Morgunblaðið - 20.07.2019, Page 31
Rafvirkjar
Rafvirki ehf óskar eftir rafvirkjum til starfa.
Næg verkefni. Framtíðarvinna. Nýlagnir í
mælingu.
Upplýsingar í síma 6604100 og á netfanginu
rafvirki@vortex.is
Garðyrkjufræðingur
og blómaskreytir
með reynslu óskar eftir starfi
Áhugasamir sendi svar á box@mbl.is
merkt: ,,G - 26541”
Sálfræðing vantar til starfa innan Austurlandslíkansins
sem er ný nálgun við lausn á vanda barna og fjölskyldna.
Austurlandslíkanið er að fyrirmynd Nyborgarmódelsins
og byggir að mörgu leyti á álíka nálgun og innleidd hefur
verið í Herning í Danmörku. Helstu áherslur í verklaginu
eru snemmtæk íhlutun, forvarnir og samvinna í teymi
út í skólum með áherslu á samstarf ólíkra fagstétta
og stofnana. Mikil áhersla er lögð á valdeflingu og
þátttöku einstaklinga við ákvarðanatöku í eigin málum.
Innan teymisins starfa auk sálfræðings, félagsráðgjafar,
þroskaþjálfi og skólahjúkrunarfræðingar. Starfið er
fjölbreytt og skapandi og gefandi að taka þátt í að móta
nýtt vinnulag og nýsköpun í stjórnsýslu.
Sveitarfélögin Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur,
Vopnafjörður, Borgarfjörður eystri, Seyðisfjörður og
Djúpivogur standa saman að Austurlandslíkaninu. Teymið
situr tvo daga í viku í skólum sveitarfélaganna – teymið er
á faraldsfæti þar sem það sinnir sjö grunnskólum sem og
leikskólum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sálfræðingur tekur þátt í þróun nýs verklags innan
barnaverndar og félagsþjónustu í samstarfi við skóla
og heilsugæslu með áherslu á snemmtæka íhlutun og
forvarnir. Hann deilir ábyrgð á því að efla samstarf og
virkni teymisins samhliða því að ryðja niður múrum milli
stofnana og fagsviða.
Leitað er að fagaðila sem getur miðlað þekkingu með
fræðslu, erindum og námskeiðum.
Óskað er eftir reyndum sálfræðingi sem getur starfað
sjálfstætt auk þess að hafa góða samskiptahæfileika og
reynslu af teymisvinnu. Reynsla af hópmeðferð af ýmsu
tagi er kostur auk hugmyndaauðgi og sköpunarkrafts
– að hugsa út fyrir boxið.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Góðir framtíðarmöguleikar á starfsþróun.
Óskað er eftir einstaklingi með;
• Með réttindi til að starfa sem sálfræðingur á íslandi
• Reynslu af almennum sálfræðistörfum og
meðferðarvinnu
• Getu til að tjá sig í ræðu og riti
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sveigjanleika og vilja til að taka þátt í
uppbyggingu og skapandi starfi
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
• Áhuga á að vinna í þverfaglegu starfsumhverfi
Á Fljótsdalshéraði er blómlegt menningarlíf, fjölskylduvænt
umhverfi og góðar aðstæður til útivistar í fallegu umhverfi.
Ráðhús Fljótsdalshéraðs er vinnustaður með góðum
starfsanda og samheldni.
Laus staða sálfræðings
hjá Fjölskyldusviði Fljótsdalshéraðs
Nánari upplýsingar veitir Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri, í síma 470 0700 og á netfangi julias@egilsstadir.is
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast á bæjarskrifstofur Fljótsdalshéraðs, Lynghálsi 12, 700 Egilsstöðum
fyrir 9. ágúst 2019. Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmaður í
upplýsingatækniteymi
Capacent — leiðir til árangurs
Lánasjóður íslenskra
námsmanna er félagslegur
jöfnunarsjóður sem hefur
það að markmiði að tryggja
námsmönnum í lánshæfu námi
jöfn tækifæri til náms án tillits
til efnahags.
Hjá LÍN starfa rúmlega 30
starfsmenn. Gildi þeirra eru
fagmennska, samstarf og
framsækni.
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/14182
Menntun, hæfni og reynsla:
Verkfræði, tölvunarfræði eða önnur sambærileg menntun
sem nýtist í starfi.
Þekking og reynsla af SQL fyrirspurnarmáli er skilyrði.
Reynsla af verkefnastjórnun og innleiðingu nýrra
upplýsingatæknikerfa er kostur.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góð samskiptafærni, samstarfsvilji og álagsþol.
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
Umsóknarfrestur
15. ágúst 2019
Starfssvið:
Úrlausn verkbeiðna hjá upplýsingatæknideild.
Úrvinnsla á gögnum í SQL ofl.
Þátttaka í rekstri þróunar- og prófunarumhverfis.
Prófanir á nýjum lausnum og samskipti við ytri forritara.
Lánasjóður íslenskra námsmanna óskar eftir að ráða starfsmann í upplýsingatækniteymi hjá LÍN.
Um er að ræða framtíðarstarf. Verkefnin eru fjölbreytt og getur nýr starfsmaður haft áhrif á þróun starfs síns.
Baadermaður óskast
!" #$%&
msókr sedst eað
rs
' (() "
* +,$ -$%,
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391