Morgunblaðið - 19.07.2019, Side 26

Morgunblaðið - 19.07.2019, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 2019 Inkasso-deild kvenna FH – Afturelding ..................................... 3:1 Birta Georgsdóttir 28., 90., Helena Ósk Hálfdánardóttir 45. – Darian Powell 14. ÍR – Haukar.............................................. 0:1 Vienna Behnke (víti) 49. Grindavík – Þróttur R............................. 2:3 Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (sjálfsmark) 66., Nicole Maher 88. – Olivia Bergau 47. (víti), 90. (víti), Linda Líf Boama 85. Fjölnir – Augnablik................................. 3:1 Sara Montoro 15., 43., Rósa Pálsdóttir 19. – Ásta Árnadóttir 85. Staðan: FH 9 7 1 1 24:10 22 Þróttur R. 9 7 0 2 31:9 21 Tindastóll 8 5 0 3 25:18 15 Afturelding 9 4 1 4 11:12 13 Haukar 9 4 0 5 13:9 12 Augnablik 9 4 0 5 8:10 12 ÍA 8 3 2 3 8:7 11 Grindavík 9 3 2 4 13:16 11 Fjölnir 9 3 2 4 14:19 11 ÍR 9 0 0 9 3:40 0 2. deild karla Kári – Þróttur V ...................................... 3:4 Hlynur Sævar Jónsson 56., 66., Andri Júlíusson (víti) 86. – Miroslav Babic 21., Hrólfur Sveinsson 57., Ingvar Ásbjörn Ingvarsson 62., Alexander Helgason 90. Staðan: Leiknir F. 11 6 4 1 22:11 22 Selfoss 11 6 2 3 26:12 20 Þróttur V. 12 5 4 3 18:17 19 Vestri 11 6 0 5 14:17 18 Fjarðabyggð 11 5 2 4 18:14 17 Völsungur 11 5 2 4 13:15 17 Víðir 11 5 1 5 17:15 16 ÍR 11 4 3 4 16:15 15 Dalvík/Reynir 11 3 6 2 14:13 15 KFG 11 4 0 7 19:25 12 Kári 12 3 2 7 23:29 11 Tindastóll 11 1 2 8 10:27 5 KNATTSPYRNA EM U19 kvenna B-deild í Búlgaríu: Bretland – Ísland.................................. 12:39 Serbía – Búlgaría.................................. 21:12  Lokastaðan í A-riðli: Serbía 8 stig, Búlg- aría 5, Ísland 4, Grikkland 3, Bretland 0. Ís- land leikur um 5.-8. sæti og mætir Finnum á morgun. HM U21 karla Leikið á Spáni: A-riðill: Japan – Slóvenía................................... 22:29 Bandaríkin – Serbía ............................. 19:36 Túnis – Spánn ....................................... 20:26 C-riðill: Barein – Portúgal................................ 27:29  Halldór J. Sigfússon þjálfar Barein. Brasilía – Króatía ................................. 29:33 Kósóvó – Ungverjaland ....................... 21:36  EVRÓPUDEILD Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Draumur Breiðabliks um að komast áfram í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sex ár varð að engu í Liechtenstein í gærkvöld þegar liðið heimsótti bikar- meistara Vaduz heim í síðari við- ureign þeirra í 1. umferð und- ankeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Eftir markalausan fyrri leik í Kópavogi vann Vaduz 2:1 á heimavelli, fór áfram í næstu umferð en Blikarnir fara tómhentir heim. Fyrsta þátttaka Blika í Evrópu- keppni síðan 2016 var því stutt, en þremur árum þar á undan fór liðið alla leið í þriðju umferðina sumarið 2013 og féll úr leik eftir víta- spyrnukeppni. Það er vonandi fyrir Blikana að þeir muni brjóta mynstrið sem hefur myndast og þurfi ekki að bíða í önnur þrjú ár eftir næsta tæki- færi. Það má segja að Blikarnir hafi tap- að þessu einvígi í fyrri leiknum með því að sækja ekki meira á eigin heimavelli. Vaduz treystir gríðarlega á heimavöll sinn og hafði aðeins tapað einum af síðustu 13 heimaleikjum sínum í Evrópukeppni fyrir einvígið. Það var ansi tæpt fyrir Blika að ætla sér að lauma inn útivallarmarki snemma leiks í Vaduz og spila upp á jafnteflið. Sárabótarmark kom of seint Blikarnir gerðu hins vegar hvað þeir gátu með það skipulag í gær í leik sem var mun opnari en sá fyrri. Þó að liðið hafi ekki vaðið í dauðafær- um er dýrt að nýta ekki þau sem gef- ast, sérstaklega í svona leik. Sárabót- armark Höskuldar Gunnlaugssonar í uppbótartíma kom of seint til þess að hleypa spennu í leikinn á ný. Það er mark sem hefði þurft að koma í fyrri leiknum. Atvinnumannalið Vaduz er mjög sterkt og spilaði nokkuð þægilega, beið átekta eftir því að refsa og eftir að hafa komist yfir snemma í síðari hálfleik voru heimamenn komnir með tak á Blikum sem þeir voru aldrei lík- legir til þess að sleppa. Vaduz hefur komist áfram úr fyrstu umferðinni núna í sex ár í röð og fara þarf aftur til ársins 2013, þegar Blikar fóru síð- ast áfram, til þess þegar liðið féll síð- ast út á þessu stigi keppninnar. Það að vera frá Liechtenstein og spila í svissnesku B-deildinni er því sann- arlega ekki ávísun á auðveldan leik fyrir hvaða mótherja sem er. „Lögðum allt í sölurnar“ Gunnleifur Gunnleifsson, mark- vörður og fyrirliði Breiðabliks, var að snúa aftur á sinn gamla heimavöll eftir að hafa leikið með Vaduz í nokkra mánuði fyrir áratug. Það gerði einnig Guðmundur Steinars- son, aðstoðarþjálfari Breiðabliks. Þrátt fyrir að það hafi verið gaman að koma aftur sagði Gunnleifur eina markmiðið hafa verið að fara með farseðilinn í næstu umferð í hendi. „Við vissum að ef við skoruðum eitt mark, sérstaklega á undan þeim, gætum við læst okkur niður og við vorum að kíkja eftir því. Þetta er gott lið, þeir biðu færis og við komum bara of seint til baka. En mér fannst strákarnir standa sig vel og við lögð- um allt í sölurnar í þennan leik. Það dugði bara ekki til, því miður,“ sagði Gunnleifur við Morgunblaðið eftir leik. Markið kom viku of seint fyrir Blika  Þurfa vonandi ekki að bíða í önnur þrjú ár eftir næsta tækifæri í Evrópu Morgunblaðið/Árni Sæberg Úr leik Blikinn Andri Rafn Yeoman sækir að Gianni Antoniazzi úr Vaduz. 1:0 Mohamed Coulibaly 57. 2:0 Dominik Schwizer 79. 2:1 Höskuldur Gunnlaugsson 90. I Gul spjöldSimani, Cicek, Schwizer (Va- duz), Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki). Vaduz: (3-4-3) Mark: Büchel. Vörn: Sülüngöz, Simani, Schmid. Miðja: Gasser (Göppel 77.), Prokopic, Gajic, Antoniazzi. Sókn: Schwizer, Couli- baly (Frick 80.), Cicek (Sele 86.). Breiðablik: (4-3-3) Mark: Gunnleifur VADUZ – BREIÐABLIK 2:1 Gunnleifsson. Vörn: Viktor Örn Mar- geirsson, Elfar Freyr Helgason, Dam- ir Muminovic, Arnar Sveinn Geirsson (Þórir Guðjónsson 80.). Miðja: Guð- jón Pétur Lýðsson (Gísli Eyjólfsson 66.), Andri Rafn Yeoman, Alexander H. Sigurðarson (Aron Bjarnason 74.). Sókn: Höskuldur Gunnlaugs- son, Thomas Mikkelsen, Kolbeinn Þórðarson. Dómari: Genc Nuza, Kósóvó. Áhorfendur: 837.  Vaduz vann einvígið 2:1. Margir Íslendingar koma við sögu í 2. umferð Evrópu- deildar karla í fótbolta sem er leikin næstu tvær vikur. Þar verða tvö íslensk lið; Valur sem mætir Ludogorets Razgrad frá Búlgaríu og Stjarnan sem mætir Espanyol frá Spáni, og til viðbótar eru sjö „Íslendingalið“ með í umferðinni. Bröndby frá Danmörku, með Hjört Hermannsson í vörninni, og Norrköping frá Svíþjóð, með Guðmund Þór- arinsson á miðjunni, fóru áfram í gærkvöld. Bröndby mætir Lechia Gdansk frá Póllandi og Norrköping mætir Liepaja frá Lettlandi. Guðmundur lagði upp sigurmark Norrköping gegn St. Patrick’s frá Írlandi. Levski Sofia frá Búlgaríu, lið Hólmars Arnar Eyjólfssonar, og Malmö frá Svíþjóð, lið Arnórs Ingva Traustasonar, fóru áfram en þeir eru báðir frá vegna meiðsla. Levski mætir AEK Larnaca frá Kýpur og Malmö mætir Domzale frá Slóveníu. Úr 1. umferð Meistaradeildar koma Astana frá Kasakstan, lið Rúnars Más Sigurjónssonar, sem mætir Santa Coloma frá Andorra, og HB frá Færeyjum, lið Brynjars Hlöðverssonar og Heimis Guð- jónssonar, sem mætir Linfield frá Norður-Írlandi. Þá bætist AZ Alkmaar frá Hollandi, lið Alberts Guðmundssonar, í hópinn eftir að hafa setið hjá í 1. umferð og mætir Häcken frá Svíþjóð. vs@mbl.is Margir íslenskir í 2. umferð Guðmundur Þórarinsson Það gekk ekki nógu vel hjá Ólafíu Þórunni Kristins- dóttur og Cheyenne Woods, sem voru saman í há- skólaliði í Bandaríkjunum á sínum tíma, á óhefðbundnu móti á LPGA-mótaröðinni í golfi, en í fyrsta sinn var þar spiluð liðakeppni og léku þær saman. Á fyrsta hring á fimmtudag fóru þær svo til með möguleika sína á að komast áfram þegar þær spiluðu á sex höggum yfir pari í fjórmenningi, þar sem kylfing- arnir skiptast á að slá einn bolta. Á öðrum hring í gær gekk aðeins betur þegar betri boltinn taldi á hverri holu, en þær spiluðu þá á þremur höggum undir pari. Þær komu í hús í 67. sæti af 71 liði á þremur höggum yfir pari, en skorið var niður við fjögur högg undir pari. yrkill@mbl.is Ólafía og Woods féllu úr leik Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is MÁLA Í SUMAR? VITRETEX á steininn. HJÖRVI á járn og klæðningar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.