það var eins og þú ættir fleiri klukkustundir í sólarhringnum heldur en aðrir. Þú vaknaðir allt- af eldsnemma og nýttir hverja einustu mínútu í sólarhringnum. Þú vildir hafa nóg fyir stafni og þegar einu verkefni var lokið þá varst þú strax farin að plana hvað þú ættir að gera næst. Fjöl- skyldan þín og vinir þínir voru þér afar mikilvæg og þú hugsaðir alltaf svo vel um alla sem þér þótti vænt um. Ég er svo þakklát fyrir það að Amelía Rakel, dóttir mín, fékk þau forréttindi að fá að hitta þig og að þú hafir verið viðstödd skírnina hennar og fengið nöfnu. Þú varst besta mummo (amma) í heimi. Ég mun deila með Amelíu Rakel og komandi börnum í framtíðinni öllum þeim frábæru minningum sem ég á um þig og kenna þeim allt það sem þú kenndir mér. Elsku mamma, þú kunnir svo sannarlega að njóta lífsins og lifa lífinu. Þú ert og verður alltaf mín stærsta fyrir- mynd. Ég vil þakka þér fyrir lífið sem þú gafst mér, allt það sem þú hefur kennt mér, gert fyrir mig og með mér. Eftir sitja dýrmætar minningar um heimsins bestu mömmu og mummo. Minning þín mun lifa með okkur að eilífu. Ég elska þig svo mikið, elsku besta mamma mín. Sjáumst síðar, þeg- ar minn tími kemur. Þín dóttir, Saara. Móðir mín elskulega kæra sú sem í 9 mánuði gekk með mig. Hefur allt gott fram að færa og aldrei mun ég særa þig. Allt vill hún fyrir aðra gera og hjálpa til í gegnum súrt og sætt. Á öllum stöðum í einu vill hún vera og á svipstundu er móðir mín mætt. Upplifað hefur margt og mikið og stendur enn upprétt eftir það. Sjálfstraust hennar er gott fyrir vikið og í vanda aldrei um hjálp hún bað. Hún hefur verið mér til halds og trausts og kennt mér muninn á réttu og röngu. En hlutverk móður aldrei þú braust og hefur hjálpað mér í minni lífs- göngu. Þursi (1981) Elsku mamma mín, við sjáumst síðar. Sigurður Marcus Guðmundsson. Elsku Katrí, mín elskaða tengdamóðir, óskaplega er erfitt að þurfa að kveðja þig núna. Ég gleymi aldrei þegar ég kom fyrst til ykkar á Kjóahraunið, heimilið það fallegasta sem ég hafði séð. Þú varst algjör töffari í einu og öllu. Heimilið þitt svo fallega stíl- iserað og þú sjálf alltaf svo vel til fara. Þú varst alltaf langt á undan tískustraumum og það var alltaf allt svo flott og öðruvísi hjá þér. Þú brostir breiðast af öllum og hláturinn þinn svo einstakur og fallegur og alveg ferlega smit- andi. Alltaf svo jákvæð og glöð og ég man hvað mér þótti magnað hvað allt gekk smurt fyrir sig á heimilinu ykkar tengdapabba. Skipulagðari og duglegri mann- eskju er erfitt að finna, það kom- ast fáir með tærnar þar sem þú hafðir hælana í þeim efnum. Þú varst mikil ævintýramann- eskja og þér þótti svo gaman að ferðast. Þú varst alltaf að skoða ferðir og koma með hugmyndir handa okkur fjölskyldunni en ég hef þann heiður að hafa farið nokkrum sinnum með þér til út- landa, bæði að heimsækja fjöl- skylduna til Svíþjóðar og líka í sólina á Spáni. Þessar ferðir geyma ótal verðmætar minning- ar. Ég veit ekki hversu oft ég hef sagt að ég gæti ekki verið heppn- ari með tengdaforeldra. Það var aldrei erfitt að búa í sama húsi og í dag er ég svo þakklát fyrir allan þennan tíma sem við fengum saman. Óteljandi kaffibollar og spjall um allt og ekkert, það var svo gott að koma upp og tala við þig. Þú hlustaðir svo vel og þú sýndir manni fulla athygli og svo var alltaf mjög stutt í grínið og hláturinn. Þú varst besta mummo (amma) sem hægt er að hugsa sér. Þú og Victor Flóki voruð svo góðir vinir og þú gerðir allt fyrir hann. Þvílík forréttindi að fá að alast upp í sama húsi og besta mummo og besti afi. Það er ómetanlegt allt það góða sem þú gerðir fyrir barnabörnin þín. Þetta gerðist alltof hratt í lok- in. Þú varst búin að hrista erfið veikindi ansi oft af þér á síðustu árum en því miður gat líkaminn ekki meir. Þvílíkur barráttuvilji sem þú sýndir í gegnum öll veik- indin, þú gafst aldrei upp. Elsku Katrí, ég veit að þú ert núna á góðum og fallegum stað þar sem þér líður vel. Takk fyrir síðustu 18 ár, takk fyrir að vera besta mummo sem hugsast getur fyrir strákana okkar og takk fyr- ir að vera mín helsta fyrirmynd og kenna mér að lifa lífinu. Elska þig til Sumarlandsins og alla leið til baka. Ástarþakkir, Brynja Einarsdóttir. Elsku besta mummo, þú varst besta amma (mummo) í heimi. Alltaf svo skemmtileg og gerðir svo margt fyrir mig. Við vorum alltaf að spila fótbolta í stofunni og fórum líka oft á vellina við Hvaleyrarvatn að spila fótbolta, ég elskaði það. Þú varst alltaf að leika við mig og gera eitthvað skemmtilegt saman. Ég elskaði að koma upp til þín og afa. Þar mátti ég allt og það var oftast til ís í frystinum. Þú varst alltaf að gefa mér eitthvað fallegt, það eru bara nokkrar vikur síðan þú gafst mér pening á spítalanum og sagðir mér að kaupa flottan bol í stíl við nýju vans-skóna mína. Elsku mummo, ég sakna þín svo mikið. Vonandi sé ég þig aft- ur seinna. Mummo, ég elska þig. Victor Flóki Marcusson. Ég man ljóslega eftir því þeg- ar við hittumst í fyrsta sinn, þeg- ar þú opnaðir dyrnar að leikskól- anum Sælukoti, Skerjafirði birtist fögur stúlka, tignarleg með kankvíst bros á vör. Þá hófst Katrí Raakel Tauriainen ✝ Olga SteinunnWeywadt Stef- ánsdóttir fæddist í Reykjavík 18. ágúst 1975. Hún lést 1. júlí 2019 á líknar- deild LSH í Kópa- vogi. Foreldrar Olgu eru þau Stefán Ólafsson rafvirkja- meistari, f. 3. maí 1946, og Sigurlína Axelsdóttir húsmóðir, f. 27. maí 1949. Bróðir hennar er Ólafur Weywadt, f. 30. júní 1971. Eiginmaður Olgu er Gísli Álf- geirsson, f. 8. apríl 1980, börn þeirra eru Sóley Diljá Sigurðar- dóttir, f. 2. júlí 1997, Stefán Sæv- ar, f. 20. nóvember 2005, og Gísli Snær. f. 3. janúar 2008. Olga lauk kenn- araprófi frá HÍ og starfaði við kennslu í Reykjavík og Sví- þjóð. Hún var mikil knattspyrnukona og spilaði knatt- spyrnu í gegnum árin með kvennaliði ÍBV, FH, Val, KR og úrvalsdeildarliði í Danmörku. Útför Olgu fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 19. júlí 2019, klukkan 15. Elsku engill, besti vinur, kær- asta, eiginkona, móðir barna minna, núna ertu farin frá okkur. Síðustu dagar hafa verið svo erf- iðir, söknuðurinn svo mikill. Allt byrjaði þetta árið 1998, þá sá ég þessa fallegu snót, ég varð strax hrifinn, man ennþá stað, stund og hvernig þú varst klædd. Þetta fallega bros, hlátur og ork- an sem kom með þér. Seint það ár byrjum við saman, þú varst 5 árum eldri en ég, þó þú segðir foreldrum þínum að ég væri jafn- gamall þér. Þú áttir yndislega fallega stelpu, hana Sóleyju Diljá. Ég held að móður minni hafi ekki litist á blikuna að 18 ára unglingurinn sem gæti vart séð um sjálfan sig færi að ala upp barn. Þannig að þarna varst þú gullfalleg 23 ára með 2 börn. En þú sem ert svo kraftmikil, æfir fótbolta, ferð í Kennarahá- skólann, rekur mig líka í gegnum nám, kaupum íbúð. Olga var svo orkumikil og samviskusöm, hún er erfiðasti æfingafélagi sem til er, því hún gerði alltaf það sem átti að gera og yfirleitt smá í við- bót, það endurspeglaði lífið henn- ar því hún lifði alltaf 110%. Árið 2003 flytjum við til Danmerkur, þaðan til Svíþjóðar 2009 og aftur til Íslands 2017. Á þessum tíma fjölgum við mannkyninu, fyrst kemur Stefán Sævar og síðar Gísli Snær. Við giftum okkur og kaupum hús í Svíþjóð. Í janúar 2013 gerist það sem breytir lífi okkar, Olga greinist með krabba- mein í brjósti. Ég man ennþá hvað það var vont að heyra það, en við bæði svo miklir keppnis- menn að þetta var aldrei spurn- ing, við myndum vinna þetta. Olga fer í lyfjameðferð, upp- skurð, brjóstið tekið og síðan í geislameðferð. En krafturinn sem hún hafði, hún hjólaði í geislameðferðina 15 km og höfðu læknarnir aldrei heyrt annað eins. Á sama tíma tökum við til í okkar lífi, ég þroskast smá og förum að lifa lífinu meira. Árið 2015 fáum við að vita að meinið hafi tekið sig upp og búið að dreifa sér í höfuð, lifur og bein. Árin 2015 til 2017, þegar við flytjum til Íslands, einkenn- ast af því að skapa minningar fyrir okkur, við ferðuðumst út um allt, héldum skemmtileg boð og vorum með öllum sem við elskum. Um áramót 2017 vorum við ekki að flytja til Íslands en 2. janúar vorum við búin að ákveða að á Íslandi myndum við eyða síðustu árunum saman. Þessi tími er búinn að vera yndislegur með fjölskylduna og vini allt í kringum okkur, en líka mjög erf- iður, það dró meir og meir af Olgu minni. Í september 2018 fær hún heilablæðingu, við erum kölluð niður á spítala til að kveðja hana. Sólarhring seinna er hún vöknuð og heimtar coca cola, enginn drekkur gos í fjöl- skyldunni. Viku seinna erum við að kveðja hana aftur því hún þarf að fara í erfiða heilaskurð- aðgerð. Hún dvelur á spítalan- um í nokkrar vikur og kemur svo heim. Stefán Sævar fermist 14. apríl og héldum við veisluna deginum áður, þá áttum við og hún frábæran dag með fjöl- skyldu og vinum. Eftir ferm- ingardaginn fór þróttur og mátt- ur hratt niður og lést engillinn minn 1. júlí. Olga var sterkasta manneskja sem ég hef þekkt, hún var aldrei reið eða sár út í lífið og veik- indin, hún lifði lífinu til fullnustu alla daga. Við Olga áttum frá- bærar stundir og erfiðar líka, við erum bæði eldmerki þannig að rifrildin gátu verið þung en ástin var sterkari. Þú varst mér eitt og ert mér allt, elsku engillinn minn, við elskum, dýrkum þig og dáum. Þinn Gísli, Sóley Diljá, Stefán Sævar og Gísli Snær. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ókunnur) Góða ferð, mamma og pabbi. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar. Þakklæti og trú. Þessar ljóðlínur Ingibjargar Gunnarsdóttur komu upp í huga mér þegar ég hugsaði um hvern- ig ég gæti kvatt elskulegu Olgu, sem fór svo alltof fljótt eftir að hafa barist við erfið veikindi. Það er með miklum söknuði og sorg í hjarta sem ég minnist tengda- dóttur minnar sem ætti að vera hjá okkur í blóma lífsins. Fyrir um tuttugu og einu ári heillaði hún son minn og var þar með komin til lífstíðar inn í fjöl- skylduna. Hún kom svo sannar- lega á sinn hátt, opin og frjálsleg, með skottuna hana Sóleyju Diljá með sér og þær mæðgur heilluðu samstundis alla fjölskylduna. Olga og Gísli fluttu til Dan- merkur og bjuggu þar í 6 ár. Þar stækkaði fjölskyldan, tveir drengir bættust í hópinn, þeir Stefán Sævar og Gísli Snær. Eft- ir að hafa gengið í hjónaband, stækkað fjölskylduna og notið lífsins fluttu þau frá Danmörku til Svíþjóðar og bjuggu þar í 8 ár. Að vera traust, heiðarleg, vinur vina sinna og endalaust góð mamma lýsir Olgu best. Tryggð hennar og vinátta sýndu sig ekki síst í vinahóp hennar úr Breið- holtinu, en vináttan innan hóps- ins er einstök og öll standa sam- an í einu og öllu. Olga var fótboltakona af lífi og sál og fór í leikinn til að vinna og spila hann til enda. Árin eftir að hún greindist með krabbamein voru eins og fótboltaleikur. Hún spilaði allar stöður á vellinum og síðustu mánuðina var hún í marki og varði hvert hörkuvítaskotið á fætur öðru þar til yfir lauk. Í byrjun janúar 2013 kom greiningin; að Olga væri með brjóstakrabbamein, en hún var búin að finna fyrir veikindum. Þetta var mikið reiðarslag fyrir fjölskylduna og breytti lífi þeirra á allan hátt. Fyrir tveimur árum flutti fjölskyldan til Íslands og hóf nýtt líf. Þannig gáfu þau okk- ur, fjölskyldunni sem á Íslandi býr, tækifæri til að taka þátt í líf- inu með þeim, sem við erum óendanlega þakklát fyrir. Ég vil þakka öllum sem önn- uðust Olgu og aðstoðuðu í veik- indum hennar, sérstaklega starfsfólki líknardeildarinnar í Kópavogi og öðru hjúkrunar- fólki. Elsku Olga, takk fyrir allt, yndislegu barnabörnin þrjú sem þú gafst mér; ég mun gæta þeirra eins og ég best get og passa upp á stóra Gísla. Þín tengdó, Eygló. Elsku hjartahlýi töffarinn okkar. Húmoristinn, rokkarinn, orkuboltinn og fótboltasnilling- urinn okkar. Hvernig á að vera hægt að sætta sig við orðinn hlut? Tilhugsunin um þig á fal- legri stað, mundandi pensilinn við trönurnar með kristal í gleri í hinni, í Olgubuxum og hauskúpu- bol (sem betur fer varstu nú vaxin upp úr Michael Jackson- jakkanum …) yljar okkur þó. Í bakgrunninum hljóma Guns n’ Roses, Bubbi eða góð vinkona okkar hún Pink. Mildar sú til- hugsun að einhverju leyti sorg okkar en minnkar að engu leyti það stóra skarð sem nú er höggv- ið í okkar dýrmæta vinahóp. Þvílíkur happdrættisvinning- ur það var þegar við kynntumst og hnoðuðum saman einn af skrautlegri vinahópum sem Ölduselsskóli hafði nokkru sinni alið. Mesta kaldhæðnin fólst svo að sjálfsögðu í því að eftir allar þær þrekraunir sem lagðar voru á okkar misþolinmóðu kennara á þessum árum, þá varðstu sjálf kennari með orkuna þína og já- kvæðni að vopni. Ekki nóg með það að þú hafir gerst kennari heldur kenndir þú ekki bara á Ís- landi heldur líka í Danmörku og seinna Svíþjóð. Kom þetta okkur öllum mjög á óvart þar sem danska var nú alls ekki þitt uppá- haldsfag! Það sem var brallað á þessum tíma. Útilegur í Þórs- mörk, gítarspil og söngur við skólasundlaugina (sem við stál- umst af og til í utan opnunartíma þar til löggan kom), hangs í Ísseli með mjólkurhristing, örbylgju- samlokur og Íscola, því í þá daga var nú engin félagsmiðstöð til staðar. Óhrædd varstu ávallt við ný ævintýri, hvort sem það var á Ís- landi, í Bandaríkjunum, Dan- mörku eða Svíþjóð, enda úr Breiðholtinu og því vel nestuð af vænum skammti af „attitjúdi“ og hreifst alla með þér hvert sem þú fórst. Ófeimin en einlæg, hávær en hógvær, huguð og hugulsöm. Alla þessa kosti er í dag svo ómetanlegt að sjá í börnunum þínum og hlökkum við til að fylgjast með þeim vaxa og dafna og fá jafnframt að vera á hlið- arlínunni. Aldrei léstu koma þér úr jafnvægi, varst alltaf flottust, hvort sem var í tauinu eða bara Olga Steinunn Weywadt Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.