Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019
Klerkarnir sem í raun stýra Ír-an ákváðu í gær að kominn
væri tími til að fylgja eftir kröf-
um sínum sem snúa að kjarn-
orkuvopnasamkomulaginu og
hefna um leið töku Gíbraltar á
írönsku olíuskipi.
Þeir tóku tvö olíuskip á vegumbresks fyrirtækis og skýring-
arnar sem gefnar voru á þeirri
ólöglegu aðgerð voru augljóslega
til málamynda.
Leiðtogar Írans vonast til aðeftirgjöfin og friðþægingin
verði ofan á eins og þegar kjarn-
orkuvopnasamkomulagið var gert
fyrir fjórum árum, þegar þeir
fengu nánast allt fyrir nánast
ekkert.
Óvíst er að þeim verði að ósksinni þó að evrópskir leið-
togar hafi reynt hvað þeir geta
til að halda samkomulaginu á lífi.
Bandaríkin hafa tilkynnt aðþau séu að fara að senda
herlið aftur til Sádi-Arabíu, ekki
mjög stórt að vísu, eftir sextán
ára fjarveru. Sú aðgerð er við-
brögð við vaxandi hættu vegna
brota Írana og þeim ófriði sem
þeir ýta undir í Mið-Austur-
löndum.
Miklu skiptir að önnur ríkistandi nú í lappirnar og
sýni stjórnvöldum í Íran að ekk-
ert ríki getur komist upp með
hegðun á borð við þá sem Íran
hefur sýnt.
Heimurinn verður ekki örugg-ari með því að fara leið frið-
þægingar gagnvart slíkum ógn-
völdum og ofbeldismönnum. Hann
verður hættulegri.
Íranar hafa
gengið of langt
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hafrannsóknastofnun hefur sent frá
sér stutta greinargerð þar sem veiði-
félög og stangveiðimenn eru hvött til
að gæta hófsemi í veiði og sleppa
sem flestum löxum aftur eftir veiði.
Ástæðan er litlar laxagöngur það
sem af er sumri og dræm veiði.
Stofnunin segir þetta mikilvægt
til að hrygningarstofninn í haust
verði eins sterkur og unnt sé. Er
m.a. bent á vefinn angling.is til að
afla sér upplýsinga um hvernig best
sé að stunda veiðar og sleppa laxi.
Nokkrar ástæður fyrir lélegri
veiði eru nefndar. Klakárgangurinn
frá 2015 hafi verið með minnsta móti
í ám á Norður- og Austurlandi, sem
leiddi til þess að gönguseiða-
árgangur 2017 var lítill og skilaði
fremur litlum smálaxagöngum 2018
og svo fáum stórlöxum í ár.
„Á Suður- og Vesturlandi var
klakárgangurinn frá 2015 lítill sem
leiddi til færri gönguseiða sem
gengu út 2018 og þar með færri laxa
nú í sumar. Auk þess hefur verið lít-
ið vatn í ánum í sumar og aðstæður
fyrir uppgöngu laxa og veiði með
versta móti líkt og veiðitölur það
sem af er sumri bera með sér. Enn
er þó von um að smálaxagöngur á
Norður- og Austurlandi eigi eftir að
skila sér að einhverju marki. Heimt-
ur úr sjó hafa almennt farið minnk-
andi við Atlantshaf undanfarin ár
líkt og komið hefur fram í nágranna-
löndunum,“ segir m.a. í greinargerð
Hafrannsóknastofnunar, sem hvetur
veiðimenn til að gæta hófs við veið-
arnar.
Þar segir ennfremur að jákvæðu
fréttirnar séu þær að í kjölfar þess
að í flestum ám sé skylt að sleppa
stórlöxum hafi þeim fjölgað á nýjan
leik. Það hafi skilað aukinni hrygn-
ingu og sterkari seiðaárgöngum síð-
ustu árin sem aftur gefi ákveðna von
um betri tíð á næstu árum.
Laxveiðimenn
hvattir til að sleppa
Hafrannsókna-
stofnun biður veiði-
menn að gæta hófs
Morgunblaðið/Golli
Laxveiði Lítil veiði hefur verið í
sumar og meiri ástæða til að sleppa.
E. coli-bakterían er útbreiddari í
Efstadal II en áður hefur verið sýnt
fram á og er ekki eingöngu bundin
við kálfana, samkvæmt Embætti
landlæknis.
E. coli-sýking hefur verið staðfest
hjá 21 manneskju, þar af eru 19 börn
og tveir fullorðnir. Rannsökuð voru
sýni frá sex einstaklingum í fyrradag
og var enginn með E. coli-sýkingu.
Ekkert barn lá á Barnaspítala
Hringsins í gær af völdum STEC E.
coli. Beðið er eftir greiningu á barni í
Bandaríkjunum.
„Niðurstöður frá þeim tveimur
fullorðnu einstaklingum sem greind-
ust með bakteríuna 17. júlí sýndu að
báðir voru þeir með sömu tegund og
greinst hefur í börnunum og kálfum í
Efstadal. Annar einstaklinganna
starfar í Efstadal og hefur verið ein-
kennalaus. Viðkomandi hefur ekki
starfað við matvælaframleiðslu eða
afgreiðslu matvæla og hefur því ekki
sérstaka tengingu við hina sýktu,“
segir í fréttinni. Hinn er erlendur
ferðamaður sem kom til landsins 5.
júlí. Hann heimsótti Efstadal 8. júlí
og veiktist 11. júlí. Í Efstadal neytti
hann matvæla, þar á meðal íss, en
var ekki í samneyti við dýr. Ekki
tókst því að uppræta smit og smit-
leiðir með aðgerðum sem gripið var
til um og eftir 4. júlí.
Smit í Efstadal ekki bundið við kálfa
Morgunblaðið/Hari
Efstidalur II Saurgerlasmit (E.coli)
hefur verið staðfest í 21 manneskju.
Erlendur ferðamaður sem heimsótti
bæinn 8. júlí smitaðist af E. coli