Morgunblaðið - 19.07.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.07.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2019 Smáauglýsingar Bækur Bókaveisla Bókaveisla- 50% afsláttur af bókum hjá Þorvaldi í Kolaprtinu. Allt á að seljast Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Aðalbraut 24, Norðurþing, fnr. 216-7217 , þingl. eig. Maritza Esther P Ospino, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 24. júlí nk. kl. 11:00. Austurvegur 1, Langanesbyggð, fnr. 222-5921 , þingl. eig. Jónas Lárusson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 24. júlí nk. kl. 12:30. Túngata 28, Fjallabyggð, fnr. 213-0970 , þingl. eig. Skarphéðinn Guðmundsson, gerðarbeiðandi Fjallabyggð, fimmtudaginn 25. júlí nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 18 júlí 2019 Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Opið hús kl. 13-15. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir vel- komnir. s: 535 2700. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall við hring- borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Kostning um nafn á nýja æfingasvæðið stendur yfir. Hádegismatur kl. 11.30. Söngur kl. 13.30. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Föstudaghópurinn hittist kl. 10. Boccia í setustofu 2. hæðar kl. 10. Vöfflukaffi kl. 14.30. Hádegismatur frá kl. 11.30-12.30 alla daga vikunnar og kaffi frá kl. 14.30-15.30 alla virka daga. Nánari upplýsingar í síma 411 9450. Verið hjartanlega velkomin á Vitatorg. Garðabæ Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 20 Félagsvist. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp- lestur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, föstudagsskemmtun kl. 14, síðegiskaffi kl. 14.30. Uppl í s. 411 2760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, spilað í króknum kl. 13. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansleikur í Stangarhyl 4, sunnu- dagskvöld 21. júlí kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum. Atvinnublað Morgunblaðsins fimmtudaga og laugardaga Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað? Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100 Allar auglýsingar birtast í Mogganum, á mbl.is og finna.is mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Pálmi FreyrÓskarsson fæddist í Reykjavík 13. júní 1974. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun í Vest- mannaeyjum 7. júlí 2019. Faðir hans er Óskar Jakob Sig- urðsson, f. 19. nóv- ember 1937, vita- vörður og veður- athugunarmaður á Stórhöfða, og móðir Valgerður Benedikts- dóttir, f. 17. júlí 1943 á Þorpum í Strandasýslu, d. 13. maí 1992. Systir sammæðra er Matthildur Eiríksdóttir, f. 19. maí 1967. Börn hennar 1) Elva Dögg Tórshamar, f. 17. október 1984. Börn hennar Leó Breki, f. 2. janúar 2007, og Guðrún Myrk, f. 9. október 2014. 2) Telma Ýr Tórshamar, f. 23. júlí 1987. 3) Davíð Þór Halldórsson, f. 27. maí 1994, og 4) Andri Már Hall- dórsson, f. 27.maí 1994. Pálmi var veðurathugunar- maður á Stórhöfða til 2013. Útför Pálma Freys fer fram frá Landakirkju í dag, 19. júlí 2019, klukkan 14. Ég hitti Pálma fyrst þegar ég kom á Stórhöfða í Vestmanna- eyjum til að sinna eftirliti fyrir Veðurstofuna ásamt fleirum. Faðir hans, Óskar vitavörður, tók á móti okkur á sinn kyrrláta hátt og ég áttaði mig ekki á því fyrr en eftir nokkra stund að hann var ekki einn í húsinu: Í dyragættinni stóð allt í einu há- vaxinn ungur fríðleiksmaður með eldrautt hár. Það var Pálmi Freyr. Saga feðganna er um margt einstök. Pálmi var fjórði ættliður- inn sem sinnti veðurathugunum á Stórhöfða og mengunarmælingar bættust við 1991. Við Óskar rökt- um saman ættir okkar og höfum haldið vinskap æ síðan. Ég vildi kynnast unga manninum betur en hann hélt sig til hlés. Þó birti yfir honum eitt sinn, þegar nýr söfn- unarbúnaður kom á staðinn: „Þetta er bara tveggja manna verk,“ sagði Pálmi og renndi hýru auga til föður síns. Eitt sinn kom Pálmi í heim- sókn til okkar hjónanna í Mosó en þá vildi svo til að bíll á hlaðinu var að verða rafmagnslaus og ég fékk Pálma með mér í ökuferð til að hlaða bílinn. Þetta varð hin þægilegasta samverustund og mér þótti vænt um að ungi mað- urinn skyldi segja frá sorgum og gleði. „Þetta er svolítið sérstakt hjá okkur pabba í Stórhöfða.“ Auðvitað maldaði ég í móinn og benti á hvað þetta væri heillandi, þetta einstaka líf úti við hafið og öll þessi veðrabrigði sem þeir einir þekkja svo vel. „Fólki finnst þetta skrítið, ég finn það alveg.“ Aldrei kynntist ég Pálma vel en ég veit að hann æfði körfu- bolta, átti ógrynni kvikmynda, hlustaði á tónlist og lét sig dreyma um að verða plötu- snúður. Hann vildi taka þátt á bak við tjöldin; sú hugmynd féll hans hlédrægu sál vel í geð. „En það verður aldrei,“ bætti hann við, raunsær á eigin aðstæður. „Segðu engum.“ Eitt hreif Pálma mest, vakti glóð í augum hans og öllu fasi: Það voru fuglarnir. Þeim feðgun- um kom ekki alltaf vel saman, frekar en nokkrum öðrum sem deila daglegum kjörum. En ástin til fuglanna batt þá sterkum böndum; hvort heldur ókjör snjó- tittlinga á blettinum fyrir utan vitavarðarhúsið, lundapysjurnar sem bjargað var af götum bæjar- ins um miðja nótt, æðarkollurnar sem fengu fylgd með ungana sína út að hafinu eða sjófuglar sem fóstraðir voru innandyra eftir hrakningar. „Eina nóttina söfn- uðum við svona mörgum pysjum, það var met,“ sagði Pálmi og ég dró það ekki í efa. Að lokum fjaraði undan störf- unum á Stórhöfða og það var hart að engin stofnun, né nokkur áhugasamtök, komu þar á fót al- þjóðlegri rannsóknarstöð í nátt- úruvísindum. Það var þó draumur feðganna og staðurinn verðskuld- aði það. Heimsmethafinn í vitanum flutti upp á land og eftirlét syni sínum bæði íbúð og bíl. Pálmi ól allan aldur sinn í Vestmannaeyj- um og lézt þar fyrir aldur fram eftir erfið veikindi sem þó stóðu ekki yfir nema rúmt ár. Tómleiki aldraðs föður verður mikill og sorgin sár. Blessuð sé minning þess pilts sem hélt í bernskuna og ást til hafsins og fuglanna, alla tíð. Guð styrki Óskar. Guð blessi Matthildi og Erlu og Gunnar og alla hina sem reyndust honum svo vel. Jóhanna M. Thorlacius. Pálmi Freyr Óskarsson ✝ Anna JónaÁgústsdóttir fæddist á Ísafirði þann 22. apríl 1943. Hún lést 8. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ína Bjarnadóttir, f. 16. maí 1911, d. 6. desember 1988, og Ágúst G. Jörunds- son, f. 6. nóvember 1906, d. 19. maí 1964. Anna Jóna var yngst þriggja systkina. Elst var Sigríður Ágústsdóttir, f. 19. desember 1934, d. 26. desember 2016, og þá Úlfar Ágústsson, f. 3. júlí 1940. Eiginmaður Önnu Jónu er Birgir Smári Ólason, f. 23. nóvember 1940. Foreldrar hans voru Óli Pétursson, f. 14. apríl 1901, d. 21. október 1988, og Sveinsína Vigdís Jakobs- dóttir, f. 21. janúar 1909, d. 5. maí 1983. Anna Jóna og Birgir eignuðust þrjár dætur. Þær eru: 1) Sigríður María, f. 30. janúar 1961. 2) Guðmund- ína, f. 16. desember 1965, maki Björn Sævarsson, f. 26. maí 1959. Þeirra börn eru Birna Rebekka, f. 1986, Birgir Ágúst, f. 1988, og Björn Sævar, f. 1990, og 3) Harpa Dís, f. 1. júní 1970. Börn Ágúst, f. 1995, og Arnar, f. 2000, Ásmundssynir. Barnabarnabörnin eru fimm. Útför Önnu Jónu fer fram frá Lindakirkju í dag, 19. júlí 2019, klukkan 13.30. Elsku amma mín. Það hefur einhvern veginn alltaf verið svo óraunverulegt að það ætti eftir að koma að þeim degi að ég þyrfti að kveðja þig í síðasta skipti. Ég er ekki viss um að ég sé enn búin að átta mig á því að þú sért farin og ef til vill á mér alltaf eftir að finnast þú vera hjá mér vegna allra ljúfu, yndislegu, skemmtilegu og skondnu minn- inganna sem ég á um þig. Ég man eftir öllum notalegu stundunum hjá þér og afa á Ás- brautinni. Þær voru ófáar gisti- næturnar sem ég lá í hlýjunni og örygginu á milli þín og afa. Þið strukuð fæturna á mér og ég var ekki orðin há í loftinu þegar ég gaf ykkur þá formlega, þú amma áttir hægri fótinn og afi átti þann vinstri. Það er ekki langt síðan við rifjuðum þetta upp síðast og auðvitað verður þessi samningur í gildi um ókomna tíð. Ég gleymi aldrei öllum ferð- unum í Þjórsárdalinn í hjólhýsið ykkar afa. Þar var alltaf svo margt um að vera. Ný ævintýri á hverjum degi sem þú skráðir samviskusamlega niður í dagbók sem alltaf var hægt að glugga í. Oft var hlegið að því þegar ég og strákarnir vorum að vaða í ánni með afa. Við hittum lögguna sem bauð okkur far yfir ána til baka. Strákarnir vildu vaða meira, en prinsessan hún Birna, eins og þú orðaðir það, þáði að sjálfsögðu farið í löggubílnum. Ætli ég sé ekki ein af fáum sem geta minnst þess þegar amma skutlaði mér á fyrsta stefnumótið, blint stefnumót í Laugarásbíó. Mér fannst ekkert eðlilegra, þú varst mjög töff amma. Hversu margar ömmur ætli hafi haft stórt innrammað áritað veggspjald af Páli Óskari á eldhúsveggnum sínum? Ég er svo þakklát fyrir hvað þú og María, unnusta mín, voruð góðar vinkonur. Þegar ég var að kynnast henni sagðirðu mér að ef einhver ætlaði að vera með leiðindi við mig vegna þess að ég væri í sambandi með konu myndirðu sparka í viðkomandi. Ég hugsa að þú hefðir staðið við það amma. Þú passaðir alltaf svo vel upp á þitt fólk. Fátt sem hefur glatt mig eins mikið og að fá að sjá þig fylgjast með langömmubörnunum þínum. Þau veittu þér svo mikla gleði enda elskuðu þau að koma til þín. Ég á eftir að sakna þess að sækja Önnu Mundu á leikskól- ann og koma beint til þín í spjall við eldhúsborðið. Við sátum svo oft þar og þú naust þess að virða hana fyrir þér og hlusta á hana. Það situr í mér þegar þú sagðir við mig að þú óskaðir þess að geta fengið að fylgjast með henni í framtíðinni en þú vissir að þú fengir það ekki. Þetta stakk í hjartað. En alveg er ég nú viss um það, elsku amma mín, að þú finnur leið til að fylgjast með okkur, þú hefur alltaf verið fær um ótrúlegustu hluti. Ég passa hana nöfnu þína og hlakka til að segja henni fyndnar, skemmti- legar og ljúfar sögur af lang- ömmu sinni. Við höldum þessum notalegu stundum áfram við eld- húsborðið hjá afa. Ég mun sakna þín meira en orð fá lýst. Takk fyrir allt elsku amma mín og guð geymi þig. Þín Birna Rebekka. Elsku amma. Við kveðjum þig með mikla sorg í hjarta, en svo miklu þakk- læti fyrir tímann sem við feng- um með þér. Þú varst einstök kona og við höfum öll lært svo margt af þér. Þú elskaðir ekkert meira en fjölskyldu þína og tókst nýjum meðlimum alltaf opnum örmum. Þú bjóst þér til ríkidæmi í fjölskyldu þinni, og ekkert til- efni var of lítið til að kalla fjöl- skylduna saman og njóta ná- vista hvert annars. Að kveðja þig er eitt af því erfiðara sem við höfum gert, en við njótum huggunnar í því sem þú skilur eftir þig. Við erum öll mótuð af þér að miklu leyti og heyrum rödd þína hvert sem við förum. Takk fyrir að vera þú, elsku amma. Góðum mönnum gefin var sú glögga eftirtekt. Að finna líka fegurð þar, sem flest er hversdagslegt. (J.K.) Hvíl í friði og við vitum að þú vakir yfir okkur öllum. Björn Sævar, Anna Lind, Daníel Máni, Emilía Lind og Rebekka Dögg. Eins og marglit blóm á engi óendanleikans er kærleikur hugsana minna til þín. Þú sem ert látin farin á braut hins óþekkta sem okkur eftirlifendum er hulið. Dýrmætar minningar líða hjá árin okkar saman. Brosið þitt og faðmur þinn svo hlýr þú bara þú. En hér er ekkert sem sýnist í gjörningaþoku og sárustu sorgum. En þar sem þú ert er ég hjá þér í huga mínum og sinni. Óskirnar fljúga víða um alheimshimna í ljóðinu mínu um þig þessi tæra fegurð kærleikans sem er það göfugasta og besta í mannssálinni. Kær vinkona úr bernsku á Ísafirði er farin en í huga mín- um og hjarta geymi ég fallegar minningar. Kæri Birgir og dætur. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð við fráfall eigin- konu og móður. Sigríður Ósk Óskarsdóttir. Við hjónin kynntumst Önnu Jónu sem mömmu hennar Mundu vinkonu okkar þegar við vorum ung með þrjú lítil börn. Við fórum að fara í útilegur saman, Munda, Bjössi og börn og við með okkar kiðlinga. Þá var svo auðvelt og gott að fara bara í Þjórsárdalinn til Önnu Jónu og Bigga þar sem þau höfðu hjólhýsið sitt. Okkur Sigga var alltaf tekið eins og við tilheyrðum fjölskyldunni og ég held að okkur hafi bara fundist það vera satt og rétt. Anna Jóna var höfuð fjölskyldunnar á margan hátt, hún var ákveðin og hreinskilin með allt og dró aldrei neitt undan. Það er hress- andi að kynnast svoleiðis fólki. Við vorum margar helgarnar í gamla daga á lóðinni hjá þeim hjónum á Tanganum. Seinna keyptum við okkur hjólhýsi í Þjórsárdal og það gerðu þau líka Munda, Bjössi og Sigga Mæja. Samskiptin voru því ansi mikil áfram. Anna Jóna elskaði að syngja og að taka í gítar var ekki leiðinlegt heldur. Það var oftar en ekki sungið mikið um helgar hjá Önnu Jónu og Bigga, já eða hjá Siddí systur Önnu Jónu og Hödda. Samgangur okkar minnkaði svo aðeins eftir því sem árin liðu og fjölskyldur okkar stækkuðu.Við Munda urðum sjálfar ömmur og svo framvegis. Nú trúum við því að Anna Jóna okkar sé búin að hitta Siddí systur eins og hún kallaði hana alltaf. Við getum sem best trúað að gítarspil og söngur heyrist bráðum í Sum- arlandi. Við söknum vinkonu og vottum Bigga okkar, Siggu Mæju, Mundu, Hörpu Dís og allri fjölskyldunni alla okkar samúð. Við vitum að minningin mun lifa meðal allra sem hana þekktu Áslaug og Sigurður (Siggi). Anna Jóna Ágústsdóttir  Fleiri minningargreinar um Önnu Jónu Ágústs- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.