Morgunblaðið - 20.07.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019
FLUGSKÝLI
35B til leigu
Í Fluggörðum, einangrað með hita, mikil
lofthæð, aðgangsstýrt öruggt svæði.
halldorjonss@gmail.com
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ákvörðun borgarinnar kemur á óvart
Formaður SÍS hafði ekki hugmynd um ákvörðun Reykjavíkurborgar um eingreiðslu til allra
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga
(SÍS), kom af fjöllum þegar Morgun-
blaðið spurði hana hvort það setti
ekki þrýsting á SÍS að Reykjavíkur-
borg hefði ákveðið að greiða öllum
starfsmönnum sínum 105 þúsund
króna eingreiðslu 1. ágúst, vegna
tafa á viðræðum um nýja kjarasamn-
inga. Fram hefur komið að Samband
íslenskra sveitarfélaga hefur bannað
sveitarfélögum að greiða umrædda
eingreiðslu til starfsmanna sinna
sem eru í stéttarfélögum sem vísað
hafa kjaradeilum sínum til ríkissátta-
semjara.
Aldís var spurð hvort það setti
ekki aukinn þrýsting á Samband ís-
lenskra sveitarfélaga að allir fengju
eingreiðsluna, eftir að þessi stóri
vinnuveitandi, Reykjavíkurborg,
hefði ákveðið að allir borgar-
starfsmenn fengju greiðsluna.
Kemur mér á óvart
„Þetta kemur mér á óvart. Á þess-
ari stundu hef ég ekkert um þetta að
segja annað en að þú ert að segja
mér fréttir, að Reykjavíkurborg hafi
ákveðið þetta.
Við hjá Sam-
bandi íslenskra
sveitarfélaga
þurfum að skoða
þessa ákvörðun
borgarinnar áður
en við tjáum okk-
ur um hana,“
sagði Aldís Haf-
steinsdóttir, sem
er bæjarstjóri í
Hveragerði.
Fram kom í fréttatilkynningu frá
Reykjavíkurborg í gær að borgarráð
hefði samþykkt viðauka við fjárhags-
áætlun 2019 vegna 105 þúsund króna
eingreiðslu til starfsfólks borgarinn-
ar sem verið hefur með lausa kjara-
samninga síðan í vor. Eingreiðslan
verður innt af hendi 1. ágúst næst-
komandi og er hún tilkomin vegna
tafa á viðræðum um nýja kjarasamn-
inga.
Bjarni Brynjólfsson, upplýsinga-
stjóri Reykjavíkurborgar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
Reykjavíkurborg semdi beint við
Eflingu og því fengju starfsmenn
borgarinnar sem væru í Eflingu
einnig eingreiðsluna um næstu mán-
aðamót.
Orðrétt segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu Reykjavíkurborgar: „Borgar-
ráð hefur samþykkt viðauka við fjár-
hagsáætlun 2019 vegna eingreiðslu
til starfsfólks borgarinnar sem verið
hefur með lausa kjarasamninga síð-
an í vor. Eingreiðslan verður innt af
hendi þann 1. ágúst næstkomandi og
er hún tilkomin vegna tafa á viðræð-
um um nýja kjarasamninga.
Greiðslan er samkvæmt sam-
komulagi um endurskoðaða við-
ræðuáætlun sem aðilar komu sér
saman um í lok júní um að inn-
ágreiðsla að upphæð 105.000 kr.
verði greidd hverjum starfsmanni.“
Aldís
Hafsteinsdóttir
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
MMR mælist fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins nú 19%. Er þetta minnsta fylgi
sem flokkurinn hefur mælst með í
könnun MMR til þessa.
Miðflokkurinn bætir við sig fylgi,
líklega að einhverju leyti á kostnað
sjálfstæðismanna, segir Ólafur Þ.
Harðarson, prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands, í samtali
við Morgunblaðið. Samkvæmt könn-
un MMR er fylgi Miðflokksins nú
14,4%. Er það bæting um 3,8 pró-
sentustig frá fyrri mánuði.
Miðflokksmenn þakklátir
„Auðvitað tekur maður eftir því
þegar fylgi flokkanna er orðið svona
dreift og stærsti flokkurinn er bara
með 19%. Síðan vekur athygli að Mið-
flokkurinn er að bæta við töluvert við
sig. Það er ekkert ólíklegt, þó að við
getum ekki fullyrt það, að það hafi
verið einhver fylgisstraumur frá
Sjálfstæðisflokki yfir á Miðflokkinn,“
segir Ólafur. Bendir hann þó á að yfir
kjörtímabilið hafi allir stjórnarflokk-
ar misst fylgi „eins og reyndar allir
stjórnarflokkar hafa gert frá hruni“.
Spurður hvort ástæðan fyrir þessu
fylgisflökti sé umræðan um þriðja
orkupakka Evrópusambandsins
svarar hann: „Það er mjög líklegt að
orkupakkamálið sé meginskýringin.
Það hefur auðvitað verið töluverð
andstaða við orkupakkann hjá ýms-
um í grasrót Sjálfstæðisflokksins og
meðal eldri sjálfstæðismanna svo það
er mjög líklegt að það skipti máli.
[Miðflokkurinn] var eini flokkurinn
sem hélt uppi einhverri raunverulegri
andstöðu við orkupakkann.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, sagði í sam-
tali við mbl.is í gær að þrátt fyrir að
hann hefði einsett sér fyrir tíu árum
að sveiflast ekki eftir skoðanakönn-
unum þá yrði hann að viðurkenna að
þessi fylgisaukning Miðflokksins
væri mjög ánægjuleg og að Mið-
flokksmenn væru þakklátir fyrir
stuðninginn.
Ekki náðist í Bjarna Benediktsson,
formann Sjálfstæðisflokksins.
Orkupakkamálið líklegasta
skýringin á fylgisflöktinu
Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei mælst neðar en nú
Síðasta farþegaþota hins fallna flugfélags
WOW air flaug af landi brott á tíunda tím-
anum í gærmorgun. Þota þessi var eina
trygging Isavia fyrir um tveggja milljarða
króna skuld WOW air, en undanfarna mánuði
hafa miklar deilur staðið yfir milli fyrir-
tækisins ALC, eiganda vélarinnar, og Isavia.
Hafði vélin verið kyrrsett á Keflavíkur-
flugvelli í um þrjá og hálfan mánuð vegna
þessa. Í samtali við mbl.is í gærkvöldi sagði
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, ný-
legan úrskurð Héraðsdóms Reykjaness, þess
efnis að vélin gæti ekki verið trygging fyrir
heildarskuldum WOW air, vera rangan.
„Ég lít svo á að vélin sé farin út af röngum
dómi en ekki út af því að við höfum verið að
beita þessari kyrrsetningarheimild með
röngum hætti. Vélin er farin, ekki af því að
við gerðum eitthvað rangt, heldur út af því að
héraðsdómur úrskurðaði með röngum
hætti,“ sagði hann. Þrátt fyrir að vélin sé far-
in úr landi er deilunum ekki lokið. Lögmenn
ALC lýstu því yfir strax á miðvikudag að sóst
yrði eftir skaðabótum vegna kyrrsetningar
vélarinnar. Sagði Sveinbjörn að hann væri
ósammála því að augljóst væri að ALC gæti
sótt skaðabætur og sagði að fyrirtækið hefði
ekki takmarkað tjón sitt að því ráði sem því
bar. Þá sagði hann að mikilvægt væri að úr-
skurður Héraðsdóms Reykjaness stæði ekki
sem „einhver endanlegur úrskurður“, enda
væri hann að mati Isavia rangur.
Eina skuldatrygging Isavia nú farin úr landi
Morgunblaðið/Hari