Morgunblaðið - 20.07.2019, Qupperneq 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Við erum fyrst og fremst á þjóð-
legum nótum,“ segir Benedikt Ing-
ólfsson, einn meðlima Schola can-
torum, um stofutónleika kórsins á
Gljúfrasteini á morgun, sunnudag-
inn 21. júlí, kl. 16. „Við munum
syngja íslensk þjóðlög og svo syngj-
um við lög þar sem skáldið sjálft,
Halldór Laxness, kemur við sögu.
Við syngjum að minnsta kosti tvö
lög við ljóð hans.“ Auk þess verða á
efnisskrá tónleikanna dróttkvæði
miðalda og veraldlegur kveðskapur
af ýmsu tagi. „Við munum syngja
frægar útsetningar á þjóðlögum,
annars vegar eftir Hafliða Hall-
grímsson og hins vegar Hjálmar H.
Ragnarsson, svo það verður frekar
þjóðlegur og nokkuð forn andi,“
segir Benedikt.
Ólíkt því að syngja í kirkju
Schola cantorum hefur haldið há-
degistónleika í Hallgrímskirkju alla
miðvikudaga í sumar og mun halda
því áfram út ágúst. Tónleikarnir á
Gljúfrasteini segir Benedikt að
verði ólíkir hádegistónleikunum að
því leyti að þar muni kórinn ekki
syngja neina kirkjutónlist. „Þegar
við syngjum hádegistónleika í Hall-
grímskirkju fléttum við evrópskri
kirkjutónlist frá ýmsum tímabilum
inn í dagskrána enda passar það vel
við hljómburð kirkjunnar. Á
Gljúfrasteini er auðvitað miklu
smærra rými og þess vegna verðum
við bæði aðeins færri en venjulega
og höldum okkur frá tónsmíðum
sem krefjast ríkari hljómburðar.
Þannig að það verður aðeins öðru-
vísi stemning á tónleikunum á
Gljúfrasteini,“ segir Benedikt og
bætir við að kórinn fari ósjálfrátt í
sveitarómantískan gír þegar komið
er út fyrir borgarmörkin. „Þegar
við komumst aðeins út fyrir 101,
póstnúmer Hallgrímskirkju, skilj-
um við eftir hugleiðslukennd og
fjölradda endurreisnarverk.“
Stofutónar í allt sumar
Benedikt segir kórinn fagna því
að hafa verið boðið að taka þátt í
stofutónleikaröðinni á Gljúfrasteini.
„Gaman að fá að syngja á þessari
skemmtilegu sumartónleikaröð sem
Gljúfrasteinn hefur haldið úti,“ seg-
ir hann.
Stofutónleikar Gljúfrasteins hafa
verið haldnir hvern sunnudag frá
júní og verða áfram út ágúst. Þeir
hefjast ávallt kl. 16. Miðasala fer
fram í safnbúð Gljúfrasteins sam-
dægurs og kosta miðarnir 2.500 kr.
Þess má þó geta að ókeypis að-
gangur er fyrir börn á leik-
skólaaldri.
Afar fjölbreytt dagskrá er á sum-
artónleikunum á Gljúfrasteini.
Næst í röðinni á eftir Schola can-
torum eru barítónsöngvarinn
Jóhann Kristinsson og píanóleik-
arinn Ammiel Bushakevit með
ljóðatónleika sunnudaginn 28. júlí.
Um verslunarmannahelgina mun
svo hljómsveitin Moses Hightower
fylla stofuna á Gljúfrasteini af ljúf-
um tónum.
Breytingar „Á Gljúfrasteini er auðvitað miklu smærra rými og þess vegna verðum við bæði aðeins færri en venju-
lega og höldum okkur frá stórum kirkjuverkum sem krefjast hljómburðar,“ segir Benedikt um stofutónleikana.
Þjóðlegur andi í húsi skáldsins
Schola cantorum kemur fram á stofutónleikum á Gljúfrasteini á morgun Íslensk þjóðlög og lög
við ljóð Halldórs Laxness á efnisskrá Meiri sveitarómantík þegar komið er út fyrir borgarmörkin
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk
» Hátíðin Comic-ConInternational stend-
ur nú sem hæst í San
Diego í Bandaríkjunum.
Markmið hátíðarinnar
er að vekja athygli á
teiknimyndum í öllum
sínum formum og fram-
lagi þeirra til menning-
arinnar. Fjöldi þátttak-
enda mætti uppábúinn
sem uppáhaldsteikni-
myndapersóna sín.
Teiknimyndahátíðin Comic-Con International í San Diego
Vinsæl Madge Simpson úr Simpson-fjölskyldunni var vinsæl þetta árið. Barn Deadpool vakti ekki lukku.
AFP
Heillandi Flaugar og vélmenni úr Star Wars mynda afbragðs gervi.
Ósigrandi Captain Marvel. Vinalegir Captain America og Groot eru persónur úr heimi Marvel.