Morgunblaðið - 09.08.2019, Blaðsíða 63
ÍÞRÓTTIR 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Rykið er að setjast eftir mold-
viðrið á leikmannamarkaðnum í
enska fótboltanum en í gær rann
út sá tími sem liðin í tveimur
efstu deildunum höfðu til að
kaupa sér nýja leikmenn fyrir
komandi tímabil.
Stjórar ensku liðanna hafa
undanfarin ár verið óhressir með
að hægt væri að kaupa og selja
leikmenn til 1. september og þeir
fengu í gegn þá breytingu að
núna var markaðnum lokað í gær
klukkan 17 að staðartíma. Sólar-
hring fyrir fyrsta leik í úrvals-
deildinni.
Þar með geta stjórarnir ein-
beitt sér að því sem skiptir máli,
leikjunum og fótboltanum, en
ekki verið með stöðugar áhyggj-
ur af leikmannamálum og mögu-
legum kaupum og sölum fyrstu
vikur tímabilsins.
Ég hef heyrt á stuðnings-
mönnum Liverpool að þeir séu
uggandi yfir því hve rólegir
þeirra menn séu og að þeir séu
ekki búnir að kaupa neina menn í
sumar til að reyna að ná meist-
aratitlinum úr höndum Man-
chester City.
Tveir 17 ára strákar og einn
varamarkvörður er það eina sem
Jürgen Klopp hefur bætt við sinn
hóp.
En ég er hrifinn af svörum
Þjóðverjans þegar hann er
spurður út í þessi rólegheit í inn-
kaupum. Hvers vegna hann kaupi
ekki þennan og hinn sem gæti
styrkt liðið?
Klopp telur sig einfaldlega
vera með þann hóp sem til þarf.
Hann verði ekki gerður betri með
nýjum leikmönnum, heldur með
því að gera leikmennina sem
þegar eru til staðar enn betri. Ég
held að umhverfið í fótboltanum
væri heilbrigðara ef fleiri nálg-
uðust verkefnið á þennan hátt.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
ENGLAND
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Liðin sem léku til úrslita í Meist-
aradeild Evrópu, liðin sem léku til úr-
slita í Evrópudeildinni, og liðin tvö
sem háðu ævintýralegt kapphlaup
um enska meistaratitilinn, verða öll í
eldlínunni þegar enska úrvalsdeildin
hefst með látum nú um helgina. Evr-
ópumeistarar Liverpool og nýliðar
Norwich ríða á vaðið á Anfield í kvöld,
Englandsmeistarar Manchester City
sækja West Ham heim í hádeginu á
morgun og á sunnudag mætast Man-
chester United og Chelsea á Old
Trafford, svo nokkrir leikir séu
nefndir.
Ekki er annað að sjá en að Man-
chester City sé áfram líklegast til
þess að vinna Englandsmeistaratit-
ilinn. Liðið myndi þá fagna titlinum
þriðja árið í röð næsta vor en það hef-
ur ekkert lið gert síðan að Man. Utd.
vann árin 2007-2009. Raunar hafði
ekkert lið varið titil síðan þá þar til að
City endaði stigi fyrir ofan Liverpool
síðasta vor.
Pep Guardiola gerði skiljanlega
ekki miklar breytingar á sínu liði í
sumar en þó varð spænski miðjumað-
urinn Rodri dýrasti leikmaður í sögu
City þegar hann kom frá Atlético Ma-
drid og hægri bakvörðurinn Joao
Cancelo kom frá Juventus í stað Da-
nilo. Stærsta skarðið fyrir City að
fylla varð til þegar fyrirliðinn Vincent
Kompany kvaddi en Guardiola fékk
ekki miðvörð í hans stað, sem gæti
skapað vandamál þó að Belginn hafi
ekki spilað nema 17 deildarleiki síð-
asta vetur. Lengi vel virtist útlit fyrir
að Leroy Sané yrði seldur til Bayern
München en nú er ljóst að þótt hann
sé enn í Manchester nýtur hans ekki
við vegna krossbandsslita. Sané var
ekki í uppáhaldsbyrjunarliði Guar-
diola en skoraði 10 mörk og lagði upp
önnur 10 í deildinni síðasta vetur.
Nánast engar breytingar eru hjá
Evrópumeisturum Liverpool sem
ætla sér að binda endi á þriggja ára-
tuga bið eftir Englandsmeistaratitli. Í
meðalári hefði frammistaðan síðasta
vetur svo sannarlega dugað til þess.
Félagið hélt öllum sínum byrj-
unarliðsmönnum og ætlar sér að
halda áfram uppgangi síðustu ára.
Það eina sem mér dettur í hug að
gæti truflað þær tilraunir er ef langt
og strangt síðasta tímabil, auk þátt-
töku í Afríkumótinu í sumar, gæti
haft sín áhrif á lykilmennina Moha-
med Salah og Sadio Mané. Liðið
slapp mjög vel við skakkaföll síðasta
vetur, öfugt við City sem er hins veg-
ar með stærri hóp nógu framúrskar-
andi leikmanna til að velja úr.
Tottenham gerir einnig tilkall
Tottenham, Arsenal, Chelsea og
Manchester United hafa öll leik-
mannahópa til þess að berjast um
Meistaradeildarsætin svokölluðu,
fjögur efstu sætin. Tottenham er lík-
legast þeirra til að taka þátt í titilbar-
áttunni, enda lítið misst en fengið
miðjumennina Giovani Lo Celso og
Tanguy Ndombele, sem kom fyrir
metfé í sögu félagsins, og bakvörðinn
Ryan Sessegnon frá Fulham. Mauri-
cio Pochettino virðist reyndar mjög
óhress með það hvernig leikmanna-
kaup Tottenham hafa verið síðustu
misseri, eða hve litlu hefur verið varið
til þeirra, og ljóst að hann myndi ekki
kætast neitt frekar við að missa
Christian Eriksen til Spánar eins og
enn gæti gerst.
Forvitnilegt verður að sjá hvernig
Frank Lampard tekst til á sínum
gamla vinnustað sem knatt-
spyrnustjóri Chelsea. Chelsea má
ekki kaupa leikmenn fyrr en næsta
sumar eftir að FIFA setti félagið í
bann fyrir brot á reglum um kaup á
ungum leikmönnum. Þó bætist nýr
leikmaður í hópinn því bandaríski
kantmaðurinn Christian Pulisic er
mættur frá Dortmund eftir að hafa
verið keyptur þaðan í janúar en verið
að láni hjá þýska félaginu seinni hluta
leiktíðar. Pulisic er aðeins tvítugur en
þegar orðinn fínn leikmaður, en hann
fyllir ekki skarðið stóra sem Eden
Hazard skilur eftir sig.
Arsenal nýtti sumargluggann vel
og þar ber hæst koma Nicolas Pépé
sem bætir enn frekar við frábæra
sóknarlínu liðsins. Spænski miðju-
maðurinn Dani Ceballos kom að láni
frá Real Madrid, eftir að hafa unnið
EM U21-landsliða í sumar, og David
Luiz frá Chelsea og vinstri bakvörð-
urinn Kieran Tierney frá Celtic bætt-
ust í vörnina í gær.
Manchester United lauk síðustu
leiktíð skelfilega og vann aðeins tvo af
síðustu níu leikjum sínum. Félagið
náði að styrkja vörn sína með því að
gera Harry Maguire að dýrasta varn-
armanni heims. Romelu Lukaku,
næstmarkahæsti maður liðsins síð-
asta vetur, var seldur til Inter í gær
og Ole Gunnar Solskjær fékk ekki
framherja í hans stað en hann virðist
ætla að standa við það að treysta á
unga leikmenn og fékk í sumar til sín
bakvörðinn Aaron Wan-Bissaka og
kantmanninn Daniel James.
Gylfi fengið góða liðsfélaga
Hvaða lið verða svo í baráttunni
fyrir neðan efstu sex, eða kemst eitt-
hvert þeirra jafnvel inn í þennan
elítuhóp? Everton hefur verið að gera
sig líklegt til þess eftir að Farhad
Moshiri eignaðist félagið. Þó að ekki
hafi tekist að landa Wilfried Zaha
hefur Everton líklega styrkst frá síð-
ustu leiktíð, þeirri bestu sem Gylfi
Þór Sigurðsson hefur líklega átt á
sínum ferli en hann skoraði 13 mörk
og lagði upp 6. Alex Iwobi bættist í
hópinn í gær frá Arsenal og áður
komu menn eins og miðjumaðurinn
Fabian Delph frá Man. City, fram-
herjinn ungi Moise Kean frá Juven-
tus og franski landsliðsbakvörðurinn
Djibril Sidibe frá Monaco.
Leicester, Wolves og West Ham
eru líkleg til þess að berjast á svip-
uðum slóðum og Everton, í efri hluta
töflunnar, en Wolves er einnig í bar-
áttu um að komast í riðlakeppni Evr-
ópudeildarinnar.
Jóhann Berg Guðmundsson og fé-
lagar í Burnley áttu erfitt uppdráttar
lengi framan af síðasta tímabili en
náðu að rétta úr kútnum og halda sér
að lokum í deildinni nokkuð örugg-
lega. Liðið gæti vel átt eftir að standa
í fallbaráttu aftur í vetur því Burnley
hefur lítið gert til að bæta sinn hóp í
sumar en fékk þó framherjann Jay
Rodriguez aftur heim. Jóhann missti
sæti sitt í byrjunarliði Burnley á síð-
ustu mánuðum síðustu leiktíðar en
lék alls 29 leiki og skoraði 3 mörk.
Burnley gæti verið ásamt Watford,
Southampton, Bournemouth og jafn-
vel Newcastle í baráttu um að vera
sem næst efri helmingi töflunnar.
Nýliðarnir þrír; Aston Villa, Sheffield
United og Norwich, eru líklegri til að
standa í fallbaráttu og Crystal Palace
og Brighton hafa sömuleiðis ekki gef-
ið til kynna að þau verði langt frá
fallsvæðinu í vetur. Villa-menn hafa
þó kostað miklu til þess að liðið festi
sig í sessi í deildinni, með því að verja
yfir 100 milljónum punda í nýja leik-
menn. Þessi kaupgleði tók hins vegar
af allan vafa um að félagið hygðist
ekki nota Birki Bjarnason sem fékk
sig lausan undan samningi í gær og
því ljóst að tveir Íslendingar verða í
deildinni í vetur.
Tveggja turna tal á ný?
Ný leiktíð í ensku úrvalsdeildinni hefst á Anfield í kvöld Man. City líklegt til
að landa titlinum þriðja árið í röð Óbreytt lið Liverpool helsta hindrunin?
AFP
Hörð barátta Georginio Wijnaldum og Kevin De Bruyne í skallaeinvígi í leiknum um Samfélagsskjöldinn síðustu
helgi. Liverpool og Manchester City háðu ævintýralega harða baráttu um enska meistaratitilinn síðasta vetur.