Morgunblaðið - 09.08.2019, Page 1
AÐ HAFA NÓG AÐ
GERA ER LYKILL
AÐ LANGLÍFI
GRÁTLEGAR
SKEMMDIR Á
LANDINU
STÝRIR MIÐ-
STÖÐ LISTA-
MANNA Í RÓM
BJÖRGUNARSTARF 24-26 INGÓLFUR NÍELS ÁRNASON 66ALDARGÖMUL Í DAG 64
F Ö S T U D A G U R 9. Á G Ú S T 2 0 1 9
Stofnað 1913 185. tölublað 107. árgangur
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Eignir íslenskra lífeyrissjóða jukust
um 91 milljarð króna í júnímánuði og
stóðu heildareignir þeirra af þeim
sökum í 4.700 milljörðum króna í lok
mánaðarins. Þetta kemur fram í nýj-
um tölum frá Seðlabanka Íslands.
Það sem af er þessu ári hafa eignir
sjóðanna aukist um 570 milljarða
króna. Jafngildir það því að eignir
sjóðanna hafi vaxið um ríflega 3,1
milljarð króna hvern einasta dag
ársins. Erlendar eignir sjóðanna
hafa vaxið mjög mikið á tímabilinu.
Þannig stóðu þær í 1.057 milljörðum
um áramót en voru komnar í 1.349
milljarða í lok júní. Jafngildir það
27,6% aukningu. Sjóðirnir hafa lagt
áherslu á að auka hlutfall erlendra
eigna í söfnum sínum. Á sama tíma
hafa innlendar eignir sjóðanna vaxið
um rúm 9%.
Lágir vextir þrýsta
eignum upp
Gylfi Magnússon, dósent við Há-
skóla Íslands, bendir á að eigna-
markaðir erlendis hafi verið sterkir
undanfarna mánuði, ekki síst á
fyrstu mánuðum ársins.
„Það má segja að allt hafi fallið
með lífeyrissjóðunum á árinu, þó
sérstaklega erlendu hlutabréfin,“
segir dr. Gylfi Magnússon, dósent
við Háskóla Íslands, þegar tölurnar
eru bornar undir hann. „Þau hafa
verið mjög góð. Vextir hafa þokast
niður á við, seðlabankavöxtum er
haldið lágum, markaðsvextir hafa
haldist lágir og það ýtir alla jafna
undir eignaverð.“
Gylfi segir að þessi þróun sé að
nokkru marki jákvæð en ef vextir
þokist að nýju upp á við gæti það aft-
ur þrýst eignaverði niður á við.
„Þetta þarf allt að skoða í sam-
hengi. Vextir hér heima hafa einnig
lækkað. Eignaverð hefur þokast upp
á við og sjóðfélagalánin eru á mjög
hagstæðum kjörum. Það er mjög já-
kvætt fyrir lántakendur en það eru
kannski ekki eins góð tíðindi fyrir þá
sem nú eru við það að hefja töku líf-
eyris,“ segir Gylfi.
Bendir hann á að sjóðirnir eigi nú
erfitt með að kaupa örugg skulda-
bréf þar sem raunávöxtun er hærri
en 1%.
„Það er allt önnur staða en var hér
á árum áður þegar hægt var að ná
5-6% ávöxtun. Þetta felur í sér mikla
áskorun fyrir sjóðina.“
Vaxið um 570 milljarða
Eignir íslenskra lífeyrissjóða hafa aukist gríðarlega á fyrstu sex mánuðum ársins
Gengisáhrif hverfandi Lækkandi vextir þrýsta upp eignaverði heima og erlendis
Utan alfaraleiðar, ofan við skóg-
ræktina í Esjuhlíðum, má sjá rauð
ber sem líta út eins og villt jarð-
arber. Ofar í hlíðinni má finna slík
ber í snarbröttum skriðum innan
um hávaxnari gróður.
Jóhann Pálsson grasafræðingur
staðfestir að þetta séu jarðarber, en
segir þau af annarri tegund en nú
sé keypt í búðum eða ræktuð hér í
görðum. Þessi ber hafi verið hér frá
landnámsöld. »22
Morgunblaðið/Baldur
Jarðarber Berin eru girnileg á að líta.
Villt jarðarber
vaxa í Esjuhlíðum
Ef tengja á erlend skemmti-
ferðaskip í Sundahöfn í Reykjavík
við íslenska raforkukerfið þarf að
setja upp búnað sem kostar millj-
arða króna. Þá er landtenging talin
mun dýrari fyrir skipin en fram-
leiðsla raforku um borð í þeim með
jarðefnaeldsneyti.
Þetta er meðal niðurstaðna
skýrslu sem verkfræðistofan Efla
vann fyrir Veitur, dótturfélag Orku-
veitu Reykjavíkur.
Markmið stjórnvalda er að draga
úr mengun með því að tengja skip
við raforkukerfi landsins. Allt að
7.000 manns eru um borð í stærstu
skipunum og raforkuþörfin því gríð-
armikil. Slík framkvæmd er hins
vegar dýr og mun hafa aukinn
kostnað í för með sér. »20
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Milljarða
kostar að
tengja skip
Ómótstæðilegur svipur litbrigða jarðar blasir
við þegar flogið er í síðsumarblíðu yfir dalverpi,
tjarnir og vötn á Suðurlandi. Við Árbæjar-
hjáleigu í Holtum í Rangárvallasýslu liggja Vest-
aravatn og Miðvatn og er það fyrrnefnda nú nán-
ast uppþornað, eins og stundum gerist í
langvarandi þurrkatíð eins og verið hefur að
undanförnu. Fari að rigna verður vatnið þó fljótt
að fyllast aftur, segja bændur á svæðinu. Veður-
spáin fyrir næstu daga á Suðurlandi boðar sól og
blíðu, en á Norðurlandi og Vestfjörðum má gera
ráð fyrir rigningu.
Morgunblaðið/RAX
Vestaravatn að hverfa eftir langvarandi þurrk
Winner
þriggja sæta sófi
50% AFSLÁTTUR
VERÐ ÁÐUR 199.900
MEÐ 50% AFSLÆTTI 99.950
Sófar.......... 20-60%
Heilsurúm... 20-40%
Gjafavara.... 20%
Handklæði.. 20-70%
20-70% AFSLÁTTUR