Morgunblaðið - 20.07.2019, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019
40 ára Sólrún ólst upp
í Breiðholti og býr á
Sléttuvegi í Reykjavík.
Hún kláraði stúdents-
próf frá Mennta-
skólanum við Hamra-
hlíð árið 2002 og lærði
táknmálsfræði í tvö ár
við Háskóla Íslands.
Börn: Melkorka, f. 10. nóvember 2009,
og Mikael Óli, f. 29. desember 2016.
Foreldrar: Herdís Guðbjartsdóttir, f.
1957, leikskólakennari og vinnur hjá
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, og
Snæbjörn Sigurðsson, f. 1954, bóndi í
Efsta-Dal II í Bláskógabyggð.
Sólrún Birna
Snæbjörnsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu á varðbergi því óvænt tíð-
indi berast og slá þig út af laginu. Festu
alla lausa enda.
20. apríl - 20. maí
Naut Öll mál eiga sér fleiri en eina hlið.
Treystu því að allt fari vel að lokum.
Einhverjar tafir verða á framkvæmdum
heima.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú leggur ætíð hart að þér, en
passaðu að fara ekki yfir strikið. Þú
gætir farið óvænt í stutta utanlands-
ferð.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vitirðu ekki í hvorn fótinn þú átt
að stíga skaltu fara eftir því sem hjart-
að segir þér því það skrökvar aldrei.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú hefur ekki í langan tíma gef-
ið þér tóm til lestrar þá er rétti tíminn
að renna upp. Reyndu að gefa börn-
unum meiri tíma og sýndu vænt-
umþykju gömlum ættingjum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sparsemi er dyggð en níska ekki.
Aginn sem þú beitir á einu sviði lífs þíns
á eftir að smita út frá sér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú vinnur þér inn punkta með því
að neita að taka þátt í atburði sem þér
hugnast ekki. Leggðu þig fram og þá
nærðu tilskildum árangri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er upplagt að lyfta sér
aðeins upp eftir erfiði dagsins, en
mundu samt að ganga hægt um gleð-
innar dyr. Einbeittu þér að því að leggja
inn á bankareikning tilfinninganna hjá
öðrum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér býðst einstakt tækifæri
til að nota lítt notaða hæfni þína. Trúin
flytur fjöll. Taktu þér frí af og til frá
áhyggjum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er erfitt að ná athygli
annarra. Þér fer vel að stjórna, ættir í
raun að gera meira af því.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér tekst ekki fremur en öðr-
um að stöðva tímann. Hversdagslegir
hlutir geta þróast í óvenjulegar áttir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki bíða eftir því að hlutirnir
gerist. Reyndu að gera ferðaáætlanir
fyrir komandi mánuði. Þú verður alltaf
að hafa eitthvað til að hlakka til.
og telur þéttingu byggðar og aukna
áherslu á vistvæna ferðamáta nauð-
synlega og jákvæða. Hún var því í
hópi þeirra borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins sem unnu að og
studdu Aðalskipulag Reykjavíkur
sem miklar deilur risu um innan
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ás-
laug tók þátt í leiðtogaprófkjöri
flokksins í Reykjavík í byrjun árs
2018. Áslaug hvarf aftur til starfa
sinna sem sérfræðingur hjá Sjá ehf.
á síðasta ári og sinnir ráðgjöf til fyr-
irtækja, aðstoðar við stefnumótun,
þarfagreiningu og tekur að sér verk-
efnastjórn.
Á fimmtugsafmælinu ætlar Ás-
laug að vera í Hnífsdal þar sem hún í
félagi við systur sínar og vini á gam-
alt hús. „Undanfarin ár hef ég farið í
sumarfrí til að vinna í húsinu og það
verður eins núna. Hér dvelur nú
góður hópur úr fjölskyldunni og
vinahópi ásamt fríðu föruneyti. Ég
mun gefa þeim eitthvað betra með
stæðiskvenna, setið í miðstjórn og
gegnt formennsku í bæði velferðar-
og allsherjar- og menntamálanefnd.
Áslaug er áhugamaður um borgar-
þróun og uppbyggingu almennings-
samgöngukerfis eins og borgarlínu
Á
slaug María Friðriks-
dóttir fæddist 20. júlí
1969 í Reykjavík og ólst
þar upp. Fjölskyldan
bjó fyrst á Lynghaga
en svo Öldugötu þar sem hún hóf
skólagöngu sína í gamla Vestur-
bæjarskólanum. Síðar flutti fjöl-
skyldan í Smáíbúðahverfið og Ás-
laug kláraði grunnskólanám í
Breiðagerðisskóla og Réttarholts-
skóla. Á sumrin dvaldi Áslaug mikið
hjá afa sínum Jóakim Pálssyni, skip-
stjóra í Hnífsdal. Þar vann hún
ásamt fjörugum hópi á sumrin í fiski
frá 14 ára aldri fram á tvítugsaldur.
Áslaug stundaði nám við Mennta-
skólann við Sund og útskrifaðist
þaðan af náttúrufræðibraut 1989.
Hugmyndin var svo að taka eitt ár í
sálfræði við Háskóla Íslands áður en
lögfræðinám hæfist en sálfræðin
reyndist of spennandi til að hætta
því námi. Áslaug lauk BA-gráðu í
sálfræði frá Háskóla Íslands 1992. Í
framhaldi af því ákvað hún að flytja
til Hertfordshire í Englandi og lauk
þar MSc. í vinnusálfræði frá The
University of Hertfordshire í Eng-
landi 1995.
Á námsárunum í Englandi var
ýmislegt brallað og meðal annars
unnið að þróun rafrænna verkefna
sem þá þóttu miklar nýjungar.
Þannig varð fyrsta sprotaverkefnið
sem Áslaug tók þátt í. Eftir að heim
kom starfaði Áslaug í félagsmála-
ráðuneytinu sem deildarsérfræð-
ingur frá 1996-2000. Þá ákvað hún að
hefja nám í tölvunarfræði við Há-
skólann í Reykjavík, lauk ekki því
námi en hóf þess í stað störf á Ís-
lensku vefstofunni sem verkefna-
stjóri í upplýsingatækniverkefnum.
Árið 2001 stofnaði Áslaug ásamt vin-
konum sínum fyrirtækið Sjá við-
mótsprófanir og var framkvæmda-
stjóri þar til ársins 2014 en þá var
pólitíkin orðin of fyrirferðarmikil.
Áslaug var varaborgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá
árinu 2006 og frá 2012-2018 borgar-
fulltrúi. Áslaug var einnig varaþing-
maður flokksins á árunum 2013-
2017. Hún hefur gegnt fjölda trún-
aðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
verið formaður Hvatar, félags sjálf-
kaffinu á afmælisdaginn. Síðar í
sumar ætla ég að halda upp á afmæl-
ið með æskuvinum þar sem meira en
helmingur þeirra er einmitt fimm-
tugur á þessu ári. Að þessu sinni
ætlum við í hjólaferð til Ítalíu.
Fjölskylda
Foreldrar Áslaugar eru fyrrver-
andi hjónin Helga Jóakimsdóttir,
13.12. 1940, hárgreiðslumeistari og
síðar Alexandertæknikennari í
Reykjavík, Helga hefur veitt Zen á
Íslandi forstöðu, og Friðrik Klemenz
Sophusson, f. 18.10. 1943, fyrrver-
andi alþingismaður, ráðherra og for-
stjóri í Reykjavík. Seinni kona Frið-
riks er Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, f. 13.8. 1952, rithöfundur og
prófessor í mannfræði við Háskóla
Íslands.
Börn Áslaugar eru 1) Jóhanna
Þórkatla Eiríksdóttir, starfsmaður á
Ási vinnustofu, f. 8. ágúst 1992, faðir
hennar er Eiríkur Benónýsson, f.
Áslaug María Friðriksdóttir, sérfræðingur hjá Sjá – 50 ára
Fólkið í Brekkuhúsinu í Hnífsdal nú í júlí Efri röð frá vinstri: Orri Finnbogason mágur, Gabríela Friðriksdóttir
systir, Helga Guðrún Friðriksdóttir systir, Sigríður Fransiska Friðriksdóttir systir, Oddur Atlason, Nanna Bríet
Atladóttir. Neðri röð frá vinstri: Hjálmar Friðrik Hjálmarsson sonur, Hrafntýr Klemenz systursonur, Una Guðný
Natsuki, barnabarn Gabríelu, Áslaug María, Atli Geir Grétarsson, kærasti Áslaugar, og Helga Jóakimsdóttir móðir.
Dvelur í Hnífsdal í sumarfríinu
Afmælisbarnið Áslaug.
30 ára Anna Björg er
úr Bústaðahverfinu í
Reykjavík og býr á
Digranesvegi í Kópa-
vogi. Hún er lögfræð-
ingur frá Háskólanum
í Reykjavik og er með
lögmannsréttindi. Hún
er fulltrúi hjá BBA Legal.
Maki: Hlynur Ólafsson, f. 1988, lögmað-
ur hjá Logos.
Bróðir: Bjarni Geir Guðjónsson, f. 1993,
nemi í lögreglufræðum.
Foreldrar: Guðjón Hilmarsson, f. 1956,
húsasmíðameistari, og S. Ingibjörg Jós-
efsdóttir, f. 1959, skólastjóri í Hagaskóla.
Anna Björg
Guðjónsdóttir
Til hamingju með daginn
Ljótarstaðir Tinna Lind
Pálmarsdóttir fæddist 18.
september 2018 kl. 7.10.
Hún vó 3.088 g og var 48
cm löng. Foreldrar hennar
eru María Ösp og Pálmar
Atli.
Nýr borgari
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
DVERGARNIR R
Frábær hönnun, styrkur
og léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoðið nýjuheimasíðuna
islandshus.is