Morgunblaðið - 09.08.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.08.2019, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Utan alfaraleiðar, ofan við skóg- ræktina í Esjuhlíðum, má sjá rauð ber sem líta út eins og villt jarðar- ber. Ofar í hlíðinni má finna slík ber í snarbröttum skriðum innan um há- vaxnari gróður. Jóhann Pálsson grasafræðingur skoðaði nokkur berjanna í öskju og sagði þau jarðarber. „Þetta eru bikarblöðin af blóminu og berið sjálft er raunverulega blómbotninn sem svellur upp og þessi litlu korn eru aldinin,“ sagði Jóhann til skýringar. Slík ber hefðu verið á Íslandi við landnám. „Útbreiðslan var um allt land. Svo hverfa þau mikið til þegar skógarnir hurfu og farið var að þaulbeita landið, að ég tali nú ekki um með uppblæstri. Þau hafa hins vegar haldist víða við, til dæmis hérna í Gufuneshöfðanum og á Ártúns- höfðanum, sem er að vísu búið að sprengja megnið af. Þar voru berin milli kletta, þar sem búpeningur komst ekki almennilega að plöntun- um, og uppi um heiðar í harðasta grjótinu. Svo hafa jarðarber verið að breiðast út eftir að beit lagðist af. Þau breiðast út bæði með renglum ofanjarðar og svo eru fuglarnir óðir í berin og bera þau mikið inn í lúp- ínubreiður. Þetta er í eðli sínu skógarplanta sem kann vel við sig í sambýli við lúpínuna.“ Búið að breyta með kynbótum – Það er því ekkert einsdæmi að finna jarðarber á Íslandi? „Nei, nei. Þetta er önnur tegund en við kaupum í búðum eða ræktum í görðum. Það er tegund sem varð til sem bastarður af tveimur amerískum tegundum með miklu stærri ber og síðan er búið að breyta þessu með kynbótum. Þessi ræktuðu jarðarber verða til á 19. öldinni.“ – Hjálpar hlýnunin útbreiðslu jarðarberja? „Nei, friðunin hefur gert miklu meira. Það er greinilegt að það fer að bera miklu meira á þeim eftir að friðunin kemur. Því þau þoldu ekki beit. Hún er orðin sáralítil miðað við það sem var. Flest féð var hér á landi í kringum 1975, eða þar um bil. Allt höfuðborgarsvæðið var sérstaklega ásetið. Hér voru stórjarðir með margt búfé og fjöldi frístundabænda sem áttu fé í kofum í útjaðri Reykja- víkur, við Elliðaárnar og víðar,“ segir Jóhann sem ræddi við blaða- mann á heimili sínu í Grafarvogi. „Öllu þessu var beitt á höfuðborg- arsvæðið. Svo héldu þessu engar girðingar. Féð hoppaði, eða skreið, yfir hvaða girðingu sem var. Þetta var rosaleg plága. En greyin voru í hálfgerðu svelti. Allt sem það komst í var nagað niður. Svo var uppblást- urinn alveg gífurlegur en nú er allt þetta land að gróa.“ Jarðvegurinn mjög frjór „Íslenskur jarðvegur hefur öll efni til að vera mjög frjór en svo er búið að fara svona illa með hann. Menn urðu náttúrlega að nota skóg- inn. Bæði í eldivið og til húsbygg- inga. Menn hjuggu fyrst beinu og fínustu trén og svo annað sem var nauðsynlegt til að gera viðarkol. Það var ekki unnt að gera járn eða vinna úr því nema að hafa viðarkol. Það var ekki einu sinni hægt að dengja ljáinn fyrr en skosku ljáirnir komu í byrjun 20. aldar. Þessi kolagerð fór gífurlega illa með skógana. Um leið og búið var að höggva skógana var beitt meðan landið var frjótt. Fyrst var þetta nautpeningur og menn höfðu nóg af kálfskinni í handritin en svo þegar jarðveginum fór að hraka tók sauðféð við og svo kom uppblást- urinn. Þetta fór skelfilega með land- ið.“ Bylting í skógrækt „Svo héldu menn – maður lærði þetta í menntaskóla eftir fyrstu vís- indamönnum – að Ísland væri svo ófrjótt vegna þess að hér væri svo kalt og engin efnaveðrun. En þessir menn höfðu lært í löndum þar sem var fornt berg, sem veðrast seint, og þarf hita til að veðrast. Hér er hins vegar eldfjallajarðvegur og alls stað- ar þar sem hann er eru frjósömustu lönd í heimi. Hann veðrast svo auð- veldlega. Þegar land sem hefur verið friðað nær að gróa upp getur það endurheimt sína fornu frjósemi og borið stórvaxna skóga. Þegar ég var að byrja að dutla við trjárækt sem unglingur var mér allt- af sagt að það þýddi ekkert að rækta tré í Reykjavík, það væri margbúið að reyna það og það gengi ekki. Það var bent á Rauðavatnsstöðina, sem var ein fyrsta tilraunin, en þá voru menn með efnivið sem passaði alls ekkert og það eina sem þreifst þar var fjallafura, sem er runni í sjálfu sér. Það var mikið bent á hana og birkið í Hljómskálagarðinum. Þaðan kom þessi góða saga, hvað á maður að gera ef maður villist í skóginum á Íslandi? Standa upp.“ Skyldu þau verða tíu metrar? „Ég er 88 ára og ég byrjaði 15 ára. Hún er alveg ótrúleg breytingin sem er orðin. Árið 1950 kom út bók eftir Ingólf Davíðsson og Ingimar Ósk- arsson, Garðagróður, en þar birtust mælingar á öllum hæstu trjám á landinu. Þá var hæsta tréð í Reykja- vík tæpir 9 metrar, var 8,7 metrar minnir mig, en þá voru 10 metra tré á Akureyri og á Hallormsstað. Ég var að spá, skyldu einhvern tímann verða 10 metra tré í Reykjavík? Nú eru þau komin yfir 25 metra og mað- ur farinn að bíða eftir 30 metrunum. Fólk hafði ósköp litla trú á þessu. Ég er alinn upp í sumarbústað hér við Keldur. Svo vann ég á búinu á Keldum, tvö sumur, sem strákur, frá 12 ára til 14 ára. Maður sótti kýrnar hingað og hestana, svo lék maður sér við krakkana í bústöðunum og synti í voginum sem var þá hreinn. Það var óskaplega gaman hér og maður lifði alveg fyrir þennan stað,“ segir Jó- hann Pálsson. Jarðarberin breiðast út á ný  Rautt lyng af jarðarberjum undir Esjuhlíðum  Berin eru smá en safarík  Njóta skjóls af lúpínu  Jóhann Pálsson grasafræðingur segir berin njóta friðunar frá beit  Þau hafi verið hér frá landnámi Jóhann lærði leiklist hjá Lárusi Pálssyni, einum af frum- herjum leiklistar á Íslandi. „Ég lærði hjá Lárusi en hann var leikstjóri þegar ég var að leika. En ekki mjög mikið. Hann var orðinn mjög heilsulítill. Hann var geysilega gáfaður maður, hafði lesið mikið og það var óskaplega gaman að hlusta á hann. Það var mjög erfitt að fá al- mennileg hlutverk. Þannig að ég fór að hugsa málin. Ég kunni ekki neitt. Ég var lesblindur og hafði dottið út úr skóla. Lesblindan var þá ekki þekkt. Ég var orðinn 36 ára og datt í hug að fara í loftskeytaskólann,“ segir Jó- hann sem lauk því námi og las svo MR utanskóla, fyrir utan sjötta bekk, sem var fátítt, og lauk þaðan fyrstu einkunn af stærðfræðibraut. Jóhann var síðan að ljúka doktorsnámi í grasafræði við Háskólann í Uppsölum þegar honum bauðst að verða garðyrkjustjóri í Reykjavík. Meðal verkefna hans var að stækka grasagarðinn og græða Laugardalinn upp. Lærði hjá Lárusi Pálssyni JÓHANN ÆTLAÐI AÐ VERÐA LEIKARI Lárus Pálsson Í hlíðinni Berin komin í öskju. Morgunblaðið/Baldur Í sól Berin voru í miklum halla.Grasafræðingur Jóhann Pálsson heldur sér vel en hann nálgast nírætt. LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Er ferðavagninn rafmagnslaus? TUDOR TUDOR Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu örugg t start með TUDO R Frístunda rafgeymar í miklu úrvali, AGM þurr rafgeymar eða lokaðir sýrurafgeymar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.