Morgunblaðið - 20.07.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Í dag eignaðist Natan stóra bróður.
Hann heitir Isak og er 13 ára. Isak
er sænskur og þeir eru frá sama
gjafa, svo þeir eru í raun hálfbræður.
Við fundum hann og Lottu mömmu
hans fyrir stuttu og fórum og hittum
þau í dag.“
Þannig hófst færsla Katrínar Þóru
Víðisdóttur Berndsen, móður Nat-
ans Dags Berndsen, níu ára íslensks
drengs, á fésbókinni í fyrradag.
Natan býr í fjölbýlishúsi á Akra-
nesi til skiptis með mæðrum sínum,
Katrínu Þóru og Erlu Björk Bernd-
sen Pálmadóttur. Katrín og Erla
voru fyrsta samkynhneigða parið
sem vígt var í staðfesta sambúð í
kirkju en það var í Melstaðarkirkju í
Miðfirði árið 2008. Þær búa ekki
saman í dag.
Að sögn Katrínar hafa þær Erla
alltaf sett þarfir Natans í fyrsta sæti.
Eftir að þær skildu hafi þær reynt að
búa eins nálægt hvor annarri og
hægt er og nú búa þær hvor á sinni
hæðinni í sama húsinu.
Katrín segir að þegar þær Erla
ákváðu að eignast Natan hafi þær
fengið sæðisgjafa í gegnum fyrir-
tæki sem nú er hætt starfsemi. Þeg-
ar Erla ákvað síðar að eignast sjálf
annað barn fór hún á aðra stofu og
fékk miklu betra aðgengi að upplýs-
ingum um sæðisgjafa en þegar Katr-
ín gekk með Natan. Út frá því fór
Erla að skoða hvernig hægt væri að
afla upplýsinga um hvort Natan ætti
hugsanlega hálfsystkini, hvað mörg
og hvar þau byggju.
Sæðisgjafinn ekki faðir
„Við vildum ekki vita hver gjafinn
var í tilfelli Natans en hann hafði
ákveðið númer. Þegar við fengum
númerið settum við það í gagna-
banka. Í kjölfarið höfðu móðir Isaks,
sem er 13 ára og býr í Svíðþjóð, og
móðir 10 ára stráks sem búsettur er í
Danmörku samband. Strákurinn í
Danmörku veit ekki að hann er get-
inn með gjafasæði og meðan svo er
verður ekkert samband,“ segir Katr-
ín og bætir við að þær Erla hafi aldr-
ei litið svo á að gjafi Natans væri fað-
ir hans. Þær hafi verið að athuga
hvort Natan ætti hugsanlega hálf-
systkini og hvort áhugi væri hjá
þeim að kynnast.
„Natan hefur alltaf vitað af gjaf-
anum og þar sem flestir hafa vænt-
anlega þörf fyrir að vita uppruna
sinn var það gleðilegt að við skyldum
komast í góð tengsl við Isak. Þar
sem við vorum á leið að heimsækja
systur mína í Noregi og pabba sem
býr í Svíþjóð ákváðum við að leyfa
strákunum að hittast ef það væri
þeirra vilji,“ segir Katrín en frá afa
Natans er tveggja klukkustunda
akstur á milli, að heimili Isaks. Katr-
ín segir að mæðurnar hafi velt því
fyrir sér hvað þær ættu að kalla
strákana en ákváðu að leyfa þeim að
ráða því.
„Þeir smullu saman. Isak, sem er
einbirni, var mjög spenntur að sjá
bróður sinn en hann hafði alltaf þráð
að eignast systkini. Isak og Natan
voru ekki í nokkrum vafa um að þeir
væru hálfbræður og byrjuðu að leika
sér eins og þeir hefðu þekkst alla ævi
um leið og þeir hittust,“ segir Katrín
sem bætir við að þeir hafi notað
ensku til þess að tjá sig og Isak hafi
lýst því strax yfir að hann ætlaði að
kenna litla bróður sínum allt um líf-
ið.
Erfið kveðjustund bræðranna
Katrín segir kveðjustundina hafa
verið erfiða fyrir bræðurna en Isak
og móðir hans hafi mikinn áhuga á
að koma og heimsækja Natan á Ís-
landi.
,,Natan og Isak eru töluvert líkir í
útliti þrátt fyrir að þeir hafi báðir
verið taldir mjög líkir mæðrum sín-
um. Það kom í ljós að þeir elska báð-
ir stærðfræði og uppáhaldsmaturinn
er sá sami; hamborgarar, ostur,
brauð og kjöt,“ segir Katrín sem
bætir við að þeir bræður hafi báðir
átt að fæðast 26. nóvember. Isak hafi
fæðst viku eftir settan dag en Natan
mánuði fyrir settan dag.
Katrín Þóra, sem er Víðisdóttir,
tók upp ættarnafnið Berndsen þegar
hún gekk með Natan til þess að
þurfa ekki að kalla hann Natan
Katrínar- og Erluson. Erla Björk lét
einnig breyta nafni sínu í Berndsen
og gaf síðar syni sínum, sem nú er
þrettán mánaða, nafnið Marinó
Flóki Berndsen.
Hálfbræður hittast í fyrsta sinn
Mæður fundu þrjú börn frá sama sæðisgjafa sem búa á Íslandi, Danmörku og í Svíþjóð Fundu börn-
in í gegnum gagnagrunn Uppruninn skiptir máli Mæður Natans búa hvor á sinni hæð í sama húsi
Bræður Natan Dagur Berndsen og Isak Ahlgren smullu saman um leið og
þeir hittust í fyrsta sinn í Svíþjóð. Þeir nutu samvistanna hvor við annan.
Gaman Bræðurnir Natan Dagur Berndsen, sonur Katrínar Þóru og Erlu
Berndsen, og Marinó Flóki, sonur Erlu Berndsen, leika sér saman á róló.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum
á fimmtudag að heimila umhverfis-
og skipulagssviði að bjóða út fram-
kvæmdir við áframhaldandi gatna-
gerð í Gufunesi og Esjumelum sem
áætlað er að kosti 550 milljónir
króna á þessu ári. Framkvæmdir í
Gufunesi eru í samræmi við upp-
byggingu þar og til að fylgja eftir
væntanlegri lóðasölu en bygging
íbúða gæti hafist á svæðinu í lok árs
2019. Gert er ráð fyrir allt að 600
íbúðum á framkvæmdasvæðinu. Í
Gufunesi hafa mörg helstu fyrir-
tækin í íslenskum kvikmyndaiðnaði
komið sér fyrir og þar verður m.a.
byggt hagkvæmt húsnæði fyrir
ungt fólk. Gatnagerð á Esjumelum
er vegna stækkunar á iðnaðar- og
athafnasvæði á melunum.
Rúmlega hálfur milljarður í gatnagerð
Minjastofnun Íslands fékk í síðustu
viku umsókn um rannsóknarleyfi á
Stjórnarráðsreitnum frá VG-forn-
leifarannsóknum, sem eru undir-
verktaki hjá Hellum og lögnum ehf.
sem buðu lægst. Sigurður Berg-
steinsson, verkefnastjóri hjá Minja-
stofnun, sagði það geta tekið allt að
fjórar vikur að afgreiða umsóknir.
Kærunefnd útboðsmála kvað upp
úrskurð 17. júlí sl. vegna kæru Forn-
leifastofnunar Íslands ses. vegna út-
boðs Framkvæmdasýslu ríkisins
fyrir hönd forsætisráðuneytisins
vegna fornleifauppgraftar á lóð við
Stjórnarráðshúsið. Fornleifastofnun
krafðist þess að val á tilboði frá
Hellum og lögnum ehf. yrði fellt úr
gildi. Úrskurðarnefndin hafnaði
kröfunni.
Tilboð í verkið voru opnuð 18. des-
ember 2018. Fornleifastofnun Ís-
lands bauð 123,5 milljónir í verkið en
Hellur og lagnir ehf. buðu 115,2
milljónir. Lægra tilboðinu var tekið.
Meðal gagna málsins eru bréf
Minjastofnunar til Framkvæmda-
sýslunnar og forsætisráðuneytisins.
Þar er m.a. dregið í efa að tilboð
Hellna og lagna ehf. uppfylli skilyrði
reglna um veitingu leyfa til fornleifa-
rannsókna sem hafa jarðrask í för
með sér. Samkvæmt tilboðinu verði
fornleifafræðingurinn sem á að
stjórna fornleifarannsókninni undir-
verktaki Hellna og lagna ehf. og lúti
þannig stjórn aðila sem ekki hafi
faglega þekkingu á verkinu. Minja-
stofnun taldi Hellur og lagnir ehf.
ekki uppfylla skilyrði til þess að
stunda fornleifarannsóknir sam-
kvæmt lögum nr. 80/2013 um menn-
ingarminjar og reglum nr. 339/2013.
Stofnunin mælti gegn því að gengið
yrði til samninga við fyrirtækið. Í
bréfinu til forsætisráðuneytisins
kom fram það mat Minjastofnunar
„að einungis sjálfstætt starfandi
fornleifafræðingar, fyrirtæki forn-
leifafræðinga og söfn með starfandi
fornleifafræðingum geti boðið í forn-
leifarannsóknir á Íslandi og annast
þær“.
Varnaraðilar sögðu að þeir hefðu
tekið tillit til reynslu undirverktaka
lægstbjóðanda og að hann hefði upp-
fyllt skilyrði um hæfni og reynslu.
gudni@mbl.is
Útboð vegna Stjórnar-
ráðslóðar stendur
Umsókn um
rannsóknarleyfi
send Minjastofnun
Teikning/Framkvæmdasýsla ríkisins
Stjórnarráðshúsið Myndin sýnir vinningstillögu um viðbygginguna. Gera
þarf fornleifarannsókn á lóðinni áður en nýja húsið verður byggt.