Morgunblaðið - 09.08.2019, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 09.08.2019, Blaðsíða 62
62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 Landsins mesta úrval af settum FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 Toppasett 3/8” Vörunr. BHSL34 Verð áður: 17.366 kr. Verð nú: 14.761 kr. Topplyklasett 1/4” og 1/2” Vörurnr. BHS560 Verð áður: 32.250 kr. Verð n ú: 27.413 kr.  Jóhann Berg Guðmundsson eign- aðist nýjan liðsfélaga hjá Burnley í gær þegar enska knattspyrnufélagið fékk miðjumanninn Danny Drinkwater að láni frá Chelsea. Lánssamningurinn gildir fram í janúar.  Enska knattspyrnufélagið New- castle nýtti lokadag félagaskipta- gluggans á Englandi í gær til þess að kynna tvo nýja leikmenn. Félagið fékk sænska bakvörðinn og landsliðsmann- inn Emil Krafth frá Amiens í Frakk- landi og framherjinn Andy Carroll sneri svo aftur til félagsins sem seldi hann til Liverpool fyrir metfé 2011.  West Ham fékk svissneska fram- herjann Albian Ajeti frá Basel í gær, fyrir 8 milljónir punda. Ajeti er 22 ára og skoraði 15 mörk í 35 leikjum síð- asta vetur.  Leroy Sané, sóknarmaður enska knattspyrnufélagsins Manchester City og landsliðsmaður Þýskalands, er með slitið krossband en þetta staðfesti fé- lagið í gær. Sané meiddist á hné í leik City og Liverpool um Samfélagsskjöld- inn sem fram fór á Wembley um síð- ustu helgi. Viðbúið er hann leiki ekkert með City á þessu tímabili. Sané hefur verið sterklega orðaður við Bayern München í allt sumar en City vill fá í kringum 150 milljónir punda fyrir leik- manninn.  Rúnar Sigtryggsson, þjálfari karla- liðs Stjörnunnar í handknattleik, hafn- aði tilboði um að snúa aftur til Þýska- lands og taka þar við liði Nordhorn, sem er nýliði í efstu deild. Skapti Hall- grímsson blaðamaður skýrði frá þessu á Facebook-síðu sinni í gær. Rúnar þjálfaði áður þýsku liðin Balingen og Aue. Eitt ogannað 15. UMFERÐ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þegar allt stefndi í að keppnin um sæti tvö til ellefu í úrvalsdeild karla í fótbolta færi endanlega í einn hnút, eftir ótrúlega þróun úrslita í júlí- mánuði, snerist dæmið við á rúmum sólarhring þegar 15. umferðinni lauk á þriðjudags- og miðvikudagskvöld. Breiðablik, Stjarnan, Valur og FH, ásamt meistaraefnum KR, unnu sína leiki og bættu stöðu sína í efri hluta deildarinnar en Fylkir, Grindavík, Víkingur og KA töpuðu öll og skilgreindu þar með fallbar- áttuna aðeins betur. HK hafði áður unnið þjóðhátíð- arleikinn í Vestmannaeyjum og hef- ur því náð mikilvægu fimm stiga for- skoti á Víking og KA sem sitja eftir í tíunda og ellefta sæti deildarinnar. Skagamenn biðu lægri hlut fyrir FH þegar Steven Lennon skoraði á 90. mínútu og síga hægt og rólega niður töfluna. Í stað þess að fjögur stig myndu skilja að botnbaráttuna og annað sætið, eins og hefði getað gerst eru línurnar orðnar aðeins skýrari. Við getum sagt að fimm lið séu í baráttu um Evrópusæti, Breiðablik, Stjarn- an, Valur, ÍA og FH en HK, Fylkir, Grindavík, Víkingur og KA séu í fall- baráttunni. Bilið á milli ÍA, FH, HK og Fylkis er hinsvegar það lítið að þetta getur allt breyst í næstu eða þarnæstu umferð. KR-ingar þurfa hámark 48 stig til að verða Íslandsmeistarar, sem þýð- ir að fjórir sigrar í síðustu sjö um- ferðunum skila titlinum í hús í Vest- urbænum, hvað sem önnur lið gera. Þeir eiga framundan afar áhuga- verða heimsókn í Kórinn á sunnu- daginn þar sem þeir mæta liði HK sem hefur líka verið á mikilli sig- urbraut og unnið fimm af síðustu sjö leikjum. Guðjón blómstrar hjá Blikum  Guðjón Pétur Lýðsson miðju- maður Breiðabliks var besti leik- maður 15. umferðar að mati Morg- unblaðsins. Hann átti mjög góðan leik á miðjunni hjá Kópavogsliðinu í 4:0 sigrinum á KA og lagði upp þriðja mark liðsins með glæsilegum tilþrifum þegar hann rændi bolt- anum af Akureyringum á miðjum vellinum og átti stungusendingu á Thomas Mikkelsen sem skoraði sitt annað mark í leiknum og gerði út um hann með því að koma Blikum í 3:0. Guðjón Pétur var einmitt kominn til KA í vetur en flutti aftur suður af fjölskylduástæðum og hefur átt marga góða leiki með Breiðabliki. Hann er einn reyndasti leikmaður liðsins, 31 árs gamall, og sneri aftur til Blika í vor eftir þrjú ár í Val og tvo Íslandsmeistaratitla þar. Guðjón lék áður með Blikum 2013-15 og hafði reyndar komið aðeins við sögu hjá þeim 19 ára gamall árið 2007. Annars spilaði hann með Haukum, Álftanesi og Stjörnunni á sínum yngri árum og hefur síðustu árin komið mikið að því í frístundum að efla meistaraflokk Álftaness með starfi utan vallar. Guðjón hefur spil- að 193 leiki í efstu deild og skorað í þeim 45 mörk en samtals 247 leiki og 54 mörk í öllum deildum. Nítján ára reynslubolti  Stjörnumaðurinn Alex Þór Hauksson var besti ungi leikmað- urinn í umferðinni en hann átti góð- an leik í 2:1 sigri á Víkingi. Eflaust átta ekki allir sig á því að Alex er enn aðeins 19 ára gamall en þetta er hans þriðja tímabil sem fastamaður á miðju Garðabæjarliðsins. Þá spil- aði Alex 12 ára gamall leik með Álftanesi í 3. deild árið 2012, lék reyndar aðeins í örfáar mínútur, en hann kom 15 ára gamall til Stjörn- unnar frá nágrönnunum á Álftanesi. Alex er kominn með 49 leiki í úrvals- deildinni með Stjörnunni, hefur þeg- ar spilað einn A-landsleik og er leik- maður 21-árs landsliðsins í dag þar sem hann á níu landsleiki að baki. Bjarni og Óskar jöfnuðu met  Bjarni Ólafur Eiríksson jafnaði leikjamet Vals í efstu deild þegar Valsmenn lögðu Fylki 1:0. Bjarni lék þar sinn 240. leik fyrir félagið í deildinni og náði með því aðstoð- arþjálfaranum Sigurbirni Hreið- arssyni sem lék 240 leiki fyrir félag- ið á árunum 1992 til 2011.  Óskar Örn Hauksson fyrirliði KR jafnaði markamet félagsins í deildinni þegar hann skoraði í 5:2 sigrinum á Grindavík. Hann gerði sitt 62. mark og náði Ellert B. Schram sem skoraði 62 mörk á ár- unum 1957 til 1971.  Hilmar Árni Halldórsson skor- aði sitt 10. mark fyrir Stjörnuna í deildinni í ár í sigrinum gegn Vík- ingi. Hilmar hefur þar með skorað 10 mörk eða meira í deildinni þrjú ár í röð en síðastur til að gera það er Atli Viðar Björnsson sem náði því fjögur ár í röð fyrir FH á árunum 2008 til 2011.  Patrick Pedersen skoraði sitt 50. mark fyrir Val í efstu deild þegar hann gerði sigurmarkið gegn Fylki. Hann er fjórði leikmaður Vals frá upphafi sem nær fimmtíu mörkum, á eftir Inga Birni Albertssyni, Her- manni Gunnarssyni og Guðmundi Þorbjörnssyni, og fjórði erlendi leik- maðurinn sem nær því í deildinni frá upphafi, á eftir Steven Lennon, Sin- isa Kekic og Mihajlo Bibercic. Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019 Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Ásgeir Börkur Ásgeirsson, HK 13 Óskar Örn Hauksson, KR 13 Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 12 Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 11 Kristinn Jónsson, KR 11 Alex Þór Hauksson, Stjörnunni 10 Kolbeinn Birgir Finnsson, Fylki 10 Sölvi Geir Ottesen, Víkingi R. 10 Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 10 Ólafur Karl Finsen, Val 9 Aron Bjarnason, Breiðabliki 9 Marcus Johansson, ÍA 9 Ásgeir Marteinsson, HK 8 Birkir Valur Jónsson, HK 8 Björn Berg Bryde, HK 8 Brandur Olsen, FH 8 Damir Muminovic, Breiðabliki 8 Elias Tamburini, Grindavík 8 Guðmundur Kristjánsson, FH 8 Gunnar Þorsteinsson, Grindavík 8 Helgi Valur Daníelsson, Fylki 8 Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 10 Thomas Mikkelsen, Breiðabliki 8 Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 7 Steven Lennon, FH 6 Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 6 Tobias Thomsen, KR 6 Óskar Örn Hauksson, KR 6 Markahæstir KR 86 HK 78 Stjarnan 74 Breiðablik 73 Valur 71 ÍA 69 Fylkir 67 Víkingur R. 67 FH 64 KA 64 Grindavík 60 ÍBV 43 Lið: Leikmenn: Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 15. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019 Höskuldur Gunnlaugsson, Breiðablik 8 Leifur Andri Leifsson, HK 8 Marc McAusland, Grindavík 8 Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 8 Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 8 Víðir Þorvarðarson, ÍBV 8 3-4-3 Daði Freyr Arnarsson FH Kristinn Jónsson KR Heiðar Ægisson Stjörnunni Guðjón Pétur Lýðsson Breiðabliki Kennie Chopart KR Alex Þór Hauksson Stjörnunni Thomas Mikkelsen Breiðabliki Eiður Aron Sigurbjörnsson Val Leifur Andri Leifsson HK Andri Adolphsson Val Hörður Árnason HK 43 3 2 2 2 Snerist við á sólarhring  Dró í sundur með Evrópuslagnum og fallbaráttunni á nýjan leik  Guðjón Pétur er leikmaður umferðarinnar og Alex Þór besti ungi leikmaðurinn Bestur Guðjón Pétur Lýðsson fagn- ar einu marki Breiðabliks gegn KA. Efnilegur Alex Þór Hauksson er kominn með heilmikla reynslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.