Morgunblaðið - 19.07.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 19.07.2019, Síða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2019 skoðið úrvalið á facebook Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu okkar og fengið sent hvert á land sem er. Opið: Mánudaga-laugardaga frá 10-18, sunnudaga frá 11-17. ÚTSALAN Í FULLUM GANGI Í ÁLNÁVÖRUBÚÐINNI ALLT AÐ60%AFSLÁTTUR  Sænska knattspyrnukonan Kosov- are Asllani varð í gær fyrsta konan sem Real Madrid semur við. Spænska stór- veldið tók í vor yfir félagið Tacón og leikur undir merkjum þess á komandi tímabili en spilar undir nafni Real Ma- drid frá 2020. Asllani, sem verður þrí- tug síðar í þessum mánuði, hefur leikið 134 landsleiki fyrir Svíþjóð og skorað í þeim 35 mörk og var í sænska liðinu sem fékk brons á HM fyrr í þessum mánuði. Hún lék síðast með Linköping en hætti þar fyrr í vikunni. Áður lék hún með Manchester City, París SG, Krist- inastad og Chicago Red Stars.  Þórdís Eva Steinsdóttir hafnaði í 26. sæti í 400 m hlaupi á Evrópumóti U20 ára í frjálsíþróttum sem hófst í Borås í Svíþjóð í gær. Hún hljóp á 56,70 sek- úndum en sextán fyrstu komust í und- anúrslit. Í dag keppir Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir í undanrásum í 200 m hlaupi og Valdimar Hjalti Erlendsson í undankeppni í kúluvarpi.  Ítalíumeistarar Juventus í knatt- spyrnu tilkynntu í gærmorgun að þeir hefðu gengið frá fimm ára samningi við hollenska landsliðsmiðvörðinn Matthijs de Ligt. Hann er aðeins 19 ára gamall en var samt fyrirliði Ajax á síðasta tíma- bili og hefur spilað 17 landsleiki fyr- ir Holland. Juventus greiðir 75 milljónir evra fyrir de Ligt. Eitt ogannað GOLF Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Kylfingurinn Rory McIlroy beið al- gjört afhroð á fyrsta hring sínum á The Open-mótinu í golfi sem nú fer fram á Royal Portrush-vellinum á Norður-Írlandi í gær. Hinn þrítugi McIlroy er á heimavelli í ár en hann lenti í vandræðum strax á fyrstu braut, þar sem hann lék á fjórum höggum yfir. Ekki skánaði ástandið á þriðju braut, þar sem McIlroy fékk skolla, og var hann því á fimm högg- um yfir pari eftir fyrstu þrjár braut- irnar. Norður-Írinn náði að laga stöðuna á sjöundu og níundu braut þar sem hann fékk tvo fugla og var hann því á þremur höggum yfir pari eftir fyrstu níu holurnar. McIlroy fékk svo sjö pör í röð, áður en hann fékk skramba á sextándu braut, og þá lék hann átjándu brautina á þremur yfir pari og endaði á átta höggum yfir pari. Margir voru búnir að spá McIlroy sigri á mótinu í ár, en hann hefur einu sinni fagnað sigri á mótinu, áður árið 2014. Einhverjir veltu því hins vegar í fyrir sér hvernig Norður-Írinn myndi höndla pressuna á heimavelli og þeirri spurningu svaraði McIlroy svo sannarlega í gær. Margir stórir í vandræðum McIlroy var langt frá því að vera eini kylfingurinn sem lenti í vand- ræðum því Bandaríkjamaðurinn Ti- ger Woods átti einnig mjög slæman dag, en hann lék holurnar átján á sjö höggum yfir pari. Tiger lenti í vand- ræðum strax á fyrstu braut, en hann hefur ekkert spilað undanfarinn mánuðinn og hefur því verið velt upp hvort einn vinsælasti kylfingur sög- unnar sé einfaldlega heill heilsu. Þá átti meistari síðasta árs, Ítalinn Francesco Molinari, ekki heldur góð- an dag, en hann lék á þremur högg- um yfir pari og gamla brýnið Phil Mickelson var á fimm höggum yfir pari. Annars átti enginn verri dag en Bandaríkjamaðurinn David Duval, sem fagnaði sigri á The Open árið 2001. Duval lék sjöundu brautina, sem er par fimm hola, á þrettán höggum. Var hann samtals á 20 höggum yfir pari og skal það ekki koma neinum á óvart ef Duval hring- ir sig inn veikan á morgun. Bandaríkjamaðurinn J.B. Holmes er með nokkuð óvænta forystu á mótinu á fimm höggum undir pari, en hann er í 55. sæti heimslistans. Írinn Shane Lowry kemur næstur á fjórum höggum undir pari og Bandaríkja- maðurinn Brooks Koepka, sem þótti líklegur til afreka á mótinu, er í 3.-16. sæti á þremur höggum undir pari. McIlroy koðnaði und- an pressunni  Holmes í forystu  Vonbrigði hjá Tiger AFP Vesen Rory McIlroy í vondri stöðu á fyrstu holunni á The Open í gær. Hann þarf að leika sannkallað meistaragolf í dag til að komast áfram. Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í 26.-46. sæti eftir fyrsta hringinn á Euram Bank Open-golfmótinu sem hófst í Ramsau í Austurríki í gær en það er hluti af Áskorendamótaröð- inni, næststerkustu mótaröð Evr- ópu. Guðmundur vann sér á dög- unum fastan keppnisrétt þar með góðum árangri á Nordic-mótaröð- inni. Guðmundur lék á tveimur höggum undir pari í gær og er þremur höggum frá öðru sætinu. Birgir Leifur Hafþórsson lék á einu yfir pari og er í 89.-101. sæti en 153 keppendur luku fyrsta hringnum. Guðmundur fór vel af stað Ljósmynd/GSÍ Austurríki Guðmundur Ágúst Krist- jánsson er á tveimur undir pari. Eyjamenn hafa náð sér í liðsauka til Englands fyrir baráttuna í seinni umferð úrvalsdeildar karla í knatt- spyrnu en ungur miðvörður, Oran Jackson, er kominn í þeirra raðir frá MK Dons. Jackson er tvítugur, uppalinn hjá MK Dons og spilaði einn deildaleik með liðinu í ensku B-deildinni tímabilið 2015-16. Hann hefur síðan verið í láni hjá utan- deildaliðunum Hemel Hempstead og Brackley Town. Jackson var leystur undan samningi hjá MK Dons í lok síðasta tímabils. vs@mbl.is Englendingur í vörnina hjá ÍBV Ljósmynd/ÍBV ÍBV Oran Jackson er ætlað að styrkja varnarleik Eyjamanna. Haukar tilkynntu í gærkvöldi að félagið hefði samið við Bandaríkjamanninn Flenard Whitfield um að leika með körfuknattleiksliði Hauka á næsta tímabili. Whitfield, sem er 29 ára gamall, er ekki ókunnur á Íslandi því hann lék með Skallagrími úr Borgarnesi veturinn 2016-2017. Þrátt fyrir að Whitfield hafi fallið úr efstu deild það tímabil er óhætt að segja að hann hafi farið á kostum. Hann varð stigakóngur deildarinnar með tæplega 30 stig að meðaltali í leik og þá tók hann næstflest fráköst allra leikmanna, eða tæplega 15 að meðaltali í leik. Síðan Whitfield yfirgaf landið fyrir um tveimur árum hefur hann leikið í Kanada og í Finnlandi og varð meðal annars finnskur meistari vorið 2018 þar sem hann var í stóru hlutverki hjá toppliði Karhu. Nú kemur hann aftur til Íslands og í þetta sinn til Hauka, sem höfnuðu í 10. sæti deildarinnar í vor en ætla sér stóra hluti næsta vetur undir stjórn Israel Martin sem tók við af Ívari Ásgrímssyni eftir tímabilið. Stigakóngur í Hafnarfjörðinn Flenard Whitfield Fylkir freistar þess í kvöld að komast í fyrsta úrslitaleik sinn í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu þegar Árbæjar- liðið tekur á móti Selfyssingum í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á Würth-vellinum klukkan 19.15. Selfoss er hins vegar með þriðja úrslitaleik sinn á sex árum í sigtinu, en liðið lék til úrslita árin 2014 og 2015 og tapaði fyrir Stjörnunni í bæði skiptin. Fylkir vann óvæntasta sigur keppninnar til þessa í 16- liða úrslitum þegar liðið lagði Breiðablik, 1:0, með marki Kristínar Þóru Birgisdóttur, en það er eina tap Kópa- vogsliðsins í deild eða bikar á tímabilinu. Fylkir vann síðan ÍA 6:0 á útivelli í átta liða úrslitum. Selfoss vann hins vegar Stjörnuna 3:2 á útivelli og síðan HK/Víking 2:0 á heimavelli. Fylkir og Selfoss mættust í úrvalsdeildinni í Árbænum 24. júní og skildu jöfn 1:1 þar sem Hólmfríður Magnúsdóttir kom Selfossi yfir en Ída Marín Hermannsdóttir jafnaði fyrir Selfoss úr vítaspyrnu. Sigurliðið í kvöld mætir KR eða Þór/KA í úrslitaleik keppninnar, en viðureign þeirra fer fram í Vesturbænum á morgun. vs@mbl.is Fylkir í úrslit í fyrsta sinn? Hólmfríður Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.