Morgunblaðið - 09.08.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.08.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hjúkrun er fag og fræði-grein í örri þróun oghlutverk hjúkr-unarfræðinga í heil- brigðisþjónustu verður æ viða- meira,“ segir Edda Dröfn Daníelsdóttir, sviðsstjóri fagsviðs Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga. „Í þjónustu við sjúklinga erum við þátttakendur í þverfaglegri sam- vinnu, þar sem sérfræðingar á mörgum sviðum koma að meðferð. Oft eru hjúkrunarfræðingar í hlut- verki leiðtoga og stjórnunar, þá í krafti þekkingar og reynslu.“ Horft til framtíðar á sögusýningu Á líðandi ári hefur þess verið minnst að 100 ár eru frá stofnun þeirra samtaka sem í dag mynda Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Afmælishóf var haldið í upphafi árs- ins og um miðjan júní var í Árbæj- arsafni opnuð sögusýningin Hjúkr- un í 100 ár sem er samstarfsverkefni með Borgarsögusafni Reykjavíkur. Fjölskylduhátíð sem tileinkuð er börnum hjúkrunarfræðinga og þeim börnum sem hjúkrunarfræðingar hafa hjúkrað síðustu öldina verður á Árbæjarsafni 15. ágúst næstkom- andi. Fyrrnefnd sýning á Árbæjar- safni Hjúkrun í 100 ár segir sögu hjúkrunar í samhengi við breytingar á stöðu kynjanna og þróunar í tækni og vísindum. Um leið er horft til framtíðar. Sýningin stendur til 17. nóvember og á haustdögum verður nemendum úr efstu bekkjum grunn- skóla boðið þangað sérstaklega. Er það, að sögn Eddu Drafnar, hluti af þeirri viðleitni að kynna hlutverk og störf hjúkrunarfræðinga ungu fólki sem er að velja sér menntun og starf. Þar verður ekki síst höfðað til ungra karla. Þurfum fólk af báðum kynjum „Nýlega fór hlutfall karla í stétt hjúkrunarfræðinga úr 2% í 3% og það fannst okkur talsverður áfangi. Við eigum samt talsvert í land sam- anber nágrannalöndin, þar sem karlar eru 10-20% hjúkrunarfræð- inga. Við þurfum fólk af báðum kynjum í þetta starf því við þjónum öllum; við fæðingu, lífslok og flest- um oft þar á milli,“ segir Edda Dröfn. „Á þetta höfum við minnt oft og víða að undanförnu, svo sem með myndum af okkar fólki sem voru birtar á strætóskýlum í borginni í tengslum við Alþjóðadag hjúkr- unarfræðinga sem er 12. maí ár hvert. Einnig hafa hjúkrunarfræð- ingar verið í áhugaverðum viðtölum á vef félagsins okkar. Edda Dröfn Daníelsdóttir nam hjúkrunarfræði í Danmörku og lauk námi árið 2002 og námi í verk- efnastjórnun, MPM frá Háskóla Ís- lands árið 2011. Eftir það starfaði hún um þriggja ára skeið á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi – en til starfa við verkefnsstjórn á sjúkrahúsinu sneri hún aftur nokkr- um árum síðar eftir að hafa unnið m.a. hjá lyfjafyrirtæki og við heima- hjúkrun. Kom svo til starfa hjá Fé- lagi íslenskra hjúkrunarfræðinga á síðasta ári en sem stjórnandi fag- sviðs sér hún meðal annars um menntunar- og fræðslumál, al- þjóðlegt samstarf og ráðstefnuhald. Hefur meðal annars haft með hönd- um skipulagningu og undirbúning ráðstefnunnar Hjúkrun 2019 sem verður í Hofi á Akureyri dagana 26.- 27. september næskomandi. Ein öflugasta stéttin Yfirskrift ráðstefnunnar á Ak- ureyri er Framtíð, frumkvæði og forvarnir: Getur hjúkrun bjargað heilbrigðiskerfinu? Verður þar efnt til fyrirlestra um niðurstöður rann- sókna, þróunar- og gæðaverkefni verða kynnt og og svo mætti áfram telja. Er þetta hluti af þeirri áherslu að gera fræðslumál í sinni víðustu merkingu að stærri þætti í starfi Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga. „Hjúkrunarfræðingar eru ein öflugasta stéttin í heilbrigðiskerfinu, en alls eru um 4.000 manns í félag- inu okkar og um 3.200 sem starfa í greininni. Samt er stöðugur skortur á hjúkrunarfræðingum og brýnt að þeim fjölgi, sem er sameiginlegt verkefni háskólanna og þeirra sem ráða för í heilbrigðiþjónustunni. Hjúkrun er starf tækifæranna og margir spennandi hlutir að gerast,“ segir Edda Dröfn. Starf tækifæranna Félag íslenskra hjúkr- unarfræðinga er 100 ára. Fagleg umræða og fjölskylduhátíð í Árbæj- arsafni á fimmtudag í næstu viku, 15. ágúst. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Öld „Hjúkrunarfræðingar eru ein öflugasta stéttin í heilbrigðiskerfinu,“ segir Edda Dröfn Daníelsdóttir hér á sögu- sýningunni í Árbæjarsafni þar sem varpað er ljósi á starfið sem breytist hratt eins og þjóðfélagið sjálft. Morgunblaðið/Hari Fróðleikur Frá opnun sýningar í Árbæjarsafni. Guðni Th. Jóhannesson for- seti Íslands fremst og svo hjúkrunarfræðingar í klæðum fyrri tíðar. Dagskráin á fjölskyldudegi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í Árbæj- arsafni 15. ágúst hefst kl. 14:15. Meðal þeirra sem þar koma fram eru Villi vísindamaður og Húlladúllan, auk þess sem sirkusfólk verður á sveimi á safnasvæðinu. Þá verða leiktæki fyrir börnin uppi allan tímann. Af öðru má nefna að sjúkrabíll verður til sýnis, vettvangstjaldi frá Landsbjörg verður slegið upp og bráðahjúkrunarfræðingar úr viðbragðs- sveit Landspítala kynna störf sín. Í leikjasafninu verða bæklunarhjúkr- unarfræðingar með fræðslu og beinagrind til sýnis. Þá verður farið í fjör- uga útileiki sem heilsugæsluhjúkrunarfræðingar stjórna. Einnig munu hjúkrunarfræðingar sem eru sérhæfðir í þjónustu við sykursjúka bjóða upp á blóðsykursmælingu. Skemmtun og kynning FJÖLBREYTNI Á FJÖLSKYLDUDEGI Bæjarhátíðin Sumar á Selfossi verður nú um helgina og meðal dagskrár- atriða þar er menningarganga um söguslóðir vestast í bænum. Á laug- ardag kl. 16.00 verður lagt af stað frá Tryggva- skála þar sem gengið verður um Selfossveg, vest- an Ölfusárbrúar, þar sem er sögu- skilti um fyrsta malbikaða veginn á Selfossi verða skoðuð. Síðan verður gengið inn Smáratún þar sem systkinin Sesselja Sigurðardóttir og Guðmundur Sig- urðsson, sem ólust upp í húsi númer 15 við götuna, segja frá Smára- túnshúsunum og hverjir bjuggu þar. Í Þóristúninu tekur Erla Guð- mundsdóttir hópnum og segja frá líf- inu við götuna, sem kennd er við landnámsmanninn Þóri Ásason hersi. Síðan verður staldrað við við Selfoss- kirkju og saga hennar rakin í nokkr- um orðum áður en hópurinn heldur að Selfossbæjunum þar sem Þorfinn- ur Snorrason verður til frásagnar. Umræddir bæir eru sem sveit í bæ og elstu húsin í þyrpingunni þar eru byggð í kjölfar Suðurlandsskjálft- anna árið 1896. Allir er velkomnir að taka þátt í þessum leiðangri þar sem Kjartan Björnsson bæjarfulltrúi er göngu- stjóri. Gengið um söguslóðir í bænum Menningarganga á Sumri á Selfossi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfossbærinn Gamalt hús frá 1896 sem nú hefur verið gert upp. Kjartan Björnsson GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Njóttu þess að hvílast í hreinum rúmfötum Við þvoum og pressum rúmfötin - þú finnur muninn! Norðurslóð, Strandgata 53, Akureyri VEGNA SKIPULAGSBREYTINGA ER VEITINGASTAÐURINN NÚ TIL LEIGU. Í SAMA HÚSNÆÐI ER MINJAGRIPAVERLSUN EINNIG TIL LEIGU. VEITINGASTAÐURINN OG VERSLUNIN LEIGJAST SAMAN EÐA HVORT Í SÍNU LAGI. Upplýsingar veitir Arngrímur í síma 895 7704
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.